Fréttablaðið - 05.03.2005, Side 51
LAUGARDAGUR 5. mars 2005 35
18. nóvember 2003
Lögreglan gerir húsleit í
Neverland.
19. nóvember 2003
Handtökuskipun gefin út.
20. nóvember 2003
Jackson handtekinn.
18. desember 2003
Jackson ákærður fyrir kynferð-
isbrot.
25. desember 2003
Jackson fer í fyrsta viðtalið eftir
að málið kom upp og sver af
sér allar sakir.
6. janúar 2004
Jackson mætir fyrir dómara og
lýsir yfir sakleysi.
21. apríl 2004
Formleg ákærða lögð fram.
25. apríl 2004
Jackson skiptir um verjendur.
30. apríl 2004
Jackson lýsir aftur yfir sakleysi
fyrir dómara.
28. maí 2004
Dómarinn segir að réttarhöldin
eigi að hefjast 13. september.
27. júlí 2004
Dómarinn samþykkir að seinka
réttarhöldunum til 31. janúar.
17. september 2004
Móðir hins meinta fórnarlambs
ber vitni.
4. desember 2004
Lögreglan gerir aftur húsleit í
Neverland.
19. janúar 2005
Martin Bashir sem tók viðtal við
Jackson óskar eftir að bera ekki
vitni. Það var ekki tekið til
greina.
30. janúar 2005
Jackson gefur út yfirlýsingu þar
sem hann óskar eftir réttlátri
málsmeðferð.
31. janúar 2005
Byrjað að velja í kviðdóm.
23. febrúar 2005
Val í kviðdóm lokið.
28. febrúar 2005
Réttarhöldin yfir Michael
Jackson hefjast.
MÁLIÐ Í
HNOTSKURN
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
HARÐUR Í HORN AÐ TAKA
Dómarinn sem stjórnar ferðinni í máli Michael Jackson
heitir Rodney Melville. Hann hefur þrettán ára reynslu sem
dómari og þykir vera nokkuð harður í horn að taka. Áður
en hann varð dómari vann hann bæði á sem lögmaður
einkastofu í Santa Monica og sem saksóknari í San
Bernardino í Kaliforníu.
Melville hefur reynt að gera það sem í
hans valdi stendur til að réttarhöldin
yfir Jackson verði ekki að fjölmiðlafári.
Hann telur að ef það gerist sé aukin
hætta á því að Jackson, vegna frægðar
sinnar, hljóti ekki réttláta málsmeðferð.
Sem dæmi leyfir Melville sjónvarps-
stöðvum ekki að taka upp réttarhöldin.
Þá hefur hann fellt úrskurð sem tak-
markar opinberar umræður þeirra sem
taka þátt í málinu með einum eða öðr-
um hætti. Þó Melville hafi lýst á-
hyggjum af því að Jackson hljóti ekki
réttláta málsmeðferð hefur hann ekki
tekið poppgoðið neinum vettlinga-
tökum. Hann húðskammaði til að mynda Jackson fyrir
skömmu fyrir að mæta of seint í réttinn. Þá ávítaði hann
stjörnuna einnig fyrir að hafa lýst yfir sakleysi sínu í yfirlýs-
ingu til fjölmiðla.
FYRRVERANDI HNEFALEIKARI
Tom Sneddon saksóknari í máli Jackson hefur verið lýst
sem ágengum lögmanni sem gefur aldrei tommu eftir. Bak-
grunnur Sneddon segir líka eflaust ýmislegt um manninn
því hann stundaði hnefaleika í háskóla
og gegndi herskyldu í Víetnam áður en
hann varð lögmaður.
Leiðir Sneddon og Jackson lágu fyrst
saman fyrir rúmum áratug þegar
Sneddon var með mál hins þrettán ára
gamla Jordan Chandler á sinni könnu.
Chandler sakaði Jackson um kynferðis-
lega misnotkun en mál hans fór aldrei
fyrir dómstóla þar sem sáttir tókust utan
dómssalarins. Talið er að Jackson hafi
greitt Chandler tugi ef ekki hundruð
milljóna króna til þess að forðast réttar-
höld. Jackson og stuðningsmenn hans
telja Sneddon óbilgjarnan mann sem
stjórnist af heift gagnvart stjörnunni.
Sem gefur að skilja er Sneddon ekki í neinu sérstöku uppá-
haldi hjá Jackson og er almennt talið að DS, eitt laganna á
plötunni HIStory, sé tileinkað saksóknaranum. Í laginu
syngur Jackson um karakterinn Dom Sheldon sem kaldan
mann. Í textanum segir enn fremur: „Þeir vilja ná mér –
dauðum eða lifandi.“
FAGURHÆRÐUR OG KRÖFTUGUR
Verjandinn Thomas Mesereau tók við máli Michael Jackson
í apríl á síðasta ári þegari Jackson sagði lögfræðingunum
Mark Geragos og Benjamin Brafman upp störfum.
Hinn fagurhærði Mesereau er nokkuð þekktur í Bandaríkj-
unum og þá helst fyrir að hafa verið með mál hnefaleikar-
ans Mike Tyson í máli sem kom upp árið 2001. Einnig er
hann kunnur fyrir að hafa verið verjandi leikarans Roberts
Blake, sem sakaður er um að hafa myrt
eiginkonu sína. Það mál er enn í gangi
en Mesereau hætti störfum fyrir Blake í
febrúar. Mesereau er einnig þekktur fyrir
að hafa unnið mál í Alabama og Missi-
ssippi þar sem skjólstæðingar hans áttu
dauðadóm yfir höfði sér. Í þeim málum
gaf Mesereau vinnu sína.
Mesereau, sem er trúrækinn maður,
hefur hlotið lof fyrir kröftuga framkomu
í réttarsalnum. Eftir að hann fékk Blake
lausan gegn tryggingu á síðasta ári
sagði dómarinn að Mesereau væri einn
færasti lögmaður sem hann hefði séð.
John Potter, saksóknari í Kaliforníu,
sagði í viðtali við Los Angeles Times að
Mesereau bæri það með sér að hann hefði einlæga og
bjargfasta trú á því að skjólstæðingar hans væru saklausir.
DÓMARINN
Rodney Melville.
SAKSÓKNARINN
Tom Sneddon.
VERJANDINN
Thomas Mesereau.