Tíminn - 18.05.1974, Qupperneq 3

Tíminn - 18.05.1974, Qupperneq 3
Laugardagur 18. mai 1974. TÍMINN 3 Útifundur í Breiðholti FRAMFARAFÉLAG Breiðholts III hefur boðað til úrifundar við Fellaskólann á mánudaginn kemur, og mun hann hefjast klukkan átta um kvöldið. Þar verður borin fram spurning: Hvers vegna ætti ibúi i Breið- holtshverfum að kjósa flokk minn og stefnu i komandi borgar- stjórnarkosningum? Er ætlazt til þess, að frambjóðendur allra flokka verði fyrir svörum, og þeir Alfreð Þorsteinsson og Guð- mundur G. Þórarinsson verða ræðumenn af hálfu B-listans. Þjóðlagatrió og hljómsveit munu skemmta. Kennaranám- skeið í Noregi AFENGISVARNARAÐIÐ norska býður islenzkum kennurum að taka þá.tt i tveim námskeiðum, sem haldin verða i Noregi i júni og júli, þrem mönnum á hvort námskeið. Námskeiðin standa eina viku, og er uppihald ókeypis, auk þess sem þátttakendur fá þrjú hundruð krónur norskar i feröastyrk. A fyrra námskeiðinu, sem haldið verður i Asane-lýðháskóla við Björgvin 6.-12. júni verður fjallað um gagnfræðaskólana og fiknilyfjavandamálið, en á hinu, sem verður i Solhof-lýðháskóla á Lyngseidet við Tromsö 28. júni til 5. júli, verður rætt um kennslu um fiknilyf i skyldunámsskólum. Vinnuform á báðum námskeiðum verður fyrirlestrar, umræður, flokkavinna og kynning á kennslutækjum. Skólamenn tilkynni þátttöku sina fyrir 25. mai til skrifstofu áfengisvarnaráðs, Eiriksgötu 5 i Reykjavik. 24 þúsund hafa séð Leðurblökuna ROSKLEGA 24.000 leikhúsgestir hafa nú séð Leðurblökuna, enda uppselt á velflestar sýninga. Óperettan Leðurblakan var sem kunnugt er frumsýnd á annan i jólum og hefur verið sýnd siðan við frábæra aðsókn. Sýningar eru nú alls orðnar 46 , og eru þá aðeins eftir fjórar sýningar, en 50. og siðasta sýning verður mið- vikudaginn 5. júni. Miklatúnshlaup Miklatúnshlaup Armanns verð- ur háð á laugardag og hefst kl. tvö. Ollum er heimil þátttaka — „Græni borgarstjórinn" fetar í spor „Sólkóngsins": „BORGIN, ÞAÐ ER ÉG! rv BH-Reykjavik. —- Birgir ís- leifur, sem nú gegnir borgar- stjórastörfum i Reykjavik, hefur verið þekktur að þvi að þola illa gagnrýni á verk sin I borgarstjórn og undrast jafn- an i heift sinni, að menn skuli ekki skynja dýrðarljómann af verkum hans. Nú hefur skipulagsstjórn rikisins orðið til þess að gagnrýna Birgi tsleif fyrir verk hans, og hefur hann svarað skipulagsstjóra i fróð- legu bréfi, sem hann las að visu upp á borgarstjórnar- fundi i fyrradag, en hafði hvorki borið undir borgarráð né borgarstjórn. Þar átelur Birgir Isleifur skipulagsstjóra, „harðlega” telur sjálfsagt að „hvika” frá staðfestu aðalskipulagi, og þótt skipulagsstjóri sé ekki á þvl máli, þá séu „borgaryfir- völd” það. Þessi „borgaryfirvöld” eru Birgir Isleifur i eigin persónu, og minnir þetta óneitanlega á „sólkónginn”, sem sagði: „Rikið, það er ég!” VEGAFE EKKI SKERT VEGNA GJÁBAKKAVEGAR — ÞAÐ stendur óbreytt, að peningar af vegafé verða ekki teknir i Gjábakkaveginn, sagði Halldór E. Sigurðsson fjármála- ráðherra við blaðið i gær. Vega- framkvæmdir verða þvi hvergi skertar annars staðar vegna þessarar vegagerðar. Hins vegar kemur það ekki til minna kasta, þótt þjóðhátiðar- nefnd verji fé af þeim tekjum, sem hún hefur af starfsemi sinni, til þess að gera þennan veg, ef hún telur hann forsendu þess, að þjóðhátið verði haldin á Þing- völlum, sagði Halldór enn fremur. Þvi má bæta við, að Tlminn hefur fregnað, að búið sé að tryggja þjóðhátiðarnefnd lán til vegagerðarinnar, svo að henni á að geta verið lokið i tæka tið. VEÐDEILD ALÞYÐUBANK- ANS AÐ TAKA TIL STARFA AÐALFUNDUR Alþýðubankans var haidinn laugardaginn 6. april að Hótel Sögu, og var fundurinn f jölsóttur. Fundarstjóri var Hannibal Valdimarsson, fyrrver- andi félagsmálaráðherra, en fundarskrifarar