Tíminn - 06.09.1974, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Föstudagur 6. september 1974,
A
Frank Usher: (^)
TÆPU VAÐI
— Ég get aðeins sagt að möguleikinn er f yrir hendi.
— En þiðgetiðekki verið þekktir fyrir að leyfa þeim að
gera það!
— Um þetta gilda alþjóðalög. Við gerum auðvitað
okkar bezta fyrir ykkur. Hvort við höfum sigur er undir
því komið hve sterk ákæran er sem yf irvöldin í Kalten-
burg leggja fram. Ef það sannast að þið hafið myrt þar
mann og stórskaðað annan, verður mjög hæpið að fá því
afstýrt að þið verðið send til Kaltenburg og færð fyrir
rétt.
— En það þýðir það að við verðum fyrir pyndingum
leynilögreglunnar. Þið vitið vel um vinnubrögð þeirra.
Eruð þér að segja mér að þið munið senda okkur út í
slíkt?
Bayliss gat ekki gefið henni neina góða von, svo
Amanda var gjörsamlega utan við sig þegar hann gekk
út.
Tveir dagar mjökuðust áfram í sífelldum ótta og
örvilnun. Þriðja daginn síðdegis sagði lögreglukonan að
Amanda ætti að búa niður dót sitt og vera tilbúin í ferða-
lag um kvöldið. Amanda bað konuna að segja sér hvað
um væri að vera og hvertætti aðfara, en konan vildi ekki
svara því. Sagði að um það hef ði hún enga hugmynd.
— Þú stendur á listanum yf ir allra mestu leyndarmál,
vina mín, sagði hún um leið og hún fór út. Þessi leynd
þótti Amöndu ills viti, því ef hún og Óskar yrði f ramseld
til Kaltenburg, mundi það verða gert með leynd. En ef
Óskar yrði hins vegar ákærður fyrir morið á Stanislov,
mundi það verða gert fyrir opnum tjöldum.
Nú var hún komin í algjört stofufangelsi. Ekki mátti
hún hringja, ekki einu sinni í Bayliss. Því síður að ganga
út úr herberginu.
Eigi að síður fékk hún koníak og þótti henni hressingin
koma í góðar þarf ir. Hún var búin aðganga frá dóti sínu,
settist á rúmstokkinn sinn og keðjureykti. Hún átti sér
ills von.
Tveir borgaralega klæddir lögreglumenn komu til að
sækja hana. Klukkan var orðin rúmlega tíu. Þeir neituðu
með öllu að svara spurningm hennar. Sögðu aðeins að
það væri „verboten" að tala við hana.
Þeir leiddu hana niður í stóran, svartan bíl. í aftursæt-
inu sat velþekktur, stórvaxinn maður. Hann snéri sínu
stóra, ófríða andliti að henni þegar hún sté inní bíl-
inn.
— Ó, Óskar, sagði hún og þreif í hina stóru hendi eins
og barn.
En hann var einnig ráðalaus og gat ekki veitt henni
traust né huggun. Hann mundi hafa slegizt til síðasta
blóðdropa til þess að vernda hana fyrir því sem beið
hennar í Kaltenburg, en han' gat alls ekkert gert.
Förunautarnir voru vopnaðir. Hann mundi aðeins láta
lífið til einskis ef hann hreyfði sig. Þeir höfðu verið
jaf nþögulir við hann og Amöndu. Þeim var fyrirboðið að
tala við þau eða segja þeim hvert ferðinni væri heitið.
En Óskar vissi hvert ferðinni var heitið. Braun hafði
sagt honum nákvæmlega hvað mundi ske ef hann
viðurkenndi ekki morðið á Nickolai. Nú var það orðið of
seint að bjarga Amöndu með játningu. í fangelsinu
höfðu þeir neitað að hlusta á hann þegar hann sagði að
hann vildi heldur játa.
Nú vildu þeir víst losna við hann sem fyrst. Kannski
var þeim orðið Ijóst að þá skorti sannanir til þess að geta
leitt hann fyrir rétt, og að falskri játningu mundi verða
vísað frá.
Amanda sat við hliðina á Óskari, hélt í hendina á honum
og horfði á hann vonlausum augum. Hvert sinn er þau
opnuðu munninn var þeim sagt að þegja.
Bílnum var ekið hratt gegnum umferðina. Ljósin
blöktu á fölu og teknu andliti Amöndu.
— Æ, óskar, sagði hún, —hvert aka þeir okkur?
Hann hristi höf uðið og þrýsti hönd hennar svo fast að
hún fann til, en hún svaraði handtakinu — já hún naut
þess að finna handtak eina mannsins í heiminum, sem
þótti virkilega vænt um hana.
