Tíminn - 18.05.1974, Blaðsíða 7

Tíminn - 18.05.1974, Blaðsíða 7
Vísir. Laugardagur 18. mai 1974. TÍMINN 7 STEFNUSKRÁ Framsóknarmanna í Reykjavík vio borgarstjórnarkosningarnar í vor Varnir gegn mengun Framsóknarflokkúrinn telur, að nú þegar þurfi að hefja skipulegar aðgerðir til að koma i veg fyrir vaxandi mengun andrúmslofts, grunnvatns i borgarlandinu og sjónum með- fram ströndinni. Telur flokkurinn, að hér sé um mál að ræða, sem öll sveitar- félög á höfuðborgarsvæðinu þurfi að sameinast um að leysa á sem farsælastan hátt. Bendir flokkurinn sérstaklega á nauð- syn þess, að vatnsbólum borg- arinnar verði lokað, Elliðaárnar verndaðar svo sem framast er unnt og frárennslismál borgar- innarveröi endurbætt og tryggi- lega verði gengið frá oliugeym- um, sem staðsettir eru i borg- inni. Holræsamál Stemma verður stigu við óhreinkun sjávar kringum borgarlandið af völdum skolps. Skolpið hefur viðast hvar ver- ið leitt stytztu leið til sjávar og eru þvi útrásir býsna margar meðfram ströndinni. Skolpið er léttara en sjórinn, stigur upp og breytir útliti sjávarins kringum útrásir. Veldur þvi efnasamsetning skolpsins, s.s. fita olia, bensin, þvottaefni o.s.frv. Jafnframt þvi, sem það er kappsmál allra Reykvikinga að halda sjónum sem hreinustum kringum borgina er þess að gæta að samfara þessari meng- un er nokkur hætta þar eð fram með ströndinni er viða mat- vælavinnsla. Nauðsynlegt er þvi að sam- eina útrásir og koma skolpinu lengra frá ströndinni, þangað sem straumur og vantsendur- nýjun er mikil, jafnframt þvi sem þarf möguleika til hreinsunar skolpsins. Gera verður framkvæmda- áætlun um sameiningu útrása og hreinsun skolps. Framkvæmdir í Breiðholti Við uppbyggingu Breiðholts- hverfa hefur það komið i ljós, að mjög hefur skort fyrirhyggju hjá borgaryfirvöldum varðandi skipúlagningu og framkvæmd ýmissa sameiginlegra þátta, svo sem byggingu skóla og barnaheimila, aðstöðu til félagsstarfa og heilsugæzlu, lagningu gangstétta o.fl. Þá hefur vegasamband viö þessi hverfi lengst af verið alls ófullnægjandi og er enn, auk þess, sem þjónusta SVR hefur verið i algjöru lágmarki. Þegar við þetta bætist, að að- streymi fólks I Breiðholtshverf- in hefur verið mun örara en ráð var fyrir gert, þarf engan að undra, þótt stórfelld vandamál hafi skapazt og erfiðleikar orðið á ýmsum sviðum. Framsóknarflokkurinn legg- ur rika áherzlu á, að borgin full- geri hið fyrsta þær sameigin- legu framkvæmdir, sem henni ber skylda til að inna af hendi fyrir ibúa þessara hverfa. Jafn- framt verði komið i veg fyrir, að mistök slik sem orðið hafa i Breiðholtshverfi hendi eftirleið- is, þegar ný hverfi eru i bygg- ingu. Söfn og listir Framsóknarflokkurinn legg- ur á það áherzlu að listastarf- semi i borginni verði veittur öflugur stuðningur ásamt ann- arri þeirri starfsemi, sem menningarauki er að. Þetta verði gert m.a. með eft- irfarandi: að stuðla að eflingu leiklistar- starfsemi i borginni með þvi að styrkja fjárhagslega þá aðila, svo sem Leikfélag Reykjavikur, er slika starf- semi hafa með höndum. að veita árlega ein myndarleg listaverðlaun, sem bæði túlk- andi og skapandi listamenn geti hlotið. að styðja tónlistarstarfsemi al- mennt og skreyta borgina sjálfa og byggingar hennar listaverkum. að vinna að þvi að koma upp minjasafni um sjósókn og sjóvinnu. Félagsleg þjónusta Framsóknarflokkurinn telur, að auka þurfi félagslega þjón- ustu við borgarana meðal ann- ars með þvi að: 1. Vinna skipulega að þvi að einstæðir foreidrar, sem vinna úti, geti fengið aðstoð, þegar börn þeirra eru veik. 2. Halda námskeið fyrir konur, sem ætla að starfa við heimilishjálp á vegum borg- arinnar. 3. Fjölga svonefndum fjöl- sky lduheimilum fyrir munaðarlaus börn. 4. Koma á fót skólaheimili fyrir unglingsstúlkur, sem þarfn- ast handleiðslu og leiðbein- inga vegna hegðunarvand- kvæða og afbrota. 