Fréttablaðið - 05.03.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
LAUGARDAGUR
KA Í BREIÐHOLTIÐ Tveir leikir verða
í DHL-deild karla í dag. Klukkan 14.15
tekur ÍR á móti KA og klukkan 15 sækja
Haukar lið ÍBV heim.
DAGURINN Í DAG
5. mars 2005 – 62. tölublað – 5. árgangur
SEGIST IÐRAST Hákon Eydal sagðist
iðrast þess að hafa myrt Sri Rahmawati.
Saksóknari sagði Hákon hafa sýnt litla iðr-
un og krefst hámarksrefsingar. Sjá síðu 10
VATNSORKUVER MENGA Ný rann-
sókn bendir til að úr uppistöðulónum
Vatnsorkuvera geti streymt meira magn
gróðurhúsalofttegunda en kolaorkuver
framleiða. Sjá síðu 2
IDOL VINSÆLAST Idol-stjörnuleit er vin-
sælasta sjónvarpsefni landsins, samkvæmt
nýrri fjölmiðlakönnun IMG Gallup. Fréttablað-
ið er mest lesna dagblaðið. Sjá síðu 4
BARIST GEGN FUGLAFLENSU Hafin
er vinna tveggja ráðuneytisstjóra til að verja
Ísland gegn fuglaflensufaraldri. Nægt bólu-
efni er grundvallaratriðið í baráttunni gegn
vágestinum. sjá síðu 6
Kvikmyndir 46
Tónlist 44
Leikhús 45
Myndlist 45
Íþróttir 36
Sjónvarp 46
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Páll Dagbjartur Sigurðsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Jeppanum
fylgir frelsi
● bílar
67%
52%
Dagblaðalestur
á laugardögum*
*Landið allt skv. fjölmiðlakönnun Gallups, feb. 2005.
VEÐRIÐ Í DAG
SÚLD EÐA RIGNING VESTAN tIL
Nokkuð bjart á austurhelmingi landsins.
Hiti 5-10 stig á láglendi. Sjá síðu 4
Björn Hlynur Haraldsson
leikari loks í viðtali: Mjólk og smákökur
eða vodka og klám
SÍÐUR 34 & 35
▲
Mamma er orðin
ýmsu vön
SÍÐA 28
▲
Mál Michael Jackson:
● sigur jakkalakka yfir gúanórokkaranum
Valur Gunnarsson:
▲
SÍÐA 54
Jarðaði tuttugu
Bubbaplötur
GÆLUDÝR Ung kona á Álftanesi
heldur óvenjuleg gæludýr, fimm
fullorðnar rottur. Tvær þeirra
felldu hugi saman og í fyllingu
tímans fæddust þrettán ungar.
Þeir eru nýbúnir að opna augun
og rétt svo farnir að taka sín
fyrstu skref.
Kristbjörg Sara Thorarensen,
sem á rotturnar, flutti þær inn
frá Danmörku í ágúst. Þær eru
úr góðri ræktun, en víða um lönd
hafa rottur lengi verið ræktaðar
sem gæludýr og mikið vandað til
þess. Gælurotturnar hafa þróast
út frá þeim villtu í tímans rás og
stofnarnir eru nú orðnir gjöró-
líkir.
„Það er búið að rækta ýmsar
tilhneigingar villtra dýra úr
þeim svo sem grimmdina,“ sagði
Kristbjörg Sara. „Það er margt
svipað með þeim og hundum og
annað sem svipar til katta. Þær
þurfa til dæmis að kynnast fólki
og samþykkja það áður en hægt
er að taka þær upp. Þá þefa þær
af viðkomandi og viðurkenna
hann. Ég er með þær allar á
gólfinu hjá mér núna. Ef ég kalla
í þær þá koma þær þjótandi.
Þær eru miklar félagsverur,
skemmtilegar og forvitnar.“
Kristbjörg Sara sagði að það
þurfi að gefa rottunum góðan
tíma á degi hverjum.
„Þær eru svo rosalega klárar,
að þær þurfa talsverða örvun.
Þess vegna er gott að hafa tvær
saman, af sama kyni auðvitað,
svo þær fái félagsskap hvor af
annarri. Ég hleypi þeim út í
klukkutíma, einn og hálfan á
dag. Svo eru þær hlaupandi
innan á mér og leika sér þegar
ég er að horfa á sjónvarp.“
Rottukallarnir geta orðið um
600 grömm að þyngd en kerling-
arnar nær helmingi léttari. Rott-
urnar hafa skýra goggunarröð í
sínum hópi. Kristbjörg Sara
sagði það greinilegt hvaða rotta
væri „svölust“ og hefði foryst-
una fyrir hópnum. Þá væru rott-
urnar mjög ólíkar í sér. Hún
sagði mikla eftirspurn eftir
rottuungum, sem hún kvaðst
selja á 2-3 þúsund krónur stykk-
ið. Hún hefði getað selt mun
fleiri en þessa þrettán.
jss@frettabladid.is
Rottur seldust strax
Nú tegund gæludýra, rottur, er að nema land hér. Þrettán rottuungar í ræktunarbúi á Álftanesi
seldust strax eftir fæðingu. Ræktandinn annar ekki eftirspurn. Gælurotturnar á Álftanesi eru
innfluttar frá Danmörku, en rottur eru ræktaðar víða um lönd.
VATNSMÝRI Ríkisstjórnin mun fjár-
magna lagningu Hlíðarfótarvegar
í Vatnsmýri og einni flugbraut
Reykjavíkurflugvallar verður lok-
að strax á þessu ári. Þetta kemur
fram á minnisblaði samgönguráð-
herra og borgarstjóra um málefni
flugvallarins og fyrirhugaðrar
samgöngumiðstöðvar sem undir-
ritað var fyrir þremur vikum.
Á minnisblaðinu koma fram
forsendur samkomulags ríkis og
borgar. Þar er bókað að með bygg-
ingu miðstöðvarinnar sé ekki
tekin afstaða til framtíðar flug-
vallarins.
Þar er auk þess gert ráð fyrir
að NA/SV flugbrautinni á Reykja-
víkurflugvelli verði lokað á þessu
ári og að ríkið fjármagni nýjan
Hlíðarfótarveg sem leggja verður
vegna miðstöðvarinnar.
Að undanförnu hefur starfs-
hópur unnið að tillögum um sam-
göngumiðstöðina og var skýrsla
hans kynnt í ríkisstjórninni í gær.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri segir að samkom-
lagið þýði að loks hafi verið
höggvið á hnútinn á milli ríkis og
borgar í flugvallarmálinu. „Það er
mín skoðun að flugvöllurinn verði
ekki þarna til eilífðarnóns og ég
vonast til að með samkomulaginu
hafi hopun vallarins verið flýtt og
hann fari í áföngum.“ - shg
Samkomulag ríkis og borgar:
Reykjavíkurflugvöllur fari í áföngum
RÆKTANDINN Kristbjörg Sara Thoraren-
sen með Iliu mömmu undir vanganum.
Kristbjörg Sara segir rotturnar mjög klárar
og þurfa talsverða örvun.
ROTTUMAMMA Rottan Chirie's Ilia,
ásamt ungunum sínum þrettán.
TILÞRIF Mamman þreif í ungana og flutti
þá til ef þeir voru eitthvað að óþekktast.