Tíminn - 16.08.1974, Qupperneq 16

Tíminn - 16.08.1974, Qupperneq 16
SIS-FOMJK SUNDAHÖFN GEÐI fyrir góóan mai $ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Famagusta fallin hendur Tyrkjum i setja Grikkir her á land? NTB-Nikósiu — Tyrkneska útvarpið á Kýpur til- kynnti i gær, að hafnarborgin Famagusta væri nú í höndum Tyrkja og einnig griska flotastöðin Sala- mis, skammt norður af borginni. Karamanlis, for- sætisráðherra Grikklands, sagði i gær, að Grikkir myndu gripa til allra nauðsynlegra ráða til að mæta sókn Tyrkja, sem hann sagði ógnun við heimsfrið- inn. Margir túika þessi ummæli hans þannig, að Grikkir séu reiðubúnir að setja her á land til að koma i veg fyrir, að eynni verði skipt i tvennt. Skipzt var á skotum meðfram græna beltinu svokallaða I Nikósiu i gær, en óljóst er,hvort það telst endanlegt rof vopnahlésins, sem Sþ-sveitir komu á i borginni i fyrrakvöld. í fyrrinótt voru harðir bardagar við flugvöllinn utan við Nikósiu, en þó að Tyrkir séu komnir þangað, hafa þeir ekki gert tilraunir til að ná flugvellinum frá sveitum Kanada og Breta, sem halda til þar. 1 tilkynningu frá tyrkneska hernum, sem lesin var i útvarpið i gær, segir, að tyrkneskar flugvél- ar hafi um nóttina varpað sprengj- um á griskar verksmiðjur i Nikósiu og nokkur mikilvæg skot- mörk i Famagusta. 1 tilkynning- unni sagði, að flestir óbreyttir borgarar hefðu nú yfirgefið Fama- gusta. Brezkar heimildir segja, að um 12 þúsund griskir Kýpurbúar hafi leitað hælis i brezku her- stöðinni við Dekhelia. Snemma I gærmorgun var opnuð loftbrú frá brezku flugstöðinni Akrotiri i grennd við Limasol til Bretlands og verða um 10 þúsund konur og börn, fjölskyldur brezkra her- manna i stöðinni, flutt heim. Hernaðarsérfræðingar velta nú fyrir sér, hversu stóran hluta Kýp- ur Tyrkir hafi hugsað sér að taka. 1 sókninni hafa þeir farið austur, suður og vestur frá þvi svæði, sem þeir tóku eftir innrásina við Kýreniu 20. júli. Tilkynningar frá Ankara láta að þvi liggja, að Tyrk- ir ætli sér þriðja hluta eyjarinnar, svæði, sem nær frá Morfou I vestri gegn um tyrkneska hluta Nikósiu og til Famagusta i austri. Bandariska stjórnin hefur ekki fengið neina opinbera tilkynningu frá Aþenu um að Grikkir ætli að hætta varnarsamstarfinu i Nato og heldur ekki um, að landið ætli að segja upp herstöðvasamningum við Bandarikin. Talsmaður varnarmálaráðu- Forsetafrú skotin til bana NTB-Seul — Eiginkona Chung- Hee Park, forseta Suður-Kóreu lézt i gær eftir misheppnað tiiræði við eiginmann hennar. Frú Park, sem var 48 ára, fékk skot í höfuðið og lézt á sjúkrahúsi eftir sex klukkustunda skurðaðgerð. For- setinn og þrjú börn þeirra hjóna voru við banabeðinn. Talið er, að það hafi verið Kóreumaður búsettur i Japan, sem hóf skothrið á forsetahjónin við hátiðahöld i tilefni 29 ára afmælis frelsis Kóreu undan Japönum. Forsetinn var að halda ræðu yfir um 1500 gestum. Hann beygði sig eftir fyrsta skotið, en kona hans féll úr sæti sinu. öryggislögreglan skaut á tilræðismanninn, en hitti skóla- stúlku, sem lézt af sárum sfnum. Talsmaður lögreglunnar sagði, að vegabréf mannsins væri gefið út á nafnið Yukio Yoshii, en japanska lögreglan segir hann heita Min Se Kwang og vegabréf- iðsé annaðhvort falsað eða stolið. Frú Park, sem er af auðugum ættum, var kennslukona áður en hún