Snorri Jónsson, forseti Alþýðusambandsins, og Magnús L. Sveinsson, fram- kvæmdastjóri Verzlunarmanna- félags Reykjavlkur. Formaður bankaráðs, Her- mann Guðmundsson, flutti skýrslu bankaráðs um starfsemi bankans s.l. ár. Kom fram i skýrslunni, að afkoma bankans hefur batnað mjög og hagur hans eflzt á s.l. ári. Rekstrarafgangur, á5ur en afskriftir voru gerðar, nam 6,1 milljón króna, en var aöeins 301 þúsund árið áður. Heildarinnlán Alþýðubankans námu i árslok 1973 664.1 milljón króna, og höfðu aukizt á árinu um 212.5 milljónir eða 47.05%. Til samanburðar má geta þess, að meðaltalsaukning allra bankanna var um 34%. Heildarútlán Alþýðubankans námu á sama tima 465.3 milljónum króna, og höföu aukizt á árinu um 133.9 milljónir króna eða 40.40%. t skýrslu bankaráðs var þess getið, að nú hafi verið settar reglur um útlán veðdeildar bank- ans, og mun hún hefja störf á næstunni. Ennfremur var frá þvi skýrt, að bankinn hefði tekið upp samstarf við hagdeild Alþýöu- sambands Islands, og mun deild- in vinna að áætlanagerð fyrir bankann og úrvinnslu hagrænna og rekstrarlegra viðfangsefna. óskar Hallgrimsson banka- stjóri lagði fram endurskoðaða reikninga bankans og skýrði þá. Niðurstöðutölur efnahags- reiknings eru 712.5 milljónir króna, en rekstrarreiknings 77.8 milljónir króna. Innborgað hluta- fé Alþýðubankans nam i árslok 1973 34.8 milljónum króna, og hafði hækkað um 9.0 milljónir. Til afskrifta var varið 3.1 milljón króna en 3.0 milljónum var veitt til varasjóðs bankans. Bundin innstæða Alþýðubankans i Seðla- banka Islands nam 138.4 milljón- um króna, og hafði hækkað á ár- inu um 42.2 milljónir. Innstæða bankans á viðskiptareikningi i Seðlabankanum var i árslok 52.6 milljónir króna. Bankaráð flutti á fundinum til- lögu um hækkun hlutafjár bank- ans i 100 milljónir króna og gerði Einar Ogmundsson, varaformaður bankaráðsins, grein fyrir tillögunni. Stéttarfélög hafa sem fyrr forgangsrétt til kaupa á hlutafé. Síðustu samning- unum er lokið UNDANFARIÐ hafa staðið yfir samningar milli fjármála- ráöuneytisins og hinna ýmsu aðildarfélaga Bandalags starfs- manna rfkis og bæja og Banda- lags háskólamanna um sérkjara- atriöi, s.s. röðun starfa launaflokka skv. kjarasamningi BSRB frá 15. des. 1973 og K-listi í Eyjum í LEIDBEININGUM um sveitarstjórnarkosningarnar, sem prentaðar voru i Visi i gær, hcfur orðið missögn um bókstaf þann, er sameigin- legur framboðslisti Framsóknarmanna og Alþýöuhandala gsins ber. Þetta cr K-listi — en ekki II- listi. Þessi misprentun er mjög bagaleg, þar sem fjöldi vest- manneyskra kjósenda mun greiða atkvæði utan kjörstaðar að þessu sinni. Listi Framsóknarmanna og Alþýðubandalagsins er sem sagt merktur bókstafnum K. kjaradómi i máii BH 15. febrúar 1974. Fyrstu sérkjarasamningarnir voru undirritaðir að kvöldi 30. april. Fjármálaráðherra undir- ritaði samningana f.h. rikissjóðs, en samninganefndir af hálfu félaganna. Siðan hafa verið gerðir samningar við öll aðildarfélög Bandalags starfsmanna rikis og bæja, en þau eru 15 talsins, sem hér eiga i hlut, og sex aðildarfélög Bandalags háskólamanna. Siöustu samningarnir voru undir- ritaðir að kvöldi 16. þ.m. Kröfur þeirra félaga, sem ósamið er við, hafa gengið til Kjaradóms lögum samkvæmt, en þau eru félög arkitekta, lyfja- fræðinga, lækna, lögfræðinga, náttúrufræðinga, viðskipta- og hagfræðinga og verkfræðinga, Niðurstaða samninganna er, að heildarlaunahækkun starfs- manna samtals skv. þeim og aðalsamningi BSRB eða kjaradómi i máli BHM, sé að jafnaði á bilinu 17-20% eða svipuð og stærstu verkalýðsfélögin, önnur en félög iðnaðarmanna, fengu i nýgerðum kjarasamning- um. „Allt betra en að sitja auðum höndum" 0 — segir Arni Finnbogason sem sýnir teikningar sínar að Hallveigarstöðum Gsal-Reykjavik — Að Hallveigarstöðum hefur Arni Finnbogason komið fyrir sýningu á teikningum sinum. Sýningin var opnuð 16. mai og verður opin til 26. mai, frá klukkan tvö til tiu. Á sýningunni er 71 mynd, allt blýantsteikningar. Árni Finnbogason fæddist árið 1893, en hóf ekki að teikna fyrr en rúmlega sjötugur. Sagði hann blm. Timans, að sem krakki hefði hann haft gaman af teikningu, en þá hefði vinnan setið i fyrirrúmi. — Vegna veikinda hóf ég að teikna árið 1965, og siðan hef ég veriö að föndra við þetta til þess að drepa timann. Þetta er að visu mest til gamans gert, en mér finnst allt betra en að sit ja auðum höndum. Það má sjá á þessari sýningu, að Arni hefur ekki setið auðum höndum siðustu ár. Manna- myndir og myndir úr þjóðlifinu þekja veggina i sýningarsalnum, og efalitið á Arni fáa sina lika, sem vinna list sina eingöngu með blýanti. Þessi sýning er þriðja einkasýning Arna Finnboga- sonar. <• Arni Finnbogason sést hér á myndinni við nokkrar af teikningum sinum. Timamynd: G.E. Hafnarmólin í Reykjavík 1 viðtali, sem birtist hér i Timanum sl. þriðjudag við Pál Guðmundsson, skipstjóra, sem skipar fimmta sætið á framboðslista Framsóknar- flokksins i Reykjavik við borgarstjórnarkosningarnar annan sunnudag, kemur fram ófögur lýsing á þvi, hve herfi- lega ihaldið hefur brugðizt út gerðar- og sjómannastéttinni og fiskvinnslunni i Reykjavík með sleifarlagi, slóðaskap og kæruleysi i hafnarmálum fiskiskipa i Reykjavík. i viðtalinu við Pál Guð- mundsson segir m.a.: Engin bryggjuplóss til skipaviðgerða — okrað á raforku til skipa „Skip sem t.d. þarfnast við- gerða, geta ekki fengið bryggjupláss og rafmagn fæst sjaldnast um borð i skipin frá landi, sem er mikið fjárhags- legt atriði, ekki sizt vegna oliunotkunar og þess gifurlega aukakostnaðar sem fylgir þvi að keyra Ijósavélar skipanna dag cftir dag i höfnum inni, þegar auðvelt ætti að vera aö fá raforku frá raforkuverum i landi, sem nota vatnsorku. Þetta gerir reksturskostnað skipanna meiri, en ella þyrfti að vera og þjóðin tapar dýr- mætum gjaideyri i oliu og vélarsliti. Þá eru útgcrðarmenn mjög óánægðir með það, að þá sjaldan að það tekst að fá raf- magn frá landi og þá fyrst og fremst til að hita upp ibúðir skipanna, þá er kilóvattið selt á 9 krónur, en til húsahitunar i landi er kilóvattiö selt á eina krónu. Skip verða að leigja Ijósavélar í landi — Þetta er ekkert smá mál, þvi á stundum liggja tugir stórra fiskiskipa til viðgerða i Reykjavikurhöfn og keyra Ijósavélar sinar, eða leigja jafnvel Ijósavélar til þess að unnt sér að rafsjóða um borö i skipunum og vinna þar með nauösynlegum rafknúnum verkfærum. — Aðstaða verktaka, sem taka að sér verkefni um borð i skipunum er líka svo bág- borin, að vart verður unað við lengur. Viðgerðarverkstæði, vélsmiðjur og fl. hafa hvergi orðið aðstöðu við Reykjavikurhöfn, heldur eru þessar starfsstöðvar og önnur þjónustufyrirtæki skipaflotans með aðsetur langt inni i bæ og fer oft mestur timinn i flutn- inga á stykkjum og mannskap til og frá vinnustað þ.e. skipunum og verkstæðisins. Borgin beinir viðgerðarvinnu til útlanda Loforö um fasta viðgerðar- bryggju er búið að gefa marg- sinnis, en er ávallt svikið af yfirvöldum og ekkert bendir til þess nú, að úr þessu veröi bætt. Það nær vitanlega ekki nokkurri átt, að viðgerðar- verkstæði, sem vinna fyrir skip, hafi aðstööu i útjöðrum borgarinnar. Þetta veldur meðal anuars þvi, að viögeröir verða miklu dýrari, en vera þyrfti og á vafaiaust sinn þátt i þvi, að flest skip leita til við- gerða i erlendar liafnir, þar sem aðstaða er betri. islenzku verkstæðin myndu geta annað fleiri vcrkefnum og mun ódýrara, ef aöstaða i landi — bryggjuaðstaða — væri fyrir hendi”. —TK

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.