— Oh, Óskar, mig langar svo til að æpa, sagði hún.
Hann horfði lengi á hana. Það var kökkur í hálsinum á
honum.
— Gerðu þaðekki. Ég mun alltaf muna þetta ferðalag,
Amanda. Þegar við hugsum til baka seinna verður ekki
þægilegt að minnast þess að þú hafir æpt.
Hún beit sig í vörina og snéri sér undan, deplaði augun-
um og lét tárin drjúpa meðan bíllinn þaut áf ram í áttina
að Riem-flugvellinum. Ekki var meira talað.
Bifreiðin ók framhjá byggingum flughafnarinnar og
að Vanguard-f lugvél f rá B.E.A. sem stóð tilbúin til f lug-
taks.
Þeim var skipað útúr bílnum og gengu að vélinni með
tvo menn f raman við sig og tvo fyrir aftan. Amanda hélt
enn fast um hönd Óskars. Hún sá að töskurnar hennar
voru bornar inní f lugvélina. Hvað hafði hún með töskur
að gera eins og komið var?
— Er þetta ekki ein af flugvélum B.E.A. Óskar, spurði
hún.
— Hún flýgurhéðan til Kaltenburg, svaraði hann. —
Það er endastöðin frá Lundúnum.
Þau gengu upp landgöngustigann talsvert lotin.
HVELL
G
E
1
R
I
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
R
íii
iiitii
FÖSTUDAGUR
7.00 Morgunútvarp Veö-
urfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00 ’ Morgunbæn kl.
7.55, Morgunstund barn-
anna kl. 8.45: Ingibjörg
Jónsdóttir lýkur lestri sögu
sinnar um „Lusindu og
Dabba” (5). Tilkynningar
kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45.
Létt lög milli liöa. Spjailaö
viö bændur kl. 10.05 Morg-
unpopp kl. 10.25. Morgun-
tónleikarkl. 11.00: Victorla
De Los Angeles og Sinfónlu-
hljómsveit Lundúna flytja
þætti úr „Canto a Sevilla”
eftir Joaquin Turina / Eve-
lyne Crochet leikur á pianó
Prelúdiur op. 103 eftir
Gabriel Fauré / Sinfónlu-
hljómsveitin I Detroit leikur
Svitu i F-dúr op. 33 eftir Al-
bert Roussel.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veöurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Viö vinnuna: Tónleikar.
14.30 Siödegissagan: „Smiö-
urinn mikli” eftir Krist-
mann Guömundsson Höf-
undur les (8).
15.00 Miödegistónleikar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.25 Popphorniö
17.10 Tónleikar
’ 17.30 Frá sjóferöum viöa um
heim Jón Aðils leikari byrj-
ar aö lesa úr ferðaminning-
um Sveinbjarnar Egilsson-
ar
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Spurt og svaraö Svala
Valdimarsdóttir leitar
svara við spurningum hlust-
enda.
20.00 Kvöldtónleikar: Frá út-
varpinu í Stuttgart
21.00 Peninga- og gengismál
sem hagstjórnartæki Bald-
ur Guölaugsson ræöir viö
Sigurgeir Jónsson aðstoðar-
bankastjóra Seðlabanka ís-
lands, siöari hluti.
21.30 Otvarpssagan: „Svo
skal böl bæta” eftir Oddnýju
Guðmundsdóttur Guðrún
Ásmundsdóttir leikkona les
(8).
22.00 Fréttir.
22.15 Veöurfregnir. Búnaöar-
þáttur: Framleiðsla fugla-
kjöts Gisli Kristjánsson
ræöir við Jón Guömundsson
bónda á Reykjum
22.35 „Afangar” I umsjá
Ásmundar Jónssonar og
Guðmundar Rúnars
Agnarssonar.
23.20 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Aö utan. Fréttaþáttur
um Gerald Ford Bandar.
forseta, aörir þættir falla
niöur. Um-
sjónarmaður Sonja Diego.
20.50 Stjórnmálaumræöur I
sjónvarpssal um stjórn-
málaviöhorfiö viö lok sum-
arþingsins. Þátttakendur
veröa talsmenn allra þing-
flokkanna. Umræöum stýrir
Svala Thorlacius.
21.25 Kapp meö forsjá. Bresk-
ur sakamálamyndaflokkur.
Þýöandi Kristmann Eiðs-
son.
22.15 tþróttir. Meðal efnis I
þættinum verður mynd frá
leik Vals og Vikings I bikar-
keppni Knattspyrnusam-
bandsins. Umsjónarmaður
Ómar Ragnarsson.
23.10 Dagskrárlok