hitti mannsefnið, sem þá var yfirmaður i hernum. Þau gengu I hjónaband 1950 og siðan hefur hún verið húsmóðir, en auk þess varð hún kunn sem góður listmálari. Siðdegis i gær ákvað dóms- málaráðuneyti S-Kóreu, að engir japanskir rikisborgarar i S-Kóreu fengju að fara heim á næstunni og S-Kóreumenn, sem búsettir eru i Japan, en staddir i Kóreu, verða einnig að vera um kyrrt. „Skjaldedigtning" Finns endurprentuð LOKIÐ er nú endur- prentun á hinu mikla verki Finns Jónssonar prófessors, Den norsk- islandske Skjaldedigtn- ing, sem upphaflega kom út á árunum 1912- 1915. Það er forlagið Rosenkilde & Bagge, sem gefur safnið út i tveim bindum, er kosta samtals þúsund krónur danskar. 1 þessu safni er allt, sem varð- veitzt hefur af þvi, sem ort var á norræna tungu fram til 1400. í fyrra bindinu, sem raunar kom út 1967, eru kvæðin prentuð stafrétt eftir þeim handritum, sem Finn- ur taldi bezt, en tilbrigði úr öðrum handritum neðanmáls. t siðara bindinu, sem er nýprentaö, eru kvæðin með samræmdri stafsetn- jngu og leiðréttingum, er Finnur geröi, ásamt skýringum og danskri þýðingu.. neytisins, Jerry Friedheim,sagði I gær, að engar deildir úr Banda- rikjaher væru viðbúnar og sovézki flotinn á Miðjarðarhafi hagaði sér rétt eins og venjulega. Þó að Fordstjórnin styðji allar tilraunir öryggisráðs Sþ til að stöðva bardagana, virðist álitið í Washington, að Tyrkir muni ekki láta staðar numið fyrr en þeir hafa náð þeim svæðum, sem þeir ætla sér, og brezka stjórnin er sömu skoðunar. Þess vegna eru nú menn ekkert að leggja sérlega hart að sér til að koma viðræðunum i Genf I gang að nýju. Tyrkneski utanrikisráðherrann, Turan Gunes, sagði við brottförina frá Genf i gær, að Tyrkir væru fús- ir til að hefja samningaviðræður að nýju hvenær sem vera skyldi. 1 viðtali við Reuters-fréttastofuna sagðist hann ekki vera þeirrar skoðunar, að bardagarnir á Kýpur leiddu til styrjaldar við Grikki. — Ég get fullvissað ykkur um,að Tyrkir hafa engar áætlanir um að taka eyjuna, sagði hann. Hann bætti þvi við, að meiningin væri að eignast 34% eyjarinnar, og það væru þeir fúsir til að gera með samningum. Skothríð Lissabon i NTB-Lissabon — Einn maður lézt og fjórir særðust I fyrri- nótt, þegar lögreglan I Lissa- bon skaut að mannfjölda, sem safnazt hafði saman til að styðja þjóðfrelsishreyfingu Angóla, MPLA. Fólkið safnaðist saman I miöborginni og gekk sfðan niður aðalgötuna til hafnar- innar. Að sögn lögreglunnar hófst skothrfðin, þegar ein- hverjir úr hópnum tóku aö kasta grjóti að lögreglubil. Sex eða sjö lögregluþjónar i bilnum særðust. Að sögn sjónarvotta bað lög- reglan fólkið að yfirgefa svæð- ið, áður en skothriðin hófst. Rikisstjórnin og varnarmála- ráðherrann höfðu bannað fundinn. Portúgal hefur viðurkennt rétt Angóla til sjálfræðis, en stjórnin krefst þess, að MPLA samþykki vopnahlé áður en samningaviðræður hefjast. Fellibylur ógnar nú flóðasvæðunum — fyrir eru kólerci og hungursneyð NTB-Nýju Dehii — Ekki á af íbú- um flóöasvæðanna á Indlands- skaganum að ganga. t gær voru 80 milljónir manna i Vest- ur-Bengal og Orissa að búa sig undir komu fellibyls, sem var á leið til glóðasvæðanna. Sam- kvæmt veðurspánni átti fellibyl- urinn að koma inn yfir ströndina i nótt. Þetta er fyrsti fellibylurinn, sem myndazt hefur á Bengalflóa á þessum árstima