Tíminn - 05.09.1974, Side 11
Fimmtudagur 5. september 1974.
TÍMINN
11
Okkar bezti bakvörður
kominn út í kuldann...
Landsliðsnefndin telur AAagnús Þorvaldsson ekki einn
af okkar beztu knattspyrnumönnum
„VIÐ TELJUM þessa leikmenn
sterkustu knattspyrnumenn
landsins”, sögðu landsliösnefnd-
armennirnir, þegar þeir lögöu
fram lista meö nöfnum þeirra
leikmanna, sem eiga aö mæta
Belgiumönnum á sunnudaginn.
Já, menn gátu ekki annaö en
brosað, þegar þeir renndu augun-
um yfir listann, með nöfnum leik-
mannanna 16. Það kom fljótlega i
ljós, að landsliösnefndin hafði
örugglega verið i draumalandi,
þegar hún valdi landsliðshópinn.
A listann vantaði nöfn leikmanna
eins og Magnúsar Þorvaldssonar.
bakvarðarins snjalla úr Vikingi,
Jóns Gunnlaugssonar, klettsins i
vörn Akranessliðsins, og Karls
„litla” Þórðarsonar, sóknar-
mannsins snjalla af Skaganum,
sem lék landsliðsvörnina svo
grátt i pressuleiknum á þriðju-
dagskvöldið.
Landsliðshópinn, sem valinn
var fyrir leikinn gegn Belgiu-
mönnum, skipa eftirtaldir leik-
menn:
Þorsteinn Ólafsson, Keflavik
Magnús Guðmundsson', KR
Eirikur Þorsteinsson, Vikingi
Björn Lárusson, Akranesi
Jón Pétursson, Fram
Marteinn Geirsson, Fram
Jóhannes Edvaldsson, Val
Karl Hermannsson, Keflavik
Grétar Magnússon, Keflavik
Guðgeir Leifsson, Fram
Ásgeir Eliasson, Fram
Teitur Þórðarsson, Akranesi
Matthias Hallgrimsson, Akranesi
Gisli Torfason, Keflavik
Atli Þ. Héðinsson, KR
Ásgeir Sigurgvinsson, Standard
Liege
Fjórir leikmenn úr hópnum,
sem lék gegn Finnum, hafa verið
settir út úr liðinu. Það eru þeir
Sigurður Haraldsson, Val,
Magnús Þorvaldsson, Vikingi,
Jón Gunnlaugsson, Akranesi og
Óskar Tómasson, Vikingi.
í staðinn fyrir þessa leikmenn
koma þeir: Björn Lárusson,
Magnús Guðmundsson, Jón
Pétursson og Asgeir Sigurvins-
son. Það er gleðilegt að sjá nafn
Björns Lárussonar á listanum, en
það er jafn furðulegt að sjá, að
nafn Magnúsar Þorvaldssonar er
horfiðaf listanum. Já,okkar bezti
vinstri bakvörður er nú kominn út
I kuldann, Hverjir leika fyrir
hann gegn Belgiumönnum? Jón
Birgir einvaldur
BIRGIR BJÖRNSSON-.hefur
veriðráðinn „einvaldur” Islenzka
landsliðsins I handknattleik, fyrir
næsta keppnistimabil. Hann mun
einnig sjá um þjálfun á landslið-
inu til aðbyrja með, eða þar til að
erlendur þjáifari verður ráðinn.
Þetta kom fram á fundi hjá HSt i
gær. Sigurður Jónsson formaður
HSt, sagði að mikill áhugi væri
hjá erlendum þjálfurum,
einkumm frá austur-blokkinni,
sem hefðu áhuga á að þjálfa
islenzka landsliðið. Sigurður
sagði, að með þvl að fá erlendan
þjálfara hingað, myndi verða
hleypt nýju blóöi i islenzkan
handknattleik.
