Tíminn - 02.07.1974, Blaðsíða 2
4
4
TÍMINN Þriöjudagur 2. jdli 1974. Þriöjudagur 2. júlí 1974.__________________________________________________TÍMINN__________________________________ 13
WORLDCUP
VMM74
fréttír
FRANZ BECKENBAUER...er maöurinn á bak viö v-þýzka landsliöiö.
Beckenbauer
tekur við
stiórninni
★ Hann sér um æfingar v-þýzka liðsins og hefur
tekið völdin af Schoen. í sínar hendur
★ Netzer hótaði að fara
ÞAÐ hefur lengi veriö á flestra vitoröi/ aö óánægja væri ríkjandi f
herbúöum V-Þjóðverja á HM, en s.l. laugardag sauð þó alveg upp
úr. Kom þá i Ijós, aö fyrirliði v-þýzka liðsins, Frans Beckenbauer,
hefði tekið við stjórn liðsins af Helmut Schoen,en Beckenbauer var
ekki ánægður með stjórn hans á liðinu i forkeppninni. Kom þetta
fram á blaðamannafundi, sem Schoen boðaði til, en þegar til
kastanna kom, fékk hann ekki að segja aukatekið orð. Becken-
bauer sá um að svara öllum spurningum viðstaddra.
Beckenbauer hefur lengi veriö á móti þeirri æfingaaðferö, sem Schoen notar, og
kom þaö fram á þessum fundi. Hann gagnrýndi einnig mjög val Schoens i lið i for-
keppninni og sagði, að einstakir leikmenn hefðu ekki lagt sig nógu vel fram i þeim
leikjum og nefndi sérstaklega þá Uli Hoeness og Jurgen Grabrowski, sem hann
sagði, að hefðu alls ekki lagt sig fram i leiknum á móti A-Þýzkalandi, og hefði það
veriö ein af ástæðum tapsins á móti þeim, en margir hafa haldið þvi fram, aö V-
Þjóðverjar hafi viljandi tapað þeim leik, til þess aö komast i léttari órslitariðil.
Beckenbauer vildi eindregið vinna þennan leik, en það tókst ekki vegna þessa
áhugaleysis leikmanna.
Eftir forkeppnina er það Beckenbauer, en ekki Schoen, sem hcfur séö um æfingar
liösins, og valdi hann liöið, er lék á móti Júgúslaviu með þeim árangri, að það er
talinn bezti leikur V-Þjóðverja i keppninni til þess tima. Þá setti hann þá Hoeness og
Grabrowski út úr liöinu, og hinn mikli Netzer fékk ekki einu sinni að sitja á vara-
mannabekknum. Þaö varð til þess að Netzer hótáði að fara burt, en á siðustu stundu
tókst að róa hann.
Það var vitað áður en þetta varð kunnugt, að Beckenbauer hafði mikil völd innan
landsliðsins, og Schoen ráðfærði sig jafnan við hann, áður en mikilvægar ákvarð-
anir voru teknar. En nú þegar hann hefur alveg tekið völdin i sinar hendur má búast
við að stjarna hans hækki stórlega, ef honum tekst að leiða V-Þjóðverja til sigurs,
en lækki að sama skapi ef það mistekst hjá honum. Það er þvi mikil ábyrgð er
Beckenbauer tekur á sig með þessari valdatöku sinni.
O.Ó.
BRASILIA vann sinn
tuttugasta sigur yfir
Argentínu í Hannover á
sunnudag fyrir 40.000
áhorfendum, og án efa er
þetta þeirra mikilvægasti
sigur í þeirra innbyrðis
leikjum. Brassarnir léku
sinn bezta leik f keppninni
til þessa, en Argentínu-
menn gáfu þeim ekki
mikið eftir og spiluðu
stundum skínandi góðan
fótbolta. Bezti maðurinn á
vellinum var miðjumaður
þeirra Balbuena, sem var
Heimsmeistararnir
sýndu klærnar....
Pólverjar hof&u heppnina
með sér
— þegar þeir sigruðu Júgóslava 2:1 í
Frankfurt, í sínum lélegasta leik í HM
PÓLVERJAR unnu sinn
fimmta sigur í HM á
sunnudaginn þegar þeir
unnu Júgóslava 2-1 í
Frankfurt að viðstöddum
55.000 áhorfendum. Sigur
þeirra var ekki verðskuld-
aður, því Júgóslavar áttu
miklu meira í leiknum og
mjög óréttmæt vitaspyrna
gaf Pólverjum annað
markið. Er talið að þetta
sé lélegasti leikur Pól-
verja f keppninni til þessa.
