Tíminn - 16.08.1974, Qupperneq 1

Tíminn - 16.08.1974, Qupperneq 1
SLONGUR BARKAR TENGI % m?' X C—________________ ..ili--------------- Landvélarhf 148. tölublaö —Föstudagur 16. ágúst —58. árgangur Dömur! Nýjung! DRESSFORM fatnaður loks á Islandi Pantið bækling núna 33373 Sjálfvirkur simsvari allan sólarhringinn. Póstverzlunin Heimaval/ Kópavogi. ___________._______* umferðinni fækkar Timanum hefur nýverið borizt bráðabirgðaskráning umferðar- slysa fyrir júlimánuð. 1 skýrsl- unni, sem umferðarráð hefur sent, kemur fram,að 572 slys hafa orðiö i júiimánuði, þar af eitt dauðaslys og 81 með meiðslum. mjög svipuð og I fyrra. Slys með meiðslum eru hins vegar litiö eitt fleiri fyrstu sjö mánuði þessa árs. Nú fer senn aö siga á seinni hiuta hvalvertfðarinnar, en henni lýkur væntanlega upp úr miðjum sept- ember. t gær voru komnir 277 hvalir á land, 238 langreyðar og sést hér ein . slik dreginn upp á skurð- arplanið, 33 búrhvalir og 6 sandreyöar. Ennfremur voru tveir hvalir veiddir og á landleið, en siglingin er löng. Timamynd: Gunnar. Framkvæmdastjóri WHO í Evrópu: Framleiðslu- aukning í iðnaöi 5-7% — ó fyrsta órsfjórðungi 1974 fró sama tíma 1973 t LJÓS hefur komið við könnun á ástandi og horfum innan islenzks iðnaðar, að hjá fyrirtækjum, sem hafa 57% af heildarvinnuafli úr- taks þess, sem lagt er könnuninni til grundvallar, hafi framleiðslu- magn á fyrsta ársfjórðungi 1974 verið meira en á sama tima 1973, en hjá 23% minna. Þess er þó að gæta, að úrtakið var misjafnt eft- ir iðngreinum — frá 7% upp I 95%.Hefur verið áætlað, að heildaraukning framleiðslu- magnsins hafi orðið 5-7%. Aftur á móti hefur engin fram- leiðsluaukning orðið frá siðasta ársfjórðungi 1973 til fyrsta árs- • fjórðungs 1974, en búizt er við, að talsverð framleiðsluaukning hafi orðið á öðrum fjórðungi þessa árs frá hinum fyrsta. Sölumagn hefur haldizt nokkuð i hendur við þetta, en þó orðið öllu meira, svo að nokkuð minna er af fullunnum vörubirgðum. Heldur hefur dreg- ið úr fjárfestingarfyrirætlunum fyrirtækja. Hyggja nú fyrirtæki með 41% mannaflans á fjárfest- ingu i ár, en þeir, sem veittu 48% mannaflans vinnu i fyrra, höfðu slikt á prjónunum. Ofurlitið hefur dregið úr pöntunum, og inn- heimta söluandvirðis hefur geng- ið stirðlegar en áður, einkum hjá þeim, er skipta við fyrirtæki, sem tengd eru sjávarútvégi. í fæstum iðngreinum hafa orðið verulegar sveiflur. bó hefur orðið umtalsverð aukning i prjóna- og fataiðnaði og sömuleiðis i drykkjarvöruiðnaði og pappirs- iðnaði, en nokkur samdráttur er aftur á móti i sælgætisiðnaði og málningariðnaði. Úrtak af þessu tagi er gert fjór- um sinnum á ári á vegum Félags islenzkra iðnrekenda og Lands- sambands iðnaðarmanna. Dauðaslysum í Þá sjö mánuði, sem af er árinu, hafa dauðaslys orðið helmingi færri en á sama tima i fyrra. Þá urðu 16 dauðaslys i umferðinni, en eru núna orðin átta. Umferðaróhöpp eru tölulega séð Aukin tíðni hjartasjúk- dóma með- al kvenna afleiðin reykinga og kyrrsetu HHJ-Rvik — Hjartasjúk- dómar hafa færzt mjög i vöxt á Vesturlöndum undanfarin ár, þótt aukningin sé ekki jafnör nú og var fyrir 5-6 ár- um. Eftirtektarvert er, að sögn dr. Leo A. Kaprio, hins finnska aðalframkvæmda- stjóra Evrópudeildar WHO, að undanfarið hefur aukningin verið mest meðal kvenna, en áður var tíðni hjartasjúkdóma langmest meðal karlmanna. Skýringu þessa taldi dr. Kaprio aðallega þá, að reyk- ingar kvenna — og raunar ungmenna einnig — hafa færzt mjög I vöxt að undanförnu. Þá hreyfa konur á Vesturlöndum sig minna en áður gerðist, tæknimenningin hefur haft i för með sér auknar kyrrsetur, og i kjölfariö fylgir aukin hætta á hjartasjúkdómum. Ofgnóttin veldur geigvæn- legum vandamólum í Evrópu — mengun, kynslóðafirring og flótti fró raunveruleikanum einkenna hin vestrænu ofgnóttarþjóðfélög HHJ-Rvik — Hinar riku, iðn- væddu þjóðir hirða bróðurpartinn af auðlegð jarðarinnar, á meðan tveir þriðju hlutar mannkyns búa við sult og seyru og hafa vart cða ekki i sig og á, svo að ekki sé minnzt á sómasamleg húsakynni, menntun og annað, sem við Evrópumenn teljum flestir sjálf- sagða hiuti. En gnóttin, eða öllu heldur ofgnóttin, sem við búum við, á sér lika skuggahliðar. Að álitidr. Leo A. Kaprio, aðalfram- kvæmdastjóra Evrópudeildar WHO, hinnar alþjóðlegu heil- brigðismálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, — en hann er staddur hériendis þessa dagana — hljóta framtiðarverkcfni heilsugæzlu i Evrópulöndunum að markast æ meir af hinum óheillavænlegu áhrifum ofgnóttarinnar á likam- legt og andlegt heilsufar fólks i þessum löndum. — Æ- ljósara verður, hversu geigvænleg áhrif umhverfis- mengunin hefur á heilsufar fólks, segir dr. Kaprio, enda eru rann- sóknir á þessu sviði einn þeirra þátta heilbrigðismálanna, sem er hvað brýnastur. Annar þáttur eru málefni aldraðra. Efnahagsleg og atvinnuleg þróun i iðnrikjunum hefur orðið á þá lund, að tengsl á milli kynslóðanna hafa mikið til rofnað. Af þessu leiðir margvis- legan vanda, sem er ekki sizt félagslegs eðlis. Á þessu sviði biða okkar brýn verkefni. t þriðja lagi má nefna geðvernd. Eitt ein- kenna velferðarþjóðfélaganna s.k. er flótti frá raunveruleikan- um, fjöldi fólks vill ekki eða getur ekki horfzt i augu við það lif, sem þvi er búið, og leitar þá á náðir fikni- og ávanalyfja af ýmsu tagi. Neyzla eiturlyfja færist mjög i vöxt meðal ungmenna i mörgum Evrópulöndum, en hinir eldri halla sér fremur að áfenginu. Rætur þessa hvors tveggja er að finna i lifsflóttanum og firring- unni, sem virðist vera fylgifiskur ofgnóttarþjóðfélaganna. I fjórða lagi þarf að einbeita sér að rann- sóknum á krabbameini, en i þvi efni er hlutur WHO öllu minnstur, þvi að heilbrigðisyfirvöld i hverju landi um sig leggja mikla áherzlu á rannsóknir á þvi sviði, enda er tiðni krabbameins geigvænleg. Einstaka Evrópuland á þó ekki við þau vandamál að striða, sem hér hefur verið á drepið, sagði dr. Kaprio. Má t.d. nefna Portúgal, sem ekki hefur náð sama alls- nægtastigi og flest hinna Evrópu- landanna. I mörgum hinna evrópsku iðn- rikja vinna margir erlendir verkamenn, sem kunnugt er. Það hlýtur að verða eitt verkefna Evrópudeildar WHO að huga að hag þeirra, þvi að heimalönd þeirra sinna þeim litt eða ekki, og sama máli gegnir á stundum um þau lönd, sem njóta góðs af vinnu þeirra. Þá rekur WHO margþætta út- gáfustarfsemi og upplýsinga- starfsemi af ýmsu tagi. Má þar nefna ýmis skipulagsatriði i sam- bandi við heilsuvernd, upplýsing- ar um sjúkdóma, sem eru i upp- siglingu, kóleru og stórubólu t.d., unnið er að athugunum á hjarta- sjúkdómum og menntun heil- Frh. á bls. 15 2800 laxar komn- ir í Kollafjörð — hs—Rvik. í gærmorgun voru teknir 180 laxar i laxeld- isstöðinni i Kollafirði. Eru þá laxar, sem komið hafa aftur i stöðina á þessu sumri, orðnir 2800 að tölu og má búast við þvi aö þeir fari vel yfir 3000. Eru þetta sennilega beztu endurheimtur á laxi frá þvi stöðin var sett á laggirnar. Nú þegar eru komin 8% af merkt- um laxi, en 13% af uggaklippt- um laxi. Athyglisvert er, hvað heimtur eru miklu betri á hin- um siðarnefndu, en vitað er að merkin, sem notuð hafa verið hingað til, há fiskinum tals- vert. Arið 1970 voru 4200 laxar endurheimtir, og er það hæzta talan hingað til, en þá var einnig sleppt miklum fjölda seiða árið áður. Heimtur eru hins vegar hlutfallslega beztar i ár, eins og áður sagði.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.