Tíminn - 21.02.1974, Page 7
Kimmtudagur 21. febrúar 1974.
TÍMINN
7
tltgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson.
Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif-
stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif-
stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusími 12323 — aug-
lýsingasimi 19523. Áskriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands,
i lausasölu 22 kr. eintakið.
Blaðaprent h.f.
—_____________________ J
Aðalatriðið er að
ná markmiðinu
1 ræðu, sem Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra,flutti á fundi Framsóknarfélaganna i
Reykjavik 7. þ.m., vék hann að varnarmálun-
um, og var sá kafli ræðu hans birtur hér i blað-
inu i gær. Forsætisráðherra ræddi m.a. um til-
lögur Einars Ágústssonar, sem höfðu verið
samþykktar bæði i þingflokki og framkvæmda-
stjórn Framsóknarflokksins. Forsætisráð-
herra sagði m.a. um tillögurnar:
,,Þær eru i fyrsta lagi miðaðar við, að við
stöndum við skuldbindingar okkar gagnvart
NATO. Þess vegna viljum við leyfa Banda-
rikjamönnum að láta flugvélar lenda á Kefla-
vikurflugvelli að svo miklu leyti, sem slikt er
nauðsynlegt vegna eftirlitsflugs á Norðurhöf-
um á vegum NATO. Við viljum fallast á, að
Bandarikjamenn hafi hér i þessu sambandi
hæfilegt lið til þess að annast þjónustu við þess-
ar flugvélar. Hvort tveggja, bæði flugvéla-
fjöldinn og eins fjöldinn i þeirri sveit, sem hér
gæti verið til eftirlits eða þjónustu við flug
vélarnar, færi annað hvort eftir samningum
við Bandarikjamenn eða væri háð ákvörðun
islenzkra stjórnvalda.
Ennfremur er miðað að þvi, að íslendingar
geti sem fyrst tekið i sinar eigin hendur lög-
gæzlu á Keflavikurflugvelli, þó slikt myndi að
sjálfsögðu ekki koma til, fyrr en varnarliðið
væri að fullu og öllu farið, og ekki heldur fyrr
en islenzkt lögreglulið hefði verið fullkomlega
þjálfað til þessara starfa.
Þá er miðað við, að lagt sé til nægilegt is-
lenzkt þjónustulið til þess að sinna þeim verk-
efnum, sem þarf að sinna i sambandi við þessa
starfsemi..
Þetta er fyrri þátturinn, ekki aðalþátturinn.
Þetta er sá þáttur, sem leiðir af þvi, að við ætl-
um að óbreyttum aðstæðum að vera áfram i
NATO.”
í framhaldi af þessu sagði forsætisráðherra:
„Jafnframt er i tillögum utanrikisráðherra
sett fram það, sem er aðalmarkmiðið, að
varnarliðið hverfi af landinu i áföngum, að öðru
leyti en þvi, sem rakið hefur verið.
Það skiptir að minum dómi ekki miklu máli,
hvort það er i þremur eða fjórum áföngum,
hvort það tekur i heild einu ári lengur eða
skemur, hvort það ganga til þess tvö ár
eða þrjú ár. Við höfum haft þetta lið hér svo
lengi, að það ætti ekki að vera meginatriðið,
hvort það fer að fullu og öllu árinu fyrr eða
seinna. Aðalatriðið er að ná markmiðinu.”
Forsætisráðherra lagði áherzlu á, að reynt
yrði að ná fram þessu aðalatriði með endur-
skoðun á varnarsamningnum, enda er það i
samræmi við stjórnarsáttmálann að reyna
endurskoðunarleiðina til þrautar. Um þetta
sagði ráðherrann ennfremur:
,,Ég skal engu spá um það, hvort það tekst
að ná samningum um lausn á Keflavikur-
málinu. Ég er alls ekki vonlaus um það. En þá
fyrst, ef það sýnir sig, að það tekst ekki, er
timabært að leggja fram á Alþingi tillögu um
heimild til uppsagnar og timabært að segja
samningnum upp.”
