Tíminn - 21.02.1974, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.02.1974, Blaðsíða 6
TÍMINN Fimmtudagur 21. febrúar 1974. ■ ■ ■ ■ „NAFNSKIRTEINISALDUR FÆRÐUR UPR UM TVÖ ÁR Lagt hefúr verið fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um breytingu á lögum um nafnskirteini. Höfuðefni frumvarpsins er að færa upp aldur þeirra, er fá nafnskirteini fyrst afhent úr 12 i 14 ára aldur. t greinargerð með frumvarpinu segir m.a.: ,,í samræmi við ákvæði i gildandi lögum um nafnskirteini eru þau gefin út til barna á þvi ári. er þau verða 12 ára, en i 1. gr. frv. er lagt til, að þetta aldurs- mark verði fært upp um 2 ár. Samkvæmt þvi mundu unglingar framvegis frá nafnskirteini á hausti þess árs, er þeir verða 14 ára. þ.e. er þeir flestir hefja nám i 2. bekk gagnfræðastigs. Aðalrök fyrir þessari breytingu eru þau, að mynd sett á skirteini 12 ára unglings og orðin úrelt og haldlitil við 15-16 ára aldur, sem er mikilvægt aldursmark i sam- bandi við löggæslu, en mynd sett á skirteini 14 ára unglings dugar fram á þennan aldur. Þar eð frumafhending nafnskirteina og setning myndar á þau verður að fylgjast að i umdæmum, þar sem myndskylda er i sambandi við skirteini, er hér aðeins um tvær leiðir að velja: annað hvort að færa aldursmarkið upp eins og hér er lagt til, eða að skipta um mynd á skirteinum, þ.e. endurnýja öll skirteini við 15-16 ára aldur, að minnsta kosti á Reykjavikursvæði. Siðari kosturinn er óhagkvæmur vegna mikils tilkostnaðar, bæði fyrir hið opinbera og almenning, og auk þess yrði hér um að ræða mjög umfangsmikla og varasama framkvæmd. Leið sú, sem hér er gerð tillaga um, virðist fela i sér hagkvæma lausn á þessum vanda, enda töldu lögregluyfir- völd, skólastjórar og fleiri aðilar, sem Hagstofan bar mál þetta undir, það litlu skipta, að hætt væri að gefa út nafnskirteini til 12 og 13 ára barna. Hér má og geta þess, að mikið er um það, að börn á þessum aldri týni nafnskirteini sinu eða glati þvi á annan hátf. Bendir þetta til þess, að börn undir fermingaraldri séu fullung til að veita viðtöku gagni af þessu tagi. - Ákvæði 1. gr. miða að þvi, að upphafleg nafnskirteini hvers árgangs séu með nothæfri mynd til 15-16 ára aldurs, en þar fyrir ofan er erfiðasta aldursbilið i sambandi við framkvæmd ákvæða um, að tiltekinn aldur sé skilyrði fyrir viðskiptum eða komu eða dvöl á stað. Miklu skiptir, eins og áður segir, aö komast hjá þeim örðugleikum og fjárútlátum, sem fylgja almennri endurnýjun nafnskirteina til þess að setja á þau nýja mynd. Ákvæði 4. gr. frv. miða að þvi að leysa þennan vanda: Þar eð fyrir liggur, að stór hluti ungmenna fær ökuskirteini við 17-18 ára aldur, og á þvi er alltaf ný mynd, liggur það beint við, að ökuskirteini sé almennt notað sem sönnunargagn um aldur I sambandi við aðgang að skemmtistöðum og öðru, sem hér er um að ræða. Þessu er óbeint komið I kring með þvi ákvæði 4. gr., að hverjum lögreglustjóra er heimilað að ákveða fyrir sitt umdæmi, aö nafnskirteini einstaklinga 18-23 ára skuli ekki vera giit sönnunargagn um aldur á tilteknum sviðum, nema framvisað sé sérstaklega útgefnu skirteini með öðrum