Tíminn - 17.12.1974, Qupperneq 10
10
TÍMINN
Þriðjudagur 17. desember 1974.
2. umræða um fjárlagafrumvarpið 1975 fór fram í gær:
800 milljón kr. hækkun
á gjaldaliðum frá 1. umræðu
I gær fór fram 2. um-
ræða um fjárlagafrum-
varpið fyrir 1975. Það kom
fram i ræðu Jóns Árnason-
ar, formanns f járveitinga-
nefndar, að verði
breytingatillögur þær, sem
nef ndin, leggur til að gerð-
ar verði milli 1. og 2.
umræðu, samþykktar,
hækki gjaldaliður fjár-
lagaf rumvarpsins um
rúmar 800 millj. króna.
Það kom ennfremur fram i
ræöu Jóns Arnasonar (S) að enn-
þá á eftir að fjalla um nokkra
málaflokka, sem heyra undir
Iðnaðarráðuneytið, svo sem Raf-
magnsveitur ríkisins. Ennfrem-
ur orkumál, en þar á meðal er
Kröfluvirkjun og væntanleg
virkjun Bessastaðaár i Fljótsdal,
Sjóefnaverksmiðjan á Reykja-
nesi og fleira. Þá á nefndin eftir
að fjalla um málaflokka eins og
Almannatryggingar, en þar verð-
ur veruleg hækkun frá þvi, sem
nú er i frumvarpinu, að sögn Jóns
Arnasonar, bæði hvað varðar
sjúkratryggingar og lifeyris-
tryggingar. Þá á enn fremur eftir
að endurskoða tekjur vegasjóðs
og málefni Pósts og sima.
Gcir Gunnarsson (Ab)sagði, að
þeir liðir, sem fjárveitinganefnd
á eftir að kanna, myndu gera það
að verkum, að gjaldaliöir fjár-
lagafrumvarps-
ins myndu
hækka um aðr-
ar 800 milljónir
k r ó n a . I
nefndaráliti
minni hluta
fjárhagsnefnd-
ar segir, að með
þessu fjárlaga-
frumvarpi sé gert ráð fyrir þvi,
að skattheimta rikisins aukist á
árinu 1975 um rúmlega 16 mill-
jarða króna frá fjárlögum þessa
árs. Þannig muni skattheimta
rikissjóðs hækka um 52-54 þúsund
á hvert mannsbarn i landinu. Þá
segir i nefndaráliti minnihluta
fjárhagsnefndar, að hækkun f jár-
laga milli áranna 1974 og 1975
nemi 17,5 til 18.0 milljörðum en
það sé 1 milljarði króna hærri
upphæð en heildarniðurstöðutölur
fjárlaga fyrir 1972 hafi numið.
Sem fyrr segir, gerði Jón Arna-
son grein fyrir breytingartillög-
um fjárhagsnefndar frá 1. um-
ræðu. Sagði hann, að ekki hefði
náðst sam-
komulag innan
nefndarinnar
um afgreiðslu
fjárlaga. Hins
vegar hefðu
nefndarmenn
orðið sammála
um þær
breytingartil-
lögur, sem fram koma við 2. um-
ræðu fjárlagafrumvarpsins. Það
kom fram I ræðu hans, að sam-
kvæmt siðustu útreikningum
Þjóðhagsstofnunarinnar munu
atvinnutekjur á mann 1974 verða
nokkuð hærri en gert hafði verið
ráð fyrir áður, en 50% i stað 45%.
Þau Ragnheiður Svcinbjörns-
dóttir (F), Sverrir Bergmann (F)
og Helgi Seljan (Ab) flytja
breytingartillögur við 2. umræðu.
Ragnheiður gerir það að tillögu
sinni, að nýr liður bætist i frum-
varpið, fjárveiting að upphæð kr.
