Tíminn - 07.03.1974, Side 3
Fiinmtudagur 7. marz 1974.
TÍMINN
3
Verið er að rita
goðspjöll hin
KVÍGAN
FUNDIN
— var haidið, að
hana hefði hrakið
í sjóinn
G.V.—Trékyllisvik. — Kvig-
an, sem hvarf i ofviðrinu i
fyrrinótt, er fundin. Bænd-
urnir i Litlu-Avik, veittu því
athygli i gærmorgun, að eitt-
hvað kvikt var fyrir ofan
Hraun, sem er hæðarhrygg-
ur fyrir neðan Ávikurdalinn.
Fóru þeir að athuga um
þetta nánar, og kom þá i Ijós,
að þarna var kvigan, sprell-
lifandi.
Þegar hún varð mannanna
vör tók hún á sprett, en þó
tókst þeim að ná henni og
koma henni heim að Avik.
Hún var hrædd i fyrstu, en
róaðist brátt við gott atlæti.
Engin meiðsl eru sjáanleg
á kvigunni, en þó er eins og
hún sé hálfsár á fótum, en i
hálsbandinu dró hún hluta úr
jötustokknum, sem hún haföi
verið bundin við. I stað þess
að hrekjast i sjóinn eins og
haldið var, hefur kvigan
hlaupið fram á svokallaðan
Ávikurdal. Þar hefur hún
haldið sig i fyrradag, en
slegið sér ofan um nóttina.
Veður hefur verið gott, lit-
ils háttar snjómugga og
frostlaust i fyrrinótt. Allir
tiltækir menn unnu að þvi i
fyrradag að gera við það,
sem fór forgörðum i Ávik og
klukkan 2 i fyrrinótt voru
þeir búnir að koma þaki á
ibúðarhúsið. 1 gær var unnið
að þvi að byggja yfir ljósa-
vélina til bráðabirgða, eftir
þvi sem föng eru á.
Kýrin og kvigan endur-
fundna eru komnar i bráða-
birgðaskýli.
Sáttafundur
—hs—Rvik. — Sáttafundur hófst
kl. 21 i gærkvöldi með sjómönnum
og útgerðarmönnum. Enn cru
stærstu deilumálin óútkljáð.
Að sögn Jóns Sigurðssonar,
form. Sjómannasambandsins, i
gær, hefur nokkuð þokazt i ýms-
um smærri málum, eftir að funöir
hófust á ný, en eins og áður sagði
eru aðaldeilumálin enn eftir.
Sjómannafélag Reykjavikur
hélt i gær fund, þar sem kynna
átti félagsmönnum þess, hvernig
málin standa.
11. REGLULEGU tónleikar
Sinfóniuhljóm sveitar islands
verða haldnir i Háskólabiói i dag
kl. 20,20. Stjórnandi verður Páll
P. Pálsson og einleikari ung-
verski pianósnillingurinn Laszlo
Simon. Flutt verður Vatnasvita
eftir Hándel/Harty, pianókonsert
nr. 2 eftir Béla Bartok, Till Eulen-
spiegel eftir Richard Strauss og
Dialoge eftir Pál P. Pálsson.
Einleikarinn Laszlo Simon er
ungverskur og er fæddur 1948.
Hann stundaði tónlistarnám við
Béla Bartok Tónlistarskólann á
árunum 1962-66 og slðan við Tón-
listarskóla Sænska Útvarpsins i
OÓ—Reykjavik — Til forna voru
styrkar stoðir undir trú manna á
Æsi. Þeir voru blótaðir í hofum og
andleg og veraldleg völd voru I
höndum hofgoðanna, sem gjarn-
an voru tengiliðir æðri máttar-
Gsal—Reykjavik — t fyrravor
fóru nokkrir áhugasamir leikarar
til Grænlands til að kynna sér lif
Eskimóa. Þeir hafa nú útbúið
ieikrit, sem þau nefna INUK, en
orðið þýðir maður á máli
Eskimóa. Leikritið er hugsað sem
ein kennslustund og það er von
leikaranna, sem að INUK standa,
að skólastjórar og skólayfirvöld
panti leikritið til sýninga i skól-
um. Leikritið verður ekki sýnt i
leikhúsi.
Þátttakendur i undirbúningi og
gerð þessa leikrits voru Haraldur
Ólafsson, sem gerði texta, Brynja
Benediktsdóttir, Kristbjörg
Kjeld, Helga Jónsdóttir, Þórhall-
ur Sigurðsson og Ketill Larsen.
