Tíminn - 18.05.1974, Page 16

Tíminn - 18.05.1974, Page 16
TÍMINN Laugardagur 18. mai 1974. 76 Andri ísaksson: Morgunblaðið fellur á prófi Hinn 18. mars s.l. flutti ég undirritaður erindi um daginn og veginn i Rikisútvarpið, þar sem ég m.a. vék að og gagnrýndi mál- flutning Morgunblaðsins i viðkvæmum þjóðmálum. Þessi gagnrýni min hefur komið sliku róti á hugi Morgunblaðs- ritstjórnar, að næsta sunnudag, 24. mars, gerir hún mér ekki minni heiður en þann að helga orðum minum rúman helming sins vikulega stjórnmálabréfs, Reykjavikurbréfsins. Auk þessa hefur blaðið svo mikið við að birta á sömu opnunni leiðara, sem sýna má fram á að er i beinum tengslum við minn þátt i Reykja- vikurbréfi þess. Vegna prentaraverkfalls hefur þvi miður orðið allmikil bið á, að ég gæti svarað Morgunblaðinu á sama vettvangi. En við þvi varð ekki gert, og mun ég nú ræða þetta nýja dæmi um málflutning og vinnuaðferðir blaðsins nokkru nánar. Að marka stefnu Morgunblaðið vill ekki kannast við, að æskulýðssamtök Sjálf- stæðisflokksins hafi árið 1971 sett sér það mark að ala jafnt og þétt á innbyrðis tortryggni milli þeirra stjórnmálaflokka, sem stóðu að rikisstjórn Ólafs Jóhannessonar, enda þótt blaðið viðurkenni, að umræðuplagg þessa efnis hafi komið fram á þingi Sambands ungra sjálf- stæðismanna. Hér er um að ræða túlkun Morgunblaðsins, er virðist byggð á þvi viðhorfi að ekkert annað geti talistmörkuð stefna en það, sem birt er i opinberum ályktunum. Það er nú það. Sjálfur hefégtúlkaðþettameð viðtækara hætti. Sú staðreynd, að umræddu þingplaggi fylgdu skjótt itrekaðar og auðþekktar aðgerðir, segir sina sögu. t þessum efnum eins og öðrum er það reynslan, sem ólygnust er. Og vel má Morgun- blaðinu vera þaö kunnugt, að i þvilikum málum er svardagi eða reiðileg afneitun hinna gagnrýndu gerenda (eða verndara þeirra) hreint ekkert lokaatriði. Venjan er að segja um slikar túlkunardeilur, að sagn- fræðingar framtiðarinnar muni skera úr þeim, og óttast ég ekki þeirra niðurstöðu. — Sem sagt: Ég hef verið og er enn þeirrar skoðunar, að æskulýðssamtök Sjálfstæðisflokksins hafi mótað sér áðurgreinda sundrungar- stefnu, og grundvalla ég þá skoðun ekki einasta á framkomu og tilvist umræðuplaggsins, heldur engu siður á þeim gerðum, sem fylgdu i kjölfarið og sam- svöruðu svo rækilega sundrungarhvatningu þess. Lái mér þetta hver, sem vill. En þeim, sem ekki hafa enn sann- færst um sömu skoðun og ég við að lesa ritstjórnargreinar, Stak- steina og Reykjavikurbréf Morgunblaðsins unda^ifarin 2 1/2 ár eða svo, vil ég benda á að kynna sér ræður þær, sem Ellert B. Schram, þáverandi formaður Sambands ungra Sjálf§tæðis- manna, flutti utan dagskrár á Alþingi, veturinn 1971-1972. Hygg ég, að eftir að hafa kynnt sér þær umræður, muni fáir verða lengur i nokkrum vafa. Dagblað er það, sem það birtir Morgunblaðið viðurkennir, að það hafi á sinum tima nefnt fund stúdenta, sem helguðu 1. desember brottför hersins, „fúla þjóðniðinga og landráðasam- komu”. Hins vegar hneykplast blaðið mjög á þvi, að ég skuli ekki hafa látið þess getið, að þessi orð hafi slæðst inn i Velvakanda án vitundar ritstjóra, en þeir beðið opinberlega afsökunar á orðunum og tekið þau til