1 millj. til Sjóminjafélags Islands
vegna björgunar og varðveizlu
gamalla báta og annarra sjó-
minja fyrir væntanlegt Sjóminja-
safn Islands. Tillaga Sverris er
um hækkun vegna sjúkrahúsa-
mála i Reykjavik og fjárveitingu
til hönnunar B-álmu- Borgar-
sjúkrahússins. Tillögur Helga
Seljan eru um hækkun ó styrk til
islenzkra urigtemplara og um
fjárveitingu til Styrktarfélags
vangefinna á-Austurlandi.
Hér á eftir verður gerð grein
fyrir breytingartillögum þeim,
sem fjárveitinganefnd leggur til.
Allar upphæðir, sem nefndar eru
hér á eftir, eru i þús. króna:
Menntamálaráðuneyti
„Aðalskrifstofa: Lagt er til, að
liðurinn endurskoðun námsefnis
lækkium 3000 þús., en tekin verði
upp fjárveiting til námsskrár-
gerðar í verkfræðslu samtals 6000
þús. kr. undir fyrirsögn iðn-
fræðsluráðs sbr. siðar.
Tekinn er upp nýr liður, 1000
þús. kr. vegna námskeiða fyrir
barnakennara, sem ekki hafa full
réttindi.
Háskóli Islands: Lagt er til, að
launaliður Orðabókar háskólans
hækki um 555 þús. kr. og er það til
ráðningar sérfræðings i stöðu,
sem hefur ekki verið skipuð um
skeið.
Menntaskóli á Austurlandi:
Gjaldfærður stofnkostnaður
hækki um 15000 þús. kr. — Launa-
liður almennra menntaskóla
hækki um 1500 þús. kr. ætlað til
greiöslu launa i leyfum kennara,
sem eru i orlofi við samningu
kennslubóka. — Viðhaldsliður
menntaskóla hækkar um 5000
þús. kr.
Stýrimannaskólinn: Gagnfræð-
ur stofnkostnaður hækki um 3000
þús. kr. vegna kaupa á ratsjár-
tækjum.
Iðnfræðsluráð: Launaliður
hækkar um 4000 þús. kr. og önnur
rekstrargjöld um 2000 þús. kr.
Báðar fjárhæðirnar eru veittar til
þess að hefja námsskrárgerð i
verkfræðslu i samráði við
menntamálaráðuneytið. Ætlast
er til, að námsskrá iðnfræðslu sé
endurskoðuð og hún samræmd
námsskrá framhaldsskólastigs-
ins. — Önnur rekstrargjöld Iðn-
| skólans i Reykjavik hækka um
I 328 þús. og gjaldfærður stofn-
kostnaður iðnskóla i landinu um
4000 þúr. kr.
Fiskvinnsluskólinn: Lagt er til
að gjaldfærður stofnkostnaður
hækki um 3000 þús. kr.
Verzlunarskólar: Liðurinn til
Verzlunarskóla Islands hækki um
11400 þús. til Samvinnuskóla ís-
lands um 1600 þús. og enn fremur
til Bréfaskóla SÍS og ASl um 240
þús. kr.
Héraðsskólar: Gjaldfærður
stofnkostnaður hækki um 27000
þús. kr. '
Skálholtsskóli: Áfjárl. 1974 var
styrkur til skólans 6000 þús kr., en
i frv. er ekki gert ráð fyrir styrk
til skólans. Lagt er til, að tekinn
verði upp nýr liður: Styrkur til
Skálholtsskóla 7000 þús. kr.
Grunnskólar: Gjaldfærður
stofnkostnaður hækki um 218884
þús. kr.
Styrkur til útgáfustarfa hækki
um 150 þús. kr. sem er hækkun á
framlagi til Hins. isl. bök-
menntafélags.
Styrkur til Myndlistarskólans i
Reykjavik hækki um 90 þús. kr.
Lagt er til, að framlög til
jöfnunar námskostnaði hækki um
10000 þús. kr.
Laun i Landsbókasafni hækki
um 280 þús. vegna ráðningar
manns I hálft starf til vörzlu i
■ lestrarsal.
Lagt er til að styrkur til
byggðasafna hækki um 500 þús.
