Fréttablaðið - 05.03.2005, Side 31
3LAUGARDAGUR 5. mars 2005
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar
Ekki grípa í tómt
Þetta átti að vera rólegur sunnudagsbíltúr um hálendið. Og var það.
Þangað til einn ferðafélaganna reif dekk. Engar áhyggjur – vant
ferðafólk og ávallt viðbúið öllu. Við reddum þessu. Eða hvað?
Tveir bílanna voru með varadekk. Hvorugt þeirra náðist undan bíl-
unum. Annar þeirra var með tjakk en enga sveif. Hinn með sveif en
engan tjakk. Sá þriðji með tjakk og sveif en ekkert varadekk. Allt í
lagi, við gætum tjakkað bílinn upp á tveimur stöðum með því að sam-
eina stöku sveifina og staka tjakkin. Eftir sem áður vorum við vara-
dekkslaus. Reyndum að setja viðgerðartappa í dekkið en rifan var of
stór. Hvað nú?
Sem betur fer var ekki nema rúmlega tveggja tíma akstur í sið-
menningu þaðan sem við fengum sent dekk. Við gátum því beðið róleg
með tvö varadekk, tvo tjakka og tvær sveifar. Við höfðum allt til alls
en búnaðurinn virkaði ekki eins og hann átti að gera. Hefur þú athug-
að búnaðinn í bílnum þínum nýlega?
Í hverjum bíl ætti að vera varadekk, tjakkur, felgulykill, lítið verk-
færasett með helstu lyklum, toppum og nokkrum skrúfjárnum, drátt-
artóg, startkaplar, auka viftureim og rúðuþurrka, smurolía, rúðupiss
og dekkjahreinsir. Listinn má vera lengri en það skiptir öllu máli að
við athugum reglulega hvort allt sé á sínum stað og virki eins og það
á að gera. Þá er ekki síður mikilvægt að við kunnum eitthvað með
búnaðinn að fara.
Kannt þú að skipta um dekk á bílnum þínum? Veist þú hvar þú mátt
setja tjakkinn undir hann? Eða hvað þú þarft að losa til að koma nýrri
viftureim fyrir? Er ekki betra að athuga það í rólegheitunum heima í
innkeyrslu en að treysta á að það reddist uppi á Hellisheiði í ausandi
rigningu og roki?
Og mundu að athuga sérstaklega hvort sveifin fyrir tjakkinn sé
ekki örugglega með í för. Ég veit að ég mun athuga það reglulega hér
eftir.
Pólýhúðun ehf * www.polyhudun. is
Smið juveg i 1 * S : 544 5700
200 kópavogur * Fax: 544 5701
l f * www.polyhudun. is
i j i * S : 544 5700
r * Fax: 544 5701
Innbrennd duftlökkun á alla málma
Húsgögn:
Skólahúsgögn
Skrifborð
Auglýsingastanda
Skrifborðstóla
Rúm
Borðplötur
Innréttingar.
Fataskápa
Hillukerfi
Eldvarnahurðir
Gler
Hringstiga
Klæðningar
Bílahlutir:
Felgur
Dráttarbeisli
Stuðara
Vélaparta
Mótorhjól
Kerrur
Byggingar:
Utanhúsklæðningar
Þakjárn
Álglugga
Burðarvirki
Ljósastaura
Handrið
Pólýhúðun
Með pólýhúðun er átt við að polyester eða epoxy dufti er úðað úr sérstakri byssu sem hleður duftið upp með rafspennu svo það
festist við málminn sem verið er að húða. Þar eftir er málmurinn bakaður við 200°C í nokkrar mínútur og er þá tilbúinn til notkunar.
Við baksturinn bráðnar duftið og rennur út en um leið herðist og verður að grimmsterku lakki.
Eigum á lager 350 RAL liti
Aukin ökuréttindi
Nú er rétti tíminn til að afla sér nýrra atvinnumöguleika !
Kennt er á leigu-, vöru- og hópferðabifreið,
einnig vörubifreið með eftirvagni.
Skólinn býður uppá nútíma kennsluaðstöðu og reynda kennara.
Innritun alla miðvikudaga, áfangakerfi.
Einnig eru í boði námskeið í vistakstri fyrir einstaklinga
og hópa.
