Tíminn - 18.05.1974, Qupperneq 6

Tíminn - 18.05.1974, Qupperneq 6
TÍMINN Laugardagur 18. mai 1974. Fyrsta fuglaskoðunarferðin A MORGUN, sunnudaginn 19. mai efnir Fuglaverndarfélag ts- lands til fyrstu feröar sinnar á árinu til Suöurnesja. Vcrður fyrst ekiðað Garðskagavita, og gengið þaðan suður með ströndinni. Eftir nokkra dvöl þar verður haldið til Sartdgerðis. A ströndinni tnilii Garðskaga og Sandgerðis er venjulega mikið fuglalif um þessar mundir, og oft má búast þar við sjaldgæf- um fuglum, sem flækzt hafa hingað til lands. Frá Sandgerði verður ekið til Hafna og staldrað þar við nokkra stund. Skyggnzt eftir straumönd, sem heldur sig þar i brimrótinu. Siðan verður haldið á Hafnaberg, sem er að- gengilegasta fuglabjarg fyrir ibúa höfuðborgársvæðisins. tbúar þessa fallega bjargs eru nú allir seztir þar að og undirbúning- ur hafinn að vorverkunum. 1 Hafnabergi má sjá allar bjarg- fuglategundir landsins nema haf- tyrðilinn. Af bjargbrúninni má sjá til Eldeyjar, þar sem þúsundir súlna halda sig. Þær sjást einnig fljúgandi nálægt bjarginu. Þá má einnig sjá skrof- una og fleiri fugla, sem forvitni- legir eru. Frá Hafnabergi verður haldið að Reykjanesvita og skoðaður þar silfurmáfur. Siðan verður ekið heim um Grindavik og hugað að fugli á þeirri leið. Lagt verður af stað frá Búnaðarfélagshúsinu við Tjörnina (við hliðina á Iðnó) kl. 10 árdegis. Aætlaður komutimitil Reykjavikur erkl. 7 siðdegis. Farseðlar verða seldir við bilana og kosta kr. 700 fyrir fullorðna og kr. 350 fyrir börn á skólaskyldualdri. Gott eraðhafa með sér kiki, og þeir sem eiga Fuglabók Almenna Bóka- félagsins, ættu að hafa hana með- ferðis. Leiðsögumenn verða tveir, mjög vel kunnugir fuglalifi Suðurnesja. Langvía Ljósm: Grétar Eiriksson Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavík efnir til almenns SKEMMTI- i Háskólabíó í dag — 18. maí — kl. 15,30 Stutt ávörp flytja fulltrúar ungra framsóknarmanna um málefni borgarinnar Gerður Steinþórsdóttir Alfreð Þorsteinsson Guðmundur G. Þórarinsson FUNDARSTJÓRI: Jónas R. Jónsson Fjölbreytt skemmtiatriði Hljómsveitirnar Dögg og Change, þjóðlagatrióið Tríóla og Jörundur Guðmundsson Fjölmennum í Háskólabíó á laugardaginn « -----------------------—

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.