lit en er á almennu nafnskirteini. Sam- kvæmt þessu mundu yfirleitt þeir einir á þessu aldursbili, sem ekki hafa fengið ökuskirteini — og ekki heldur hafa gilt vegabréf útgefið af lögreglustjóra — óska eftir að fá útgefið litað nafnskirteini, og þá þvi aðeins að þeir þyrftu á þvi að halda til þess sérstöku nota. Hins vegar mundu allir á hinu tiltekna aldursbili geta fengið litað nafnskirteini, ef þeir greiða tilskilið gjald fyrir það og vilja leggja á sig þá fyrir- höfn, sem fylgir endurútgáfu skirteinis, enda mundi ekki mega slaka neitt á þeim öryggis- kröfum, sem nú orðið eru gerðar i þessu sambandi. — Almennt nafnskirteini yrði að sjalfsögðu notað áfram til alls annars en þess, sem sérstaklega er undanskilið samkvæmt 4. gr. Ef heimild sú, er um ræðir I 4. gr., yrði notuð i minnst einu lögregluumdæmi, mundu I raun öll endurútgefin nafnskirteini til einstaklinga á hinu tiltekna aldursskeiði vera með öðrum lit en er á almennu nafnskirteini. — Aldursbilið, sem útgáfa sérstaks nafnskirteinis er bundin við — 18- 23 ár — er ákveðið með hliðsjón af þvi, að fyrst þegar komið er upp fyrir þennan aldur mun yfirleitt vera orðið óþarft að láta menn sanna aldur sinn við aðgang að vinveitingarstöðum og við kaup á áfengi. Aðstæður að þvi er varðar notkun nafnskirteinis i þágu löggæslu eru mjög mismunandi i hinum ýmsu lögsagnar- umdæmum, og þvi er I 4. gr. aðeins um að ræða heimildar- ákvæði til handa lögreglu- stjórum”. AUKINN VERÐI STUÐNINGUR VIÐ ÞJÓÐVEGAGERÐ í ÞÉTTBÝLI Alexander Stefánsson hefur lagt fram frumvarp um breytingu á vegalögum. Kveður frumvarpið á um aukinn stuðning við þjóðvegagerð i þéttbýli. Frumvarpið er svohljóðandi: 1. gr. 1. málsgr. 32. gr. laganna orðist svo: Árlega skal veita ákveðna fjárhæð lil lagningar þjóðvega i kaupstöðum og kauptúnum, sem hafa 200 ibúa eða fleiri, og skal skipting fjárins fara eftir ibúa- fjölda og ófullgerðum verkefnum við lagningu þjóðvegarins á staðnum. Skal árlegt framlag vera 20 af hundraði af heildar- tekjum vegamála það ár skv. XIV. kafla laga þessara. Ráðherra er þó heimilt að undan- skilja tekjur vegamála, sem varið er til framkvæmda við hraðbrautir. 2. gr. 34. gr. laganna orðist svo: Af heildarframlagi þvi, sem veitt er til lagningar þjóðvega i kaupstöðum og kauptúnum skv. 32. gr. , skal árlega halda eftir 20 Bæjarstjórnarkosn- ingar i Eyjum Guðlauguj^Iislason mælti i neðri deild Alþm'llÉy^ær fyrir frumvarpi, er hanr^kitur um breytingu á lögum um^veitar- stjórnarkosningar, þess efnis, að við næstu bæjarstjórnar- kosningar i Vestmannaeyjum verði opnar sérstakar kjör- deildir fyrir kjósendur á kjörskrá i Vestmannaeyjum, á Selfossi, Reykjavik og Keflavik. Rikisábyrgð launa Björn Fr. Björnsson mælti i efri deild I gær fyrir nefndar- áliti allsherjarnefndar um stjórnarfrumvarp um ríkis- ábyrgð á launum við gjald- þrot. Mælti nefndin einróma með samþykkt frumvarpsins með breyttum gildistima og voru tillögur hennar samþykktar einróma og frumvarpinu visað til þriðju umræðu. af hundraði, og skal þvi fé ráðstafað eftir tillögu vegamála- stjóra til að flýta framkvæmdum, þár sem sérstök ástæða þykir til