Tíminn - 29.04.1972, Page 11
Laugardagur 29. apríl 1972
TÍMINN
n.
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
TEKST ÍR AÐ JAFNA
METIN
í DAG?
Alf-Reykjavlk.
Ráðast úrslitin i Islandsmótinu
i körfuknattleik í dag? Þessari
spurningu velta margir fyrir sér,
en I dag, kl. 16.30 hefst siðari
leikur IR og KR i 1. deildar
keppninnifen eins og kunnugt er,
eru þetta tvö sterkustu félögin i
deildinni og hafa elt grátt silfur I
áraraðir.
Eins og sakir standa er staða
KR-inga betri, en þeir eru tap-
lausir eftir 13 leiki, en IR hefur
tapað aðeins einum leik, gegn
KR, og þarf þvi að sigra KR i dag
til að eiga möguleika á Islands-
meistaratitlinum, en þá fer fram
hreinn úrslitaleikur um Islands-
meistaratitilinn.
KR-ingar munu tefla sinu
sterkasta liði fram, m.a. munu
Brynjólfur Markússon, Guð-
mundur Pétursson og Hjörtur
Hansson leika með liðinu i dag, en
þessir leikmenn hafa ekki tekið
þátt i undanförnum leikjum með
KR.
Ekki er heldur að efa, að IR-
ingar muni tjalda sinu bezta, og
eru þeir, að sögn, staðráðnir i að
sigra KR i dag. Liðið hefur sýnt
mjög góða leiki undanfarið, með
Kristin Jörundsson i broddi fylk-
ingar, en þeir mega halda vel á
spöðum, ef þeir eiga að ná þvi
takmarki i dag.
Bjarni Jóhannesson, nýjasta stjarna KR-liðsins, tekur frákast frá
Birgi Jakobssyni, IR. Þessir ágætu leikmenn mætast I leiknum Idag.
TVÍSÝN KEPPNI
í BADMINTON
Um helgina fer fram i íþrótta-
höllinni i Laugardal meistaramót
Islands i badminton, sem er hiö
24. I röðinni.
Mótið hefst með setningu for-
manns B.S.I., Einars Jónssonai;
kl. 14.00 I dag, en keppni hefst
strax á eftir. Orslitaleikir verða
siðan leiknir á sunnudag og hefst
keppni þá einnig kl. 14.00.
Þátttaka I þessu móti er svipuð
og i fyrra eöa 78 keppendur, sem
skiptast þannig milli félaga:
T.B.R.
K.R.
Valur
I.A.
I.B.V.
T.B.S.tSiglufj.)
40keppendur
20 keppendur
7 keppendur
5 keppendur
4 keppendur
2 keppendur.
Alls verða leiknir 89 leikir og
verður leikið á 8 völlum fyrri dag-
inn, en á sunnudag fara fram
mest 2 úrslitaleikir samtimis.
Keppt veröur i meistaraflokki
og A-fiokki karla og kvenna.
Allir beztu badminton leikarar
landsins taka þátt i mótinu, sem
verður ugglaust mjög tvisýnt.
Meðal keppenda eru Haraldur
Korneliusson T.B.R., sem hefur
veriö allsráðandi hér undanfarin
2.-3 ár, með honum i tviliðaleik er
Steinar Petersen, en þeir gera
áreiöanlega sitt
til að endurheimta tslands-
meistartitilinn I tviliöaleik frá
þeim Jóni Arnasyni og Viðari
Guðjónssyni T.B.R. Spennandi er
að vita, hvernig Óskari Guð-
mundssyni K.R. tekst upp nú, en
hann er i góðri æfingu, eins og
kom berlega I ljós á nýafstöðnu
Reykjavikurmóti, þegar þessi
siungi meistari sigraði ásamt
mágkonu sinni, Jóninu
Nieljohnsiusardöttur.T.B.R. I
tvenndarkeppni. Sigurður Har-
Betur má, ef
duga skal!
Skipulag knattspyrnumóta
hefur löngum þótt ábóta-
vant. Sjaldan, eða aldrei,
hefur skipulagið þó verið
með meiri endemum og ein-
mittnú. Fyrsta „alvörumót”
sumarsins, Reykjavikur-
mótið I knattspyrnu, er svo
úr skorðum gengið, að knatt-
spyrnumenn félaganna eiga
fullt I fangi með að fylgjast
með breytingum, sem verða
á niðurröðun leikja frá degi
til dags. Fyrst var niður-
röðun breytt vegna lands-
liðsæfinga. Og nú berast
breytingar vegna fyrir-
hugaðrar heimsóknar
skozka 1. deildar liðsins
Mortons.
Þessi hringlandaháttur
ber knattspyrnuforustunni
ekki fagurt vitni. Mótskipu-
lag er ekki svo flókið mál, að
þessi hringlandaháttur þurfi
að viðgangast. Það er hægt
að skipuleggja mót, ferðir
islenzkra liða erlendis, og
heimsóknir erlendra liða,
með ársfyrirvara, en i stað-
inn er verið að biða með
skipulag þessara mála fram
á siðustu stundu, unz allt er
komið I óefni. Og hvers
vegna þurfti KSt að biða með
skipulagningu á landsliðs-
æfingum svo lengi? KSt
hafði allan veturinn fyrir
sér.
Þessi hringlandaháttur
gerir það að verkum, að
almenningur missir áhugann
á knattspyrnumótum, enda
er nú svo komið, að þeir
aðilar, sem eiga að skýra frá
knattspyrnumótum i fjöl-
miðlum, þ.e. iþróttafrétta-
ritarar vita vart lengur,
hvenær leikir eiga að fara
fram. Ekkki er von, að vel
fari. -alf.