baka. Þessu er þvi til að svara, að hefði ég vitað um þessa afsökunarbeiðni ritstjór- anna, þá hefði ég að sjálfsögðu látið hennar getið i erindinu, þvi að afsökunarbeiðnin er virðingar- verð, svo langt sem hún nær. En þrátt fyrir það hefði ég samt vissulega nefnt þetta dæmi um málflutning Morgunblaðsins i téðu erindi. Þvi að hvað er dag- blað? Dagblað er, eins og aðrir fjölmiðlar, það sem það birtir. Enda þótt ritstjórn dagblaðs þurfi alls ekki að vera sammála öllum þeim skoðunum, sem i dag- blaðinu birtast (einkum sé þetta sérstaklega tekið fram i blaðinu og krafist ófrávikjanlegrar nafn- birtingar höfunda), þá breytir það engu um það, að ábyrgðin á birtingu efnis hvilir óskipt á herðum ritstjórnar. Það er grát- broslegúr og ábyrgðarlaus skollaleikur að birta margs konar ósóma i blaði sinu, dreifa honum til þjóðarinnar og hafa þannig hugsanlega veruleg siðleysisáhrif á skoðanir hennar og skjóta sér siðan á bak við það, að ósóminn hafi verið aðsepdur og blaðið sé frjálslynt blað, sem birti marg- visiegar skoðanir. Dagblað er ekki annað en það, sem það birtir. Það hefur ekki áhrif með öðru. Það er ritstjórnar að ákvarða, hvað getur talist siðferðislega birtingarhæft i blaði, og slikri ákvörðun fylgir mikil félagsleg ábyrgð. i Frammistaða rit- stjórnar dagblaðs við þetta ábyrgðarmikla starf er eitt af þvi mikilvægasta, sem leggja verður til grundvallar, þegar blaðið er metið að verðleikum. Um ósamlyndi og ágreining Morgunblaðið heldur þvi fram, að ég hafi sjálfur viðurkennt að ósamlyndi rikti innan rikis- stjórnarinnar, og nefnir til sem dæmi, að ég hafi sagt um land- helgissamningana við Breta, að Þjóðviljinn, flokksblað Alþýðu- bandalagsins, „virtist um tima staðráðinn i að koma i veg fyrir samninga á fyrirliggjandi grund- velli”. Hér er um að ræða dæmi- gerða rangtúlkun og mjög af þvi tagi, sem ég gagnrýndi Morgun- blaðið fyrir. Með leyfi að spyrja, Morgunblaðsritstjórn: Hvar er hér talað um ósamlyndi innan rikisstjórnarinnar? Ráðherrar tiltekins stjórnmálaflokks verða ekki gerðir ábyrgir fyrir þvi, sem stendur i dagblaði, er styður eða er málgagn flokks þeirra, nema þvi aðeins að þeir séu ritstjórar blaðsins jafnframt ráðherra- dómi. Hér er þvi vfrið að tala um málflutning eins tiltekins dag- blaðs, sem styður rikisstjórnina, en ekki um ósamlyndi innan rikisstjórnarinnar. Hitt er svo allt annað mál, að mér hefur aldrei dottið i hug, né heldur haldið þvi fram, að enginn ágreiningur riki innan rikisstjórnarinnar. Það væri vissulega furðuleg rikis- stjórn, ef ráðherrar hennar væru alltaf kórrétt sammála. Auðvitab hlýtur að rikja einhver ágreiningur um ýmis mál i öllum rikisstjórnum og þá ekki sist, þegar um samsteypustjórnir flokka er að ræða. Slikur ágreiningur er leystur og jafnaður með umræðum, samningum og samþykktum, sem ráðherrarnir verða að una við, eigi rikisstjórnin að geta starfað áfram, og á þetta alveg jafnt við, þótt einstakir ráðherrar séu persónulega á annarri skoðun. Allt eru þetta augljós atriði, og ekki sist nú, þegar benda má á það, að þing hefur verið rofið, margnefnd rikisstjórn er breytt og kosningar i nánd vegna raunverulegs skoðana- ágreinings, sem ekki varð leystur, um