Tíminn - 18.05.1974, Qupperneq 4

Tíminn - 18.05.1974, Qupperneq 4
4 TÍMINN Laugardagur 18. mai 1974. 4 Ætlar að snúa baki við hinu Ijúfa lífi Ira von Furstenberg prinsessa tjáði blaðamönnum nýlega, að hún væri orðin þreytt á þvi lifi sem hún hefur lifað og ætli að snúa við þvi baki og helga sig heimilislifinu. Von er að blessuð prinsessan sé orðin svolitið þreytt. Milli þess sem hún eyðir sumarleyfum sinum i St. Tropez og vetrarleyfum i St. Moritz, ferðast hún milli næturklúbba heimsins i félagsskap glaum- lifisfólks, sem varla hefur leng- ur nokkra hugmynd um hvernig það á að eyða peningum sinum. Til að punta svolitið upp á til- veruna leikur prinsessan öðru hvoru i kvikmyndum. Ira von Furstenberg er nú 33 ára að aldri, og á tvö hjónabönd að baki og á hún tvo syni 15 ára og 17 ára. Nú segist hún ætla að hætta öllu glaumlifi og helga sig uppeldi sonanna og sjá um heimili góðvinar sins, arki- tektsins Roberto Federice, en allar likur benda til að kunningsskapur þeirra endi með hjónabandi. Auk þessa ætlar prinsessan, að snúa sér að alvarlegri leiklist, eins og hún kallar það. Má þvi segja, að framtið prinsessunnar sé enn glæsilegri en fortið hennar. * Lettneskur þjóðgarður Lettar hafa ákveðið að gera stórt svæði við fljótið Geyja, sem fellur i Rigaflóa rétt norðan við Riga, að þjóðgarði. Sjálfur garðurinn verður rúmir 36 þús. hektarar að stærð, en ef næsta nágrenni garðsins, sem mun tilheyra honum óbeint, er talið með, má ætla að hann taki fyrir rúma 83 þús. hektara. 1 þjóðgarðinum verða þrjú aðal- svæði, þar af eitt i miðjum garði, sem verður helgað visindalegum rannsóknum. Á svæðinu umhverfis garðinn verða reistir ferðamannaskál- ar, þar verður bátaleiga, bila- stæði og margs konar önnur þjónusta. Flýr heimaland sitt Fyrrverandi heimsmeistari i hnefaleikum, Ingemar Johans- son, hefur flutzt búferlum úr heimalandi sinu Sviþjóð, og sló hann sér niður á Mallorca, þar sem hann keypti sér hús og seg- ist ætla að búa þar, að minnsta kosti næstu árin. Ingemar græddi mikið fé, er hann var upp á sitt bezta i hnefaleikum, og varð stór- auðugur er hann vann heims- meistaratitilinn. Mörg ár eru siðan hann hætti að stunda iþrótt sina, og gerðist fram- kvæmdamaður i Sviþjóð. En fyrirtæki hans gengu ekki vel og tapaði hann á þeim. En hann segist enn eiga nóg fé til að eiga náðuga daga á Mallorca i að minnsta kosti nokkur ár. Hon- um er farið að leiðast i Sviþjóð, þar sem blaðamenn elta hann á röndum og segist hann ekki kæra sig um að vera nokkurs konar framhaldssögupersóna i sænskum blöðum, þar sem hann fær ekki að vera i friði með sitt einkalif. Kannski gengur honum það betur á Mallorca, þvi enn sem komið er eru tæpast fleiri Sviar þar en i Sviþjóð. —Yfir hverju ert þú að röfla..Ég lofaði að koma mcð dóttir þina heim klukkan tólf og nú er hún ekki nema cllefu.. —Þú skalt ekki hiusta á hann...hann kemur af öpum eins og aðrir honum likir. DENNI DÆMALAUSI En þú sagðir, að ég skyldi halda áfram að spila.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.