Tíminn - 18.05.1974, Side 5
Laugardagur 18. mai 1974.
TÍMINN
5
Ingibjörg Njálsdóttir, forstööukona leikskólans, ásamt nokkrum af börnum skólans.
„BIÐLISTINN
LENGIST ÖRT"
Litið inn í leikskólann á Akranesi
og spjallað við Ingibjörgu Njáls-
dóttur forstöðukonu
EIN af þeim nýju stofnunum, sem
risið hafa upp á Akranesi, er leik-
skóli. Leikskóiinn tók tii starfa
um mánaðamótin nóvember-des-
ember á siðasta ári, og I skól-
anum dvelja fjörutiu og tvö börn.
Þau eru á aldrinum tveggja til
sex ára, tuttugu börn korna
klukkan átta og dvelja i skóianum
til hádegis, tuttugu og tvö koma
klukkan eitt og fara klukkan sex.
Akranesbær rekur leikskólann,
og við hann starfa þrjár fóstrur.
ViðTimamenn litum inn á leik-
skólann á ferð okkar um Akranes
og hittum þar að máli forstöðu-
konu skólans, Ingibjörgu Njáls-
dóttur, en hún er ung stúlka, sem
hefur starfað sem fóstra i þrjú ár.
Ingibjörg vann áður á dag-
heimilinu við Kleppsspltalann i
Reykjavik.
„Leikskóli er hverju
bæjarfélagi
nauðsynlegur”
— Það kom upp sú vandræða
staða i fyrra, að nokkrir kennarar
og hjúkrunarkonur höfðu ráðgert
að segja störfum sinum lausum,
vegna skorts á gæzlu barna sinna.
Þessi hópur beitti sér fyrir þvi, að
stofnaður yrði leikskóli.
Við verðum að horfast i augu
við þá staðreynd, að það vantar
alltaf gæzlu fyrir börn i okkar
þjóðfélagi, þar sem það er mjög
algengt fyrirkomulag að báðir
foreldrar vinni utan heimilis. Þvi
hljóta svona leikskólar að vera
hverju bæjarfélagi nauðsynlegir,
ella kynni svo að fara, að einhver
hluti vinnuafls staðarins gæti ekki
haldið áfram störfum sinum, —
og það hlýtur i öllu falli að vera
bæjarfélaginu til vandræða.
Þetta húsnæði, sem leikskólinn
býr við núna, er eingöngu til
bráðabirgða. Húsnæðið er leigt til
eins árs, en þó kemur til greina að
framlengja leiguna um eitt ár til
viðbótar.
Það er á stefnuskrá yfirvalda
að hefja byggingu leikskóla á
árinu 1975, en hér á Akranesi
vantar peninga til slikra fram-
kvæmda, eins og annars staðar.
Við byrjuðum að smiða og laga
þetta húsnæði i október og gátum
breytt þvi talsvert. Hins vegar
búum við illa hvað viðkemur
snyrtiaðstöðu, og eins i sambandi
við fatageymslu. Það er mjög
æskilegt, að minum dómi, að geta
gert stofnanir sem þessa svolitið
heimilislegar, og mér finnst
sjálfri svolitill heimilisbragur
vera á þessum leikskóla. Lóðin
hérna er ekki nógu hagkvæm, og i
rigningartið verður hún eitt flag.
Leiktæki eru enn ónóg, en ég veit
að þau eru á leiðinni og koma
innan tiðar. Með vorinu hefur
eftirspurn aukizt verulega, og
biðlistinn lengist ört.
,,Samstarf við foreldra
jákvætt og mikilvægt”
— Ég tel, að hálfs dags gæzla
barna sé börnunum bæði holl og
þroskandi, en að geyma börn á
dagheimilum allan daginn,
kannski ár eftir ár, tel ég miður
æskilegt. Foreldrar hafa, þvi
miður, ekki allir áhuga á þvi,
hvað börnin aðhafast i leik-
skólum, dagheimilum eða annars
staðar. Þetta er sorgleg stað-
reynd, þótt hún heyri sem betur
fer næstum þvi til undantekninga.
Það er vitað mál, að samstarf
svona stofnana við foreldra er
jákvætt og mikilvægt fyrir báða
aðila. Fyrirhugað er að halda
svonefndan foreldrafund, þar
sem foreldrarnir koma hingað i
leikskólann. Þeir kynna sér starf-
semi, skólans og við kynnum
okkar starf. Foreldrarnir geta
komið með athugasemdir, og
jafnvel með einhverjar úrbáetur i
málefnum skólans.
,,Börnunum kemur
vel saman”
— Þegar veður leyfir, eru
börnin úti við til klukkan þrjú, —
það er að segja, hópurinn sem
kemur eftir hádegið, — en þá er
drukkið og börnin koma sjálf með
nesti með sér. Eftir það er
hvildarstund, en siðan er föndrað,
lesið, sungið — eða við spjöllum
bara saman, allt eftir ástæðum
hverju sinni.
Börnunum kemur vel saman,
þótt þau séu á ólikum aldri.
Stærri stelpurnar gæta minni
barnanna og i litlum hópi hefur
þessi aldursmunur að minum
dómieingöngu jákvæðáhrif. Hins
vegar getur þetta verið erfitt,
einkanlega hvað viðkemur sögum
og öðru, sem höfðar að mestu til
þroska barnanna. Sögurnar mega
þvi hvorki vera of léttar né of
þungar, og þessi meðalvegur er
stundum erfiður i framkvæmd.
— Hvernig er samkomulagið á
milli kynjanna? Vilja strákarnir
ekki tuskast við stelpúrnar?
— Nei strákarnir eru allir sætir
og góðir. Hér rikir mesta jafn-
rétti, og ef einhver færi að
tuskast, þá væru það fremur
stelpurnar, sem eru miklar
rauðsokkur og láta hlut sinn
hvergi.
Við Timamenn kveðjum Ingi-
björgu, segjum bless við
krakkana og þau taka undir og
segja: bless, bless.
—Gsal.
Leikskólinn á Akranesi býr enn I bráðabirgöahúsnæði, en á næsta ári eiga aö hefjast byggingarframkvæmdir við nýjan leikskóla.
Tlmamyndir: Gunnar.
SoLUSTADIR:
Hjölboróaverkstœöiö Nýbarði, Garðahreppi, simi 5060«.
Skodabúöin, Kópavogi, simi 42606.
Skodaverkstæðið á Akureyri h.f. simi 12520.
.Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar, Egilsstöðum, simi 1158.
Heilsurækt Atlas,
æfingatimi 10-15 min. á dag.
Arangurinn sýnir sig eftir
viku tima.
Likamsrækt Jowetts heims-
frægt þjálfunarkerfi sem
þarfnast engra áhalda eftir
George F. Jowett heims-
meistara i lyftingum og
glimu. Bækurnar kosta 300
kr. hvor. Vinsamlegast send-
ið gjaldið i ábyrgðarbréfi.
Likamsrækt, pósthólf 1115,
Reykjavik.
RAFSTILLING
Dugguvogi 19
Viðgerðir og stilling-
ar á rafkerfi bif-
reiða.
Startarar — Dina-
móar.
Simi 84991.
Bændur
Við seljum dráttar-
vélarj búvélar og allar
tegundir vörubila
BÍLASALAN
Bræðraborgarstig 22
Simi 26797.