allt annað þjóðmál en þau tvö mál, sem Morgunblaðið hamaðist sýknt og heilagt á s.l. haust og vetur. Það, sem ég aftur á móti gagnrýndi Morgunblaðið fyrir að þessu leytinu, var það að beita óheiðarlegum málflutnings- aðferðum á borð við úthrópun, róg og útúrsnúninga til þess að telja fólki trú um, að sú rikis- stjórn, sem nú hefur setið að völdum i tæp þrjú ár, væri sifellt að liðast i sundur vegna ósam- lyndis. Vitnaði ég i nokkur dæmi þessu til stuðnings, t.d. þegar Morgunblaðsritstjórnin skrifaði nýlega i leiðara, að „ill öfl” og „kommúnistar” sæktu að forsætisráðherra úr öllum áttum. Ef Morgunblaðið óskar, skal ég gjarnan birta fleiri dæmi um þennan málflutning þess, þvi að á þeim er enginn skortur. Má ekki gagnrýna? Morgunblaðið segir, að ég haldi þvi fram i erindi minu, að ekki megi gagnrýna löglega kjörin stjórnvöld, og vitnar blaðið i þvi sambandi i kafla, sem það tekur með dæmigerðum hætti út úr samhengi. Eins og sýnt verður fram á hér á eftir, er hér um hreina rangtúlkun að ræða. — Ég vil jafnframt láta þess getið, að þessi rangtúlkun blaðsins á orðum minum finnst mér raunar vera furðulegasta og jafnframt uggvænlegasta atriðið i skrifum þessum útvarpserindi mitt, þar sem mér sýnist hún ekki einasta vera algerlega tilefnislaus, heldur einnig bera vott um geigvænlega þröngsýni rit- stjórnarinar. — Enda þótt flestum eða öllum liggi eflaust rangtúlkun blaðsins á orðum minum i augum uppi, þrátt fyrir það að orðunum sé kippt úr sam- hengi, þá tel ég samt rétt að birta hér þann kafla erindisins, sem er nauðsynlegt lágmark til að skilja dóm minn að fullu: „Svo að skrif Morgunblaðsins um rikisstjórnina séu tekin sem dæmi, þá er aðferðin sú, að fyrst býr blaðið sér það til sem forsendu, að sundurlyndi og óeining riki á stjórnarheimilinu. A þessu er siðan hamrað mánuðum og árum saman, eflaust i þeirri trú, að sé þetta nógu oft endurtekið, hljóti al- menningur að fara að trúa þvi. Þá er bætt inn i myndina nokkrum atriðum til að mála hana skýrari dráttum. Þarna eru sagðir eigast við „kommúnistar” annars vegar og aðrir ráðherrar hins vegar. Kommúnistarnir svokölluðu eru að jafnaði birtir almenningi sem menn, er hafi eitthvert sérstakt lag á þvi að ráða mestöllum gangi mála. Lesendum framhaldssög- unnar virðist ætlað að lita á þá sem vondu mennina. Hinurn ráð- herrunum kynnast lesendur Morgunblaðsins sem stefnulitlum mönnum, er reyni af veikum mætti að verjast hinni miklu valdaásókn „illu aflanna”, enda liklega eins gott fyrir þá að sýna Morgunblaðinu, að þeir standi i istaðinu, þvi að annars gæti dunið á þeim hitt sæmdarheiti blaðsins, „nytsamir sakleysingjar”, hvorki meira né minna. Slikur málflutningur sem þessi er orðinn næsta einstæður i islensku þjóðfélagi, þó að svo sé þvi miður ekki með öllu. Megin- tilgangurinn með honum er að sundra, að deila til að geta drottnað. (Hér upphóf Mbl. til- vitnun sina Innskot A.I.): Ætlunarverkið virðist vera að gera löglega kjörinni rikisstjórn ókleift að starfa að stefnumálum sinum út kjörtimabilið. Þessum málflutningi (Undirstr. A.l.) vil ég gefa þá einkunn, að hann sé bæði óheiðar- legur og á lágu siðferðisstigi. Þessar einkunnir hæfa honum vegna þess, að i