Tíminn - 19.01.1973, Page 16
16
TÍMINN
Föstudagur 19. janúar 1973
Þorsteinssonl
GKIU) MÚI.I.KR, cfta „Bomber”, eíns og hann er kallaöur i
V-Pý/.kalandi. Tekst honum aö koma knettinum i netiö hjá
Ajax?
Ajax og Bayern
AAíinchen mætast
í Evrópukeppni
meistaraliða
— Gerd A/luller og Johan Cruyff verða
í sviðsljósinu, þegar beztu félagslið
heims mætast í 8-liða úrslitunum
iö frá Vestur-Þý/.kalandi, Bay-
ern Munehcn, sem á sex fasta
landsliösmcnn i v-þý/ka lands-
liöinu, sem er núverandi
Kvrópumeistari landsliöa. Meö
Bayern leika t.d. Beekenbaucr,
var kosinn knattspyrnumaður
Kvrópu 1972, og Gerd Miiller,
sem fékk gullskóinn fyrir aö
vera markhæsti leikmaöur
Kvrópu 1972. Meö Ajax lcikur
he/ti knattspyrnumaöur heims,
Jolian C'ruyff. sem er hreinn
galdramaöur meö knöttinn.
Ajax er talið bc/ta félagslið
lieinis i dag. Liðið sigraði
Kvrópukeppni meistaraliða 1971
og 1972; 1971 vann liöiö Pana-
thinaikos i úrslitaleik á Wemb-
ley 2:0. 1972 vann liðið Inter Mil-
an i úrslitaieik i Rotterdam 2:0,
liöiö lék einnig til úrslita 1909, en
þá tapaöi þaö fyrir A.C. Milan i
Madrid 1:4.
Bayern Munchen hefur veriö
bezta félagsliö Vestur-Þý/ka-
lands undanfarin ár, og hefur
lélagiö einu sinni sigrað
Kvrópukeppni bikarmeistara,
þaö var áriö 19(17, en þá sigraði
liöiö úrslitaleik gegn Rangers
1:0 i Nurmberg.
Eftirtalin lið leika saman i
Evrópukeppnunum þremur —
leikir liðanna eiga að fara fram
7. til 21. marz n.k.
Kvrópukeppni meistaraliöa:
Ajax—Bayern Miínchen
Dynamo Kiev—Real Madrid
Juventus—Ujpest Dozsa
Spartak Trnava—Derby
Kvrópukeppni bikarhafa:
Hibernian—Hajduk Split
Schalke 04—Sparta Prag
Leeds—Rapid Búkarest
Spartak Moskva—A.C. Milan
UKFA-bikarkeppnin:
Liverpool—Dynamo Dresden
Tottenham—Vitoria Setubal
Kaiser-
slautern—Mönchengladbach
OFK Belgrad— T wente
Entschede
Tvö bc/tu félagslið heimsins i
knattspyrnu hafa drcgizt saman
i S-liöa úrslitum i Kvrópukeppni
ineistaraliöa. Þaö eru Ajax
Amsterdam, Kvrópumeistarar
tvö undanfarin ái; og stjörnulið-
JOHAN CRUYFF fær erfitt hlut-
verk, þegar hann leikur gegn
Bayern, nefnilega að reyna að
komast fram hjá Beckenbauer og
Co.
VIGGÓSIGURÐSSONSÝNDI
STJÖRNULEIK GEGN ÍR
- hann skoraði fjögur mörk í röð í síðari hálfleik, og var hann
maðurinn á bak við góðan sigur Víkingsliðsins,sem sigraði ÍR 21:18
Viggó Sigurðsson, ungur og
efnilegur handknattleiksmaður
úr Víking, var maðurinn á bak viö
góöan sigur liös sins gegn ÍR f 1.
dcild íslandsmótsins i handknatt-
leik. Viggó skoraði fjögur mörk i
röö fyrir lið sitt i siðari hálflcik —
miirk sem réöu úrslitum ieiksins.
Ilvaöeftir annaö brauzt hann lag-
lega i gegnum iR-vörnina og
skoraöi. Þá vakti athylgi mark-
var/la Kiriks Þorsteinssonar,
hins kunna knattspyrnumanns en
hann varöi oft meistaralega skot
af linu og úr hraöupphlaupum.
Meö þessum sigri, er Vikingsliöiö
komiö i annaö sæti i 1. deildar-
keppninni.
Vikingur og 1R stilltu upp sinu
sterkasta strax i byrjun leiksins á
miðvikudagskvöldið. Það var
greinil., að leikurinn hafði mikla
þýðingu fyrir liðin. Eftirtaldir
leikmenn byrjuðu inn á : íR:Geir
Thorsteinsson, Ólafur Tómasson,
Þórarinn Tyrfingsson, Gunnlaug-
ur Hjálmarsson, Vilhjálmur
Sigurgeirsson, Jóhannes Gunn-
arsson, og Brynjólfur Markússon.
Vikingur: Rósmundur Jónsson,
Guðjón Magnússon, Jón Sigurðs-
son, Einar Magnússon, Sigfús
Guðmundsson, Páll Björgvinsson
og Stefán Halldórsson.
Brynjólfur skoraði fyrsta mark
leiksins á 2. min., en Stefán
Halldórsson jafnaði fyrir Viking
1:1 rétt á eftir. Þegar 10 min. voru
liðnar af leiknum, var staðan orð-
in 4:4. Þá skoruðu þeir Þórarinn
og Gunnlaugur fyrir IR, og
breyttu stöðunni i 6:4. Viggó
Sigurðsson skoraði næsta mark
leiksins og minnkaði muninn i
6:5.
