Fréttablaðið - 05.03.2005, Side 54
38 5. mars 2005 LAUGARDAGUR
Við hrósum...
... stjórn KSÍ sem hreinlega malar gull þessa dagana. Þar
á bæ starfa menn með gott peninganef eins og sjá má á
gróðanum sem KSÍ fékk fyrir skynsamar fjárfestingar í
hlutabréfum í KB Banka. Vonandi verður gengi
landsliðsins álíka gott og stjórnarinnar.
Við hrósum...
... Gauta Jóhannessyni úr UMSB fyrir að halda uppi heiðri Íslendinga á
Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss í Madrid áSpáni. Gauti varð ellefti
í sínum riðli í 1500 metra hlaupi í gær og komst því ekki í úrslit. Gauti var nokkuð frá
sínu besta, en hljóp vegalengdina á þremur mínútum og 50,67 sekúndum. Gauti var
eini fulltrúi okkar Íslendinga á mótinu.sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband Ís-
lands hefur verið gagnrýnt fyrir
að hafa fjárfest í hlutabréfum í
KB banka fyrir 100 milljónir á síð-
asta ári. Talað hefur verið um að
áhættan sé of mikil og pening-
arnar ættu frekar að fara til félag-
anna í landinu sem sum hver
berjast í bökkum.
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, sagði í samtali við Frétta-
blaðið að stjórn sambandsins liti á
það sem skyldu sína að reyna að
ávaxta fé sambandsins sem best
og hún liti á þessa fjárfestingu í
KB banka sem skammtímafjár-
festingu. „Við munum innleysa
þessi bréf á næstunni og miðað
við gengi bréfanna í dag er ljóst
að þessi fjárfesting skilar ágætis
hagnaði,“ sagði Eggert.
KSÍ keypti hlutabréf í KB
banka fyrir um 100 milljónir í
hlutabréfaútboði bankans í októ-
ber á síðasta ári. Hver hlutur
kostaði 480 kr þá en í gær stóð
hluturinn í 512. Hann hefur hækk-
að um 6,25% á þessum rúmum
fjórum mánuðum sem gefur KSÍ
hagnað upp á rúmar sex milljónir
ef sambandið myndi selja hlut
sinn í dag. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins telst það vel viðun-
andi ávöxtun á ekki lengri tíma.
„Þetta er ekki stór hluti af
þeim peningum sem við erum að
sýsla með og því lítum við ekki á
þetta sem einhverja áhættu. Það
var okkar mat að það væri betra
að kaupa bréfin heldur en að
geyma peningana inni á bók,“
sagði Eggert. oskar@frettabladid.is
KSÍ hefur grætt rúmar
sex milljónir króna
Knattspyrnusamband Íslands keypti hlutabréf í KB banka fyrir um 100 millj-
ónir í hlutafjárútboði í október á síðasta ári. Þau hafa hækkað um 6,25% síðan
þá og þessi skammtímafjárfesting skilar góðum arði til sambandsins.
Valsmenn efna öðru sinni tilveglegrar Vorgleði í Valsheimilinu
í kvöld. Valsmenn ætla að tjalda
öllu til og stuðbandið
Júdó og Stefán,
sem Jón
Ólafsson og
Stefán
Hilmarsson
skipa, munu taka
nokkur lög meðan
gestir háma í sig
dýrindis kræsingar frá
Jóhannesi í Múlakaffi.
Sálin Hans Jóns Míns mun síðan
leika fyrir dansi fram á nótt en
einnig mun hljómsveitin Igore stíga
á stokk. Jón Ólafsson verður
veislustjóri en sérstakur
heiðursgestur verður Ian Ross,
fyrrum þjálfari Vals og núverandi
fjölmiðlafulltrúi Everton. Upplýsingar
um miða og borðapantanir eru í
síma 551-1134.
Shaun Wright-Phillips, leikmaðurManchester City og enska lands-
liðsins, verður frá
keppni í allt að
tvo mánuði
vegna meiðsla
sem hann hlaut í
leik gegn
Norwich á
mánudaginn síð-
asta. Þegar
læknar skoðuðu
leikmanninn
kom í ljós að
hann þarf að
fara í uppskurð á hné og verður því
frá í keppni í fyrrgreindan tíma.