Mörg verkefni biða islenzka
landsliðsins i vetur, liðið mun
taka þátt i þremur handknatt-
cg hann mun þjálfa ísienzka landsliðið,
þar til erlendur þjálfari verður ráðinn
leiksmótum erlendis. Fyrsta
verkefni landsliðsins er 4ra landa
mót i Sviss, þar sem V-Þjóð-
verjar, Ungverjar, Svisslend-
ingar og Islendingar taka þátt i.
Þetta mótferfram i Sviss dagana
24.-28. október n.k. Þá tekur
landsliðið þátt i móti i Póllandi
um mánaðamótin janúar-febrúar
1975. Þar keppa f. og B-lið Pól-
lands, Rúmenia og ísland.
Islenzka liðið tekur siðan þátt i
Norðurlandamótinu i handknatt-
leik, sem fer fram i Ðanmörku i
byrjun febrúar 1975. A þessu sést,
að það verður mikið að gera hjá
islenzkum handknattleiks-
mönnum i vetur. —SOS
Pétursson, skriðdrekinn úr
Fram, eða jafnvel Eirikur félagi
Magnúsar úr Vikingi? Furðulegt.
Grunur leikur á þvi, aö Jón
Pétursson verði látinn leika stöðu
vinstri bakvarðar — a.m.k. lék
hann stöðu bakvarðar i pressu-
leiknum. Ef landsliðsnefndin
ætlar að láta þennan þunga
leikmann taka stöðu Magnúsar,
þá má hún fara að athuga sinn
gang. Það verður gaman að sjá,
hvaða leikmaður verður látinn
taka stöðu Magnúsar. Hver sem
það nú verður, er sá leikmaður
örugglega ekki öfundsverður.
I landsliðshópnum eru nú tveir
hægri bakverðir, þeir Björn
Lárusson, sem verður að öllum
likindum látinn leika þá stöðu
gegn Belgiumönnum, og Eirikur
Þorsteinsson, Ef Eirikur verður
látinn leika stöðu vinstri bak-
varöar, þá verður Jón Pétursson
varamaður fyrir miðverðina. Þar
með tekur hann sæti Jóns Gunn-
laugssonar, sem nú hefur verið
settur út i kuldann. Þetta er
einnig allfurðulegt, þvi að Jón
Pétursson kemst ekki með
tærnar, þar sem nafni hans af
Skaganum hefur hælana.
En nú skulum við til gamans
stylla upp islenzka landsliðinu,
sem verður að öllum likindum
látið byrja inná gegn Belgiu-
mönnum: Þorsteinn, Björn, Jón
P., Marteinn, Jóhannes, Ásgeir,
Guðgeir, Karl, Grétar, Teitur og
Asgeir Sigurvinsson. — SOS.
Þeir
koma
MARGIR heimsfrægir knatt-
spyrnumenn koma hingað
með Belgiska landsliðinu i
knattspyrnu, sem leikur gegn
islenzka landsliðinu á sunnu-
daginn á Laugardalsvellinum.
Frægastan má nefna hinn
snjalla Paul van Himst, sem
ertalinn einn skotfastasti leik-
maður, heims, hann hefur
leikið 78 landsleiki fyrir
Belgiu. Þá kemur Raoul
Lambert, snjall spilari, sem
leikur með F.C. Brugge.
Einnig má nefna félaga
Asgeirs Sigurvinssonar úr
Standard Liege, Wilfried van
Moer (33 landsleikir), og
markvörðinn Christian Piot.
Við munum segja nánar frá
belgiska liðinu siðar.
KSI
segir
stopp
á bréf
Knapps
ELLERT SClIRAM..formaöur
KSt, sagði á blaðamannafundi i
gær, að stjórn KSt hafi stöövaö
bréfasendingar Tony Knapp,
þjálfara KR-liðsins, til UEFA. En
eins og komiö hefur fram hér á
siðunni, þá ætlaði Knapp að senda
bréf til UEFA, þar sem hann
kvartaöi yfir dómgæzlu isienzkra
dómara. Ellert sagöi, að stjórn
KSÍ heföi bent Knapp á, að hann
sendi ekki út bréf, á meðan hann
væri þjálfari Islenzka lands-
liðsins.