Um miðjan hálfleikinn skeði at-
vik, sem greinilega fór i skapið á
IR-liðinu. Það var i sókn, og
Brynjólfur var með knöttinn,
þegar hann var sleginn úr hönd-
unum á honum og ekkert dæmt.
Vikingsliðið brunaði upp völlinn
og skoraöi 6:6. IR-ingar mót-
mæltu og það, sem fór með IR-lið-
ið, var að leikmenn liðsins voru
að mótmæla allan leikinn, nokkuð
sem fer i taugarnar á dómurum.
IR-liðið fékk dómarana á móti
sér, og var það ekki til að lifga
upp andann i liðinu.
Staðan i hálfleik var 11:10 fyrir
Viking og leikurinn hélzt jafn i
byrjun siðari hálfleiksins. Þá
máttisjá tölur eins og 11:11, 12:12
og 13:13, en þá reyndu IR-ingar
ótimabært skot, og Vikingur
komst yfir 16:13. 1R minnkaði
muninn i 16:15, og á þeim tima
lætur Brynjólfur verja frá sér úr
hraðupphlaupi. Viggó Sigurðsson
skoraði 17:15, þá skoraði
Vilhjálmur fyrir 1R og Viggó
svaraði með góðu gegnumbroti,
18:16, var það fjórða mark Viggós
i röð.
Eirikur lét líka að sér kveða,
hann varði tvisvar skot af linu,
frá IR-ingunum, Jóhannesi og
Ólafi og Vikingur jók forskotið,
Einar Magnússon skoraði, 19:16,
úr vitakasti.
Á 26. min. skoraði Sigfús Guð-
mundsson, 20:16, af linu, en áður
hafði knötturinn lent tvisvar i
þverslá IR-marksins — fyrst átti
Guðjón skot i slá, knötturinn
h'rökk til Stefáns, sem einnig
skaut i slá og þaðan til Sigfúsar,
sem skoraði. Atvik þetta lifgaði
heldur betur upp á áhorfendur,
sem fylltu Laugardalshöllina, og
þegar IR-liðið fór að leika maður
á mann, risu áhorfendur upp úr
sætum sinum, þvi að spenningur-
inn var geysilegur. IR-liðinu tókst
ekki að brúa bilið, leiknum lauk
með sigri Vikings 21:18.
Þó að leikurinn væri spennandi,
þá léku bæði liðin undir getu. Þau
hafa oft leikið betri handknatt-
leik. Viggó Sigurðsson var maður
leiksins. Hann dreif upp Vikings-
liðið, og fjögur gullfalleg mörk
hans i siðari hálfleik, réðu úrslit-
um leiksins. Viggó fer fram með
hverjum leik, þar er á ferðinni
leikmaður, sem tekur sénsa og
kemur á óvart með skemmtileg
gegnumbrot, sem oft á tiðum
virðast vonlaus. Þá átti Eirikur
Þorsteinsson, sem lék sinn fyrsta
leik i marki Vikings, mjög góðan
leik.
IR-liðið lék sinn slakasta leik i
Isl.mótinu. Leikm. liðsins létu
lélega dómara leiksins hafa áhrif
á sig, — nokkuð sem ekki á að
henda eins leikreynda menn og i
IR-liðinu. Nöldur út af dómara
borgar sig aldrei, það verður
bara til þess, að leikmenn verða
svekktir, og bitnar það mest á
Kirikur Þorsteinsson sýndi mjög góöan leik i marki Víkings gegn ÍR. Hér á myndinni sést hann verja
skot frá Jóhannesi Gunnarssyni i siðari hálfleik. Rétt áður varði hann skot úr svipaðri aöstööu frá Ólafi
Tómassyni. (Timamynd Róbert)
Víðavangshlaup á vegum
UMSK hefst um helgina
Nú á næstunni munu félög inn-
an UMSK gangast fyrir opnum
viöavangshlaupum . Eru þessi
viöavangshlaup sett á laggirnar
fyrir frjálsiþróttafólk sem æfir á
veturna, en hingaö til hafa litil
verkefni veriö fyrir frjálsíþrótta-
fólk. Vegleg verðlaun verða veitt
sigurvegurum i flokkum karla og
kvenna — farandgripir sem keppt
veröur um árlega. Hlaupin verða
þrjú og hefst það fyrsta um helg-
ina, svo kallað Kópavogsklaup,
siðan kfinur Bessastaöahlaup og
Alafosshlaup.
KÓPAVOGSHLAUP verður
haldið á vegum Frjálsiþrótta-
deildar Breiðabliks sunnudaginn
21. jan. kl. 14.00. Keppendur
verða að mæta við Vallargerðis-
völl kl. 13.00.
BESSASTAÐAHLAUP verður
haldið á vegum Stjörnunnar og
Umf. Bessastaðahrepps og Álfta-
nesi. Hefst það sunnudaginn 11.
feb. kl. 14.30 við Bessastaðaveg.
ALAFOSSHLAUP verður
haldið á vegum' Aftureldingar
i Mosfellssveit 11. marz kl. 14.00.
Hlaupið hefst við vegamót Úlfar-
fellsvegar og Vesturlandsvegar.
öll þessi hlaup verða opin og
ætluð fólki eldra en 14 ára. Karlar
hlaupa um 5 km. en konur um 2
km.