Tíminn - 29.04.1972, Side 7

Tíminn - 29.04.1972, Side 7
Laugardagur 29. april 1972 TÍMINN 7 ÚtgcfandL Frawí6ktta rfloR-kurfnn :: : : : :Framkv*indaatÍ6ri;: lírlStfsn BCrMídikisSútl;: RitSÚöraí'l iÞórarirth: :::::: Þárarinsson : :!:áb)> Andtés ::Ktl*t{ánSSOrt,:: Jón: Hcigaíörty : :ltldriði ::::: G. Þorsteinsson og Tómas Karisson, Auglýsingastióri: Steirt- : grímur Oíslason. RllsfiórnarskrilfstÞtur i íddtl'búSÍrtU/ sftnat 183ÖO — 18306. skriístofur Bapkastræti 7. — Afgrctósiusfmi 1Í313/ Auglýsíngasimi 19523, A&rar skr|fstofpr simj T8308, Áskriftargíald kr. 128,60 á mánu&r itmanlands. í laUsasóiu kr, 16.00 álntakið. — Ðlaóaprertt h.f. lOfítsá) Þorvaldur gagnrýnir Geir ERLENT YFIRLIT Vinnur Muskie á því að draga sig í hlé? Wallace sakar Humphrey og McGovern um málahnupl Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að hörð átök eiga sér nú stað i innsta hring Sjálf- stæðisflokksins, og skiptast menn þar i hópa eftir þvi, hvort þeir vilja veita Geir Hallgrims- syni eða Gunnari Thoroddsen stuðning til að taka við forustunni. Meðal þeirra fáu þing- manna flokksins, sem ekki hafa enn látið uppi álit sitt i þessari deilu, er Þorvaldur Garðar Kristjánsson, enda er hann framkvæmdastjóri þingflokksins. Þó má vel ráða af grein, sem Þorvaldur birti i Mbl. i fyrradag, hvar hann stendur i þessari deilu. Grein Þorvaldar fjallar um fasteignaskattana, og er hún látin lita út sem ádeila á rikisstjórnina. Þegar nánar er að- gætt, verður þó ljóst, að hún er fyrst og fremst ádeila á Geir Hallgrimsson. í grein Þorvaldar er sérstök áherzla lögð á, hve ranglátt sé að leggja háa fasteignaskatta á ibúðarhúsnæði. Þetta sé ranglátt gagnvart gömlu fólki, sem hafi með dugnaði eignazt eig- in ibúð og verði i ellinni að greiða háa skatta af þessari eign sinni. Þá sé þetta ekki siður rang- látt gagnvart ungu fólki, sem leggi hart að sér til þess að eignast eigin ibúð. Þetta er hverju orði sannara hjá Þorvaldi. En hvað gerir flokksbróðir hans, borgarstjór- inn i Reykjavik? Á einum mesta ofþenslutima sem hér hefur verið, tvöfaldar hann framlög borgaranna til framkvæmda i þvi augnamiði að geta réttlætt 50% hækkun fasteignaskatts. Fulltrúar minnihlutaflokkanna i borgarstjórn beittu sér sérstaklega fyrir þvi, að þessi hækk- un fasteignaskattsins yrði ekki látin ná til ibúð- arhúsnæðis. Geir Hallgrimsson skeytti þvi engu. Hann beitti Albert Guðmundsson ofriki til þess að koma þessari hækkun fram, i þeirri von að geta kennt rikisstjórninni um hana. Bersýnilegt er, að Þorvaldi Garðari geðjast ekki að slikum vinnubrögðum. Hann er ekki einn um það. Fátt mun verða reykviskum ibúð- areigendum meiri áminning um, að það er kominn timi til að skipta um forustu i borgar- málum. Þeir hafa ekkert að gera með borgar- stjóra, sem setur landsmálabaráttuna og stjórnarandstöðuna ofar hagsmunum borgar- búa. Á Alþingi i fyrra fluttu tveir þingmenn Framsóknarflokksins frumvarp um þá breyt- ingu á lögum um orlof húsmæðra, að rikið hækkaði framlag sitt til orlofsins úr 10 kr. i 100 kr. fyrir hverja húsmóður i landinu. í nýju frumvarpi um orlof húsmæðra, sem félags- málaráðherra hefur lagt fyrir Alþingi, er þessi tillaga tekin upp, og framlagið til orlofs hús- mæðra þannig stóraukið. Væntanlega gengur