Tíminn - 27.04.1973, Blaðsíða 19
Föstudagur 27. apríl 1973.
Bermúda
markshraða, sem er 35 km. alls
staðar. Kýr hænsni, hundar og
kettir eru hvar vetna á ferli. Allir
búa i litlum einbýlishúsum með
griðarstórum trjágörðum i kring.
Vanti eigendur húsanna aura i
vasann, setjast þeir upp hjá ætt-
ingjum og leigja húsið ferða-
mönnum fyriroffjár. Ef einhvern
langar til að kaupa sér hús á
Bermúda, má geta þess að
meðalverð á húsi með einu svefn-
herbergi og stofu er 50 þúsund
dollarar eða tæpar fimm
milljónir. Okkur þótti alveg nóg
um verðlagið á öllum hlutum
þarna og vorum þó búin að vera
bæði i Hawaii og Tókió, sem
okkur var i hvort skiptið sagt, að
væru dýrustu staðir i heimi. bað
er áreiðanlega dýrara að lifa á
Bermúda, en þó er þarna engin
fátækt, langt þvi frá. Areiðanléga
geta ekki margar þjóðir af þess-
ari stærð og 56 þúsund ibúa, ef
þær eru þá til, státað af tveggja
rása sjónvarpskerfi i litum og 5
rása útvarpi, ásamt 6 blöðum. Að
visu er aðeins eitt þeirra dagblað,
en maður getur lika gengiö þar
inn á ritstjórnarskrifstofur og
beðið hversdagslega um að fá að
sjá eintak siðan 3. ágúst 1784 og
hvert einasta siðan, ef maður
kærir sig um.
Sem smádæmi um verðlagið á
algengustu hlutum, vil ég nefna,
að kókflaska kostar 25 krónur i
búð, hamborgari hátt á þriðja
hundrað og mjólkurlitirinn 50
krónur. Eaunar má geta þess til
upplýsingar fyrir húsmæður á
fslandi, sem okkur heyrast þessa
dagana vera að þrefa um verð á
mjólk m.a., að á þeim fjórum
stöðum, sem við höfum keypt
mjólk fyrir skipið á leiðinni,hefur
litrinn kostað frá 40 til 50 krónur.
Ef einhver skyldi ekki vita það,
þá er Bermúda brezk nýlenda, en
án þess að ég ætli að blanda mér
nokkuð i stjórnmálin, sagði mér
leigubilstjóri, , að eyjabúar
vildu fyrir hvern mun fá
sjálfstæði sem fyrst, til að stöðva
„amerikaniseringuna”, sem
óðum magnaðist, þvi Bretar
skipti sér litiö sem ekkert af
málum eyjanna. tbúar Bermúda
eru að mestum hluta dökkt fólk,
sem er afkomendur brezku land-
nemanna, portugalskra verka-
manna frá Azoreyjum og svartra
þræla frá V-Indium. betta er
smávaxið fólk og andlitsfritt.
Einnig er dálitið af hvitu fólki, en
kynþáttamismunur er nokkuð,
sem ekki þekkist á eyjunum. Inn-
flytjendalögin eru mjög ströng,
þar sem varla er rúm fyrir fleiri
ibúa þarna.
Við lentum i leiðindaveðri
þessa daga á Bermúda, rok var
með sólarglætum og helli-
dembum á milli. Hitinn var að
visu um 20 stig, en okkur ógnaði
það ekki eftir það^ sem á undan
var gengið og gripum til lopa-
peysanna. Ofsaveður var á hafinu
norðan við eyjarnar og lásum við
i blöðum um norska skipið Anitu,
sem sagt var hafa farizt með 32
mönnum. Allmörg skip leituöu
hafnar i Bermúda undan veðrinu,
þ.á.m. eitt norskt, sem haföi
laskazt nokkuö En þegar
viö kvöddum Bermúda
var veörið að ganga niöur. I
fyrstu var dálitill sjór, en hann
stilltist brátt og alla leiðina heim
undir Island sigldum viö i bliöu,
þrátt fyrir óhuggulegar veöur-
fréttir og spár. baö var ekki fyrr
en i dag, að viö sigldum meö
Austurlandi, sem gerði brælu og
það slika, að allt snerist viö i
skipinu,erfiðlega gekk að elda há-
degismatinn og koma honum i sig
en ekki á.
Við vorum komin norður á móts
við Spán, þegar einhver fór eitt
TÍMINN
19
sinn sem oftar að fikta við út-
varpið. Heyrðist þá ekki Ragn-
heiður okkar Asta vera að lesa
tilkynningar og heyrðum við bara
allvel. En það var ekki fyrr en 700
milum og tveimur sólarhringum
siðar, að hægt var að greina orða-
skil hjá blessuðum karlmönn-
unum i útvarpinu okkar og þá
fyrst Jóni Múla. Við flýttum
klukkunni i snarheitum til að fá
fréttir á réttum tima og raunar
hefur verið setið og hlustað á alla
dagskrána.
Kvilli einn, sem á sjómanna-
máli heitir „home-stress” og
þjáir sjómenn venjulega siðasta
sólarhringinn fyrir heimkomu,
fór að gera vart við sig hér þegar
þrir sólarhringar voru eftir. bá
hittust menn i borðsalnum og
spiluðu eða tefldu, þegar þeir
gátu ekki með nokkru móti sofið.
Svo er rætt mikið um mat, góöan
islenzkan mat, sem við höfum
ekki fengið i tvo mánuði og fimm
daga. baö verður áreiðanlega
mikið borðað af saltfiski og súr-
mat á Raufarhöfn næstu daga, en
við erum búin að fá nóg af nauta-
kjöti, svinakjöti og kjúklingum
um langa framtið.