Þetta er liði Manchester City mikið
áfall og ekki síst enska landsliðinu,
sem leikur tvo leiki í undankeppni
HM á næstunni.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Stálsleginn Nokia 6170
Rafhlaða og þyngd
- 4 klst. í tal
- 260 klst. í bið
- 121 g
Minni og samskiptamöguleikar
- Myndskilaboð
- GPRS
- Tri-Band (virkar í USA)
- Innrautt
- Bluetooth
Leikir og tónlist
- Java-leikir
- Fjöltóna hringingar (40 radda)
Skjár og myndavél
- 128x160 díla, 65 þúsund lita skjár
- VGA 640x480 díla myndavél
- Tekur við myndskeiðum
Annað
- Annar skjár utan á símanum
- Vekjari, klukka, skeiðklukka, reiknivél
Finnska stálið Nokia 6170 er nú á
hörkugóðu tilboði fyrir viðskiptavini
Og Vodafone.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
75
88
03
/2
00
5
*Skuldfært mánaðarlega af kreditkorti.
29.900 kr. eða 2.990 kr. í 12 mánuði*
Komdu í Og Vodafone verslun, smelltu þér á www.ogvodafone.is eða hringdu í 1414 fyrir nánari upplýsingar.
TRI BAND
MYNDAVÉL
BLUETOOTHJAVA-LEIKIR
VEKJARI
MYNDSKILABOÐ
DAGBÓK
INNRAUÐUR
GEISLI
LEIKIR GÆRDAGSINS
EGGERT MAGNÚS-
SON, FORMAÐUR KSÍ
Getur verið sáttur við
ávöxtun bréfanna í KB
banka.
DHL-deild karla
VALUR–ÞÓR 36–29
Mörk Vals: Sigurður Eggertsson 8, Baldvin
Þorsteinsson 8, Heimir Örn Arnarson 5, Vilhjálmur
Halldórsson 4, Kristján Þór Karlsson 3, Fannar Þór
Friðgeirsson 2, Ásbjörn Stefánsson, Brendan
Þorvaldsson 2, Hjalti Pálmason 1, Ingvar Árnason 1.
Mörk Þórs: Árni Þór Sigtryggsson 8, Sindri
Haraldsson 5, Aron Gunnarsson 4, Arnór Þór
Gunnarsson 4, Atli Þór Ragnarsson 4, Aigars Lazdins
4, Bjarni Gunnar Bjarnason 3, Sindri Viðarsson.
STAÐAN:
HAUKAR 10 6 1 3 316-292 13
HK 10 6 0 4 316-297 12
VALUR 11 6 0 5 297-305 12
KA 10 4 2 4 298-298 10
ÍR 10 5 0 5 305-306 10
ÍBV 10 4 1 5 300-290 9
VÍKINGUR 10 4 0 6 278-288 8
ÞÓR 11 4 0 7 313-347 8
1. deild karla
FRAM–AFTURELDING 26–20
Mörk Fram: Jón Björgvin Pétursson 7, Stefán B.
Stefánsson 5, Ingólfur Axelsson 5, Guðlaugur
Arnarsson 4, Þorri Gunnarsson 3, Gunnar
Harðarson 1.
Mörk Aftureldingar: Ernir Arnarson 5, Vlad
Trufan 3, Daði Jónsson 3, Ásgeir Jónsson 2, Einar
Hrafnsson 2, Hrafn Ingvarsson 2, Magnús
Einarsson 2, Jens Ingvarsson 1.
STAÐAN
FRAM 7 5 0 2 180–16910
FH 6 5 0 1 170–140 10
GRÓTTA/KR 7 4 0 3 174–170 8
AFTURELDING7 3 0 4 190–192 6
STJARNAN 6 1 1 4 154–169 3
SELFOSS 7 1 1 5 176–204 3
Deildarbikar karla
VÍKINGUR–ÍBV 2–1
1–0 Vilhjálmur Vilhjálmsson, víti (5.), 2–0 Hörður
Bjarnason (13.), 2–1 Steingrímur Jóhannesson
(31.).