Júgóslavar gengu til leiks án
fyrirliða sins Dragan Dzajic,
sem lá i innflúensu, og stuttu eftir
að leikurinn hófst meiddi einn
burðarás liðsins sig það illa, að
hannn varð að fara útaf. Var
þetta miðjuspilarinn Oblak, sem
hefur verið potturinn og pannan i
spili Júgóslava til þessa. Þrátt
fyrir þennan missi léku Júgó-
slavar betur en Pólverjar og
aðeins klaufaskapur þeirra upp
við mark andstæðinganna kom i
veg fyrir sigur.
Hinir 20.000 júgóslavnesku
áhorfendur ráku upp mikið reiði-
óp á 26. minútu , þegar hinn a-
þýzki dómari leiksins, Rudi
Gloeckner, benti á vftapunktinn
eftir að júgóslavneski leik-
maðurinn Karasi hafði litillega
rekið olnbogann i magann á
Szarmach frá Póllandi. En ekki
tjáir að deila við dómarann, og
Deyna skoraði auðveldlega úr
vitinu.
Júgóslavar jöfnuðu svo á 44.
minútu leiksins þegar Karasi
greiddi fyrir brot sitt og skaut yfir
Tomaszewski i pólska markinu,
en hann hafði hætt sér of langt út.
1-1 i hálfleik var vel sloppið hjá
Pólverjum.
Júgóslavar hófu seinni hálfleik
með miklum látum.en það voru
Pólverjar sem skoruðu á 64.
minútu . Eins og svo oft áður kom
markið eftir hornspyrnu frá
kantmanninum Gadocha, sem
gaf nákvæmlega fyrir á höfuðið á
Lato, sem skallaði knöttinn inn, 2-
1 fyrir Pólverja, og þrátt fyrir
þunga pressu Júgóslava tókst
þeim ekki að jafna. Er þetta
fyrsti sigur Pólverja fyrir Júgó-
slövum eftir strið, og með marki
sinu varð Lato markhæsti maður
keppninnar, með 6 mörk.
Júgóslavnesku leikmennirnir
áttu allir nokkuð góðan leik, en
hjá Pólverjum var einn maður,
sem bar af, Gadocha, sem var
alls staðar á vellinum og að öllum
öðrum ólsötuðum var hann
maðurinn á bak við sigur Pól-
verja. Eftir þennan sigur verður
leikur Pólverja og V-Þjóðverja á
morgun úrslitaleikur um hvort
liðið kemst i úrslit. Ó.O
V-Þi
veldi sitt
verjar sýndu
Þeir rúmlega 60.000 áhorf-
endur, sem troðfylltu
Rheinstadion í Dusseldorf
á sunnudaginn, fengu að
sjá skemmtilegan sóknar-
leik á milli Svía og V-Þjóð-
verja. Svíar urðu að vinna
þennan leik, ef þeir áttu að
eiga möguleika á áfram-
haldandi keppni, og útlitið
var ekki sem verst í hálf-
leik fyrir þá, þar sem þeir
höfðu yfir 1-0. En Þjóð-
verjarnir voru ekkert á
þeim buxunum að gefast
upp og sýndu það í seinni
hálfleik hvílíkt stórveldi
þeir eru í knattspyrnu,
þegar þeir skoruðu 4 mörk
gegn einu á síðustu 45 mín-
útunum. I seinni hálfleik
sýndi Gerd Muller stórleik,
ekki með því að skora
mörkin, heldur aldrei
þessu vant lagði hann
grunninn að þremur
marka Þjóðverja í hálf-
leiknum.
V-Þjóðverjar hófu leikinn af
mikilli grimmd og ætluðu greini-
lega að kafsigia Sviana þegar á
fyrstu minútunum. En Sviar
vörðust vel og héldu markinu
hreinu i fyrri hálfleik, og þeim
tókst meira að segja að koma inn
marki sjálfir. Aukaspyrna var
dæmd á Þjóðverja rétt fyrir utan
vftateig þeirra, boitinn var send-
ur til Edströms, sem skaut sann-
köiluðu þrumuskoti, sem Maier i
markinu sá ekki fyrr en um sein-
an. 1-0 I hálfleik fyrir Svia og
menn voru farnir að búa sig undir
óvænt útslit.