Listasafn tslands: Fjárveiting
hækki um 300 þús. kr. vegna við-
gerða á málverkum Jóns Stefáns-
sonar.
Styrkur til Visindasjóðs hækki
um 2000 þús. kr.
Lagt er til, að styrkur til Leik-
félags Reykjavikur hækki um
1200 þús., til Bandalags leikfélaga
um 200 þús., styrkir til lúðra-
sveita um 470 þús. og leiklistar-
starfsemi um 2000 þús.kr þar af
1000 þús til Leikfélags Akureyr-
ar. Styrkir til leiklistarskóla
hækki um 800 þús. Styrkur til Rit-
höfundasambands tslands hækki
um 50 þús. kr.
Lagt er til að taka upp eftirfar-
andi nýjá liði: Söngskólinn i
Reykjavik 200 þús. Tónlistarskól-
inn i Arnessýslu vegna endurbóta
á húsnæði 100 þús. Tónlistarskól-
inn i Garðahreppi 500 þús. og Tón-
listarskólinn i Reykjavik og
Barnamúsikskólinn, byggingar-
styrkur 3000 þús.
Lagt er til, að framlag til jökla-
rannsókna og mælinga hækki um
50 þús. til Norræna félagsins, um
100 þús. og Norræna vatnsfræði-
félagið fái 100 þús. kr. styrk, sem
er nýr liður til undirbúnings ráð-
stefnu norrænna vatnafræðinga á
íslandi árið 1976.
Framlög til iþróttamannvirkja
hækki um 13000 þús. kr.
Lagt er til, að starfsstyrkur til
Ungmennafélags Islands hækki
um 800 þús. kr. og tekinn upp nýr
liður, starfsstyrkur til KFUM og
KFUK 500 þús. kr. Framlag til
íþróttasambands íslands hækki
um 3200 þús. kr. Tekinn verði upp
nýr liður: Til íþróttafélags fatl-
aðra 250 þús. kr.
Lagt er til að styrkur til Lög-
bergs—Heimskringlu hækki um
108 þús. kr. Tekinn verði upp nýr
liður: Náttúrugripasafnið i
Borgarnesi 100 þús. Styrkur til
Skáksambands íslands hækki um
350 þús. til Bandalags isl. skáta
hjálparsveita hækki um 600 þús.
til Dýraverndunarfélags Islands
um 50 þús. kr.
Lagt er til, að framlag til
Kvenfélagasambands Islands
hækki um 800 þús. kr.
Styrkur til Zontaklúbbs Akur-
eyrar vegna Nonnahúss hækki
um 25 þús kr., Landakotsskóla
um 500 þús. Hliðardalsskóla um
600 þús, til sumarnámskeiða i
Leirárskóla um 400 þús. og til Is-
lenzka dýrasafnsins um 100 þús.
kr.
Teknir verði upp nýir liðir: Til
Bridgesambands tslands 100 þús.
til varðveizlu gamla verzlunar-
hússins á Flateyri 100 þús. og
barnaheimilis i Kumbarvogi,
byggingarstyrkur, 125 þús. kr.”
Landbúnaöarráðuneyti
Lagt er til, að launaliður
Búnaðarfélags Islands hækki um
600 þús. kr. vegna tölvuritara i
nautgriparækt.
Við rannsóknastofnun land-
búnaðarins verði hækkanir til
eftirgreindra viðfangsefna: 500
þús. i búfjárræktardeild til upp-
setningar á tækjum, sem gefin
eru af Alþjóðakjarnorkumála-
stofnuninni i tengslum við FAO,
5000 þús. i bútæknideild til
byggingar ibúðarhúsnæðis á
Hvanneyri, 790 þús. vegna
ráðningar starfsmanns við
gróðurrannsóknir 3000 þúr. til
tilraunastöðvarinnar á Akureyri,
vegna flutnings stöðvarinnar að
Möðruvöllum, og nýr liöur til
ylræktarverkefnis i Hverageröi i
tengslum við FAO 1000 þús. kr.
