Tíminn - 18.05.1974, Blaðsíða 17
Laugardagur 18. mai 1974.
TÍMINN
17
Veitingahúsinu í
Fornahvammi lokað
GB—Rvik. — Ákveðið hefur verið
að hætta rekstri veitingahússins i
Fornahvammi i byrjun júni.
Vegagerðin keypti jörðina fyrir
rúmlega fjörutiu árum og hefur
leigthana siðan. Ábúandinn hefur
séð um veitingarekstur en vega-
gerðin um viðhald. Viðhald á
húsinu hefur litið' verið undan-
farin ár, enda hefur starfsemi
þess minnkað allverulega þótt
það hafi verið opið allan ársins
hring. Húsið þarfnast þvi veru-
legrar viðgerðar, en ekki hefur
verið ákveðið, hvað gera skuli við
það. Til öryggis fyrir veg-
farendur mun vegagerðin láta
byggja sæluhús i ofanverðum
Norðurárdal.
Stúdentaráð fordæmir
ofsóknir á hendur Rudi
Dutschke
Gsal—Reykjavik — Á fundi stú-
dentaráðs 26. april s.l. lýsir ráðið
yfir andstöðu sinni við þær til-
raunir danskra stjórnvalda að
flæma Rudi Dutschke úr landi.
Ennfremur lýsir Stúdentaráð yfir
samstöðu sinni með baráttu
Ferming í Kálfa-
tjarnarkirkju,
sunnudaginn
19. maí kl. 2 e.h.
Prestur: Séra Bragi
Friðriksson
Ágúst Þór Guðbergsson, Smára-
túni, Vatnsleysuströnd.
Gunnlaugur Isleifsson,
Lyngholti, Vogum
Guðmundur Konráðs Rafnsson,
Austurkoti, Vatnsleysuströnd.
Guðjón Vilhjálmur Reynisson,
Hafnargötu 28, Vogum
Magnús Illynur Haraldsson, Osi,
Bolungarvik
Viktor Guðmundsson, Kirkju-
gerði 5, Vogum
Kristjána Rósa Hafsteinsdóttir
Snæland, Hafnargötu 15, Vogum
Siv Elisabeth Sæmundsdóttir,
Stóru-Vatnsleysu
0 Flugslys
fundu mig, og ég varð svo
sannarlega feginn.
Walter Claude hefur það að
atvinnu að ferja litlar flug-
vélar, en hann sagði, að þetta
hefði verið fyrsta ferð sin með
flugvél yfir til Ameriku, og sin
fyrsta lending á Islandi hefði
þvi verið heldur harkaleg, en
áður hefur hann aðallega
ferjað flugvélar frá Frakk-
landi til ýmissa staða i Afriku
og Suðaustur-Asiu.
Hann verður að liggja
nokkra daga i sjúkrahúsi,
áður en hann fer utan.
Þegar flugvélarinnar var
saknað i fyrradag, var skipu-
lögð geysiviðtæk leit, sem
mörg hundruð manns tóku
þátt i. Þyrlur leituðu úr lofti.
En leitarskilyrði voru afleit,
grenjandi stormur og rigning
og skyggni afleitt. Leitar-
flokkar frá skátum, Flug-
björgunarsveitinni og Slysa-
varnafélagi Islands fóru yfir
mikið svæði i fyrradag og um
nóttina. Náði leitarsvæöið um
öll Suðurnes, upp i Borgar-
fjörð og austur i Rangárvalla-
sýslu. Gengu menn fjöll og
heiðar fram á nótt, og komu
sumir leitarflokkanna ekki til
byggða fyrr en undir morgun,
og voru þá aðrir tilbúnir að
leggja af stað. Með birtingu
létti til og fóru þá fjölmargar
litlar flugvélar til leitar, auk
flokka á landi. Þyrlurnar
héldu leit áfram i morgun.
Sem dæmi um umfang
leitarinnar má nefna, að i
leitarflokki SVFÍ frá Reykja-
vikursvæðinu voru 68 manns,
austanfjalls leitaði 61 maður á
vegum slysavarnarfélagsins
og auk þeirra voru leitar-
flokkar austan Rangár
tilbúnir að hefja leit i morgun.
Frá Akranesi og Borgarnesi
leituðu 32 menn um fjöll og
heiðar, og frá Mýrum og
Borgarfirði leituðu 59. Eru hér
taldar 19 björgunarsveitir,
sem i eru 287 manns.
danskra stúdenta fyrir þvi að
tryggja Dutschke starfsaðstöðu
þar i landi, og fordæmir allar til-
raunir til pólitiskra ofsókna gegn
honum jafnt sem öðrum. Þá segir
i yfirlýsingu stúdentaráðs, að fari
svo að Dutschke verði visað úr
landi, skori stúdentaráð á islenzk
stjórnvöld að hlutast til um að
honum verði boðin starfsaðstaða
hér á landi, og tslendingar leggi
þannig skerf af mörkum til
verndunar mannréttinda.
t greinargerð stúdentaráðs
segir nokkuð itarlega frá lifi
Dutschkes, frá þvi hann var einn
af leiðtogum stúdenta i Vestur-
Berlin ipólitisku andófi vorið 1968
til þessa dags. Þar kemur fram,
að Dutschke dvaldist i Bretlandi
um tima, en var visað úr landi, —
þrátt fyrir að hann stæði við sinar
skuldbindingar, sem fylgdu land-
vistarleyfinu. Þá sótti hann um
landvistarleyfi i Bandarikjunum,
þar sem kona hans er bandarisk,
en fékk synjun. Siðar fékk
Dutschke stöðu sem aðstoðar-
kennari við háskólann i Árósum,
og hefur hann dvalizt þar siðan.