Atli Heimir Sveinsson hefur út-
sett tónlist við leikritið, en hún er
grænlenzk og lærðu aðstandendur
leikritsins tónlistina, þegar þeir
dvöldust á Grænlandi á s.l. ári.
Búningar eru gerðir með sama
sniði og grænlenzkir búningar.
Að sögn Brynju Benediktsdótt-
gbk—Reykjavik — Fyrir skömmu
litu inn á skrifstofur blaðsins
tveir nemendur i Ármúlaskóla,
þeir Jón Á. Rúnarsson, formaður
neinendaráðs skólans, og Jóhann
Halldórsson v a r a f or m a ður.
Erindi þeirra var að kynna mál-
stað nemenda i „dansleikjamál-
inu”, sem hefur verið ofariega á
Stokkhólmi og Tónlistarskólann i
Hannover, en aðalkennari hans
þar var Hans Leygraf.
Páll Pampichler Pálsson hefur
á undanförnum árum verið ráð-
inn aðstoðarhljómsveitarstjóri
Sinfóniuhljómsveitar tslands og
hefur stjórnað hljómsveitinni á
mörgum tónleikum úti á landi og
einnig I Háskólabiói. Hann er
einnig stjórnandi Lúðrasveitar
Reykjavikur og hefur auk þess
fengizt talsvert við tónsmiðar, en
á þessum tónleikum mun hann
frumflytja hljómsveitarverk,
sem hann hefur nýlokið við að
semja.
valda og dauðlegra manna og orð
þcirra voru lög. Gengu menn þá
ekki að því gruflandi, á hvað þeir
áttu að trúa.
Þótt nú hafi verið stofnað til
Asatrúar á ný og trúarbrögðin
ur hafði mikið starf verið unnið
áður en til Grænlands var haldið.
— En við sáum fram á það,
sagði Brynja, að nauðsynlegt
væri að komast i snertingu við lif
Eskimóanna á Grænlandi og sú
var ástæðan fyrir för okkar,
Sagði Brynja, að menntamála-
ráðuneytið hefði styrkt þau til
utanfarar, en þó hefðu þau sjálf
staðið undir öllum kostnaði við
uppihald og unnið kauplaust að
þessu verki.
— Flogið var til Angmagsalík
og haldið til þorps, sem heitir
Sermilik og þar hittum við meðal
annars siðasta angakokk (töfra-
maður) Eskimóa, háaldraðan
mann sem dvaldi á elliheimili,
sagði Brynja.
Leikritið INUK fjallar um lif
Eskimóafjölskyldu áður en hún
kemst i snertingu vi menning-
una, og eftir að hún hefur haldið
innreið sina, og fjölskyldan er
orðin meðvitandi um umheiminn.
Erh. á bls. 6
baugi i gagnfræðaskólum
Reykjavikur i vetur.
Skólastjórar gagnfræðaskól-
anna i Reykjavik hafa neitað
nemendum um dansleikjahald
með hljómsveitum i húsnæði
skólanna. Nemendum er aðeins
leyft að halda diskótek og mega
þau standa til kl. 23.30. Þetta var
gert vegna drykkjuskapar
nemenda á skólaböllum.
Þeir Jón og Jóhann vildu sér-
staklega benda á, hve nemendum
þætti fáránlegt að banna hljóm-
sveitir á skólaböilum, þvi að þær
væru engin uppspretta drykkju-
skapar. Stytting skóladansleikj-
anna leysti heldur engan vanda,
það myndi þvert á móti auka ráp
unglinganna eftir böllin og
ábyrgðinni væri varpað yfir á lög-
regluna, sögðu þeir að ekkert
samráð hefði verið haft við
nemendur við samningu reglu-
gerðarinnar, sem skólastjórarnir
1 DAG, 7. marz, eiga Dráttarvél-
ar hf. 25 ára afmæli. Fyrirtækið
var stofnað 1949 af Sambandi isl.
samvinnufélaga i þeim tilgangi
að annast innflutning á Fergu-
son-dráttarvélum og landbúnað-
artækjum. Náðu Ferguson-drátt-
arvélarnar strax geysimiklum
vinsæidum meðal bænda og hafa
lengst af síðan verið mest scldu
dráttarvélarnar hérlendis, hin
siðari ár undir heitinu Masscy-
Ferguson. Frá sama framlcið-
anda hefur fyrirtækið auk þess
flutt inn gröfu- og moksturssam-
stæður ásamt ýmsum vinnu-
vélum, sem sömuleiðis hafa gefið
mjög góða raun.