Framlag til Landgræðslu rikis-
ins, gjaldfærður stofnkostnaður
hækki um 6000 þúr. kr. vegna
byggingar starfsmannahúss.
Tekinn veröi upp nýr liður:
Fóður- og fræframleiðsla i
Gunnarsholti, yfirfært til B-hluta,
6000 þús. kr. vegna endurnýjunar
á vélum grænfóðurverksmiðj
unnar.
Framlag til Fiskræktarsjóðs
hækkar um 1000 þús. kr.
Lagt er til, að jarðræktarfram-
lög hækki um 7192 þús. kr. sem
renni til þess að auka greiðslu
framlags á framkvæmdaári um
5000 þús, en að ööru leyti vegna
nýrra héraðsráðunauta. Framlag
til Veðdeildar Búnaðarbankans
hækki um 3000 þús. kr.
Lagt er til, að framlag til
Landssambands hestamanna-
félaga til leiðbeininga um hesta-
mennsku hækki um 75 þús. fram-
lög til Efnarannsóknastofu Norð-
urlands hækki um 150 þús. og til
Tilraunastöðvar Búnaðarsam-
bands Suðurlands um 1200 þús.
kr. vegna byggingarfram-
kvæmda.
Framlög til Garðyrkjuskólans
á Reykjum hækki sem hér grein-
ir: Laun nýs kennara 843 þús.,
viðhald um 500 þús. og til skipu-
lagsgerðar, þ.e. gjaldfærður
stofnkostnaður um 500 þús.
Sjévarútvegsráðuneyti
Lagt er til, að liðurinn Fiski-
félag tslands, skýrsludeild hækki
úr 7042 þús. kr. i 7642 þús. kr.
Hækkunin stafar af óhjákvæmi-
legri hækkun þóknunar til
trúnaðarmanna Fiskifélagsins i
verstöðvum landsins. Hefur
þóknum þessi veriö óhæfilega lág
undanfarið.
Á liðnum Hafrannsóknastofnun
er lagt til áð gerðar verði fjórar
breytingar:
a. Við 12 Bjarni Sæmundsson r/s
RE 130, að fyrir 70488 þús. kr.
komi 76488 þús. kr.
b. Við 15 Dröfn r/s RE 135 , að
fyrir 20250 þús. kr. komi 22250
þús. kr.
c. Við 16, að fyrir orðalagið
„titibú 3481” komi: Ctibú á
Húsavik 4431 þús. kr. Útibú
Hafrannsóknastofnunarinnar á
Húsavik er tekið til starfa og
gengur fjárveiting öll til rekstr-
ar þess.
d. Þá er lagt til að samþykktur
verði nýr liður: Otibú á Höfn i
Hornafirði 1500 þús. kr. Verður
fé þessu varið til þess að undir-
búa stofnun útibús Hafrann-
sóknastofnunar á Höfn.
Lagt er til um Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins, útibú, að fyrir
3168 þús. kr. komi 4118 þús. kr. en
hækkunin varöar launagreiðslu
til starfsmanns útibús
Rannsóknastofnunar fiskiðnaöar-
ins á Isafirði.
Viö liðinn Ýmislegt á sviði
sjávarútvegs er lögð til sú breyt-
ing að niður falli liöurinn 05 25000
þús. kr. vegna rekstarhalla
togara 1973, en liðurinn 04 vegna
rekstrarhalía togara 1974 hækki
úr 25000 þús kr. i 45000 þús.
Dóms- og
kirkjumálaráðuneyti
| Löggæzlukostnaður við sýslu-
mannsembættið á Blönduósi
hækkar um 900 þús. kr. vegna
ráðningar eins lögrégluþjóns á
Skagaströnd.
Kostnaður við sýslumanns-
embættið á Hvolsvelli hækkar
þannig: Yfirstjórnum 600 þús. kr.
vegna aukinnar aðstoðar á skrif-
stofu og löggæzla um 900 þús. kr.
vegna ráðningar lögregluþjóns.