Sími 567-0300
Þarabakka 3 109 Reykjavík
Netfang mjodd@bilprof.is
www.bilprof.is
• SUMARDEKK • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• HEILSÁRSDEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• OLÍS SMURSTÖÐ • BREMSUKLOSSAR
• BÓN OG ÞVOTTUR • PÚSTÞJÓNUSTA
ALLT Á EINUM STAÐ
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Fegurð og
einstök hönnun
SÝNING VERÐUR Á BÍLUM ÚR EINKA-
SAFNI RALPHS LAUREN Á LISTASAFN-
INU Í BOSTON.
Nokkrar bifreiðar úr einkasafni
tískukóngsins Ralphs Lauren verða
sýndar í listasafni Boston í næsta
mánuði, og þykja þessar bifreiðar
meðal þeirra fallegustu sem fram-
leiddar hafa verið. Þar á meðal
verður 1938 árgerð af Bugatti Type
57SC Atlantic Coupe, en aðeins
þrír þannig bílar voru framleiddir
og þykja þeir einstakir fyrir fallega
hönnun. Mercedes-Benz SSK frá
árinu 1930 verður einnig á sýning-
unni, Jaguar XKD, sportlegur
Porsche 550 Spyder, og fræg
módel af Ferrari eins og Ferrari
250 Testa Rossa. Bílarnir eru fyrst
og fremst rómaðir fyrir fegurð sína
og segir í fréttatilkynningu frá lista-
safninu að sumir þeirra jaðri við
að vera skúlptúrar. Sýningin stend-
ur til 3. júlí og munu reglulega
vera sérstök kvöld þar sem húddið
er opnað á bílunum og vélarnar
sýndar.
Bílaáhugamenn sem eiga leið um
Boston ættu að kíkja á þessa sýn-
ingu, en þetta er í fyrsta sinn sem
þessir bílar eru sýndir saman.
Ríkarður Sigmundsson er for-
maður LÍV, Reykjavíkurdeildar
Landssambands íslenskra
vélsleðamanna, og hefur stundað
vélsleðaakstur síðan árið 1999.
Hann segir vélsleðasportið
skemmtilegt fyrir margra hluta
sakir. „Nálægðin við náttúruna og
fjöllin er skemmtileg auk þess
sem óvissuþættirnir eru spenn-
andi þar sem maður þarf að
takast á við mismunandi aðstæð-
ur hverju sinni,“ segir Ríkarður.
Rík áhersla er lögð á öryggis-
málin að sögn Ríkarðs. „Brýnt er
fyrir mönnum að hafa öryggis-
búnað í lagi og keyra ekki undir
áhrifum,“ segir Ríkarður. Hann
segir þessi mál rædd á mánaðar-
legum fundum en þar sé einnig
rætt um ýmsa skemmtilega við-
burði – eins og til dæmis viðburð
sem var á Vetrarhátíð í Reykja-
vík.
„Við vorum með sleðastæla,
eins og við köllum það, við Hús-
gagnahöllina þar sem settur hafði
verið upp stökkpallur og risastór
snjóskafl. Menn sýndu þarna
ýmsar kúnstir við mikinn fögnuð
áhorfenda,“ segir Ríkarður. Í
framhaldi af því var haldin
keppni næsta dag þar sem keppt
var um Reykjavíkurmeistaratitil-
inn. „Keppnin er svipuð og í
motorcross þar sem keppendur
keyra í gegnum brautina undir
dúndrandi tónlist og tveir kynnar
lýsa keppninni í hátalarakerfi.
Það er mikil keyrsla á þessu og
mikið fjör,“ segir Ríkarður. Hægt
er að kynna sér starfsemi sam-
bandsins á liv.is. ■
Nálægðin við fjöllin skemmtileg
Vélsleðamenn þeytast um fjöll og firnindi í vetrardýrðinni. En þeir gera meira en það því þeir
hafa stofnað samtök og hittast reglulega og skipuleggja skemmtilega viðburði.
Ríkarður Sigmundsson í brynju sem að hans mati er sá öryggisbúnaður sem
vélsleðamenn eigi ekki að vera án.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
» BETRI
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
Á FÖSTUDÖGUM