Fram tekur skíðaíþrótt-
ina á stefnuskrá sína
S.l. miðvikudag var
stofnuð skiðadeild
Knattspyrnufélagsins
Fram. Formaður deild-
arinnar var kjörinn
Steinn Guðmundsson, en
meðstjórnendur Baldur
Jónsson og Erlendur
Magnússon. 1 varastjórn
eiga sæti Július Sigurðs-
son, Guðmundur Guð-
mundsson og Elmar
Geirsson.
Á stofnfundi skíðadeildar Fram
var talsvert rætt um framtlöar-
athafnasvæði deildarinnar og var
einkum rætt um Bláfjöli I þvl
sambandi.
Þá kom fram, að skföadeild
Fram hyggst sækja um inngöngu
I Skiðaráö Reykjavlkur. Einnig
kom fram, að mikill áhugi er á
skíðaiökun meðai ibúa Alfta-
mýrarhverfis, einkum meöal
yngri kynslóðarinnar. Var rætt
um það á stofnfundi skfðadeiidar
Fram aö efna til skiöaferða fyrir
unga fóikið I Alftamýrar-, Safa-
mýrar- og Háaleitishverfi
Stjórn hinnar nýstofnuðu skiðadeildar Fram: Fremri röð frá vinstri: Gunnar V. Andrésson, Steinn
Guðmundsson, formaöur og Erlendur Magnússon. Aftari röö: Júiius Sigurösson, Þorleifur Óiafsson og
Baidur Jónsson.
aldsson T.B.R. er ungur og efni-
legur og raunar aðeins tima-
spursmál hvenær hann haslar sér
völl meðal Islandsmeistara, en
hann vakti athygli á Réykja-
vikurmeistaramótinu um daginn.
Jóhannes Guðjónsson og Hörður
Ragnarsson frá Akranesi vöktu
athygli i úrslitum i tviliöaleik á
Islandsmótinu i fyrra og munaði
þá mjóu/að þeim tækist að sigra i
aukalotu. Reynir Þorsteinsson
K.R. er ákveöinn leikmaður með
mikið þol og hefur oft komið á
óvart, var m.a. I úrslitum i ein-
liðaleik á Islandsmótinu I fyrra.
Friðleifur Stefánsson K.R. og
Garðar Alfonsson T.B.R. eru
reyndir og gamalkunnir meistar-
ar.
Kvenfólkið hefur undanfarið ár
sýnt mikla hörku I leikjum sinum
og mun áreiðanlega verða svo
enn. I A-flokki eru margir efni-
legir spilarar og verður slagurinn
að likindum ekki siður harður
þar.
Óhætt er að segja.aö nú fari
fram eitt mest spennandi Islands-
mót I badminton frá upphafi og
ættu þvi badmintonunnendur að
notfæra sér tækifærið og fylgjast
meö spennandi keppni.
Aðalfundur
SKIÐAFÉLAGS REYKJAVÍKUR
verður haldinn I Skiðaskáianum i
Hveradölum fimmtudaginn 4.
mal kl. 20.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
________________Stjórnin.
Frjálsíþróttir
í sumar
Frjálsiþróttamenn hafa fyrir
nokkru skipulagt öll mót sumars-
ins. Hér á eftir fer skrá um þau:
30. april Laugardalshlaup KR —
4. mai Fimmtudagsmót FIRR —
11. mai Fimmtudagsmót FIRR —
14. mai Tjarnarboðhlaup KR —
18. mai Fimmtudagsmót FIRR —
25. mai Vormót IR — 1. júni EÓP-
mótið — 7.-8. •’júnifMeistaramót
Islands (tugþraut o.fl. greinar) —
16.-17. júni 17. júnimót — 22.-23.
júni Drengja- og unglinga-
meistaramót Reykjavikur. — 26,-
27. júni Tugþrautarlandskeppnin
tsland-Bretland-Spánn. Einnig
fer fram fimmtarþraut Rvikur-
móts kvenna i sambandi viö mót-
ið — 1.-2. júli Unglingameistara-
mót íslands — 6. júli Fimmtu-
dagsmót FIRR — 10.-11. júli Ung-
lingalandskeppnin Island-Dan-
mörk. (Keppt i aukagreinum full-
orðinna) — 13. júli Alþjóðlegt mót
FRI, 25 ára afmælismót. — 15.-16.
júli Meistaramót Reykjavikur,
tugþraut o.fl. greinar. — 22.-24.
júli Meistramót Islands, karlar
og konur, aðalhluti. — 27. júli
Fimmtudagsmót FIRR— 3. ágúst
Fimmtudagsmót FIRR — 12.-13
árgúst Bikarkeppni FRl — 17.
ágúst Meistarmót Reykjavikur,
fimmtarþraut karla og 10 km
hlaup — 24. ágúst Fimmtudags-
mót FIRR — 31. ágúst Fimmtu-
dagsmót FIRR — 2.-3. sept
Sveina- og meyjameistaramót
Reykjavikur. — 7. sept Fimmtu-
dagsmót FIRR — 16.-17. sept
Landið - Reykjavik. — 23.-24.
sept. Meistaramót Reykjavikur,
aðalhluti (karlar og konur). — 28.
sept Fimmtudagsmót FIRR. — 5.
október Fimmtudagsmót FIRR.
I þessari upptalningu er ein-
göngu getiö um mót haldin I
Reykjavik, en ekki mót erlendis á
vegum FRl og annarra aðila. 1
þvi sambandi má geta lands-
keppninnar I Noregi 29.30. júlf, en
auk þess tekur frjálsiþróttafólk
þátt i mótum, I Moskvu, Rostock,
Oslo og viðar.