5. Stofna heimili „pensionat ” fyrir unglinga, sem dvalizt hafa á Upptökuheimiii rikis- ins, en eiga ekki kost á þvi að dvelja á heimilum sinum. Heimili fyrir taugaveikl- uö börn t samvinnu við hlutaðeigandi félagasamtök verði komið upp meðferðarheimilum fyrir taugaveikluð börn. Verði þar annars vegar um að ræða heimili, sem rekið verði sem skólastofnun með heima- vist, þar sem vistbörnum verði séð bæði fyrir lögskipaöri fræðslu og sérfræðilegri með- ferð i lækningaskyni og hins vegar fjölskylduheimili, þar sem vistbörn sæki almenna skóla og njóti þar af á heimilum sérfræöilegrar þjónustu til náms og i lækningaskyni. Fyrir árslok 1974 verði út- vegaðar tvær ibúðir til reksturs fjölskylduheimilanna og hafinn verði undirbúningur að bygg- ingu skóla- og meðferðarheimil- , is meö það fyrir augum að starfsemi geti hafizt haustið 1975. Bætt aðstaða fyrir blinda Framsóknarflokkurinn telur að borgin eigi að taka að sér gerð garðs við blindraheimilið i Hamrahlið. Miklatún og önnur útivistarsvæði verði gerð sem aðgengilegust fyrir blinda og annað fólk, þannig, að þessir borgarar geti notið þeirra til jafns við aðra. t þessu skyni veröi stigar allir vel afmarkaðir og hindrunarlausir og merktir vegvisum sem geti komið blind- um að gagni. Auknir verði möguleikar blindra til þess að komast gangandi að útivistar- svæðum og um borgina með þvi að koma fyrir merkjaútbúnaði i götuvitum og fólki i hjólastólum verði gert auðveldara að kom- ast um borgina með þvi að tekn- ir verði fláar i gangstéttar- kanta. Málefni áfengissjúklinga Alvarlegt ástand hefur um árabil rikt i málefnum drykkju- sjúkra i Reykjavik og er þörf margþættra og samræmdra að- gerða þeim til hjálpar. Skipuleggja verður og sam- ræma aðstoð opinberra aðila við drykkjusjúklinga. Framsóknarflokkurinn telur að meðal nauðsynlegra úrræða sé að: 1. Komið verði upp litlum vist- heimilum fyrir áfengissjúkl- inga i afturbata. 2. Bætt verði skilyrði til að veita áfengissjúkl • skammtima sjúkrahúsmeðferð og göngu- deildarmeðferð. 3. Þegar verði tryggt viðunandi húsnæði undir heimili fyrir áfengissjúkar konur. 4. Alþingi auki framlög til gæzluvistarsjóðs og verði framlag a.m.k. 2% af hagnaði A.T.V.R. 5. Auka verður félagslega að- stoð við áfengissjúklinga og stefnt, á vegum Félagsmála- stofnunarinnar, að aukinni fyrirgreiðslu varðandi at- vinnu, húsnæði og vistanir á sjúkrahús af hæli og aðrar stofnanir, sem sinna áfengis- sjúklingum. Tímans f Ferðagetraun Eins og lesendum Timans er kunnugt þá stóð Ferðagetraun Timans yfir i febrúar og fram i marz. Margar réttar úrlausnir bárust og var dregið úr þeim 25. marz. Þeir heppnu voru: Dómhildur Eiriksdóttir, Patreksfirði og Friðgeir Ingimundarson, Skeiðarvogi 31, Reykjavik, og hljóta þau sem vinning ferð til Miðjarðarhafseyjarinnar Möltu á vegum Ferðamiðstöðvarinnar og fylgir hér með mynd af hinu glæsilega hoteli, sem þau koma til með að búa á. Vegna hins langa prentaraverkfalls hefir dregizt að birta úr- slitin, en að sjálfsögðu voru hin heppnu látin vita strax eftir út- drátt. Sjóstanga- veiðimót Veiðifélagið Sjóstöng, gengst fyrir sjóstangaveiðimóti frá Keflavik laugardaginn 8. júni n.k. Segja má, að þetta mót sé fram- lag félagsins til væntanlegrar Keflavikurhátiðar. Aætlað er að róa frá Keflavik ki. sex að morgni og koma aftur i höfn um klukkan tvö, eftir hádegi. Mótið er opið öllu áhugafólki, en nauðsynlegt er að tilkynna þátt- töku fyrir 23. mai. Þátttöku ber að tilkynna til formanna sjóstanga- veiðifélaganna, i Keflavik, Reykjavik, Vestmannaeyjum og Akureyri. (fréttatilkynning). Oddsskarð fært léttum bílum I frétt um samgöngur austan- lands, sem birtist i blaðinu hinn 16. mai, segir, að Oddsskarð sé gjörsamlega ófært sökum aur- bleytu. Þetta er ekki alls kostar rétt, að sögn Hjörleifs Olafssonar vegaeftirlitsmanns. Að visu er nokkur aurbleyta i Oddsskarði, þannig að öxulþungi bifreiða, sem um skarðið fara, er um þessar mundir takmarkaður við fimm tonn, en allar léttar bifreiðar komast greiðlega leiðar sinnar um skarðið. Astand vega um land allt er annars með bezta móti, miðað við það sem gerist á þessum tima árs. * Sjálfboðaliðar og bílar á kjördag Kosningaskrifstofurnar i Reykjavik vantar sjálfboöaliöa tilstarfa. Unnið er öll kvöld til kl. 10. Þeir, sem vilja lána bila á kjördag eru vinsam- lega beðnir að hafa samband við kosninga- skrifstofurnar og láta skrá bila sina. Einnig er gott að þeir, sem ætla að vinna á kjördag, til- kynni það sem fyrst. V ■ / AuglýsM í Timanum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.