Fréttablaðið - 05.03.2005, Síða 8
8 5. mars 2005 LAUGARDAGUR
Húsmóðir á Egilsstöðum spennt
Keppni í Formúlu eitt
kappakstrinum hefst um
helgina. Freyja Gunnars-
dóttir húsmóðir á Egils-
stöðum er spennt enda
Formúlan hennar líf og
yndi. Eftir keppni er hún
jafnþreytt og ökumenn-
irnir.
„Ég er orðin mjög spennt,“ segir
Freyja Gunnarsdóttir húsmóðir á
Egilsstöðum, sem eins og aðrir
Formúluáhugamenn hefur þurft að
bíða eftir almennilegum kappakstri
síðan í haust þegar keppnistímabil-
inu lauk.
Freyja skrifaði áður fréttir af
Formúlunni inn á vefsíðuna
formula1.is en eftir að hún hætti því
hefur hún ekki fylgst eins vel með
gangi mála yfir vetrartímann. „Ég
hef því verið að lesa mér til að undan-
förnu og kynna mér allar breyting-
arnar sem hafa orðið,“ segir hún.
Freyja heillaðist af kappakstrin-
um þegar Sjónvarpið hóf að sýna
frá keppnunum fyrir nokkrum
árum. „Það er svo margt sem er
heillandi við þetta. Það er um
margt að hugsa, tæknina, hraðann
og allt í kringum þetta.“
Hún byrjaði að fylgjast ein með
en dró svo bónda sinn í þetta með
sér. „Börnin skildu ekkert hvað ég
var að gera og fólki fannst svolítið
skrítið að miðaldra húsmóðir á
Egilsstöðum væri á kafi í þessu og
að skrifa fréttir inn á formúlu-
vefinn,“ segir hún og hlær.
Freyja hefur í fjórgang farið
utan til að berja dýrðina berum
augum og segir ferðirnar ógleym-
anlegar. Hún er ekki einlægur að-
dáandi eins ákveðins ökumanns en
nefnir Fernando Alonso hjá
Renault þegar gengið er á hana.
Sjálf á hún þó ekki Renault heldur
Nissan og virðir umferðarreglurn-
ar, sérstaklega ef hún er með börn-
in í bílnum. „Ég hef reyndar sleppt
mér á góðum malarvegi úti í sveit,“
segir hún en vill ekki gefa upp á
hvaða hraða hún ók.
Hún hefur hins vegar setið í rall-
bíl með Steingrími Ingasyni rall-
kappa og segir það hafa verið ólýs-
anlegt.
Um keppni helgarinnar vill
Freyja sem minnst spá en hún segir
stemninguna alltaf sérstaka í kring-
um fyrsta mótið. „Fyrsta keppnin er
alltaf æðisleg, sama hvernig hún
fer. Og svo er alltaf skrítið þegar
keppnin er haldin í mjög fjarlægu
landi eins og í Ástralíu. Þá vakir
maður eftir æfingunum og tímatök-
unum og er að fylgjast með í tölv-
unni og svona. Ég verð eiginlega
jafn þreytt og ökumennirnir eftir
svona keppni.“
bjorn@frettabladid.is
72.200 FÓRU Í HVALASKOÐUNAR-
FERÐIR 2003
Heimild: Samtök ferðaþjónustunnar
SVONA ERUM VIÐ
„Ég er fyrir það fyrsta að reyna að
forðast að fá flensu því ég á að vera
með skífuskank á Dillon um helgina
eins og flestar helgar,“ segir Andrea
Jónsdóttir, útvarpskona og plötu-
snúður, um nýjustu fréttir. Andrea
er að eigin sögn með ótrúlega gott
ónæmiskerfi og þarf ekki að taka
nema eina verkjatöflu á ári. Henni
finnst ekkert leiðinlegt að vinna
langt fram á kvöld um helgar. „Nei,
mér finnst þetta gaman. Það er líka
bara opið til þrjú, en það getur ver-
ið dálítið erfitt þegar maður er að
spila til sex.“ Andrea spilar aðallega
rokk og ról en læðir stundum
Madonnu og Michael Jackson með.
Þá er Andrea á leiðinni til London
og ætlar að sjá Stuðmenn taka lag-
ið í Royal Albert Hall. „Ég ætla með
dótturdóttur minni í apríl. Ég held
ég hafi aldrei skipulagt eitthvað
svona með jafn miklum fyrirvara.“
Tónlistarunnendur komu vel undan
síðasta ári, enda margir tónleikar,
og Andrea telur árið fram undan
ekki síður spennandi. Hún hlakkar
mikið til að sjá Robert Plant en hún
sá hann rokka á tónleikum hér á
landi með Led Zeppelin árið 1970.