ERLENT YFIRLIT
Kosið um Indiru
í Uttar Pradesh
Úrslitabeðið með eftirvæntingu í AAoskvu og Peking
Inclira Giindhi
DAGANA 24.-26. febrúar
fara fram fylkiskosningar i
fjölmennasta fylki Indlands,
Uttar Pradesh. íbúafjöldinn
þar er um 90 milljónir. Þar
náði sjálfstæðishreyfingin.
sem beindist gegn Bretum,
fyrst verulegri fótfestu. og
þaðan komu lika margir
áhrifamestu leiðtogar hennar.
eins og Nehru. faðir Indiru
Gandhi, og Lal Bahadur
Shastri, sem tók við forsætis-
ráðherraembættinu af Nehru.
Kongressflokkurinn hefur
alltaf verið mjög sterkur i Utt-
ar Pradesh. Þegar flokkurinn
klofnaði fyrir nokkrum árum.
vann sá hluti hans. sem fylgdi
Indiru Gandhi, mikinn sigur
þar og hefur nú traustan
meirihiuta á fylkisþinginu,
sem er skipað 450 fulltrúum.
Það þykir hins vegar tvisýnt.
hvort honum tekst að halda
honum i kosningunum i næstu
viku. Þess vegna er þeim veitt
m.ikil athygli i öðrum fylkjum
Indlandsog viða um heim. Úr-
slit þeirra verða talin visbend-
ing um fylgi Indiru Gandhi, en
missi hún og flokkur hennar
meirihluta i næstu kosningum
tii sambandsþingsins i Nýju
Delhi. getur skapazt almennt
upplausnarástand i indversk-
um stjórnmálum. Þess vegna
eru stjórnmálahorfur nú held-
ur óvissar og ótryggar i þessu
öðru fjölmennasta riki Asiu,
og raunar allrar veraldar. Það
getur átt eftir að hafa ófyrir-
sjáanleg áhrif á valdataflið i
Asiu. M.a. gæti það styrkt að-
stöðu Kinverja, en veikt aö-
stöðu Rússa, sem hafa lagt
mikla áherzlu á gott samstarf
við stjórn Indiru Gandhi.
KUNNUGIR menn i Ind-
landi telja Uttar Pradesh eins
konar spegilmynd af Indlandi.
og þvi sé meira að marka
kosningaúrslit þar en i öðrum
fylkjum Indlands. Aðeins 20%
ibúanna eru iæsir, og meðal-
árstekjur á mann eru 70
dollarar. Fátækt er þar þvi
m.ikil, en þó ekki meiri en við-
ast í Indlandi. Þar kemur oft
til árekstra milli Hindúa og
Múhameðstrúarmanna, enda
eiga helztu samtök beggja
uppruna sinn þar. og löngum
hefur verið grunnt á þvi góða
milli þeirra. Stéttaskipting er
rr.ikil og óviða i fastari skorð-
um en þar. Hún hefur veruleg
áhrif á stjórnmálabaráttuna,
þvi að rnargir kjósa ekki siður
eftir stéttum en flokkum.
Kosningabarátta hefur
venjulega veriö hörð i Uttar
Pradesh, en þó aldrei öllu
harðari en nú. Um 4000 fram-
bjóðendur keppa um hin 450
þingsæti. eða niu frambjóð-
endur til jafnaöar i hverju
kjördæmi. öflugasti flokkur-
inn er flokkur Indiru Gandhi,
Kongressflokkurinn, sem ræð-
ur nú yfir 271 þingsæti. Bar-
átta allra hinna flokkanna
beinist fyrst og fremst gegn
honum, enda sameiginlegur
sigur fyrir þá alla, ef það tæk-
ist að svipta hann meiri-
hlutanum.
llelzti keppinautur Kon-
gressflokksins er Jan Sangh-
flokkurinn, sem á aöalfylgi
sitt i borgum. Hann er skipaö-
ur atvinnurekendum. kaup-
mönnum, stúdentum,
verzlunarfólki. skrifstofufólki
og lágiaunafólki i hópi opin-
berra starfsmanna. Flokkur-
inn er mjög þjóðernissinnaður
og er hreinræktaður Hindúa-
flokkur. Hann er nú óðum að
vinna sér stöðu sem helzti
hægri flokkurinn i Indlandi.
Næstur honum að fylgi kemur
Þjóðlegi byltingari'lokkurinn.
en hann hefur safnað bændum.
