Tíminn - 03.11.1974, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Sunnudagur. 3. nóvember 1974.
Umhverfisnefnd
Vísindi og rannsóknir stuðla
mjög aö þróuninni i Úral. í
Úraldeild sovézku visindaaka-
demiunnar eru starfandi yfir 2000
vísindamenn. 1 öllu Úral eru
227 visindastofnanir meö sam-
tals 30 þúsund manna starfsliði.
Um það bil 40 háskólar og aðrar
æörimenntastofnanirveita fólki
menntun á fjölmörgum sérsvið-
um visindanna. Hvarvetna i
Úral gnæfa bræðsluofnar og
verksmiðjureykháfar með
skóga og fjöll i baksýn. And-
rúmsloftið er þó enn hreint, svo
er fyrir að þakka framlagi vis-
indamanna og ibúanna sjálfra.
öll iönfyrirtæki eru búin öflug-
um hreinsitækjum. íbúar
héraðsins geta enn glaðst yfir
fögru landslagi og kristaltæru
vatni I fljótum og vötnum.
ekki mynd.
Bursta skal
tennurnar á
réttan hdtt
Aðein 10% allra ibúa á Vestur-
löndum hafa sæmilega heil-
brigðar tennur, að þvi er segir i
skýrslum frá heilbrigðismála-
stofnun Sameinuðu þjóðanna.
Þetta er enn alvarlegra heldur
en þessar tölur gefa tilefni til að
ætla, sem er nú reyndar nógu
slæmt, vegna þess að ibúar
Vesturlanda eru eða eiga að
vera þeir menntuðustu og bezt
upplýstu i heiminum. Spyrja þá
margir, hvernig háttað sé tann-
heilsu annarra jarðarbúa. Þau
90%, sem ekki voru nefnd hér á
undan, eru með miklar tann-
skemmdir og hafa orðið að láta
draga úr sér tennur að ein-
hverju ráði. Ekkert nema gott
eftirlitmeð tönnum getur breytt
þessari staðreynd, en það er
ekki nægilegt að fylgjast vel
með tönnunum og bursta þær,
þvi það er ekki sama hvernig
tennurnar eru burstaðar. Fyrst
og fremst verður tannburstinn
að vera góður. Hann má hvorki
skemma glerjung tannanna né
tannholdið i kringum þær. Svo
verður að bursta tennurn-
ar niður á við, og upp en ekki
þvert á þær. Börn I leikskólum i
Þýzkalandi fá kennslu i þvi,
hvernig á að bursta tennurnar,
en það eru ekki allir, sem hafa
fengið kennslu svo snemma, né
heldur siðar i lifinu. Þess vegna
hefur nú verið tekin upp sú regla
i æðri skólum i Þýzkalandi, að
kenna nemendum að bursta
tennur sinar, og er þessi mynd
einmitt frá einum slikumskóla.
Hér eru það snyrtisérfræðingar,
sem æfa sig i að bursta tennurn-
ar.
Hraðskreiðasta
mótorhjól
í heimi
Nú hafa borizt góðar fréttir fyr-
ir mótorhjólaáhugamenn.
Akveðið hefur verið að halda á-
fram framleiðslu á hraðskreið-
asta og aflmesta mótorhjóli i
heimi TTS-E frá Miinchen.
Nokkrar lagfæringar hafa átt
sér stað á hjólinu, en þrátt fyrir
það hefur framleiðendunum,
sem eru i Altenstadt I nánd við
Frankfurt, tekizt að halda verð-
inu niðri, og er þess meira að
segja að vænta, að verðið kunni
að lækka nokkuð. Hjólið er með
silfurgljáandi húð, sterkum
ljósum, og kraftmikilli flautu.
Nú geta þeir, sem áhuga hafa á
mótorhjólum dáðst að þessu
meistaraverki hér á myndinni,
og borið það saman við það, sem
þeir sjálfir eiga.
sfeWKam
„Viltu fá að vita um álit unga
fólksins I dag.”
V
Hvað er þelta, á að taka botn-
langann. Mér sýnist réttara að
hafa það krufningu.
DENNI
DÆMALAUSI
Jú, mig langar f súpu. Þú
minntist ekkert á að það væri
aspas i henni.