siðan um alda- mótin, en I nóvember 1970 herjaði fellibylur og flóðbylgja á A- Pakistan, sem nú er Bangladesh og olli hamförum i óshólmum Ganges. Yfirvöld sögðu þá, að 200 þúsund manns hefðu farizt, en Mujibur Rahman, sem nú er for- sætisráðherra Banglades sagði, að allt að milljón manns hefðu farizt. I Kalkútta hélt fólk sig innan ‘dyra i gær vegna geysilegrar úr- komu og storms. Indversk flug- félög lögðu niður ferðir til og frá borginni. Flóðin i Norðurhluta Indlands hafa eyðilagt geysilegt magn af uppskeru og komið i veg fyrir, að hægt sé að dreifa matvælum, þannig að tilkynningar um hungursneyð eru nú æ tiðari. I tilkynningu frá Assam, sem fjórum sinnum á sex vikum hefur farið á kaf i vatn, segir, að fólk borði næstum hvað sem er að finna á ruslahaugum. Opinber- lega var tilkynnt i gær, að i austurhluta Uttar-Pradesh, þar sem fólk er einangrað i þorpum, biði þess nú ekkert nema hungur- dauðinn. Allir olíugeymar heimsins fullir — verður framleiðslan minnkuð til fyrir verðfall? NTB-London — OHuframieiðsIan iheiminum er nú með þeim hætti, að framleiddar eru fjórar mill- jónir tunna meira á dag en notað er. Þetta sagði arabískur sendi- Ford vill hjálpa sovézkum Gyðingum NTB-Washington — Ford Banda- rikjaforseti hefur haft samband við yfirvöld i Sovétrfkjunum i þvi skyni að reyna að stöðva ofsóknir á hendur Gyðingum. Ford ræddi málið i fyrrakvöld við ambassador Sovétrikjanna i Washington, Anatolij Dobrynin. Viðræðurnar geta orðið til þess að þingið samþykki innflutnings- ivilnanir þær við Sovétrikin, er stjórnin hefur lagt til. I gær ræddi Ford málið við þrjá öldungadeild- arþingmenn, sem siðar skýrðu frá þvi, að hann hefði rætt við Do- brynin, en ambassadorinn kom heim úr sumarleyfi sinu I Sovét- rikjunum til að hitta nýja forset- ann. fulitrúi á fundi oliurikja i London i gær. 3-4 milljóna tunna umfram- framleiðsla samanborið við neyzlu, eru 10% af þeim 30 milijón tunnum, sem OPEC-löndin fram- leiða til jafnaðar á dag. Sendifulltrúinn sagði, að fundurinn i London væri haldinn með það fyrir augum að reyna að minnka spennuna i oliumálunum, sem þessi umframframleiðsla hefði valdið. Hann staðfesti, að oliugeymslurými væri alls staðar yfirfullt, bæði i framleiðslu- og neyzlurikjunum og öll skip full. Hann lagði áherzlu á, að oliu- framleiðslurikin ætluðu að halda oliutekjum sinum, og sagði, að minnkun framleiðslunnar gæti einnig átt sér stað, i þvi skyni að skapa jafnvægi milli neyzlu og þarfar. Mörg rikjanna hafa lýst þvi yfir, að þau vilji heldur minnka framleiðsluna en að olia lækkaði i verði. Saudi-Arabia tek- ur ekki þátt i fundinum i London. Níu skip með makríl til Neskaupstaðar B.G.-Neskaupstað — 1 gær og fyrrakvöld komu hingað 9 skip með makril úr Norður- sjónum, samtals 2350 tonn. Áður hafa borizt hingað 1300 tonn, sem þegar hafa verið brædd hjá Sildarvinnslunni h.f. Skipin, sem komu núna, eru Loftur Baldvinsson með 300 tonn, Þorsteinn með 200 tonn, Gisli Árni með 200 tonn, Faxaborg og Pétur Jónsson, bæði með 300 tonn, Eldborg með 200 tonn, Sölvi Bjarna- son með 200 tonn, Börkur meö 450 tonn og Ásberg með 200 tonn. Verðið, sem skipin fá fyrir kilóið af makrilnum, er kr. 8.80, og samtals hefur nú verið landað tæpum 3700 tonnum af makril. I ^v.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.