Nú virðast hins vegar hafnar
pólitiskar ofsóknir gegn honum i
Danmörku, og stefnir þvi allt að
þvi, að Dutschke verði sendur til
Þýzkalands nú i mai, þar" sem
hans biður óvissa og hætta á
morðtilraunum, eins og segir i
greinargerð stúdentaráðs.
1 lok greinargerðarinnar segir
orðrétt:
— Hérlendis komu upp raddir
þess efnis að bjóða Solsénitsyn
landvist, og er öllu rikari ástæða
til slikra aðgerða i máli Rudi
Dutschke, þar sem hann á i fá hús
að venda og nýtur ekki stuðnings
neinna voldugra aðila.
■ -
Þessi mynd var tekin af myndlistarfólkinu, þegar það kom til að leggja siðustu hönd á sýninguna.
Timamynd: G.E.
SAAASÝNING MYNDLISTAR-
KLÚBBS SELTJARNARNESS
r
— í Iþróttahúsinu á Seltjarnarnesi
Gsal—Reykjavik — Það cr stór
hópur myndlistarfólks, sem
hefur gert iþróttahúsið á Sel-
tjarnarnesi að höll mynd-
listarinnar nú um tima, þvi i dag
kl. 14 opnar Myndlistarklúbbur
Selljarnarness þar sýningu á
verkum félagsmanna sinna.
Sýningin verður opin frá 18.-26.
mai, virka daga frá kl. 17-22 en
frá kl. 14-22. um helgar.
Myndlistarklúbbur Seltjarnar-
ness var stofnaður árið 1971 af
áhugafólki um myndlist. Stofn-
félagar voru um tiu talsins, en
bætzt hefur i hópinn og i dag eru
meðlimir klúbbsins tuttugu.
Sumir Félaganna hafa sótt nám-
skeið i myndlist áður, en aðrir eru
að stiga sin fyrstu spor á þessum
vettvangi.
Að þessu sinni sýna tuttugu
félagar verk sin, flest oliumál-
verk, alls 120 talsins. Leiðbein-
andi klúbbsins hefur frá upphafi
verið Sigurður Kr. Arnason list-
málari, en klúbbfélagar hafa enn-
fremur notið góðs af leiðbein-
ingum listamannanna Eggerts
Guðmundssonar og Gunnars
Hjaltasonar.
Þetta er þriðja samsýning
Myndlistarklúbbs Seltjarnarness.
NATTURUVERND VIÐ
LAGARFLJÓTSVIRKJUN
GB—Rvik. — Náttúruverndar-
samtök Austurlands. NAUST,
ákváðu að beita sér fyrir
stofnun samstarfsnefndar
heimaaðila til að fylgjast með
þróun mála og vera til ráðuneytis
um aðgerðir vegna fyrirhugaðrar
Lagarfljótsmiðlunar í tengslum
við 2. áfanga Lagarfossvirkjunn-
ar. Stjórn NAUST sneri sér til tólf
aðila með ósk um, að þeir tækju
þátt i umræddu samstarfi og til-
Fiskverðákvörðun til yfirnefndar
—hs—Rvik. — Verðlagsráð
sjávarútvegsins hefur að undan-
förnu unnið að ákvörðun lág-
marksverðs á sjávarafla, sem
gilda á frá 1. júni n.k., segir i
fréttatilkynningu frá ráðinu, sem
blaðinu barst i gær.
Þar segir ennfremur, að á fundi
ráðsins i gær (16. mai) hafi
ákvörðun um bolfiskverð o.fl.
verið visað til úrskurðar yfir-
nefndar, þar sem samkomulag
náðist ekki i ráðinu um lágmarks-
verðið.
A fundum ráðsins fyrir
skömmu var einnig verðákvörðun
á fiskúrgangi, svo og spærlingi og
makril til bræðslu, visað til úr-
skurðar yfirnefnda.
Verðlagsráð vinnur nú að
ákvörðun verðs á humri, rækju,
hörpudiski og ýmsum kola-
tegundum.
Halldór
heildaryfirtóku ríkissjóðs á
umræddum framlögum sveitar-
félaga og einstaklinga. Þetta sér
og skilur hver skattþegn þó betur,
þegar skattskráin kemur út i vor.