Þjóðverjar hafa greinilega ráð-
ið ráðum sinum vel i hléinu, þvi
eftir aðeins 8 minútur af seinni
hálfleik höfðu þeir náð 2-1 for-
ystu. Fyrra markið kom eftir 50
minútna leik, Hoeness iék upp
kantinn gaf fyrir til Mullers, sem
renndi knettinum úr erfiðri aö-
þegar þeir sigruðu Svía 4:2,
eftir að hafa haft 0:1 undir í
hálfleik. Nú stefnir að
úrslitaleik milli V-Þjóð
verja og Hollendinga
HOENESS...
skoraði siðasta
mark
V-Þjóöverja,
úr vitaspyrnu
stöðu fyrir fætur Overaths, sem
átti auðvelt með að skora. Aðeins
3 minútum seiuna átti Bonhof
hörkuskot að marki af um 25
metra færi, knötturinn fór i stöng,
rann eftir marklinunni i stöngina
hinum megin og inn. 2-1 fyrir
Þjóðverja og nú hófu Sviar stór-
sf kn, sem endaði með marki eins
og skot. A 55. minútu fékk Sand-
berg knöttinn algjöriega óvaidað-
ur við vitateigshorn og skaut góðu
skoti, sem Maier réð ekki við, 2-2
og allt I járnum. Liðin skiptust
eftir þetta á hættulegum upp-
hlaupum og var það hending
hvort liðið myndi skora á undan.
V-Þjóðverjum tókst það, þegar
14. minútur voru til leiksloka.
Muller gaf mjög góða sendingu á
Hölzenbein, sem reyndi skot, en
Hellström i sænska markinu hálf-
varði. Boltinn hrökk til Grabr-
owski, sem skoi aði i autt markið.
Sviar reyndu svo allt sem þeir
gátu til jiess að jafna, en þess i
stað fengu þeir enn eitt inarkið á
sig. Muller var felldur inni i vita-
teignum og dómai inn dæmdi um-
svifalaust vitaspyrnu, sem mörg-
um fannst harður dómur. Hoen-
ess tók spyrnuna örugglega og
gerði þar með endanlega út um
vonir Svia.
Leikur þessi er talinn einn
skemmtilegasti sóknarleikur i
keppninni til þessa, þar sem bæði
liðin reyndu að spila sóknarleik,
og með þessum ágæta árangri, 6
mörk.
V-Þjóðverjar eiga nú mjög
góða möguleika á að komast I úr-
slit, aðeins tap fyrir Pólverjum
gerir þann draum þeirra að engu.
Sviar, eins og Júgóslavar, Argen-
tinumenn og A-Þjóðverjar, eru nú
örugglega úr keppni, aðeins þýð-
ingarlausir leikir þessarra liða
innbyrðist eru eftir.
Ó.O.
Brasiliumenn sóttu til að byrja
með og það var á 31. minútu:, að
fyrra mark þeirra kom. Rivelino
átti þrumuskot að marki, sem
Carnevali i argentiska markinu
átti ekki möguleika á að verja.
Aðeins 4 minútum siðar varð
Leao að sækja knöttinn i mark I
fyrsta skipti i þessari HM keppni.
Þá var dæmd aukaspyrna á
Brasiliu rétt fyrir utan vitateig,
Brindisi tók spyrnuna óverjandi i
slá og inn.
Þannig var staðan i hálfleik 1-1,
en síðari hluta hálfleiksins sóttu
Argentinumenn mun meira, en
tókst ekki að skora.
Það voru ekki liðnar nema 4
minútur af seinni hálfleik, að
Brasiliumenn tóku forystuna
aftur. Bakvörðurinn Ze Maria lék
þá upp kantinn, lyfti boltanum til
Jairzinhos, sem þurfti ekki að
gera annað en að ýta boltanum
inn. 2-1. fyrir Brassana og nú
urðu Argentinumenn að jafna, ef
þeiráttu að eiga einhverja mögu-
leika á áframhaldandi keppni.
Þeir fengu góð færi til þess, en
Balbuena, Ayala og Houseman
fóru illa með góð tækifæri. Brasi-
llumenn áttu sin færi einnig, en
tókst ekki að notfæra þau. Eftir
þvi sem á leikinn leið, fóru Argen-
tinumenn-beita fyrir sig hörkunni
og Houseman og Bargas voru
bókaðir fyrir harðar
„taklingar”.
Með þessum sigri eru Brassar-
nir öruggir i annan úrslitaleikinn,
annaðhvort um fyrsta og annað
sætið, eða þriðja og fjórða sætið,
en til þess að komast i aðalúr-
slitaleikinn þurfa þeir að vinna
Hollendingana á morgun, en það
verður án efa erfiður róður fyrir
þá.
0,0.
JAIRZINHO-.skoraði
sigurmark heimsmeistaranna.
Neeskens tók við
hlutverki Cruyff
A-Þjóðverjar spiluðu með að-
eins tvo framliggjandi menn, þá
Hoffman og Löwe, enda viður-
kenndi þjálfari þeirra eftir leik-
inn að þeirra tækni i þessum leik
byggðist upp á að láta Hollend-
ingana vinna sem minnstan
sigur, hann hafði séð það út fyrir
leikinn að A-Þjóðverjarnir ættu
ekki minnstu möguleika gegn
hinum léttleikandi Hollendingum.
