Tíminn - 18.05.1974, Side 20
GBÐI
fyrir gúóan mat
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Gengi lækk-
að um 4%
gagnvart Bandaríkjadollar
SKRAD gengi á Bandarikjadollar
hækkaiii i dag gagnvart islcnzkri
krónu um 3,70, og er kaupgengi nú
92,80 kr. hver dollar — Samsvarar
þetta þvi, aö gengi islenzku krón-
unnar hafi lækkaö um sem næst
4% gagnvart dollar, en minna
gagnvart ýmsum öðrum
myntum, sem hafa verið
hækkandi að undanförnu.
Ástæðan fyrir þessari
breytingu er fyrst og fremst sú,
að afkoma ýmissa greina sjávar-
útvegs og útflutningsiðnaðar
hefur farið versnandi að
undanförnu, bæði vegna
Fjöldamorð
í Dublin
NTB-Dublin. — 20 manns létu
lifiö og yfir 100 manns særðust, er
sprengjur sprungu á fjórum
stöðum i Dublin i gær.
Sprengjunum'var komið fyrir i
bilum, sem stóðu á miklum
umferðargötum, siðdegis, þegar
umferðin var hvað mest i
miðborginni.
Talið er vist, að öfgasinnar frá
Norður-lrlandi hafi staðið að
hermdarverkunum.
Danmörk:
Krefjast
launa-
hækkana
NTB-Kaupmannahöfn — Mót-
mælaverkföllunum i Danmörku
var haldiö áfram i gær, en þau
voru hvergi nærri jafn almenn og
á fimmtudag. Ilafnarverkainenn
og skipasmiðir i stóru skipa-
smiðastöövunum mættu flestir til
vinnu i gærmorgun. Þótt margir
launþcgar mættu ekki til vinnu
sinnar I gær, var atvinnulif þó
ekki lamað i öllu landinu, eins og i
fyrradag.
Samtök atvinnurekenda hafa
beðið launþegasamtökin að
hvetja meðlimi sína ekki til ólög-
legra verkfalla. Launþegafélögin
segja aftur á móti að ekki komi
annað til mála en að laun verði
hækkuð til að mæta þeim gifur-
legu verðhækkunum, sem
sparnaðarráðstafanir rikis-
stjórnarinnar hafa i för með sér.
hækkandi tilkostnaðar og verð-
breytinga erlendis.
t opinberum umræðum að
undanförnu hefur það komið fram
hvað eftir annað, að einn liður i
nauðsynlegum aðgerðum til að
leysa þennan vanda ætti að vera
að láta gengi krónunnar siga
niður á við. Hefur þetta skapað
óvissuástand um gengi krón-
unnar, sem virðist hafa ýtt undir
spákaupmennsku og aukna gjald-
eyrissölu.
Af hálfu Seölabankans hefur
þvi verið talið heppilegra að láta
gengið nú breytast i einum
áfanga um það, sem talið er
hæfiiegt við núverandi aðstæður
með tilliti til hagsmuna út-
flutningsframleiðslunnar. Ætti
þessi breyting að gera kleift að
halda meðalgengi krónunnar
nokkurn veginn stöðugu á næst-
unni, að öllu óbreyttu
Grimmilegar
hefndar-
árdsir
ÍSRAELSKAR flugvclar héldu i
gær áfram hefndarárásum á
flottamannahúðir Palestinuaraba
i Líbanon. Réðust flugvélarnar á
búðir nærri landamærum Sýr-
lands og á flóttain annabúöir
skamint frá Beirút, höfuðborg
Libanons. Libanönsk yfirvöld
segja, aö um 50 manns hafi látið
lifið i árásunum og yfir 100 særzt.
Talsmaður israelska hersins
segir, aö árásirnar séu eingöngu
gerðar á stöðvar skæruliða. Fara
tsraelsmenn ekki dult með það,
að verið sé ■ að hefna fyrir morð
barnanna i Maalot. Fórnar-
lömbum vegna aðgerðanna i
skólanum hefur fjölgað, og hefur
nú 21 barn látið lifið.
Kissinger, utanrikisráðherra
Bandarikjanna, er enn i ísrael og
reynir að miðla málum milli
tsrala og Sýrlendinga. En siðustu
atburðir hafa vakið siikt hatur og
hefndarþorsta milli Araba og
tsraelsmanna að Kissinger mun
vonlitill um að samningar um
vopnahlé takist að sinni.
Aðstoðarmenn hans segja, að
hann muni samt dvelja eystra þar
til á þriðjudag.
Nýr umboðsmaður í
Kópavogi
Frá og með 17. mai byrjar nýr umboðs-
maður i Kópavogi, Hólmfriður Jónsdóttir,
Bræðratungu 7, Kópavogi.
Simi 42073.
Kvartanir út af blaðinu sem hafa borizt
umboðsmanni fyrir klukkan 11 verða
keyrðar út milli kl. 11 og 13, Berist
kvartanir siðar verða þær keyrðar út eftir
kl. 16.
