Tíminn - 11.07.1973, Side 16
3ja ára
drengur
drukknaði
í Miðá
SB— Reykjavik — Þriggja ára
drengur, Svanur Jóhannsson,
drukknaöi i Miöá i Miödalahreppi
i Dölum á sunnudaginn.
Atvik voru þau, að drengurinn
var hjá móður-ömmu sinni að
Brautarholti i Dölum. Faðirinn,
sem býr i Reykjavik. kom i heim-
sókn og fór út að aka með son sinn
og sex ára dreng af bænum. Rétt
viö brúna á Miðá ók hann bilnum
út i ána, liklega til að þvo hann, en
þá festist billinn. Gekk þá
maðurinn frá og ætlaði að sækja
aðstoð, en læsti bflnum og skildi
börnin eftir inni. Er hann kom
aftur hafði þeim tekizt að opna
bllinn og var litli drengurinn
horfinn i ána. Lik hans fannst um
klukkustundu siðar, litlu neðar i
ánni. Þess skal getið, að Miðá er
þarna breið, grunn og straumlitil.
Brutust
inn í íbúð
Klp—Reykjavik. í gærdag var
brotizt inn imannlausa ibúð i fjöl-
býlishúsi i Reykjavik og stolið
þaðan um 8000 kr. i peningum og
orlofsmerkjum að verðmæti
nokkur þúsund krónur.
Þjófurinn eða þjófarnir hafa
stungið upp hurð á ibúðinni og
komizt þangað óséðir og siðan út
aftur. Er málið nú i rannsókn hjá
lögreglunni, en hún hefur nú hvað
eftir annað sent frá sér aðvörun
til fólks um að skilja ekki eftir
peninga i ibúðum sinum að nóttu
til. Og nú má sýnilega fara að
bæta við, — og ekki heldur um
miðjan dag.
á fiskkaupum hér
SAMBANDIÐ milli Belgiu og
lslands kann aö aukast mjög á
næstu mánuöum þ.e.a.s. i fisk-
sölumálum. Hingaö til lands eru
komnir þrir áhrifamenn frá
hafnarbænum Ostende i Belgiu til
aö ræða við islenzka útgerðar-
menn um möguleika á aukinni og
skipulagöri fisksölu islenzkra
togara i Ostcnde i framtiðinni, en
eins og menn muna seldu fjórir
islenzkir togarar i þessum bæ i
marz i vetur, á tiltöiulega mjög
góöu veröi. Má segja, aö þessar
viðræöur nú, séu i beinu
framhaldi af þessari sölu i vetur.
Þessi menn eru: Raphael Ghys
hafnarstjóri i Ostende og fulltrúi
fiskkaupenda þar i bæ, Dumarey
aðstoðarbæjarstjóri i Ostende og
formaður verkalýðshreyfingar-
innar og loks Wittevrongel, for-
maður útvegsmanna i Ostende. A
fundi með blaðamönnum i gær
mættuauk þeirra Walter Schmidt
fulltrúi fiskumboða i Belgiu og
Ingimar Einarsson fram-
kvæmdastjóri Félags islenzkra
botnvörpuskipaeigenda. Ostende-
menn áttu viðræður við for-
ráöamenn LÍO og FIB i gær-
morgun og hittu einnig að máli
menn i viðskiptaráðuneytinu.
Greint var frá þvi helzta, sem
fram kom i þessum viðræðum, á
blaðamannafundinum i gær. 1
stuttu máli er það þetta:
Belglskir útvegsmenn (með
verkalýðshreyfinguna og bæjar-
yfirvöld i Ostende að bakhjarli)
hafa mjög mikinnáhuga á þvi að
koma á stöðugri og vel skipu-
lagörisölu islenzkra togara i Ost-
ende hið allra fyrst, sem myndi
siöan geta fariö vaxandi stig af
stigi i framtíðinni.Þeir hafa ekki
lagt fram formlegt tilboð, en
segjast myndu geta tekið á móti
alltað tveim Islenzkum togurumi
viku til að byrja með, sem gæti
orðið I lok ágústmánaðar n.k. eða
byrjun september.