sundrungarvið- leitni sinni traðkar þessi mál- flutningur á rétti annarra”. Nú vil ég spyrja ritstjórn Morgunblaðsins: Þegar rit- stjórnin segir mig vera að halda þvi fram i erindinu, að „ekki megi gagnrýna löglega kjörin stjórnvöld”, ber þá að skilja það svo, að sá málflutningur blaðsins, sem ég hef lýst og vakið athygli á til fordæmingar vegna óheiðar- legra aðferða, sé eina póiitiska gagnrýnisaðferðin, sem biaðið kann? Ég fæ ekki skilið rang- túlkun blaðsins á orðum minum öðruvisi en þannig, að ritstjórn- inni finnist ég hafa hvorki meira né minna en tekið frá henni einu aðferðina til pólitiskrar gagnrýni, sem hún kunni. Skyldu kannski öll sárindi blaðsins og stóryrði i minn garð stafa af þessu? Það bendir ýmislegt til þess, að rit- stjórnin sé sér illa meðvitandi um málfutningsaðferðir sinar. Blaðið vitnar t.d. i þessu sambandi ekki einu sinni, heldur tvisvar i banda- risk blöð, sem hafi flett ofan af svikamálum eins og Watergate- málinu og ráðist á löglega kjörna rikisstjórn Bandarikjanna. Er þetta gert annars vegar i marg- ívitnuðu Reykjavikurbréfi 24. mars s.l. og hins vegar i pistlinum „Glafs”, sem einn af lautinöntum ritstjórnarinnar, á.j. ( =Arni Johnsen), skrifar i blaðið hinn 22. s.m. Nú vil' ég enn spyrja Morgunblaðsritstjórnina: Er með þessu verið að gefa i skyn, að Morgunblaðið eigi skilið svipaða einkunn fyrir sina gagnrýni á islensku rikisstjórnina og bandarisk stórblöð eins og The Washington Post fyrir gagnrýni á Nixon Bandarikjaforseta og ýmsa samstarfsmenn hans? Nú vill svo til, að ég les nokkurn veginn reglulega einn þann bandariska fjölmiðil, sem hvað mest hefur gagnrýnt umrædda aðila fyrir Watergatevinnu- brögðin o. fl„ nefnilega vikuritið Newsweek. Þar eru allt aðrar aðferðir lagðar til grundvallar en hjá Morgunblaðinu. Hlutlæg, málefnaleg gagnrýni situr i fyrir- rúmi, en ekki það að úthrópa and- stæðingana eða kippa orðum þeirra úr samhengi og rangtúlka siðan. Sé Morgunblaðsritstjórnin að likja sinum málflutningi við málflutning ábyrgra, banda- riskra fjölmiðla, hlýtur þvi annaðhvort að vera um að ræða einstæða blindu á eigin gerðir eða hið aldagamla fyrirbæri, sem venjulega er kailað snobb. Aðalsmerki blaðsins Óhugsandi er aþ ljúka svo umræðu um minn þátt i Reykja- vikurbréfi Morgunblaðsrit- stjórnarinnar hinn 24. mars s.l., að eigi sé fjallað um aðalsmerki blaðsins i pólitiskum „gagnrýnis- skrifum” þess. Þessum undir- ritaða einstaklingi, sem dirfðist að deila á málflutning blaðsins, er ekki aðeins brigslað um ósann- indi, heldur fullyrt, að hann hafi „beinlinis visvitandi sagt ósatt”. Orð min um ósamlyndi, sem áður hafa verið rakin og skýrð, hljóta sæmdarheitið „kjánalegt blaður”. Og sú rangtúlkun blaðsins, að ég haldi þvi fram að ekki megi gagnrýna löglega kjörin stjórnvöld, leiðír það vita- skuld til þeirrar umsagnar, að i rauninni felist i orðum minum „fasistiskur hugsunarháttur”. Jahá, ég spyr enn: Kann Morgun- blaðið ékki aðra umræðuaðferð i opinberum deilum en einmitt þá, sem ég hef vakið athygli á til fordæmingar? Eigi skal skuturinn eftir liggja Hugtengsl eru býsna merkilegt fyrirbæri, og miðsiður Morgup- blaðsins hinn 24. mars s.l. gefa i þvi sambandi tilefni