Forseti islands dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóra Eldjárn fóru I morgun frá Keflavfkurflugvelli
áleiðis til Daninerkur. Myndin er tekin, þegar forsetinn kveður handhafa forsetavalds Benedikt Sigur-
jónsson, forseta hæstaréttar, ólaf Jóhannesson, forsætisráðherra og Eystein Jónsson, forseta
sameinaðs Alþingis. Dönsku sendiherrahjónin sjást i baksviði inyndarinnar. Tfmamynd: GE.
Flugmaðurinn á lífi, en vélin mölbrotin
„Komst ekki yfir fjallið
vegna niðurstreymis"
— Ég setti vélina á fulla
ferð, þegar ég sá fjallið fyrir
framan mig, en flugvélin hélt
áfram að missa hæð vegna
kröftugs míðurstreymis, og
lenti efst i fjallinu. Hún kom
fyrst niður á nefið, og hentist
svo yfir á þakið og möl-
brotnaði. Ég missti aldrei
meðvitund, en var ringlaður i
fyrstu. Ég fann þó fljótlega, að
ég var ekki alvarlega
slasaður, og lagðist fyrir undir
flugvélarflakinu, þvi ég vissi,
aö mín yrði leitað.
Þannig fórust franska flug-
manninum Walter Claude orð,
er blaðamaður Timans ræddi
við hann i Borgarspitalanum i
gær. Hann er mikið
skrámaður i andliti, kjálki
hans brákaður og hendur
reifaðar. Hann er einnig
brákaður á öðrum ökla.
Claude sagðist hafa verið að
ferja ílugvélina, sem hann
flaug, frá Frakklandi til
Bandarikjanna. í gærmorgun
lagði hann upp frá Stornaway
á Suðureyjum og átti að lenda
á Reykjavikurflugvelli kl.
15.00. Þegar hann kom ekki
fram á áætluðum tima, var
hafin viðtæk leit að flugvél-
inni, og stóð hún yfir þar til i
gærmorgun, að flugvélin
fannst i Grindaskröðum, sem
eru I fjallgarðinum austan
Kleifarvatns. Það voru flug-
menn i litilli flugvél, sem sáu
flakið, og skömmu siðar lenti
þyrla Landhelgisgæzlunnar og
slysavarnafélagsins hjá þvi,
en þá var flugmaðurinn hvergi
sjáanlegur. Hálftima siðar til-
kynntu leitarmenn á landi, að
þeir hefðu fundið flug-
manninn, og var hann þá
kominn tæpan kilómetra frá
flakinu. Þyrlan náði i hann og
flutti til Reykjavikur, þar sem
hann var lagður inn á sjúkra-
hús.
Flugmanninum sagðist svo
frá, að flugið frá akotlandi
Franski flugmaðurinn
Walter Claude i
Borgarspitalanum.
Timamynd: Gunnar.
hefði gengið vel, en er hann
nálgaðist tsland fór veðrið að
versna. Hann flaug yfir Vest-
mannaeyjar og hafði samband
við flugstjórnina i Reykjavik,
er hann flaug yfir Suður-
ströndina.
— Þegar ég kom inn yfir
Island, var veðurofsinn orðinn
mikill, og skýjabólstrar lágu
yfir fjöllunum. Sviptivindar
voru miklir, og ég ákvað þvi
að snúa aftur til strandar-
innar, fljúga meðfram henni
og lenda á Keflavikurflugvelli.
En þá lenti ég i sliku niður-
streymi, að flugvélin lét ekki
að stjórn. Skyggni var um 1000
metrar, og ég sá fjöllin og
vissi nákvæmlega, hvar ég
var. En þegar ég ætlaði yfir
fjallahrygginn, lækkaði vélin
flugið óðfluga, þótt hreyfillinn
væri á fullu, og þarna lenti ég
efst i fjallinu.
Rétt á eftir lagðist þoka yfir,
og var skyggni ekki nema
kannski um 100 metrar. Ég
vissi, að min yrði leitað og
einnig, að mjög erfitt yrði að
finna flakið i þessu veðri. Ég
lagðist þvi fyrir undir flakinu
og hafðist við þar i nótt. Ég
vissi, að ég var fótbrotinn, og
að tilgangslaust var að reyna
að ganga til byggða. Mér var
mjög kalt og gat ekkert borðað
vegna kvala i kjálkanum. Ég
varð var við þyrlurnar, og
vissi, að þær voru að leita min.
Ég reyndi að skjóta upp
neyðarblysum, en árángurs-
laust.
— Þegar birti var mér orðið
afskaplega kalt, og ég vissi
ekki hvort min yrði leitað á
þessu svæði. Þvi gerði ég
tilraun til að skreiðast frá
flakinu til að freista þess að
ná mannabyggð, en ég var
ekki kominn langt, þegar þeir
Framhald á 17. siðu.