þetta frumvarp fram, og ætti þvi að vera hægt að stórauka þessa merku starfsemi strax á þessu ári. SVO FOR, eins og spáð hafði verið, að Edmund S. Muskie, öldungadeildarþingmaður frá Maine, tapaði i báðum próf- kjörunum, sem fóru fram siðastl. þriðjudag, eða fyrir Humphrey i Pennsylvania og McGovern i Massachusetts. Muskie hefur nú dregið þá ályktun af þessum ósigrum sinum, að hann hefur dregið sig i hlé og hætt þátttöku i prófkjörunum, en hins vegar lýst yfir þvi, að hann sé áfram reiðubúinn að vera i framboði, ef flokksþingið æskir þess. Áður en Muskie hafði birt þessa yfirlýsingu, höfðu margir blaðamenn haldið þvi fram, að Muskie ætti ekki orðið aðra leið eftir, ef hann ætti að ná útnefningu á flokks- þinginu, en að draga sig i hlé og biða þess, að ekki næðist samkomulag um þá Humphrey og McGovern, og þvi yrði leitað til hans, þar sem fylgismenn beggja gætu bezt sætt sig við hann sem frambjóðanda að þeim frágengnum. Enn benda lika skoðanakannanir til þess, að Muskie sé það forsetaefni demókrata, sem liklegast sé til að sameina flokkinn og ná beztum árangri i lokaglimunni við Nixon. 1 ýmsum ameriskum blöðum er bent á, að ósigrar Muskies i prófkjörunum séu þess eðlis, að þeir þurfi ekki að spilla fyrir honum i sjálfum forsetakosningunum. Höfuð- orsök þeirra se', að hann ætlaði sér of mikið, þ.e. að taka þátt i þeim öllum, eða i 23 rikjum alls. Til þess að heyja slika baráttu, hafði hann hvorki tima né peninga. Keppinautar hans ákváðu hins vegar að einbeita sér að aðeins fáum prófkjörum, og hefur sú hernaðaraðferð gefizt þeim betur. Þeir studdust lika meira við ákveðna hópa og klikur i flokknum, en Muskie hafði engan slikan kjarna að styðjast við, þvi að hann lagði áherzlu á að sameina flokkinn og fá sem mesta breidd i fylgi hans. Þetta er ekki heppileg leið i prófkjörum, en getur hins vegar gefizt vel i sjálfum aðalkosningunum. ÚRSLITIN á þriðjudaginn urðu mikill sigur fyrir þá MacGovern og Humphrey og þá einkum fyrir þann siðar- nefnda. McGovern vann glæsilegan sigur I Massachusetts, enda var hann þar næstum einn um hituna, þvi að á lokastiginu lagði Muskie, sem var eini keppinautur hans þar, aðal- á'erzlu á að halda hlut sinum i Pennsylvania. Það styrkti svo McGovern, að hann hafði stuðning Kennedyættarinnar. Edward Kennedy lýsti sig að visu hlutlausan, en ekkja Roberts Kennedy lýsti yfir stuðningi við McGovern, og Kathleen dóttir hennar mætti á kosningafundum með honum. Vafalaust hefur McGovern munað drjúgt um þetta. I Pennsylvania þurfti Humphrey ekki aðeins að Muskle keppa við Muskie, sem beitti sér aðallega þar, heldur einnig við Wallace, og á lokastiginu McGovern, sem taldi sig orðinn svo öruggan i Massachusetts, að hann gæti einnig sinnt Pennsylvania. Þá studdi flokksvélin Muskie. Samt hlaut Humphrey 36% atkvæðanna, en þeir Muskie og Wallace 21% hvor, en McGovern nokkru minna. Sigur Humphreys byggðist mjög á þvi, að hann naut fylgis verkalýðssamtakanna og svertingja, og naut hann þar gamals og nýs stuðnings sins við þessa aðila. Vafalaust á það eftir að reynast Humphrey áfram mikill styrkur, að verkalýðssam- tökin standa með honum, eða álika fast og menntamenn og skólafólk fylgir McGovern. En báða skortir þá verulegt fylgi hjá