Tíminn - 18.05.1974, Page 2
/ 7 ’'/
* V
TÍMINN
Laugardagur 18. mai 1974.
Laugardagur 18. maí 1974
Vatnsberinn: (20. jaivl8. febr.)
Þú ert i einhverjum vafa I dag. Þér hefur boöizt
eitthvert tilboö, sem þú hefur ekki hugmynd um,
hvernig þú átt aö bregöast viö, en það er óhætt
að fullyrða, aö þú færð ekki annað eins fyrst um
sinn
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Það hefur komið eitthvað einkennilegt upp á i
samskiptum þinum við annað fólk, og sérstak-
lega er það ein persóna, sem leitar eftir sam-
bandi eða kunningsskap við þig. Þú skalt vera
vel á verði gagnvart henni.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Það eru aldeilis gleðidagar hjá þér núna, sér-
staklega i dag. Nú berast þér góðar fréttir af
nánum ættingja, sem dvalið hefur langdvölum
fjarri heimili sinu. Þú lyftir þér upp i kvöld, og
það er ekki nema sjálfsagt.
Nautið: (20. april-20. mai)
Það verður ekki betur séð en fjármálin séu
komin i gott lag og það sé bara allt eins gott eins
og framast verður á kosið. Ekki er það óliklegt,
að happdrættismiði, sem þú kaupir i dag, verði
þér til gæfu.
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
Einhverjir kunningjar þinir eru að bralla eitt-
hvað og að likindum fara út i einhvers konar
rekstur. Ef þeir leita til þin, skaltu ekki ana út i
að veita þeim stuðning nema að vandlega
ihuguðu máli.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Það er engu likara en að þú verðir fyrir ein-
hverju láni, eða jafnvel gæti farið svo, að á
vinnustað yrðir þú fyrir einhverri upphefð, og
það kostar öfund vinnufélaganna, sem þú skalt
ekki láta á þig fá.
Ljónið: (23. júlí-23. ágúst)
Það litur út fyrir, að þú farir' i eitthvert ferða-
lag. Ekki er það nú af fúsum vilja, þú hefur
kviðið fyrir þessu, en það rætist nú úr þessu. Að
hinu skaltu gæta, að þú skalt búa þig vel út,
mundu það.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Þú verður að gæta þess að vera ekki um of góður
við sjálfan þig, og þú verður lika að gæta þess að
sýna þinum nánustu meiri tillitssemi en þú hefur
gert upp á siðkastið. Þú átt ánægjulegt kvöld i
hópi vina.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Eitthvert vináttubragð, sem þú hefur sýnt ný-
lega, færð þú endurgoldið núna, og við þetta
verður fjölskyldulif þitt ánægjulegra og
hamingjrikara en áður. Þetta er þér lexia, sem
þú skalt muna.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Éf einhver mikilvæg málefni eða vandamál
varðandi heimilið eru óleyst, skaltu nota tæki-
færið i dag til þess að leysa þau, þvi að einmitt
nú eru heimilis- og fjölskyldumál undir góðum
áhrifum.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Þú skalt ekki láta tækifæriö að endurnýja
kunningsskapinn við gamla vini ganga þér úr
greipum, þvi að það litur út fyrir, að slikt geti
þýtt fyrir þig aukinn hagnaö á ýmsum sviðum,
sem máli skipta.
Steingeitin: (22. des.-19. janj.
Smáferð i hópi vina eða kunningja gerir þér af-
skaplega gott um helgina, en aðhinu skaltu samt
sem áður gá, aö það er alveg óþarfi að fara gá-
leysislega með peningana, þó að nóg sé til af
þeim.
t 14444 «
msifim
25555
BÍLALEIGA
CAR REWTAL
BORGARTUN
Hvar fdst brunakaðlar í Reykjavík?
Það er oft talað um það i f jölmiðl-
um, að almenningur eigi að
leggja sig fram við það, að fyrir-
byggja og forða frá slysum eftir
fremsta megni, og i þvi sambandi
er talað um brunavarnir i heima-
húsum, t.d. handlsökkvitæki og
brunakaðla. En það er heldur
óskemmtileg saga, sem ég hef að
segja i sambandi við það, hvernig
almenningi gengur að afla sér
tækja til brunavarna, einkum þó
og sér i lagi björgunarkaðla.
Fyrir um það bil 2 árum fengu
ung hjón með eitt barn á 1. ári
leigða risibúð i gamalli sam-
byggingu i vesturbænum i
Reykjavik. Þessi gömlu sam-
byggðu steinhús eru þrjár hæðir
og ris. t þeim er timburinnrétting
og gamlir tréstigar. Rafleiðslur
eru gamlar og úr sér gengnar
viða.