Auk þess hafa Dráttarvélar hf.
á liðnum árum tekið allmörg önn-
ur umboð fyrir margvislegar vél-
ar og tæki. Meðal hinna þekktari
má nefna Perkinsdisilvélar,
Hanomag-Henschel-bifreiðar,
Alfa-Laval mjólkurvinnsluvélar,
Muller-mjólkurkæligeyma,
nýju
löghelguð af veraldlegum og lög-
skipuðum stjórnvöldum er hinn
endurreisti siður svolitið laus i
reipunum. Goði er að visu til, en
ekkert hof, og blótveizlur yrðu
litnar óhýru auga af yfirvöldum,
og fá tæpast inni i glaumhúsum
höfuðborgarinnar, og enn verra
er, að þeir, sem játast undir Oðin,
Þór, Frey og þá karla hafa ekki
við annað að styðjast i lifsskoðun
sinni og helgiathöfnum en fremur
slitróttar frásagnir af gömlum
goðmögnum, ritaðar af kristnum
mönnum, sem eru á við og dreif i
mörgum bókum.
En nú skal ráðin bót á þessu, og
sitja fjórir goðspjallamenn við að
rita hina nýju bibliu Ásatrúar-
manna. Þar verður safnað saman
á einn stað helztu atriðum Asa-
trúar og upplýsingum um á hvern
veg menn eigi að haga lifi sinu til
að þóknast goðunum.
Spámennirnir nýju eru þeir
Sveinbjörn Beinteinsson, alls-
herjargoði, Jörmundur Ingi, örn
Klásen og Dagur ÞorleifsSon.
Skipta þeir með sér verkum og
rita sitthvert goðspjallið. Verður
fjailað þarna um þýðingu goð-
anna, um helgisiði Ásatrúar-
manna, siðfræði Asatrúar og sitt-
hvað fleira, sem áhangendur trú-
arinnar verða að vita.
Nokkuð liggur við að drifa bók-
ina saman og koma henni á
þrykk, svo að Asatrúarmenn
megi gjörla sjá hver hinn rétti
siður er, og að villukenning nái
ekki að skjóta rótum áður en heil-
leg mynd er komin á samfélag
trúbræðra og systra.
settu um skólaböllin.
Þeir sögðu, að þetta myndi
einungis hafa i för með sér, að
nemendur flyttu dansleiki sina úr
húsum skólans. T.d. hefði verið
ágætt samstarf við Tónabæ og
einnig hefði Þórscafé boðið gagn-
fræðaskólunum samstarf. En
einkum þykir nemendum súrt i
broti, að þeim skuli hafa verið
neitað um að halda eitt ball til
reynslu.
Sögðu Jón A. Rúnarsson og Jó-
hann Halldórsson nemendur fúsa
til að bæta fyrir brot sin og sýna,
að þeir geti haldið böll án áfengis.
Sem dæmi nefndu þeir árshátið
Ármúlaskóla, sem haldin var i
Tónabæ 26. febrúar. A ballinu
voru 600 manns og af þeim var
aðeins einn nemandi undir áhrif-
um áfengis, en það var utanskóla-
nemandi i Armúlaskola.
Vilja nemendur betri samstarf
við skólastjóra um þetta mál.
Siera-úrvarps-, hljómburðar- og
heimilistæki, Frigor-frystikistur
og Hellesens-rafhlöður.
í fyrstu stjórn Dráttarvéla hf.
voru þeir Agnar Tryggvason for-
maður, Helgi Þorsteinsson og
Kristjón Kristjónsson. I núver-
andi stjórn eru þeir Hjalti Páls-
son formaður, Hjörtur Hjartar
varaformaður og Agnar
Tryggvason. Fyrsti fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins var
Hjalti Pálsson, en aðrir, sem
veittu fyrirtækinu forstöðu á liðn-
um árum, voru þeir Runólfur
Sæmundsson og Baldur Tryggva-
son. Núverandi framkvæmda-
stjóri er Arnór Valgeirsson.
Endurskoðendur eru Oskar
Jónatansson og Geir Geirsson.
Aðsetur fyrirtækisins er að
Suðurlandabraut 32 i Reykjavik.
Dráttarvélar hf. munu minnast
afmælis sins I sambandi við aðal-
fund fyrirtækisins, sem haldinn
verður i april n.k.
