Fréttablaðið - 15.06.2005, Side 16
EINKAVÆÐING Valgerður Sverris-
dóttir viðskiptaráðherra segir að
gagnrýnin á ríkisstjórnina vegna
sölu bankanna og ásakanir stjórn-
arandstöðunnar um vanhæfi Hall-
dórs Ásgrímssonar vegna óbeinna
eignatengsla hans og S-hópsins
hafi hvorki skaðað Framsóknar-
flokkinn né ríkisstjórnina. Enn-
fremur sé samstarf ríkisstjórnar-
flokkanna jafngott og fyrr.
„Við gerum okkur hins vegar
grein fyrir að þessi umræða mun
halda áfram og jafnvel út sumar-
ið. Samfylkingin mun hjakka í
sama ómálefnalega farinu. Það er
fyrst og fremst Halldór Ásgríms-
son sem stendur í vegi fyrir
nýjum formanni Samfylkingar-
innar og forsætisráðherraefninu,
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.
Málefnaleg staða Framsóknar-
flokksins er mjög góð og stjórnar-
andstaðan getur því ekki gagn-
rýnt okkur á málefnalegum
grundvelli. Þess vegna er gripið
til persónulegra árása,“ segir Val-
gerður.“Það er verst fyrir þessa
þingmenn sjálfa. Fólk sér í gegn
um umræðu þeirra og málflutn-
ing,“ segir Valgerður.
Hún segist jafnframt sannfærð
um að staða Halldórs innan
flokksins hafi ekki veikst við um-
ræðuna og að málið muni ekki
skaða flokkinn inn á við. „Fyrst
niðurstaða ríkisendurskoðanda
var sú sem raun ber vitni er þetta
búið mál innan Framsóknar-
flokksins. Það er algjörlega úti-
lokað að það skaði Halldór á
nokkurn hátt því staða hans er
mjög sterk innan flokksins,“ segir
Valgerður.
Valgerður ber ábyrgðina
Ríkisendurskoðandi segir í nýút-
kominni skýrslu um hæfi Hall-
dórs Ásgrímssonar til þess að
fjalla um sölu á hlut ríkisins í
Búnaðarbankanum til S-hópsins
árið 2002, að Valgerður Sverris-
dóttir sem viðskiptaráðherra beri
alla ábyrgð á sölu bankanna
tveggja. Ábyrgðin hvíli ekki á ráð-
herranefndinni heldur fagráð-
herra, sem í þessu tilfelli er við-
skiptaráðherra.
Ríkisendurskoðandi heldur því
fram að ráðherranefnd um einka-
væðingu sé fyrst og fremst ætlað
að einfalda aðkomu ríkisstjórnar
að einkavæðingarverkefnum og
greiða fyrir staðfestingu stefnu-
markandi ákvarðana þeim tengd-
um, sem annars væru í höndum
ríkisstjórnar. Ákvörðunin sé eftir
sem áður tekin af viðkomandi ráð-
herra og á ábyrgð hans. Ráðherra-
nefndin geti því varla talist
stjórnsýslunefnd, sem ætlað er að
taka stjórnvaldsákvarðanir í
skilningi stjórnsýslulaga. Til þess
sýnist hana skorta nægilega skýr-
an lögformlegan grundvöll.
Eignatengslin aldrei rædd
Valgerður er spurð að því hvort
óbein eignatengsl Halldórs Ás-
grímssonar við S-hópinn í aðdrag-
andanum að sölu Búnaðarbankans
hafi komið til tals innan ráðherra-
nefndarinna, eða hvort þau Hall-
dór hafi rætt þau sín á milli. „Nei,
það kom ekki til umræðu, enda
fórum við í ráðherranefndinni að
tillögum Framkvæmdanefndar
um einkavæðingu og ráðgjafafyr-
irtækis okkar, HSBC, varðandi
sölu bankanna,“ segir Valgerður.
„Halldór ber ekki ábyrgð á þessu
máli, eins og ríkisendurskoðandi
bendir á, heldur ég, enda er ríkis-
stjórnin ekki fjölskipað stjórn-
vald. Þó svo að Halldór færi með
ábyrgðina hefði hann samt verið
til þess hæfur, líkt og ríkisendur-
skoðandi sýnir fram á í skýrslu
sinni,“ segir Valgerður.
„Það hefði alltaf verið hægt að
sýna fram á einhvers konar
tengsl, sama hvaða kaupandi
hefði verið valinn, því íslenskt
samfélag er svo lítið. Ef Kaldbak-
ur hefði til að mynda verið valinn
til að kaupa Búnaðarbankann
hefði ég líklega orðið fyrir gagn-
rýninni og sögð vanhæf vegna
þess að ég er félagsmaður í KEA,“
segir hún.