Verðið fyir fiskinn myndi vera
mjög sambærilegt þvi, sem
Islendingar fá i V-Þýzkalandi. En
Belgarnir leggja mikla áherzlu á
hin mjög góðu hafnar- og
löndunarskilyrði i Ostende, sem
og hina mjög ákjósanlegu staö-
sctuingu bæjarins. Ostende er á
miðju markaðssvæði Efnahags-
bandalagsins. Greiðar sam-
göngur eru i allar áttir, m.a. á
hinn mjög góða markað i Frakk-
landi, með ferju yfir sundið á
Lundúnasvæðið og yfir til Þýzka-
lands. Fullkomnir i
frystibilar flytja fiskinn á
örskömmum tima til nágranna-
rikjanna, en einnig er góður
markaður i Belgiu. Hér myndi þvi
vera um mjög stöðugan og örugg-
an markað að ræða fyrir
Islendinga, að sögn Belganna, og
þeir bættu þvi við, að fiskneyzla
ykist stöðugt i EBE-löndunum og
verðið væri hækkandi á fiski. Ef
vel tekst til i upphafi, segja þeir,
gæti sala islenzku togaranna i
Ostende aukizt mjög hratt.
Framhald á bls. 15.
Fjöldamorð
í Mósambík
NTB—London. — Að minnsta
kosti 400 konur og börn i Mósam-
blk I Afriku hafa verið myrt af
portúgölskum hermönnum, segir
kaþólskur prestur i viðtali við
brezka blaðið The Times i gær.
Segir hann, að hermennirnir
vinni markvisst aö útrýmingu
fólks i landinu.
A forsiðu blaðsins skrifar faðir
Hastings, að árið 1971 hafi farið
fram fjöldamorð barna, sem gefi
þeim i My Lai ekkert eftir. Þá
hafi um 400 manns verið myrt i
þorpi einu, á hinn hroðalegasta
hátt.
Brezki presturinn hefur þetta
eftir skýrslum trúboöa i landinu,
sem er portúgölsk nýlenda.
Trúboðarnir segja, að portúgalir
hafi myrt fólkið vegna gruns um
að það hafi stutt þjóðfrelsis-
•hreyfinguna i landinu, Krelimo.
Hafi hermennirnir ýmis- skotið
fólkið, brennt það eða barið i
hel...
Harold Wilson, leiðtogi brezku
stjórnarandstöðunnar fór i'ram á
það við Heath forsætisráðherra,
að aflýst yrði heimsókn portú-
galska forsætisráðherrans,
Caetano til Bretlands á næstunni.
Heath visaöi þvi á bug og sagöi,
aö ekki kæmi til mála að aflýsa
heimsókninni. I Lissabon sagði
talsmaður portúgölsku stjórnar-
innar, aðfréttin i The Times hel'ði
ekki við rök að styðjast.
Sta-rstu (lansliljómsveit á tslandi, Fill-hljómsveitin, er skipuö 18 mönnum og leikur hún i fyrsta skipti
opinhcrlcgu i kviild. Þarna má þekkja mörg kunnug andlit. Tímamynd: G.E.
,T rimmlagakeppnin'
endist fram á haust
— 18 manna danshljómsveit á Sögu
ÓV — Reykjavik —
Trimmiagakeppnin
svokallaöa, sem 1S1 og Félag
i gær. F.v. Ghys,
(Timamynd: G.E.)
Frá hlaöamannafiindinum mcö Belgunum
Dumary. Witlcvrongel, lugimar og Sehmidt.
Er Ostende framtíðin?
Belgar hafa hug
islenzkra hljóm listarmanna
standa aö í sameiningu hefst i
kvöld og veröa þá leikin tiu fyrstu
lögin. FIH-hljómsveitin leikur
lögin meö aöstoö þriggja söngv-
ara og mun hljómsveitin — sem
skipuö er 18 hljóöfæraleikurum —
síðan leik fyrir dansi.