aðljúka ákveðnum áfanga, stuðla að hagkvæmari vinnubrögðum og til að hraða framkvæmdum við lagningu þjóðvegar, þar sem almenn umferð gegnum viðkomandi kauptún eða kaupstað er sérstaklega mikil og um leið mikilvæg. t greinargerð segir flutningarmaður: Kröfur um varanlega gatna- gerð I þéttbýli eru settar fram á þeirri meginröksemd, að ein höfuðforsenda byggðar þéttbýlis- staða úti um landið sé varanleg gatnagerð og hreinlegt umhverfi, enda eðlilegt, að fólkið I landinu búi við sem jafnasta aðstöðu hvað þetta varðar. Þrifalegt umhverfi er ein af foresendum þess, að fólk vilji búa á viökomandi staö. V. kafli vegalaga, um þjóðvegi i kaupstöðum og kauptúnum, er augljóslega settur i lögin til að auðvélda sveitarfélögum að ná þessu marki. En miðað við, hve viða er mikið óleyst af þessu verkefni og fjárhagsleg geta Þorvaldur Garðar Kristjánsson kvaddi sér hljóðs utan dagskrár i efri deild Alþingis i gær vegna yfirgangs brezkra togara á linu- miðum Vestfjarðabáta i siðustu viku. Spurði hann hvaða ráð- stafanir yrðu gerðar til að koma i veg fyrir að slikir atburðir endur- tækju sig. Bjarni Guðbjörnsson lagði áherzlu á, að linumiða Vest- fjarðabáta yrði gætt betur af Landhelgisgæzlunni. Ólafur Jóhannesson sagði, að varðskip hefði verið statt við Hornbjargsvita á laugardag með vistir og vitavörð, er þar skyldi fara i land.er kvartanir bárust um veiðarfæratjón báta vegna yfirgangs brezkra togara. 5 varð- skip voru þá úti og öll bundin við eftirlitsstörf og öryggisgæzlu, en hún væri mjög'mikilvæg nú er loðnuvertiðin stæði yfir. Harmaði ráðherrann þennan atburð og sagði að það þyrfti að finna leiðir Alexander Stefánsson sveitarfélaga takmörkuð, er það fjármagn, sem veitt er skv. 32. gr. laganna, 12 1/2 af hundraði af heildartekjum vegamála, of litið Þvi er lagt til i frumvarpi þessu, að það verði aukið I 20 af hundraði. til að reyna að tryggja sem bezt að slikir atburðir ættu sér ekki stað, og m.a. myndi dómsmála- ráðuneytið taka upp viðræður við sjávarútvegsráðuneytið um möguleika á að afmarka báta- svæðin sem mest. Nú fjölgaði islenzkum togskipum mjög á miðunum og gætu þvi einnig orðiö árekstrar af þessu tagi milli þeirra og linubátanna og væru þess mörg dæmi i'rá fyrri árum. Höfuðatriði væri I málum sem þessu, að skipstjórar mættu fyrir rétti og gæfu skýrslu. Hann drægi ekki i efa sannleiksgildi frásagna bátaskipstjóranna, en skipstjórar brezku togaranna bæru aðra sögu og ef krefjast ætti skaðabóta, svo sem sjálfsagt væri. og koma á framfæri gildum umkvörtunum þyrfti að undirbyggja mál vel. Enginn viðkomandi skipstjóra hefði hins vegar enn mætt fyrir rétti til að gefa skýrslu um at- burðina, og engin bréf eða Á. s.l. ári nam þéttbýlisvegaféð 156.651.400 kr., var kr. 785,90 á ibúa. Gagnrýnt hefur verið meðal sveitarstjórnarmanna, að skipting þessa fjár sé eingöngu miðuð við ibúafjölda. Er hér þörf á breytingu i þá átt, að tekið sé tillit til ófullgerðra verkefna við lagningu þjóðvegarins á viðkomandi stað. Virðist þetta sanngjörn breyting, þar sem i mörgum kaupstöðum er varanleg gatnagerð að þessu leyti langt komin, en viða úti um land algjörlega