Ekki þörf á rannsókn
Valgerður er spurð hvort ekki
komi til greina að láta fara fram
opinbera rannsókn á sölu ríkis-
bankanna tveggja, líkt og stjórn-
arandstaðan hafi stungið upp á,
svo ríkisstjórnarflokkarnir geti
gert hreint fyrir sínum dyrum í
eitt skipti fyrir öll. „Það er búið að
hreinsa okkur af öllum ásökunum
stjórnarandstöðunnar. Þetta er út-
kljáð mál. Ríkisendurskoðandi
hefur skrifað tvær skýrslur um
bankasöluna auk nýju skýrslunn-
ar um hæfi forsætisráðherra og
ef þingmenn ætla ekki að gera
neitt með þá niðurstöðu hljótum
við að velta því fyrir okkur hvort
sú stofnun eigi rétt á sér,“ segir
Valgerður. ■
16 15. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTAVIÐTAL
VALGERÐUR SVERRIS-
DÓTTIR UM BANKA-
SÖLUNA
Valger›ur segir umræ›una ekki
hafa ska›a› Framsóknarflokkinn
Valger›ur Sverrisdóttir segir a› umræ›an um einkavæ›ingu ríkisbankanna og ásakanir um vanhæfi Halldórs Ásgrímssonar hafi hvorki
ska›a› flokkinn né ríkisstjórnina. Halldór hafi jafnsterka stö›u og á›ur innan flokksins. fiau ræddu aldrei eignatengslin sín á milli.
Jóhanna Sigurðardóttir þingmaður Samfylkingar:
Trúver›ugleiki forsætisrá›herra í húfi
EINKAVÆÐING „Stjórnarflokkunum verður varla að
þeirri ósk sinni að málinu sé lokið,“ segir Jóhanna
Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar,
um sölu ríkisbankanna.
„Auk meints vanhæfis ráðherrans í bankasölu-
málinu eru einnig mörg önnur veigamikil atriði í
söluferlinu enn óupplýst,“ segir Jóhanna.
„Stjórnarandstaðan hlýtur að leita allra leiða
til að fá málið upplýst. Ekki bara um meint van-
hæfi forætisráðherra heldur málið í heild sinni.
Fyrsta skrefið í því máli er að fá óvilhalla aðila til
að vinna álitsgerð um meinta hagsmunaárekstra
og vanhæfi ráðherra,“ segir hún.
Hún bendir á að fimm hópar fjárfesta buðu í
söluna á bönkunum og einhverjir þeirra sem var
hafnað gætu leitað til dómsstóla til að fá úr því
skorið hvort hagsmunaárekstrar hafi haft áhrif á
ákvörðun um það hverjir fengu bankana. „Aðalat-
riði er að öll efnisatriði málsins verði upplýst.
Það er grundvallaratriði til að hægt sé að treysta
því að heiðarlegir stjórnsýsluhættir séu í heiðri
hafðir hjá framkvæmdvaldinu. Í þessu máli er
líka í húfi trúverðugleiki forsætisráðherra og þar
verður að vera skýrt og klárt að hann hafi ekki
verið flæktur í hagsmunaárekstra,“ segir Jó-
hanna. - sda
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR: „Í þessu
máli er líka í húfi trúverðugleiki forsætis-
ráðherra og þar verður að vera skýrt og
klárt að hann hafi ekki verið flæktur í hags-
munaárekstra.“
Sigurjón Þórðarson um skýrslu ríkisendurskoðunar:
Stangast á vi› or› Halldórs
EINKAVÆÐING „Ríkisendurskoðandi setur niður
með skýrslu sinni um hæfi Halldórs Ásgrímsson-
ar í bankasölumálinu,“ segir Sigurjón Þórðarson,
þingmaður Frjálslynda flokksins.
„Ef ríkisendurskoðandi vill láta taka sig alvar-
lega er nauðsynlegt að hann hafi trúnað stjórnar-
andstöðunnar hverju sinni. Ríkisendurskoðun
sem er bara endurskoðun fyrir meirihlutann er
ekki trúverðug,“ segir Sigurjón.
Hann bendir á að í skýrslunni hafi ríkisendur-
skoðandi haldið því fram að Halldór hafi hvergi
komið nærri sölunni. „Halldór sagði hins vegar í
fréttaviðtali fyrir skömmu að auðvitað taki ráð-
herrar ákvarðanirnar varðandi einkavæðinguna.
Þar er Halldór í mótsögn við ríkisendurskoð-
anda,“ segir Sigurjón.
„Þá er jafnframt mjög einkennilegt að forsæt-
isráðherra skuli vera hvítþveginn á þeim for-
sendum að hann hafi ekki komið nálægt málinu
þegar hann er sjálfur búinn að viðurkenna að
hafa átt símafund með bjóðendum í bankann,“
segir Sigurjón.
„Það er greinilegt að stjórnarflokkarnir hafa eitthvað að fela í þessu máli fyrst
Fréttablaðið þurfti að fara með beiðnir sínar fyrir úrskurðarnefnd um upplýsingamál
til að fá aðgang að eðlilegum gögnum í málinu. Ef þeir hafa ekkert að fela af hverju
afhenda þeir ekki Fréttablaðinu þessi gögn?“ spyr Sigurjón. - sda
SIGURJÓN ÞÓRÐARSON: „Það er greini-
legt að stjórnarflokkarnir hafa eitthvað að
fela í þessu máli fyrst Fréttablaðið þurfti að
fara með beiðnir sínar fyrir úrskurðarnefnd
um upplýsingamál til að fá aðgang að eðli-
legum gögnum í málinu.“
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR: „Fyrst niðurstaða ríkisendurskoðanda var sú sem raun ber vitni er þetta búið mál innan Framsóknar-
flokksins. Það er algjörlega útilokað að það skaði Halldór á nokkurn hátt því staða hans er mjög sterk innan flokksins.“