Við embætti sýslumannsins og
bæjarfógetans i Keflavik eru
ráðnir 2 lögregluþjónar i Keflavik
og hækkar löggæzlukostnaður um
1800 þús. kr. og einn lögreglu-
þjónn i Grindavik 900 þús. kr.
Laun eins kvenfangavarðar,
sem ráðinn er við fangelsið I Siðu-
múla nema 700 þús. kr.
Gert er ráð fyrir að kaupa hús-
næði i Grindavik fyrir fangelsi og
hækkar liðurinn til byggingar
rikisfangelsa og vinnuhæla um
4000 þús. kr. af þeim sökum.
Til skrifstofuaðstoðar við
embætti biskups hækkar liðurinn
yfirstjórn um 300 þús. kr.
Kostnaður við Kirkjuþing
hækkar um 2000 þús. kr.
Liðurinn Prestar og prófastar
hækkar um 1050 þús. kr. vegna
nýs prestsembættis i Breiðholts-
hverfi i Reykjavik.
Til Skálholtsstaðar er framlag
hækkað um 800 þús. kr. en það var
nauðsynlegt til viðhalds á kirkju
staðarins, einkum gluggum, þaki
o.fl.
Þá er framlag til Hallgrims-
kirkju i Reykjavik vegna kaupa á
stólum 635 þús. kr. og er það nýr
liöur.
Einnig eru vegna 300. ártiðar
Hallgrims Péturssonar veittar til
Hallgrimskirkju i Saurbæ 1000
þús. kr.
Framlag til Kirkjubygginga-
sjóðs hækkar um 3000 þús. kr.
Félags málaráðuneyti
Lagt er til, að skipulagsstjóra-
embættið fái hækkun á launaliðn-
um sem nemur 2000 þús. kr. önn-
ur rekstargjöld hækki um 1000
þús. kr. og liðurinn til sveitar-
félaga um 6000 þús. kr. Er þessi
hækkun samkvæmt nýsettum lög-
um.
Vatnsveitur skv. lögum hækka
um 4500 þús. kr. vegna aukins
framlags til vatnsveitu Vest-
mannaeyja.
Framlag til Landssambands
verzlunarmanna hækkar um 50
þús. kr.
Félagið Heyrnarhjálp fær
hækkað framlag um 500 þús kr. og
Foreldra- og styrktarfélag
heyrnardaufra 100 þús. kr.
Stéttarfélag félagsráðgjafa fær
250 þús. kr. styrk til ráðstefnu-
halds.
Heilbrigðis- og
try ggingamá laráðuney ti
Lagt er til, að stofnkostnaðar-
framlag til Landspitalans hækki
um 35000 þús. kr. i 187000 þús. kr.
Liðurinn verður sundurliðaður i
B-hluta.
Lagt er til, að i Fæðingardeild
Landspitalans verði veittar 60000
þús. kr. i byggingarframkvæmdir
og verður liðurinn 80000 þús. kr.
Nýr liður: Vifilsstaðaspitali.
Lagt er til, að veittar verði til
byggingar dagvistunarheimilis
við spitalann 10000 þús. kr.
Lagt er til, að framlag til
byggingarframkvæmda á Krist-
neshæli hækki um 4000 þús. kr. i
10000 þús. kr.
Lagt er til, að Læknishéraða-
sjóður verði hækkaður um 2500
þús. kr. i 7500 þús. kr. Er það
vegna tækjakaupa.
Lagt er til, að byggingarstyrk-
ur til St. Jósepsspitala i Hafnar-
firði hækki um 1500 þús. kr. i
5000 . þús kr.
Liðurinn Bygging sjúkrahúsa,
sjúkraskýla, læknamiðstöðva,
elliheimila og læknisbústaða,
annarra en rikissjúkrahúsa
hækkar um 168.200 þús. kr. i
599.400 þús. kr. Þar af eru til elli-
heimila 38300 þús. kr.
Lagt er til, að framlag til
héraðslækna og heilsugæzlu-
stöðva hækki um 2270 þús. kr. i
6000 þús. kr. ætlað til tækjakaupa
i heilsugæzlustöðvum.