millistéttunum, þar sem Wallace nær mestu af fylgi sinu. EFTIR úrslitin á þriðjudag- inn mun aðalbaráttan i próf- kjörunum verða milli þeirra Humphreys og McGovern, en Wallace mun viða gera þeim skráveifur og jafnvel bera sigur úr býtum. Þeir munu þó ekki taka það nærri sér, þvi að vitað er, að hann mun ekki koma til greina á flokksþinginu. Þeir Humphrey og McGovern munu næst leiða saman hesta sina i Ohio og Indiana, en þar fara prófkjör fram næsta þriðjudag. Þá fara einnig fram prófkjör i Alabama og Columbiahéraði, þar sem Washington er. Mest athygli beindist að prófkjörinu i Ohio, sem er eitt af stærstu rikjunum. Liklegar horfur eru nú þær, að þeir Humphrey og McGovern verði einnig fylgissterkastir þegar á flokksþingið kemur, eða nánara sagt, að þeir hafi flesta fulltrúa að baki sér. En sá böggull mun fylgja skammrifi hjá báðum, að hvorugur þykir liklegur til að sigra Nixon. Vinstri armur demokrata mun veita Humphrey litinn stuðning, eða jafnvel snúast gegn honum. McGovern mun hins vegar ganga illa að fá fylgi hægri armsins og einnig óháðra kjósenda, en það eru þeir, sem ráða úrslitum. Wallace notar nú oft vigorð i sambandi við McGovern, sem ýmsir telja að hitti i mark, en það er á þá leið, að McGovern sé það forsetaefna demókrata, sem auðveldast yrði fyrir Nixon að sigra. Vegna framangreindra astæðna spá ýmsir þvi, að hvorki Humphrey né McGovern nái útnefningu á flokksþinginu, heldur berist böndin þar að þriðja manni, og eru nú helzt tilnefndir þeir Muskie og Kennedy. En margir óttast þó, að slysið sem Kennedy lenti i fyrir fáum árum, verði honum mikill fjötur um fót, og liða þurfilengri timi frá þvi, ef hann eigi að reynast sigursæll i forsetakosningum. Hingað til hefur Kennedy gert sér þetta ljóst. ÞÓTT einkennilegt megi virðast, hafa striðsatburðirnir i Vietnam ekki enn sett veru- legan svip á kosningabar- áttuna i Bandarikjunum. Ástæðan er sú, að forsetaefni demokrata virðast alveg eins reikna með þvi, að Nixon verði búinn að ná samkomulagi i Vietnam fyrir forsetakosning- arnar, og það geti orðið vatn á myllu hans. Þeir hafa þvi næstum eingöngu einbeitt sér að innanlandsmálum, og þá fyrst og fremst skattamálum og verðlags- og kjaramálum. Wallace getur þvi með veru- legum rétti sagt, að þeir Humphrey og McGovern séu búnir að stela stefnunni sinni, en hann hefur siðustu dagana einkum deilt á McGovern fyrir málahnup K Þvi verður ekki heldur neitað, að mál- flutningur Wallace og sigur hans i Flórida hefur sett mikinn svip á kosningabar- áttuna siðan. Þar hóf Wallace sóknina gegn hinum háu sköttum, sem almenningur yrði að bera, meðan auðmenn og auðhringar fengju alls konar skattaundanþágur. Wallace hét þvi að rétta hlut hins óbreytta borgara og afnema sérréttindi auðmanna og auðhringa, sem réðu alltof miklu um vinnubrögð stjórnarinnar og þingsins i Washington. Humphrey og McGovern hafa greinilega orðið þess varir, að þessi mál- flutningur Wallace hefur fallið i góðan jarðveg, og þvi hafa þeir reynt að þvo hendur sinar og bergmálað sum vig- orð hans. Ekki sizt hefur McGovern gert þetta og orðið betur ágengt, þvi að viður- kennt er, að hann hafi verið valdameiri I Washington en Humphrey og Muskie. Þ.Þ. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.