Tíminn - 18.05.1974, Side 13

Tíminn - 18.05.1974, Side 13
Laugardagur 18. mai 1974. TÍMINN 13 lUmsjón: Alfreð Þorsteinssonl „Þeir hljóta að setja met, þessir sterku strókar..." — sagði Finnur Karlsson. Kraft lyftingameistaramót íslands í dag ,,Þeir hljóta að setja nokkur met, þessir sterku strákar", sagði Finnur Karlsson, for- maður Lyftingasam- íþróttir og útilíf í Kópa- vogi... bands Islands, þegar við spurðum hann, hvort það yrði ekki metaregn á kraftlyftinga- meistaramótinu, sem fer fram í Sænska frystihúsinu f dag kl. 15.00. Finnur sagði, að meistaramótið yrði tvi- mælalaust spennandi og skemmtilegt, því að allir okkar sterkustu lyftingamenn tækju þátt i því. Kraftlyftingameistaramót Islands hefst i dag með keppni i léttari flokkunum kl. 15.00 og i þyngri flokkum kl. 17.00. Keflvíkingar hefja vörnina gegn Fram ★ liðin mætast á grasvellinum í Njarðvík ★ Víkingar leika gegn Eyjamönnum ★ Skagamenn fó Valsmenn í heimsókn ★ KR leikur gegn Akureyri d morgun Ensku þjálfararnir Sanders (Vikingi) og Kerby (Akranesi) ræða sam- an og horfa á leik Vals og York sl. miðvikudagskvöld. (Timamynd Jim) KefIvíkingar, sem voru ósigrandi í l. deildar keppninni sl. keppnistima- bil, hefja vörn islands- meistaratitilsins í dag. Þeir fá bikarmeistara Fram i heimsókn, og fer leikur liðanna fram á grasvellinum i Njarðvík- um. Það má búast við skemmtilegum leik því að þarna eru á ferðinni tvö af stórliðum íslenzkrar knattspyrnu. Framarar hafa sigrað Keflvíkinga í siðustu þremur leikjum, sem liðin hafa leikið, og hafa Keflvíkingar örugg- lega hug á að gera þar breytingar á . Leikurinn í dag hefst kl. 14.00. Á sama tíma fer fram leikur á Melavellinum í Reykjavík. Þá mæta nýbakaðir Reykjavíkurmeistarar Víkings Eyjamönnum. Skagamenn fá Valsmenn i heimsókn i dag, og hefst leikurinn uppi á Skaga kl. 16.00. Á morgun fer fram einn leikur, KR-ingar leika gegn Akureyringum á Melavellinum kl. 16.00. Það má búast við að 1. deildar keppnin verði mjög jöfn og spennandi i sumar. Oll 1. deildar liðin, nema Fram, hafa erlenda þjálfara, sem verður athyglisvert að fylgjast með. Þá verður gaman að sjá, hvað Jóhannes Atlason nær langt með Framliðið i sumar. Það er erfitt að spá um, hvernig lokastaðan verður i 1. deildinni. Miklar likur eru á þvi, að Keflvikingar, Framarar Vikingar og Valsmenn berjist um Islandsmeistaratitilinn. KR-ing- ar og Akureyringar blanda sér að öllum likindum i fallbaráttuna, eins og undanfarin ár. Skaga- menn og Eyjamenn ættu að verða um miðja deild, og það get- ur alveg eins farið svo að þessi tvö sterku lið verði i topp- baráttunni. Síðasta Hljómskóla- hlaup ÍR fer fram d morgun.og hefst kl. 14 Hinn 4. júni n.k. hefst i Kópa- vogi sex vikna námskeið, sem nefnt hefur verið íþróttir og útilif og er ætlað börnum og unglingum á aldrinum 8-14 ára. Tómstunda- ráð Kópavogskaupstaðar stendur fyrir námskeiði þessu, sem fer fram á tveimur stöðum i bænuin, þ.e. við Kársnesskóla i Vesturbæ og á Smárahvammsvelli 1 Austurbæ. Á námskeiði þessu verður þátt- takendum gefinn kostur á að kynnast margvislegum þáttum iþrótta og útilifs. Má þar m.a. nefna: Frjálsar iþróttir, knatt- leiki, leiki, göngu- og hjólreiða- ferðir, umferðarfræðslu, heim- sókn i önnur bæjarfélög, auk þess sem þátttakendur fá tækifæri til að kynnast starfsemi siglinga- klúbbsins Kópaness og reið- skólans. Námskeiðinu lýkur siðan með tveggja daga ferðalagi i Þrastaskóg. Námskeiðið fer fram alla virka daga og hefst jafnan kl. 1.00 f.h. og stendur samfleytt til kl. 15.00. Æskilegt er, að þátttakendur hafi með sér nesti, sem þeir snæða i hádeginu, auk þess sem boðið verður upp á heita súpu. tþróttakennararnir Arndis Björnsdóttir, Dóra Jóelsdóttir, Július Arnarson og Ómar Guð- mundsson munu leiðbeina á nám- skeiðinu. Umsjónarmaður nám- skeiðsins er Guðmundur Þor- steinsson iþróttakennari. Innritun hefst þriðjudaginn 21. mai i sima 41570 og 41866. Þátt- tökugjald kr. 2.000.- greiðist þeg- ar námskeiðið hefst, að morgni þriðjudagsins 4. júni kl. 10.00 við Kársnesskóla og Smárahvamms- völl. Systkinaafsláttur verður veittur. Nánari upplýsingar um „Iþróttir og útilif” gefur iþrótta- og aeskulýðsfulltrúi i sima 41570. Meistarar meistaranna Bikarnieistarar Fram urðu sigurvegarar I meistarakeppni KSt 1974. Þrjú lið tóku þátt i keppninni eða þau lið sem leika fyrir hönd tslands I Evrópukeppni i knattspyrnu I sumar, þ.e. Fram, íslandsmeistararnir frá Keflavik og Valur, sem tekur þátt I UEFA-keppninni. Á myndinni hér fyrir ofan sjást leikmenn Framliðsins. Aftari röð frá vinstri: Þor- kell Þorkelsson, formaður knattspyrnudeildar Fram, Kristinn Jörundsson, örn Bragason, Atli Jósafatsson, Arnar Guðlaugsson, Þor- bergur Atlason, Marteinn Geirsson, Jón Pétursson, Guðgeir Leifsson, Ómar Arason og Jón Ragnarsson. Fremri röð: Jóhannes Atlason þjálfari, Kjartan Kjartansson, Snorri Itauksson, Hlööver Rafnsson, Gunnar Guömundsson, Agúst Guðmundsson, Rúnar Gislason og Egg- ert Steingrimsson. (Timamynd Gunnar)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.