Eins og skýrt hefur verið frá i
fréttum var það að frumkvæði 1S1
að efnt var til þessarar danslaga-
keppni og bárust FIH, sem sér
um framkvæmd keppninnar, hátt
i 140 lög. Allmargir útsetjarar
vinna nú að útsendingu laganna
og hafa þegar lokið við hartnær 40
lög. Bróðurpartinn hefur útsett
Magnús Ingimarsson, sem einnig
stjórnar hljómsveitinni. Söngvar-
ar til að byrja með verða þau
Þuriður Siguröardóttir og maður
hennar Pálmi Gunnarsson, auk
Ragnars Bjarnasonar en siðar
munu fleiri söngvarar kynna
keppnislögin.
Siðan verður haldið áfram á
miövikudagskvöldum og sunnu-
dagseftirmiðdögum fram eftir
sumri og segist Sverrir Garðars
son, formaður FIH, búast við að
keppninni ljúki ekki fyrr en i
september. Fimm siðustu sunnu-
dögunum verður útvarpað.
Dansað verður á miðvikudags-
kvöldum og mun hljómsveit
Ragnars Bjarnasonar þá leika
fyrir dansi, en eins og áður segir
verður það FlH-hljómsveitin,
stærsta danshljómsveit hér-
lendis, sem leikur fyrir dansi á
Hótel Sögu i kvöld. Varla þarf að
taka fram að aðeins verða kaffi-
veitingar. Aðgangseyrir er kr.
300.-
Blaða- og fréttamönnum var
boðið á Hótel Sögu i fyrrakvöld,
þar sem stóð yfir lokaæfing
hljómsveitarinnar fyrir kvöldið I
kvöld og bar ekki á öðru en að
hljómsveitinni væri lagið að
„swinga” skemmtilega og
skemmtu hljóðfæraleikararnir
sér greinilega hið bezta.
„ÞESSI DÓMUR VAR
EFTIR PÖNTUN"
— sagði Haraldur Ólafsson, þegar dómurinn fyrir
skotárásina í Breiðholti var lesinn yfir honum
1 dómsorði segir nánar, að hann
skuli sæta 12 ára fangelsi, en þvi
til frádráttar komi 202 dagar,
sem hann hafi setið i gæzluvarð
haldi i hegningarhúsinu við
Skólavörðustig. Þá var hann
sviftur ökuleyfi ævilangt, vegna
umferðalagabrota á sama tima.
Einnig er honum gert að greiða
allan málskostnað, 90 þúsund
krónur auk málsvarnarlauna til
skipaðs verjanda sins, Páls S.
Pálssonar hrl.
Sé fangelsisdómur meir en
fimm ár skal samkvæmt lands-
lögum áfrýja honum til Hæsta-
réttar. Akæruvaldið fór fram á.
að Haraldur yrði áfram i gæzlu-
varðhaldi, eða i allt að 120
Haraldur ólafsson hlaut 12 ára fangeisi fyrir tilraun til manndrápa i
húsinu aö Yrsufelli 11 I Breiðholti I janúar s.l.
Klp, Reykjavík. 1 gærmorgun var
kveðinn upp dómur yfir Haraldi
Óiafssyni, sem þann 14. janúar
s.l. gekk vopnaður haglabyssu inn
i húsiö að Yrsufelli 11 i Breiöholti
og skaut þar m.a. á fyrrverandi
tengdamóður sina og mann, sem
aðstoðaði viö aö afvopna hann.
Hann var dæmdur fyrir tilraun til
manndrápa og hlaut liann 12 ára
fangelsi.
dögum, en þá á Hæstiréttur að
vera búinn að kveða upp sinn
dóm.
Farið var fram á, að Haraldur
yrði ekki hafður lengur i hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustig
sökum iélegs húsnæðis þar og
slæms heilsufars hans. En hann
hefur á undanförnum mánuðum
verið fluttur á sjúkrahús a.m.k.
einu sinni eða tvisvar og hefur
Framhaid á bls. 15.