„Ég ætla samt ekki að reyna að fá
eitthvað nostalgíukast. Plant þarf
ekki að taka gömul Led Zeppelin-
lög til að skemmta fólki, hann er
svo frábær tónlistarmaður. Þeir sem
kunna ekki að meta Robert Plant
og ætla ekki að sjá hann eru
asnar,“ klykkir hún út kokhraust.
Forðast flensu og fer á Stuðmenn
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ANDREA JÓNSDÓTTIR ÚTVARPSKONA
Á Flughóteli í Keflavík er gó› a›sta›a til fundar- og veisluhalda
auk fless sem hóteli› er mjög gó›ur kostur fyrir flá sem eru í leit
a› afflreyingu og endurnæringu. Veri› velkomin!
Sími: 421 5222
www.icehotels.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
1
5
2
4
7
Nordica • Loftlei›ir • Flughótel • Flú›ir • Rangá • Klaustur • Héra›
52 KM TIL REYKJAVÍKUR
SAUNA OG HEITUR POTTUR
SALIR TIL FUNDAR- OG
VEISLUHALDA
UPPHITU‹ BÍLAGEYMSLA
FYRSTA FLOKKS VEITINGAR
FLUGHÓTEL
fiEGAR HALDA Á GÓ‹AN FUND
ÞJÓÐARSÓMI
Þessi gallharði stuðningsmaður hollenska
landsliðsins í vetraríþróttum fylgdist
spenntur með sínum mönnum keppa í
skautahlaupi í Inzell í Þýskalandi í gær.
Group-væðing íslenskra fyrirtækja
ríður húsum og hvert fyrirtækið á
fætur öðru tekur upp group-ending-
una. Í gær bárust fréttir af að Flug-
leiðir væru að breytast í FL Group
og Skífan er orðin Dagur Group.
Group er enska og þýðir hópur
eða flokkur.
Magni Magnússon, kaupmaður í
versluninni hjá Magna, fylgist vel
með gangi mála og er að velta fyrir
sér að breyta nafni verslunar sinnar
í Hjá Magna Group eða jafnvel
Magnað Group.
„Auðvitað verður maður að
fylgjast með tískunni í þessu eins
og öðru,“ segir Magni en er í raun
ekki mikil alvara. Þvert á móti.
„Mér finnst þetta aulalegt og tel að
menn ættu heldur að reyna að finna
íslensk nöfn sem hljóma vel erlend-
is. Þetta group er næsti bær við
grúppíur, sem er nú ekki sérlega
gott,“ segir hann en grúppíur kall-
ast konur sem laðast að hljómsveit-
um og fylgja þeim eins og skugginn.
„Kannski flugfreyjurnar hjá Flug-
leiðum verði kallaðar grúppíur eftir
breytinguna,“ segir hann og hlær.
Sjálfur nefndi Magni verslun
sína Hjá Magna árið 1979 og tók
Báru bleiku á Hverfisgötunni sér til
fyrirmyndar en hún kallaði kven-
fataverslun sína Hjá Báru. „Þetta er
gott nafn, það er hægt að segja: Þú
færð það hjá Magna og það hljómar
vel.“
Og Magni rifjar upp tvær sögur
af þessu tilefni. „Við Bolli Davíðs-
son í Frímerkjahúsinu vorum að spá
í að opna saman búð sem þá myndi
heita Bolmagn í höfuðið á okkur.
Svo var það hljómsveitin Sjálfsfró-
un sem mátti ekki auglýsa nafnið
sitt í útvarpinu því það þótti ósið-
legt. Þeir leituðu til ráðagóðs manns
sem ráðlagði þeim að nota nafnið
Handrið. Það gekk og þeir fengu að
auglýsa,“ segir Magni, sem ætlar að
hætta verslun og viðskiptum í haust
eftir áratuga höndl með spil, púsl,
frímerki og mynt. - bþs
Bylgja nafnabreytinga gengur yfir íslenskt viðskiptalíf:
Magni að spá í Magnað Group
MAGNI MAGNÚSSON KAUPMAÐUR
„Kannski flugfreyjurnar hjá Flugleiðum
verði kallaðar grúppíur eftir breytinguna.“
FREYJA GUNNARSDÓTTIR
Slappað af eftir spennandi kappakstur á Silverstone-brautinni í Englandi.