L'ttar Pradesh
Mýhameðstrúarmönnum og
jafnaðarmönnum undir merki
sitt og svipar að ýmsu leyti til
sósiaidemokrata á Vestur-
löndum. Foringi þessa flokks,
Charan Singh, var áður i Kon-
gressflokknum gamla. og var
um skeið forsætisráðherra i
Uttar Pradesh. Annar fyrr-
verandi forsætisráðherra i
Uttar Pradesh. L.B. Gupta. er
foringi þess hluta Kongress-
flokksins. sem snerist gegn
Indiru Gandhi, þegar flokkur-
inn klofnaði 1969. Þessi flokk-
ur virðist ekki hafa mikinn
byr. nema hjá sumu eldra
fólki, sem heldur tryggð viö
gamla leiðtoga eins og Gupta.
en hann var náinn samstarfs-
maður Nehrus um langt skeið.
Til viðbótar þessum þremur
helztu flokkum stjórnarand-
stæðinga. koma svo ýmsir
smáflokkar og óháðir fram-
bjóðendur.
ALLIR stjórnarandstöðu-
flokkarnir leggja höfuðkapp á
að deila á Indiru Gandhi og
stjórn hennar. Þar fer fremst-
ur i flokki leiðtogi Jan Singh-
flokksins, Subramaniam
Swamy, sem er hngfræðingur
að menntun. 34 ára aö aldri, og
hefur það ma. sér tilágætis að
hafa verið kennari við Har-
vardháskólann i Bandarikjun-
um. Hann segir. að Indira
Gandhi hafi komizt til valda
með þvi að lofa gulli og græn-
um skógum, en efndirnar hafi
orðið vanstjórn. skrifstofu-
veldi og spilling. Gupta segir
hins vegar, að eina uppskeran.
sem þjóðin hafi hlotið af
kosningasigrum Indiru
Gandhi. sé sú. að hún hafi
eignazt drottningu með stóra
hirð. en það hafi aldrei veriö
ætlun kongressmanna að
stæla Breta á þann hátt. Eina
markmið Indiru sé að verða
lengur forsætisráöherra Ind-
lands en faöir hennar. en hann
var forsætisráöherra i 17 ár.
Indverjar hafi vissulega þörf
fyrir annað á þessum tima en
áhugalitla og getulitla drottn-
ingu. sém safni um sig hirð.
sem sé enn óhæfari og getu-
minni.
Fylgismenn Indiru Gandhi
reyna að sjáifsögðu að mæta
þessum árásunr á hana eftir
beztu getu. Þeir benda i fyrsta
lagi á margt. sem vel hefur
tekizt« Þeir benda á, að
styrjöldin i Bangladesh hafi
kostað Indland mikil útgjöld,
meðal annars hafi flóttamenn
frá Bangladesh verið á annan
tug milljóna um skeið. og hafi
indverska stjórnin orðið að sjá
um framfærslu þeirra. Siðan
hafi bætzt við tvö erfið þurrka-
ár, sem hafi dregið úr upp-
skeru. Loks hafi svo bætzt viö
miklar verðhækkanir á inn-
fluttum vörum, þótt verð-
hækkunin á oliunni hafi orðið
tilfinnanlegust. Allt hafi þetta
orðið tii þess aö torveida um-
bótastarf stjórnarinnar. Eigi
að siður hafi þvi verið haldið
sleitulaust áfram. Þá vara
fylgismenn Indiru óspart við
þeim glundroða. sem myndi
hljótast af þvi. ef flokkur
Indiru missti völdin. Það gæti
haft hinar verstu afleiðingar.
bæði inn á við og út á við.
Þannig snúast fylkis-
kosningarnar i Uttar Pradesh
fyrst og fremst um Indiru
Gandhi, þótt þær ættu aðal-
lega að snúast um heimamál.
Úrslit þeirra munu þvi verða
mikil visbending um. hvert
fylgi hennar er um þessar
mundir. Það mun ekki aðeins
hafa mikil áhrif heima fyrir.
ef þau benda til þess. að staða
hennar sé að veikjast. heldur
ekki siður út á við. Indland er
það riki Asiu. sem helzt getur
hamlað gegn Kinverjum. og
skapað eins konar jafnvægi i
málum álfunnar. Veikist sú
staða Indlands vegna óstöðugs
stjórnarfars. verður það vatn
á m.vllu Kinverja. Þetta munu
ekki sizt Rússar gera sér ljóst.
og þess vegna er sennilega
óviða fylgzt betur með
kosningunum i Uttar Pradesh
en i Moskvu, nema ef vera
skvldi i Peking.
Þ.Þ.
Þ.Þ.