Tíminn - 29.12.1973, Blaðsíða 6

Tíminn - 29.12.1973, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Lauf>ardagur 29. desember 1973. ER NOTKUN SNJÓNAGLA BLEKKING? Nagladekk hafa nú verið í notkun í 9 dr hér á landi, og í dag má segja, að langmestur meiri hluti bíla séu búnir þeim yfir vetrartímann. En um leið er verið að banna notkun þeirra í æ víðtækari mæli bæði austan hafs og vestan. Hér segir Jón Bergsson, verkfræðingur, okkur sitt álit: Ef til vill er þessi á sumardekkjum. Lögreglan kemur bllnum af stað f hálkunni, „svo að hann geti siðan runnið tii á næsta hálkubietti og jafn- vel lent i árekstri.” Auðvitað er það ekki vilji lögregunnar, en er ekki oft á tfðum veriðaö taka ábyrgðina af ökumönnunum sjálfum? GÚMMÍVINNUSTOF- AN h/f. Skipholti 35 mun hafa orðið fyrst til að flytja inn snjónagla og var það i desember 1964 eða fyrir réttum 9 árum. Flutti Björn heitinn Pálsson þessa fyrstu nagla frá Sviþjóð. í öðr- um löndum hafði negl- ing hjólbarða ekki hafizt miklu fyrr. Upp úr þessu fóru að berast hingað á markaðinn hjólbarðar með sérstökum götum fyrir naglana. í dag eru svo til eingöngu flutt inn slik snjódekk, og að sögn forstjóra Gúmmivinnu- stofunnar h.f. i Skipholti 35, Ingvars Agnarsson- ar, má nú heita, að öll verkstæði hér i borginni, sem á annað borð gera við hjólbarða, hafi einn- ig búnað til að negla þá. Negldir hjólbarðar eru nú orðn- ir mjög almennir og keðjurnar hafa legið mikið til ósnertar síð- ustu ár, enda sagði Ingvar, að hér á höfuðborgarsvæðinu a.m.k. mætti heita, að hver einasti mað- ur, sem notaði bil eitthvað að marki á veturn'a, léti negla undir honum hjólbarðana. Keðjurnar eru leiðinlegar og tímafrekt að koma þeim fyrir, ekki sizt þegar miðað er við það, hve skamman tlma þeirra er yfirleitt þörf hverju sinni. Að sögn Ingvars má heita, að hér sé aðeins notuð ein gerð af snjónöglum en i þeim er pinni úr hörðu stáli i miðjunni og utan um linara járn. önnnur tegund er að- eins til hér lika, en hún er mikið dýrari. Er þá plast utan um stál- pinnan i stað járnsins. Þvi hefur verið haldið fram, að þessir nagl- ar sliti götunum minna, en svo er þó tæplega, þar sem sams konar pinni er i báðum gerðunum, og það er einkum hann, sem slitur. Negldir hjólbarðar eru ekki fluttir inn, heldur fer öll negling fram hér á landi. Ef notaðir eru naglar, þá ,,á öllum” t haust kom fram ný reglugerð varðandi gerðog búnaö ökutækja. t reglugerðinni er staðfesting á fyrri reglum um tima þann, sem heimilter að hafa nagladekk und- ir bilnum, en hann er frá 15. októ- bertil 1 maí.Helzta nýjung reglu- gerðarinnar, hvað vetrarakstur snertir, er það, að ef menn eru með nagladekk undir bilnum á annað borð, skuli þau vera á öll- um hjólum. Þetta er eiginlega eina breytingin, en annars gildir enn hið gamla ákvæði, að bilarnir skuli vera búnir til aksturs i snjó og hálku.án þess að það sé skýr- greint nánar. Við spurðum Baldvin Ottósson hjá umferðardeild lögreglunnar, hvort tekið hefði verið tillit til þess, i samræmi við nýju reglu- gerðina, við árekstur, ef viðkom- andi bill hefði aðeins verið meö nagladekk á öðrum öxlinum. — Ef árekstur verður i snjó eða hálku, er ævinlega getið um það i skýrslum, hvernig bifreiðin er búin, og þá m.a. með tilliti til dekkja. Siðan koma aðrir aðilar og meta, hvort það hefur haft ein- hver áhrif á það, hvernig árekst- urinn atvikaðist. Hjá Bifreiðaeftirlitinu fengum við þær upplýsingar, að bifreiðar, sem aðeins væru með nagladekk á annarri hásingunni, fengju ekki fullnaðarskoðun. „Nagladekk eru úrelt” Þau eru nú bönnuð mjög iða Jón Bergsson verkfræðingur, kennari við Tækniskóla Islands, er maður mjög áhugasamur um umferðarmál, hefur hann þó starfað eða stundað beinar rann- sóknir á þvi sviði. en hefur starf- að fyrir Bilgreinasambandið við könnun á bilaverkstæðum. Engu að siður fylgist Jón vel með um- ferðarmálum og les allt, sem hann nær i, er um þau fjallar. — Það er um ár siðan ég las i kanadisku timariti um umferðar- könnun með tilliti til nagladekkja, sem fram hafði farið um það leyti i Toronto i Kanada. Niðurstaða þeirrar könnunar var i stuttu máli, að notkun nagladekkja væri mjög neikvæð, á fleiri en einn hátt. Staðreyndin er sú, að nagla- dekkin eru oröin úrelt fyrirbrigði, og i dag er notkun þeirra bönnuð i mörgum borgum Bandarikjanna eða einstökum fylkjum og mjög viða i Kanada, þ.