á frumstigi. Þá er lagt til i frumvarpi þessu, að kauptún með 200 Ibúa i stað 300 ibúa áður komi inn i skiptingu fjárins. Auðveldar það myndun nýrra þéttbýliskjarna. Lagt er til i frumvarpi þessu, að 34. gr. vegalaga breyttist þannig, að árlega verði haldið eftir 20 af hundraði af heildarframlagi til lagningar þjóðvega i kaupstöðum og kauptúnum I stað 10 af hundraði áður. Þetta fjármagn nam i árslok 1973 — frá 1964-1973 — 66.345.500 kr., sem hafði verið ráðstafað þannig: skýrslur hefðu borizt frá þeim til dómsmálaráðuneytisins enn. Hvatti hann viðkomandi til, að láta ekki undir höfuð leggjast að fara réttar boðleiðir i slikum málum, þar sem það væri þáttur i að fyrirbyggja endurtekningu á slikum atburðum og nauðsyn- legur undanlari þess ef koma ætti fram skaðabótakröfum. Alexander Stefánsson sagði, að það væri viðar en á Vestfjörðum, sem sjómenn á bátaflotanum væru i vanda. Gerðir væru út 40- 60 bátar frá verstöðvum á Snæ- fellsnesi og við Breiðafjörð á miðin út af Breiðafirði. Þau mis- tök hefðu hins vegar verið gerð við setningu fiskveiðilaganna fyrir áramót, að togveiðar hefðu veriö leyfðar upp að 4 milum og 6 milum úti fyrir Breiðafirði, en þar fyrir utan væru sum beztu linumiðin. Bátar, sem hætt hefðu sér út fyrir 6 milur, hefðu orðið fyrir tjóni, þótt ekki hafi það verið Kópavogur.........51.335.000 kr. Selfoss.......... 12.364.600 kr. Hveragerði.......... 765.300 kr. Dalvik............ 1.879.800 kr. Nú hefur rfkið yfirtekið ián Kópavogskaupstaðar. Eins og sjá má af framanskráðu, hafa sárafáir staðir i landinu notið lána eða styrkja af þessu geymslufé. Með auknu fjármagni og þegar dýr framkvæmd eins og Kópavogsgjá er ekki lengur með, má vænta þess, að þetta fjármagn verði i auknum mæli til að hraða framkvæmdum sveitafélaga. Sérstök ástæða er að undirstrika nauðsyn þess, að m.a. með þessu fjármagni veröi hraðað lagningu þjóðvega i gegnum kaupstaði og kauptún, er hafa mikinn umferðarþunga gegnum miðja byggðina, bæöi hvað varðar atvinnulif viðkomandi staðar og almenna umferð um þjóðveginn. Ennfremur verður að telja eðlilegt. að vegamálastjóri hafi samráð við viðkomandi sveitar- stjórnir um skiptingu fjárins. kært og ekki vitað hvort þar voru erlendir eöa innlendir að verki. En sveitastjórnir á þessu svæði hefðú sent áskorun til sjávarút- vegsráðuneytisins um að settar yrðu reglur um skiptingu þessara svæða á aðalvertið bátanna á milli linu- og netaveiða annars vegar og togveiða hins vegar. Þessari beiðni hefði ekki verið sinnt og fagnaði hann þvi, að dómsmálaráðuneytið hygðist taka upp viðræður við sjávarút- vegsráðuneytið um möguleika til aö afmarka bátasvæði betur en gert hefði verið. Jón Árniann Héðinsson, sagði, að áherzlu ætti að leggja á, að bæði linúskip og togskip merktu veiöisvæði sin skv. gildandi reglum og færu eftir slikum reglum. Ef sannað yrði, aö ekki væri farið að reglunum ætti við- eigandi viðurlög og bætur til að koma. Atburðirnir úti fyrir Vestfjörðum sl. laugardag til umræðu utan dagskrdr í efri deild: Skipstjórarnir þurfa að gefa skýrslu fyrir rétti

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.