Þetta unga fólk vildi gera ein-
hverjar eldvarnarráðstafanir um
leið og þau fluttu þarna inn og
íbúðareigandi bað þau að hafa
samband við eldvarnaeftirlit
borgarinnar og hann skyldi borga
kostnaðinn og þakkaði þeim
framtakssemina.
Þau hringdu i eldvarnaeftir-
litið, sem er til húsa i Slökkvi-
stöðinni, og báru upp mál sitt og
fengu góð svör. Stuttu siðar komu
menn frá eftirlitinu og athugðu
aðstæður og sögðu, að þarna
þyrfti nauðsynlega eitthvað að
gera. Ef gera ætti brunastiga
þyrfti að hafa samráð við alla i
byggingunni og þar sem ungu
hjónin höfðu fengið leigt þarna
um óákveðinn tima fannst þeim
ekki beint vera þeirra að gangast
fyrir þvi. Eldvarnareftirlitsmenn
sögðu, að þau skyldu strax fá sér
brunakaðal — svokallaðan bjöllu-
kaðal — með tilheyrandi útbúnaði
og visuðu á ákveðið fyrirtæki,
sem seldi slik tæki. En þá sigldi
allt i strand, þvi að þetta fyrirtæki
átti ekki til þennan bráðnauðsyn-
lega kaðal. Það var oft hringt i
þetta sama fyrirtæki — en þvi
miður, — bjöllukaðlarnir voru
ekki til, en þeir voru væntanlegir,
var sagt þar.
Þegar þetta dróst von úr viti
var aftur hringt i eldvarnaeftir-
litið, hvort þeir gætu ekki bent á
önnur fyrirtæki, sem hefðu til sölu
björgunarkaðla. — Nei, þeir vissu
ekki til þess, en handslökkvitæki
voru til á nokkrum stöðum. Þá
var spurt, hvort ekki væri hægt að
notast við venjulegan sterkan
kaðal, sem festur yrði á krók við
glugga. Það var heldur talið úr
þvi, vegna þess, að það kæmi að
svo takmörkuðum notum, ef elds-
upptök yrðu, þvi að fullorðið fólk
ætti fullerfitt með að nota sika
kaðla, hvað þá með ung börn i
fangingu. Bara biða eftir bjöllu-
köðlunum!!
Þessi ungu hjón eru nú komin i
annað húsnæði, en i gömlu
risibúðina eru komin önnur ung
MIKIÐ SKAL
TIL
0 SAMVINNUBANKINN
hjón, en ennþá eru engar bruna-
varnir þarna.
Siðast þegar hringt var i fyrir-
tækið, sem selur kaðlana ogþeim
sagt, að nú væru 2 ár frá þvi fólk
I þessu húsi hefði ætlað að kaupa
hjá þeim bjöllukaðal, en ekkert
hefði gengið með það, þá sögðu
þessir heiðursmenn, að þeir hefðu
nýlega haft nokkra til sölu (10-15
stk.), og þeir kæmu kannski aftur
i sumar!
Mér finnst, að eldvarnaeftirlit
borgarinnar þyrfti helzt sjálft að
sjá um að brunavarnir, sem
hæfðu heimahúsum, væru til og
leiðbeina folki við notkun á þeim.
Ástandið i þessum málum, eins
ogþað er nú, er algjörlega óþol-
andi og borgarbúar geta ekki
unað við það stundinni lengur.
Þarna verður að koma á stór-
breyting og það hið bráðasta!
BSt.
Eigum nokkrar
BAUER-HAUGSUGUR
til afgreiðslu strax
Guðbjörn Guðjónsson
HEILDVERZLUN
Siðumúla 22 — Simar 8-56-94 og 8-52-95
Orðsending fró Líf-
eyrissjóði Austurlands
Stjórn Lifeyrissjóðs Austurlands hefur
ákveðið að veita sjóðsfélögum lán úr
sjóðnum i sumar.
Umsóknareyðublöð fást hjá formönnum
aðildarfélaga sjóðsins og á skrifstofu
sjóðsins, Egilsbraut 11, Neskaupstað.
Nauðsynlegt er að umsóknareyðublöðin
séu fullkomlega fyllt út og umbeðin gögn
fyigi-
Umsóknir um lán skulu hafa borizt skrif-
stofu sjóðsins fyrir 20. mai n.k.
Stjórn Lifeyrissjóðs Austurlands.
BRIDGESTONE
NYLON hjólbarðarnir japönsku
fóst hjó okkur.
Allar staerðir ó fólksbíla, jeppa og vörubíla.
Sendum gegn póstkröfu um allt land.
Verkstæðið opið alla daga
fró kl. 7.30 til kl. 22.00.
GUMMIVINNUSTOFANf
SKIPHOLTI 35, REYKJAVÍK, SÍMI 31055