Liðurinn Matvælarannsóknir
hækki um 512 þús. kr. 1 5500 þús.
kr.
Liðurinn Narftskeið sjúkraliða
hækkar um 1400 þús. kr. i 3000
þús. kr.
Lagt er til, að tekinn verði inn
nýr liður, vegna ráðstefnuhalds
háls-, nef- og eyrnalækna á árinu
1975 300 þús. kr.
Framlag til sjúkraflugs er
áætlað I frumvarpi til fjárlaga
2000 þús. kr. en lagt er til, að
fjárhæðin hækki um 500 þús. kr. i
2500 þús. kr.
Lagt er til, að breyting verði
gerð á framlagi til Gæzluvistar-
sjóðs, ^annig að til drykkju-
mannahælis á Vifilsstöðum verði
varið 20000 þús. kr. og til Vist-
heimilisins i Viðinesi 8000 þús. kr.
Óbreytt stendur ráðstöfun fjár
til Bláa bandsins 1200 þús kr. og
Verndar 500 þús. kr.
Samgönguráðuneyti
Lagt er til að liðurinn Hafnar-
mannvirki og lendingarbætur
hækki úr 533 þús. kr. i 584610 þús.
kr. Liðurinn Ferjubryggjur
hækkar úr 7000 þús. kr. i 10000
þús. kr. Liðurinn Hafnarbótasjóð-
ur hækkar úr 64000 þús. kr. I 70192
þús. kr. sem leiöir eðlilega af
hækkun framlaga til hafnar-
mannvirkja og lendingarbóta.
Liðurinn Sjóvarnargarðar
hækkar úr 2700 þús. kr. I 3500 þús.
kr.
Um liðinn Sjóslysanefnd er lagt
til að laun hækki úr 954 þús. kr. i
1254 þús. kr.
Við liðinn Flugmálastjórn er
lögð til sú breyting, að framlög úr
rikissjóði hækki úr 466125 þús. kr i
485725 þús. kr. Hækkun þessi
skiptist þannig, að 18000 þús. kr.
ganga til fjárfestingar (flugvalla-
gerðar), en 1600 þús. kr. til snjó-
moksturs á flugvöllum. Alls verð-
ur varið til snjómoksturs á flug-
völlum 5000 þús. kr. og er gerð til-
laga um, að sú upphæð verði á
sérstökum fjárlagalið, sem er
nýmæli. 1 þvi sambandi leggur
nefndin til, að fjárveiting til
Reykjavikurflugvallar lækki úr
50874 þús. kr. i 49874 þús. kr. og til
annarra flugvalla úr 41643 þús.
kr. i 39243 þús. kr. Fjárfestingar
flugmálastjórnar eru áætlaðar
184000 þús. kr. i frv., en samkv.
tillögum nefndarinnar nemur
fjárfestingarupphæðin 202000 þús.
kr.
A liðnum Veðurstofan er lögð til
sú breyting, að gjaldfærður stofn-
kostnaður verði hækkaður úr 6120
þús. kr. i 7120 þús. kr. Er hækkun-
in óhjákvæmileg vegna
verðhækkunar á tækjum til
Veðurstofunnar vegna gengis-
lækkunar.
’ Þá gerir nefndin tillögu um, að
framlág til flugbjörgunarsveita
hækki úr 150 þús. kr. i 500 þús. kr.
iðnaðarráðuneyti
Eins og fyrr er getið biða mörg
erindi, er varða þetta ráðuneyti,
frekari athugunar nefndarinnar,
og er ráðgert að tillögur liggi
fyrir við 3. umr. málsins. Skal.
þar m.a. minnt á málefni Raf-
magnsveitna rikisins, virkjanir
við Kröflu og Bessastaðaá i
Fljótsdal, sjóefnaverksmiðju á
Reykjanesi og starfsfé iðnþróun-
arnefndar.
Nefndin leggur til, að framlag
til útflutningsmiðstöðvar iðnað-
arins hækki úr 9000 þús. kr. i 10000
þús. kr.”