Fréttablaðið - 05.03.2005, Side 18
Árangur Reykjavíkurborgar í for-
varnarmálum er nú orðinn útflutn-
ingsvara í evrópsku samstarfsverk-
efni, þar sem leitað er til þeirra sem
taldir eru hafa náð markverðum ár-
angri hér í borg. Þekking og árang-
ur í Reykjavík eru útflutningshæf
verðmæti að mati samstarfsþjóða
okkar. Þetta og margt annað kom
fram á fundi í Ráðhúsinu þar sem
komu saman fulltrúar mennta-,
tómstunda- og velferðarmála ásamt
fræðimönnum til að ræða stöðu
vímuvarna í borginni. Árangur hin
síðari ár er markverður. Inga Dóra
Sigfúsdóttir frá Rannsóknum og
greiningu notaði orðin ,,umtalsverð-
ur sigur“ fyrir Reykjavík þegar hún
fór yfir árangur síðari ára og stöðu
forvarnarmála. Vímuefnaneysla
unglinga í grunnskólum borgarinn-
ar hefur minnkað verulega.
Árangurinn felst í mörgum ólík-
um þáttum. Öflugt foreldrasam-
starf skilar árgangri, sterkt vensla-
net í skólum, vel skipulagðar tóm-
stundir – margt stuðlar að þessum
sigri sem Inga Dóra nefndi. Sjálfum
fannst mér fyrirlestar og upplýs-
ingar sem fram komu á fundinum
benda til ákveðinnar viðhorfsbreyt-
ingar. Áður hétu ,,forvarnir“ eitt-
hvað sem merkti ,,fræðsla og áróð-
ur“ sem áttu að skila því að ungling-
ar létu ekki freistast. Rannsóknir
sýna okkur að í raun þarf að taka á
miklu fleiri þáttum sem saman geta
kallast mannrækt. Hún felur í sér
að unglingum sé gefin hæfni og
geta að taka ábyrgð á eigin lífi.
Við sjáum að árangur í vímu-
vörnum er háður ýmsum þáttum, og
niðurstaða er breytileg eftir hverf-
um borgarinnar. Við teljum að með
nýjum þjónustumiðstöðvum í öllum
hverfum verði enn betur mögulegt
en áður að samþætta og efla for-
varnastarf á ýmsum sviðum og taka
mið af aðstæðum í hverjum borgar-
hluta. Því verða haldnir fundir í
hverfum borgarinnar á næstunni
þar sem farið verður yfir stöðu
mála í hverjum borgarhluta, upp-
lýsingum miðlað og sótt í smiðju
þeirra sem vel þekkja til á vett-
vangi. Hverfisráðin munu standa
fyrir þessum fundum, enda einmitt
hlutverk þeirra að miðla upplýsing-
um og kalla saman fólk þar sem
vænlegt er að þekking og reynsla
muni skila enn betri árangri. Til
mikils er að vinna og óska má þeim
sem unnið hafa að þessum málum
til hamingju, en helst þó unglingum
í borginni sem langflestir sýna vilja
sinn í verki á svo jákvæðan hátt.
Höfundur er formaður mennta-
ráðs Reykjavíkur.
Söngvarinn Bubbi Morthens seldi
sál sína í vikunni. Minna þarf til
að verða „maður vikunnar“ í
Fréttablaðinu!
En hinkrum annars við. Er það
ekki fulllangt gengið að segja að
hann hafi selt sál sína? Lýsir það
ekki svolítið gamaldags hugsun-
arhætti að túlka samning Bubba
og Sjóvár með þessum hætti? Má
ekki allt eins segja að söngvarinn
hafi með miklum klókindinum há-
markað kynningu á tónlist sinni
og þjóðfélagsboðskap?
Allir hafa skoðun á Bubba
Morthens. Hann öðlaðist heims-
frægð á Íslandi fyrir aldar-
fjórðungi með plötunni Ís-
bjarnarblús. Áður hafði
hljómsveit hans Utangarðs-
menn gert garðinn frægan á
hljómleikum og böllum, ekki
síst þar sem róttækir
vinstrimenn komu saman
til að djamma og djúsa.
Dagblaðið Þjóðviljinn
hampaði Bubba mjög á
þessum tíma. Hann var
„reiður ungur maður“,
kynntur sem „farandverka-
maður, galeiðuþræll, frysti-
húsverkari og neðanjarðar-
blúsari“. Á frægum tónleikum í
Laugardalshöllinni haustið 1980,
„Rokkað gegn her“, voru Bubbi
og Utangarðsmenn í sviðsljós-
inu. Sama haust kom út plata
þeirra Geislavirkir, sem popp-
fræðingar telja marka tímamót í
íslenskri rokksögu.
Ekki þóttu öllum textar
Bubba ýkja merkilegir. Jafnvel
einstaka gáfumaður í röðum
vinstri menningarvita efaðist
um að hægt væri að tala um
raunverulega sam-
keppni hans við
Jónas Hallgrímsson
og Matthías Jo-
hannessen. Málið
var tekið til umfjöll-
unar á málþingi í þá-
verandi höfuðvígi ís-
lenskra rauðliða, heim-
spekideild Háskóla Íslands.
Bubbi varði sitt, talaði um
„gúanótexta“ þar sem áherslan
væri á inntakið en ekki formið. Og
hann sigraði. Hann bræddi hjörtu
lærdómsmannanna í deildinni og
boðskapurinn var látinn út ganga
að Bubbi væri nýtt þróunarstig
skáldskapar á Íslandi. Síðan hefur
ríkt þokkaleg sátt um textagerð
söngvarans. En ferill hans hefur
verið skrykkjóttur eins og þjóðin
veit því óregla setti mark sitt á líf
Bubba um árabil. Eftir honum eru
þessi orð höfð: „Þegar ég byrjaði í
bransanum dreymdi mig um að
verða frægur fyrir tónlistina
mína. Alveg frá því ég var polli
komst ekkert annað að. Svo gerð-
ist það að ég
v a r ð
frægur á
einni nóttu og fékk sjokk þegar ég
vaknaði upp við það morguninn
eftir að ég var sami maðurinn og
hafði farið að sofa kvöldið áður.