Fundur
hjá HK
Allir þeir drengir, sem ætla að
iðka handknattleik hjá HK i
Kópavogi I vetur, eru eindregið
hvattir til að mæta á fundi i Kárs-
nesskóla stundvlslega kl. 8 i
kvöld. Þjálfarar 2„ 3. og 4. flokks
mæta á fundinum. Vetrarstarfið
rætt og skipulagt — nýir félagar
velkomnir.
—Stjórnin.
RUTH FUCHS.... setti heimsmet I spjótkasti kvenna I Róm.
SIGTRYGGUR... sést hér I leik
gegn tR sl. vetur.
IR-ingar fá
liðsstyrk
Sigtryggur Guðlaugsson frá Akureyri
hefur gengið í raðir þeirra
Stórskyttan I handknattleik, Sigtryggur Guðlaugsson frá Akureyri,
sem lék með Þórsliöinu s.l. keppnistlmabii 11. deiid, hefur nú.gengið
i raðir IR-inga. Þessi snjalii handknattleiksmaður, sem var einn af
markhæstu leikmönnum 1. deiidar sl. keppnistimabil, mun áreiöan-
lega styrkja ÍR-liðið mikið I vetur — hann er bæði góöur sóknar- og
varnarleikmaður.
Þá mun Brynjólfur Markússon, sem lék með Akureyrarliðinu KA
sl-keppnistimabil i 2. deild, þar sem hann var markhæstur, leika
aftur með IR i vetur, og einn.ig Asgeir Ellasson, sem var við nám að
Laugarvatnisl. vetur. A þessu sést, að IR-liðið fær mikinn liðsstyrk.
Liöið er nú byrjað að æfa að fullum krafti undir stjórn Þórarins
Eyþórssonar.
-SOS.
FUCHS SETTI HEIMS-
MET í SPJÓTKASTI
á Evrópumeistaramótinu í Róm
Heimsmethafinn í
spjótkasti kvenna, Ruth
Fuchs frá
Austur-Þýzkalandi,
setti nýtt heimsmet i
spjótkasti á Evrópu-
meistaramótinu i Róm á
þriðjudagskvöldið. Hún
kastaði spjótinu 67.2 m
og reyndist henni ekki
erfitt að næla sér i
gullið. Jaqueline Todten
frá A-Þýzkalandi varð
önnur, kastaði
62.10 m, en i þriðja sæti
varð Natasa Urbanic frá
Júgóslaviu, sem kastaði
61.66 m.
Rússinn Valeri Brozov varð
Evrópumeistari i 100 m hlaupi.
Hann er talinn nær ósigrandi og
sigraði örugglega, hljóp vega-
lengdina á 10.27 sek. Annar var
Italinn Pietro Menna, sem hlaut
bronsið i 200 m i Munchen á OL.
Hann hljóp á 10.34 sek.
Irena Szewinska varð öruggur
sigurvegari i 100 m hlaupi
kvenna. Hún sigraði olympiu-
meistarann og heimsmeistarann
frá A-Þýzkalandi, Renate
Stecher, og kom i mark
sekúndubroti á undan henni —
eða á 11.13 sek. Stecher varð
önnur á 11.23, en i Evrópu-
meistaramótinu i Helsinki 1971
sigraði hún. Þá hljóp hún tvivegis
á 11 sek. sléttum. Hún endurtók
það afrek á Olympiuleikunum i
Munchen, en þar vann hún bæöi
100 og 200 m hlaupið. I þriðja sæti
lenti Andre Lynch frá Bretlandi á
11.28 sek. Finnska stúlkan
Mona-Lisa Oursiaine varð að láta
sér nægja sjötta sæti á 11.42 sek.