á.m. i Toronto. Einnig er bann við nagladekkjum I mörgum borgum Evrópu. — Notkun nagladekkja hefur aðallega verið studd með þvi, að þau væru miklu öruggari fyrir umferðina. I ljós hefur komið hins vegar, að þau fækka ekki slysum !l Það er svo óskaplega margt, sem spilar inn i þetta „naglavesen”. Fyrst má nefna hið óskaplega slit á götunum af völdum naglanna, sem er ekki sizt orsök þess, að æ fleiri borgir Evrópu eru annað hvort búnar að útiloka nagladekk eða eru að vinna að þvi. Þá sýndi það sig ljóslega i könnuninni, eins og áður sagði, að slysum fækkaði ekki með nagladekkjunum. Kem- ur þar mannlegur breyskleiki sjálfsagt mikið við sögu þar sem menn aka hraðar, en þeir myndu ^ella gera, vegna þess að þeir telja sig svo örugga á nöglunum! — Þessi mál hafa hins vegar ekkert verið rannsökuð hérlendis. Það er bara vaðið áfram i blindni, segir Jón. — Það er alveg eins og með saltið. ,,Það er verið að taka ábyrgðina af fólki — Ef þú lest umferðarlögin, þá stendur þar að þú megir ekki fara út á götu i bil i hálku, öðruvisi en hann sé til þess búinn. Það eru hreinar linur. Sá sem ekur bilnum er ábyrgur. 1 reglugerðinni er gefið upp, hvernig billinn á að vera útbúinn i hálku og snjó. Nú er borið salt á göturnar. Það kælir malbikið niður i minus 21 gráðu og sprengir það smátt og smátt upp, jafnvel þótt engin umferð sé um götuna. Siðan koma menn á nagladekkjum og rifa malbikið enn meira upp og fá um leið tjöru- blöndu upp um allan bil, sem verður áþreifanlega vart við næsta þvott á bilnum. En það veigamesta, hvað umferðina snertir, er þó það, að þessi salt- blandaða tjara, sem þannig er búið að spóla upp, sezt á dekkin og verkar nánast eins og skiðaá- burður. Þegar bilarnir koma af saltbornu götunum yfir á aðrar, þar sem hálka er, og renna þeir bókstaflega eins og belja á svelli. Einfalt mál. Þarna eru þeir, sem umferðar- og gatnamálum ráða, bókstaflega að búa til hættu fyrir ökumennina. — Engin nagladekk. Heldur eiga menn að nota venjulega snjódekk og setja keðjur á þau, þegar þess er þörf. Hvaða vit er i þvi, að hið opinbera skuli láta salta sumar götur, þannig að menn verða, hvort sem þeir vilja eða ekki, að aka ýmist saltaðar eða ósaltaðar götur til að komast leiðar sinnar. Dæmi: Maður kemst kannski á bil sinum niður i bæ, vegna þess að göturnar á leið- inni eru saltaðar. Eri siðan kemst hann ekki til baka eftir saltlaus- Framhald á bls. 19 Umsóknir um styrk úr Finnska JC-sjóðnum Finnski JC-sjóðurinn er stofnaður af Junior Chamber Finnlandi og Junior Chamber Islandi með fé, sem safnað var í Finnlandi og Svíþjóð með sölu límmiða með íslenzka fánanum. Markmið sjóðsins er að styrkja skólanám unglinga frá Vestmannaeyjum á aldrinum 14—19 ára, utan Vestmannaeyja. Styrkveiting JC-sjóðsins nær til hverskonar náms, nema skyldunáms og háskólanáms. Umsækjendur geta verið aðstandendur styrkþega eða styrkþegi sjálfur. Ef styrkþegi nýtur fjárhagsaðstoðar frá fjölskyldu sinni, er styrkurinn greiddur til fjölskyldunnar. Stjórn sjóðsins skipa. Erkki Aho, Kouvola, Finnlandi, Jón E. Ragnarsson og Ólafur Stephensen, Reykjavík. Endurskoðendur eru: Rolf Zachariassen, Heilola, Finnlandi og Reynir Þorgrímsson, Kópavogi. (Jtfyllt umsóknareyðublöð skal senda til: Finnska JC-sjóðsins, pósthólf 579, Reykjavík. Eyðublöðin skulu hafa borist fyrir 31. Des. 1973 Skrifstofur bæjarstjórnar Vestmannaeyja í Vestmannaeyjum og í Hafnarbúðum afhenda umsóknareyðublöð og gefa jafnframt nánari upplýsingar. FINNSKI JC-SJÓÐURINN PÓSTHÓLF 579 REYKJAVlK Nagladekk eru nú bönnuð æ viðar um heim. Komið hefur I Ijós, að I reyndinni fækka þau alls ekki slysum. Og slit gatna af þeirra völdum er óskaplegt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.