til athyglis- verðrar könnunar. Eins og áður sagði, átti sýnilega ekki að hafa litið við, þegar undirrituðum yrði svarað: Ekki einasta var liðlega hálft Reykjavikurbréfið undir- lagt, heldur valið siðasta tölu- blaðið fyrir prentaraverkfall og þvi ekki möguleiki fyrir and- stæðinginn að svara á sama vett- vangi i bráð. Ekki virtist rit- stjórnin þó telja, að þetta dygði, heldur þurfti meira að segja að nota leiðara blaðsins lika og það með þeim hætti, að vart verður misskilið. Nú brá nefnilega allt i einu svo við, að Morgunblaðið heigaði leiðarann skóiamálum, sem ritstjórnin skrifaði allmikið um hér f eina tið, en hefur næsta litið verið sinnt I ritstjórnar- greinum þess að undanförnu. Það mun vera almenningi allvel kunnugt, að ég undirritaður hef fengist við rannsóknir og til- raunastarf i skólamálum s.l. 8 ár, fyrst sem deildarstjóri i Mennta- málaráðuneytinu og frá og með s.l. sumri sem prófessor i uppeldisfræðum við Háskóla fslands og jafnframt sérfræði- legur ráðunautur Menntamála ráðuneytisins i ýmsum skóla- máium. Og i umræddum leiðara Morgunblaðsins segir m.a.: „Deyfð og drungi hefur rikt yfir skólamálunum i tið núverandi rikisstjórnar, og þeir 'ungu menntamenn, sem kallaðir voru til starfa að endurbótum á skóla- kerfinu á siðustu árum Viðreisnarinnar, og hæst lét i, þegar málið var rætt á sinum tima, virðast hafa haft meiri áhuga á að hreiðra vel um sig i kerfinu heldur en að koma á þeim umbótum i skólamálum fslendinga, sem menn vissulega höfðu vænst af þeim, ekki sist vegna þeirra stóru orða, sem margir þeirra létu falla i umræðunum fyrir fjórum til fimm árum”. Og nú er spurningin: Hver skyldi eiga að taka til sin þessar dylgjur? Það vill svo til, að þessari spurningu hefur Morgunblaðið svarað sjálft, þvi að maðurinn er nefndur með nafni i „Glefsi” á.j. hinn 22. mars, þar sem segir: „Fyrir nokkrum árum hélt maður, að Andri væri baráttumaður fyrir breytingum i kerfinu, en nú er hann kerfið holdi klætt”. Þá vitum við það. Meira að segja i ritstjórnargrein dagsins kom blaðið upp um aðals- merki sitt, i þessu tilviki persónu- legar dylgjur og róg. — Raunar er i leiðaranum fjölmargt annað málefnalegrar gagnrýni vert en þetta dæmi, sem vitnað er i vegna augljósra tengsla þess við Reykjavikurbréfið. Það er hins vegar utan ramma þessarar greinar að elta ólar við þau atriði, enda verður þeim eflaust siðar svarað á viðeigandi vettvangi. Að falla á prófi Morgunblaðið ætlaði sér sýni- lega að veita undirrituðum gagn- rýnanda sinum þung högg og stór með Reykjavikurbréfi sinu og leiðara hinn 24. mars 1974. Þung urðu höggin þó ekki, aðeins stór vindhögg. Blaðið gat ekki hrakið málefnalega gagnrýni mina og greip þá til þeirra ráða i málflutningi, sem ég hafði einmitt veitt þvi ádrepu fyrir: að úthrópa, rangtúlka og rægja. Morgunblaðsritstjórnin gekkst undir mikið próf þennan dag. Og féll á prófinu. Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar, Bronco, jeppa og ógangfærar fólksbifreiðar, er verða sýnd- ar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 21. mai kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. Sala Varnarliðseigna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.