Fiskkassa-
verksmið|a
Fyrir Alþingi liggur nú
stjórnarfrumvarp um stofnun
undirbúningsfélags að fisk-
kassaverksmiðju. Frumvarp
þetta er árangur af starfi
nefndar, sem skipuð var af
iðnaðarráðuneytinu 1972. Er
iönaðarráðherra mælti fyrir
þessu frumvarpi á þingi,kom
m.a. fram álit nefndar-
innar, en verkefni hennar voru
cftirfarandi:
1) Að kanna hugsanlega þörf
útgerðariimar fyrir fiskkassa.
2) Að gera frumatliugun á
þvi, livort hagkvæmt geti
talist, að hefja hér á landi
framleiöslu á fiskkössum.
3) Að gcra áætlun um,
hvernig bezt verði staðiö að
framkvæmd þessa máls.
Nefndin skilaði skýrslu um
starfsemi sina i april 1973. í
skýrslu sinni leggur n. áherslu
á eftirfarandi:
1) Fiskkassar leysa ekki
allan vanda. Taka þarf upp
nýttkerfi i mcðferð á fiski, þar
sem kassar eru aðeins einn
þátturinn.
2) Innlent fiskkassafyrir-
tæki tengt sjávarútvegi liefur
betri aðstöðu til þess að leysa
vandann en erlent plast-
kassafyrirtæki og mun frekar
stuðla að þróun i tækni við
meðfcrö á fiski hér á landi.
3) Fleiri hluti en fiskkassa
er unnt að framleiða með
sömu vélum og fiskkassa, svo
sem flutningapalla, linubala
og margt fleira.
Nefndin bendir og á, að lík-
legt megi telja, að markaöur
muiii verða fyrir um 500 þús.
fiskkassa, eu að endur-
nýjunarþörf á ári sé um 15-
20%. Þar sem hver kassi
kostar innfluttur yfir 1000 kr.,
og fer raunar hækkandi, er
um geysimikla fjárfestingu að
ræða. Rétt er að geta þess, að
ýinsar lciðir má fara til þess
að áætla stærð markaðs fyrir
fiskkassa, og er liklegt, að
mörgum þyki 500 þús. kassar
há tala, en á það skal bent, að
á s.I. rúmu ári hafa verið
fluttir inn um 150 þús. fisk-
kassar frá Noregi Það má og
nefna, að takist vel til með
notkun þessara kassa, er lik-
legt, að jafnvel fleiri en tog-
bátar taki upp fiskkassa
Kassanotkun við sild- og
loönuveiöar kemur til álita.
fáist gott verð fyrir aflann.
Geta má þess, að n. hefur
leitað til Fiskifélags islands
um atliugun á markaði fvrir
fiskkassa, óg hefur stofnunin
verið beðin að athuga nánar
og gagnrýna, ef þörf þykir,
markaösspá n. Einnig hefur
Fiskifélagið verið beðið að at-
liuga, hve mikið vandamál
aukin geymslurýmisþörf i
lestum skipa vegna notkunar
fiskkassa liefði i för með sér.
Ekki liggur fyrir álit
Fiskifélagsins um stærð
markaðs, en hins vegar virð-
ist ekki vera uni að ræða
veruleg vandamál samfara
þvi, aö fiskkassar nýta ekki
lestarrýmið eins vel, og þegar
stiur eru notaðar. Er þá
niiðað við báta um eða yfir 200
lestir.
Stof nkostnaður
85 milljónir
Nefndin telur, að rekstrar-
grundvöllur sé fyrir innlent
fyrirtæki, er framleiddi fisk-
kassa. Stofnkostnaður er
áætlaður 85 millj. kr.,fastur
kostnaður um 30 millj. kr. og
breytilegur kostnaður 70
millj. kr. Athuganir benda til
þess, að framleiðsla á fisk-
kössum og öðrum hliðstæðuin
varningi, svo sem flutnings-
pöllum. geti orðið vel arðbært
fyrirtæki.
Rétt er, að það komi fram
Framhald á 19. siðu
Páll Pampichler Pálsson og ungverski pianóleikarinn, Laszlo Simon. —
Timamynd: GE.
Frumflutt tónverk
eftir Pdl P. Pdlsson
Leikrit um líf Eskimóa:
l-N-Ú-K
-— hugsað sem kennslustund í skólum
ÞYKIR SURT I BROTIÐ
AÐ MISSA SKÓLABÖLLIN
DRÁTTARVÉLAR H.F.
25 ÁRA í DAG