Brassarnir sýndu sinn bezta leik í HM,
þegar þeir unnu sigur yfir Argentínu 2:1
Félagarnir Neeskens og Cruyff
eru lykilmenn hollenzka liðsins.
Þeir léku báðir með Ajax, en leika
nú með Barselona.
— þegar Hollendinga
stórleikinn og sigr
PARKSTADION í
Gelsenkirchen var fullset-
inn á sunnudag, þegar Hol-
land vann A-Þýzkaland 2-0
og af þeim 70.000 áhorf-
endum, sem fylgdust meö
leiknum, voru 25.000 há-
værir Hollendingar, sem
kváðu hinn fámenna
áhorfendahóp A-Þjóöverja
alveg í kútinn. Þeir höföu
líka ástæðu tiJ að vera
kátir, því Hollendingar
sýndu enn einn stórleikinn,
og má mikið ske, ef þeir
verða ekki heimsmeistar-
ar, en það stefnir greini-
lega í úrslitaleik milli
þeirra og V-Þjóðverja.
Leikurinn fór fram i grenjandi
rigningu og áttu leikmenn fremur
erfitt með að fóta sig. A-Þjóð-
verjar settu mann til höfuðs
Cruyff, Konrad Weise fékk það
erfiða hlutverk og tókst það vel
hjá honum, þvi Cruyff var litt
áberandi i leiknum. En það kom
ekki að sök, þvi annar Jóhann i
r sýndu enn einn
uðu A-Þjóðverja 2:0
þetta skiptið Neeskens tók viö
hlutverki hans, og skilaði þvi
með sóma. I þessum leik sýndu
Hollendingar það að þeir geta lika
spilað vel, þó að Cruyff sé gætt.
Aðeins voru liðnar 6 minútur af
leiknum, þegar Jurgen Croy,
markvörður A-Þjóðverja varð að
sækja knöttinn i net sitt.
Neeskens skaut föstu skoti að
marki, sem Croy hélt ekki, og inn
rann knötturinn. Eftir markið
sóttu Hollendingar áfram, en
upphlaup A-Þjóðverja voru sára
fá, og aðeins einn leikmaður
þeirra, Martin Hoffmann, átti
skot að marki sem Jongbloed i
marki Hollandi átti i erfiðleikum
með. Annars varð það það eina,
sem hann hafði að gera i leiknum,
að verjast þeim fáu hornspyrn-
um, sem Þjóðverjarnir fengu, en
engin þeirra skapaði hættu.
Hollendingarnir skoruðu sitt
annað mark á 60. minútu, þegar
kantmaðurinn Rob Rensenbrink
skoraði fallegt mark. Hollend-
ingarnir fóru svo illa með
fjöldann allan af tækifærum og
hefði lokastaðan hæglega getað
verið 7-0 i stað 2-0.
Hollendingar sýndu það ennþá
einu sinni, að þeir leika skemmti-
legustu knattspyrnu á HM og þeir
hafa lika yfir miklu hvatningar-
liði að ráða, og gæti það ráðið úr-
slitum i keppninni
O.Ó.
Morkhæsfu
menn
Lato, Póllandi 6
Szarmach, Póllandi 5
Deyna, Póllandi 3
Rivelino, Brasiliu 3
Nceskens, Hollandi 3
Bajevic, Júgóslaviu 3
Edström, Sviþjóð 3
-Cruyff, Hollandi 2
Houseman, Argentinu 2
Vazalde, Argentinu 2
Jairzinho, Brasillu 2
Muller, V-Þýzkalandi 2
Breitner, V-Þýzkalandi 2
Iloeness, V-Þýzkalandi 2
Sandberg, Svíþjóð 2
Overatli, V-Þýzkalandi 2
sivinnandi og átti góð tæki-
færi til að skora, en Leao
markvörður Brasilíu
bjargaði vel eins og fyrri
daginn.
WORLD
CUP[«
IAIM74
STAÐAN
Staðan er nú þessi eftir
tvær umferðir i 8-liða úr-
slitunum i HM:
A-riöill:
Holland—A-Þýzkaland 2:0 (1:0)
Brasilia—Argentina 2:1 (1:1)
Holland
Brasilia
A-Þýzkaland
Argentlna
Markhæstu menn:
Cruyff, Hollandi 2
Rivelino, Brasiliu 2
B-riðill:
V-Þýzkaland—Sviþjóð 4:2 (0:1)
Pólland—Júgóslavia 2:1 (1:1)
V-Þýzkaland
Pólland
Júgóslavla
Svlþjóð
Markhæstu menn:
Lato, Póllandi 2
Höeness, V-Þýzkalandi 2