Þá fór ég að leita: Hvar er þessi
sælutilfinning? En hún var bara
ekki þarna og þá tók ég það til
bragðs að búa hana til.“ Bubba
tókst þó að vinna sig út úr
vímunni og varð í framhaldinu
boðberi heilbrigðs lífernis. Er
ekki að efa að sem slíkur hefur
hann haft góð áhrif á marga ung-
linga sem líta upp til hans.
Bubbi hefur komið víða við.
Hann hafði um skeið mikinn
áhuga á því að stæla líkama sinn.
Hann var vinur lyftingakappans
fræga Jóns Páls Sigmarssonar,
sem er látinn. Bubbi varð annar í
millivigt á íslenska meistara-
mótinu í ólympískum lyfting-
um vorið 1990. Hann er líka
kunnur fyrir áhuga sinn á
hnefaleikum. Grunur leikur
á því að hann boxi í leyni við
Ómar Ragnarsson.
Samningur Bubba og
Sjóvár kveður á um að
fyrirtækið eignist höf-
undarrétt að verkum
hans. Sjóvá tekur
áhættu og veðjar á að
plöturnar hans seljist í
framtíðinni og að hann
eigi eftir að halda
áfram áhugaverðri tón-
listarsköpun meðan hon-
um endist líf og heilsa. Í
staðinn fær söngvarinn ríf-
lega fyrirframgreiðslu. Hann
getur gert upp skuldir sínar
og lifað þokkalegu lífi.
Einhverjir virðast hafa
áhyggjur af því að þetta þýði
að Bubbi muni framvegis
framleiða músík sem peninga-
valdið og borgarastéttin séu
sátt við. Sumir telja að jafnvel
þótt Bubbi ætli sér þetta ekki
muni hann óafvitandi gera
þetta. Þess vegna er talað
um að hann hafi selt
sálu sína. En þeir
eru ekki síður
margir sem trúa
því að Bubbi
Morthens muni
ekki láta þetta
hafa nein áhrif á
sig.
Hann muni jafnvel
verða enn róttækari í tónlist og
texta nú þegar hann þarf ekki að
hafa áhyggjur af því hvort afurð-
irnar seljist eða falli einhverjum í
geð. Hann muni halda áfram að
vinna gull úr gúanóinu sínu og
gefa borgarastéttinni langt nef.
Framtíðin ein sker úr um það
hvað rétt er í þessu efni. ■
5. mars 2005 LAUGARDAGUR
Gull upp úr gúanó
Reykvískir unglingar standa sig vel
Upphafsorð féllu niður í grein
Hannesar G. Sigurðssonar hag-
fræðings „Rangfærslur um
tekjuójöfnuð“ sem birtist í
blaðinu í gær. Greinin átti að
hefjast þannig: „Í umræðu um
efnahags- og kjaramál er iðu-
lega staðhæft að ójöfnuður sé
mikill í landinu og aukist
stöðugt. Þessu er gjarnan hald-
ið fram í umfjöllun um stöðu
fátæks fólks eða háar tekjur til-
tekinna hópa. En er þetta rétt?
Hvað segja fyrirliggjandi
heimildir um þróun tekjuskipt-
ingar á Íslandi og stöðu Íslands
gagnvart öðrum þjóðum í þess-
um efnum?“ Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
■ LEIÐRÉTTING
Bls. 26-27
sorg
skilnað
Sátt eftir
Guðfinna
Ragnheiður
Björgólfur Thor í DV Nærmynd:
Töffari úr Vesturbænum og einn ríkastimaður heims
&
LAUGARDAGUR 5. MARS 2005
Hér og nú bls. 52
Bls. 38Helgarblað
Kraftaverk
AÐALHEIÐI VAREKKI HUGAÐ LÍF
Hafdís Lára Kjartansdóttir lést úr heilablóðfalli líkt og móðir hennar fyrirskemmstu. Fjölskylda hennar er samheldiní sorg sinni en hún hefur þurft að þolaótrúlegar hremmingar út af arfgengu ogbanvænu geni sem rakið er til Vestfjarða.
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 53. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
Réttarhöld yfir morðingja
DV fylgist náið með réttarhöldunum yfirHákoni Eydal sem viðurkenndi í viðtali við DV að hafa myrt Sri Rahmawatimeð hrottafengnum hætti. Fyrir rétti ígær sagði Hákon alla söguna. Lýsingarhans veita óhugnanlega innsýn íhugarheim morðingja.
Bls. 8
Hafdís vissi að hún myndi deyja ung
AUSTUR-
VÖLLUR
ALÞINGI
INGÓLFTORG
SÓL 101
A
U
STU
R
STR
Æ
TI
H
A
FN
A
R
STR
Æ
TI
HÉRNA
ERUM
VIÐ
AÐALSTRÆTI 9 - SÍMI 551 0256
2 FYRIR 1
ALLA HELGINA!
Krullurnar
komnar
aftur
Hafdís vissi
að hún myndi
deyja ung
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
BORGARFULLTRÚI
UMRÆÐAN
FORVARNIR
MAÐUR VIKUNNAR
BUBBI MORTHENS SÖNGVARI
TE
IK
N
IN
G
: H
EL
G
I S
IG
. –
H
U
G
VE
R
K
A.
IS