Vonandi komumst við inn á
Raufarhöfn á morgun og þar með
lýkur þessari æfintýraferð um
hálfan hnöttinn. Eins og nærri má
geta, verður þessu fallega og
góða skipi fagnað vel við heim-
komuna og auðvitað áhöfninni
lika. Með þessu siðasta bréfi
minu kveð ég Rauðanúp með
þökk fyrir góða viðkynningu og
óska skipi og áhöfn alls hins
bezta i framtiðinni.
P.S. 5. april
Við komumst inn á lagi um sjö-
leytið i morgun, r(n siðan lokaðist
innsiglingin aftur. Veður hefur
veið slæmt i dag, kuldi og hvasst.
Skip og áhöfn fengu hlýjar mót-
tökur siðdegis með kaffisamsæti i
félagsheimilinu og i kvöld verður
dansað. En alvara lifsins hefst að
morgni.
Aths. Ástæðan fyrir þvi að
grein þessi er svo seint á
ferðinni/ er sú, að hún mun
hafa lentá afvegum i send-
ingu og barst ekki ti!
Tímans fyrr en rétt fyrir
páska.
Tíminn er 40 siður
alla laugardaga og
sunnudaga. —
Askriftarsíminn er
1-23-23
Magnús E. Batdvlnsson
17 - Slml 7710«
JOHNS-MANVILLE
glerullar-
9 einangrun
er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum í dag. Auk þess fáið
þér frían álpappír með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið í flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Munið Johns-Manville í alla einangrun.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Sendum hvert á land sem er.
JÓN LOFTSSON HF.
Hringbrout 121 . Simi 10-600
=j!
BARNALEIKTÆKl
*
Iþróttatæki
VélaverkttMði
BERNHARDS HANNESS..
SuSurlandtbraut 12.
Stmi 35810.
Sérleyfisleið
laus til umsóknar
Sérleyfisleiðin Reykjavik - Álafoss -
Reykir - Mosfellsdalur er laus til umsókn-
ar.
Umsóknir skulu sendar til Umferðar-
máladeildar pósts og sima, Umferðar-
miðstöðinni i Reykjavik, fyrir 10. mai
1973.
Upplýsingar um bifreiðakost umsækjanda
skulu fylgja umsóknunum.
Reykjavik, april 1973,
Umferðarmáladeild pósts og sima.
FASTEIGN AVAL
Skólavörðustíg 3A (11. hæð)
Simar 2-29-11 og 1-92-55
Fasteignakaupendur.
Vanti yður fasteign, þá hafið
samband við skrifstofu vora.
Fasteignir af öllum stærðum
og geröum, fullbúnar og i
smiðum.
Fasteignaseíjendur
Vinsamlegast látið skrá fast-
eignir yðar hiá okkur.
Aherzla lögð á góða og
örugga þjónustu. Leitið upp-
lýsir.ga um verð og skilmála.
Makaskiptasamningar oft
mögulegjr.
önnumjí. hvers konar samn-
ingsgerð fyrir yður.
Jón Arason hdl.
Málflutningur, fasteignasala
m
Nómskeið
Menntamálaráðuneytið
26. 4.1973
Tilboð óskast í
nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar að
Grensásvegi 9 miðvikudaginn 2. mai kl.
12—3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu
vorri kl. 5.
Sala Varnarliðseigna
icnn*mmn:i
fyrir kennara,
sem settir eru um óákveðinn tima
Menntamálaráöuneytið hefur falið Kennarahásköla
islands að efna til námskeiðs fyrir starfaudi kennara,
sem settir liafa verið um óákveðinn timaen eigi verið
skipaðir i stöðu vegna þess að nokkuö skorti á
fullnægjandi menntun til starfsins.
Hér er um að ræða eins árs nám, sem skiptist á
uppeldisgreinar og einstakar námsgreinar, sem
kenndar eru á gagnfræðastigi, og skal hver þátt-
takandi stunda uppeidisgreinar og eina eða tvær
námsgreinar eftir vali. Námstiminn skiptist á tvö
sumur 6-8 vikur hvort sumar og heimanám i bréfa-
skóla einn vetur.
bátttakendum verður gefinn kostur á að hefja nám
sumarið 1973 eða 1974 eftir þvi hvaða greinar þeir
velja.en endanlega ákvörðun um það verður eigi unnt
að taka fyrr en umsóknir liggja fyrir og sýnt er, hver
þátttaka verður i einstökum greinum.
Rétt til þátttöku i námskeiöunum hafa allir kennarar á
gagnfræðastigi, sem settir voru um óákveðinn tima
1971 eða fyrr og hafa lokiö kennaraprófi eða stúdents-
prófi eða kennt samfellt eigi skemur en fimm ár.
Kennarar, sem hafa aö baki eins árs nám i kennslu-
grein, eða nám sem svarar til 2ja stiga af BA-námi að
loknu kennara- eða stúdentsprófi, þurfa aðeins að
stunda nám i uppeldisgreinum. beim, sem lokið hafa
kennaraprófi, er þó ekki skylt aö leggja stund á aðrar
uppeldisgreinar en kennslufræði.
Náminu lýkur með prófi og munu þeir, sem prófið
standast, eiga kost á skipun i starf, ef fyrir liggja óskir
frá skólanefndum eöa fræðsluráöum.
beir, sem hafa hug á aö sækja um námskeið þetta,
skulu senda skriflegar umsóknir á sérstökum
umsóknareyöublöðum til Stefáns Ól. Jónssonar,
Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik
fyrir 15. maí 1973.
BORÐAPANTANIR I SlMUM
22321 22322
BORÐUM HALDIÐ TIL KL 9.
BLÖMASALIR
VIKINGASALUR