En ef við litum á dæmið i heild
og setjum það upp i töflu,
mönnum til frekari glöggvunar,
þá litur það svona út:
Tryggingamál:
Frá einstaklingum:
Lifeyristryggingar 1570
Sjúkratryggingar 1145 2715
Frá sveitarfélögum:
Lifeyristryggingar 800
Sjúkratryggingar 500 1300
AIls yfirtaka 4015
Löggæzla:
Reykjavik 130
Landið 100
Alls yfirtaka 230
Yfirtaka tryggingamála
og löggæzlu alls 4245
O Öngþveiti
bessum efnum. En bað hefði
svo sem ekki verið einhlitt þótt
ihaldið hefði dragnazt til að
samþykkja nauðsynlegar úrbæt-
ur, þvi að þá hefði verið eftir
verkið hið meira, sem sé að
framkvæma það.
öngþveitiö i þessum málum
blasir viö, hvert se. litið er.
Strætisvagnar komast ekki leiðar
sinnar, menn geta ekki lagt bilum
sinum i námunda við vinnustaði
sina i miðborginni eða nágrenni
hennar, og bilastæði, sem borgin
hefur látið gera, eru ýmist
gjaldskyld stórlega eða lögð undir
einkaþjónustu.svosem bilasölur!
Þá virðist skipulag ekki hafa
mikið að segja i augum ihalds-
meirihlutans sem kveinkar sér
ekki við aö úthluta lóðum undir
stórhýsi við umferðaræöar, þar
sem útsýni verður augsýnilega
svo skert, að stórhætta getur staf-
aö af, og hefur á slikt verið bent af
borgarfúlltrúum Framsóknar-
manna i borgarstjórn, en ihaldið
skellt við skollaeyrum og undrast
enn meir, að til skuli vera menn,
sem ekki sjá dýrðarljómann af
verkum ihaldsmeirihlutans i
borgarstjórn.
nefiulu einn fulltrúa hver i nefnd
til að fjalla þetta mál. Kjörnir
voru trúnaðarmenn og
samþykktar reglur um starfs-
hætti á fyrsta fundi Lagarfljóts-
nefndar 27. april s.l. Hjörieifur
Guttormsson er formaður, Ingi-
mar Svcinsson varaformaður, og
Guttormur V. Þormar ritari. A
öðrum fundi nefndarinnar á
Egilsstöðum 6. mai s.l. var ein-
róma samþykkt að beina þeim til-
mæluin til Náttúruverndarráðs
og orkuinálayfirvalda að búa svo
um hnútana, að fyrirhuguð vatns-
miðlun i Lagarfljóti valdi ekki
landbroti eða öðrum skemmdum
á nytjalandi. Nefndin tclur, að
hámarksvatnsborðsstaða, sem til
álita komi að miðla i á timabilinu
1. október til 1. mai, miðað við
vatnshæðarmæli á Lagarfljóts-
brú, sé 20,5 metrar yfir sjávar-
mál. Miðlunarhæðin verði þó
aðeins valin i tilraunaskyni og
endurskoðun innan árs frá þvi að
miðlun hefst og endurmetin með
hliðsjón af þeim umhverfisrann-
sóknum og reynslu, er þá liggur
fyrir. Einnig verði gerðar ráð-
stafanir, er tryggi, að vatnavextir
á miðlunartima valdi ekki meiri
yfirborðshækkun en verður viö
náttúrlegar aðstæður. Nefndin
telur nauðsynlegt, að gerðar
verði mælingar og' vistfræðileg
úttekt á helztu láglendissvæöum
við fljótið svo og lifriki þess, með
tilliti til veiðihagsmuna og veiti
Náttúruverndarráð forsögn um
þær rannsóknir. Hvetur nefndin
til þess, að hraðað verði úttekt á
landspjöllum og öðru tjóni og
samið um bætur við landeigendur
vegna þeirrar vatnsborðshækk-
unar, sem þegar er orðin.
Staðhæft er, að mannvirkjagerð
við 1. áfanga hafi nú þegar breytt
verulega útrennslu fljótsins,
þannig að vatnsborðsstaða i
Lagarfljóti geti á flóðatimum
orðið til muna hærri en fyrir
mannvirkjagerðina. Æskt hefur
nefndin þess, að Rafmagnsveitur
rikisins gefi skýrslu um mál
þetta, svo og Samstarfsnefnd
Náttúruverndarráðs og Iðnaðar-
ráðuneyti um orkumál.
Félagseiningar, sem tilnefnt
hafa fulltrúa i Lagarfljótsnefnd,
eru: Náttúruverndarsamtök
Austurlands, Búnaðarsamband
Austurl. Veiðifélag Fljóts-
dalshéraðs, Náttúruverndar-
nefnd Norður- og Suður-Múla-
sýslu, Náttúruverndarráð og
sveitarstjórnir eftirtalinna
hreppa: Fljótsdalshrepps,
Vallahrepps, Egilsstaðahrepps,
Eiðahrepps, Hjaltastaðahrepps,
Tunguhrepps og Fellahrepps.
Frá Þroskaþjálfaskóla
íslands
Umsóknarfrestur um skólavist næsta
haust er til 15. júni n.k.
Þeir, sem þegar hafa skilað umsóknum
eru beðnir að staðfesta þær fyrir þann
tima.
Kópavogshæli, 17. mai 1974
Skólastjóri