Fréttablaðið - 04.10.2005, Side 33
21
Skoski kylfingurinn ColinMontgomerie er kominn á topp
tuttugu á styrkleikalista kylfinga í
kjölfar sigurs á Dunhill-meistaramót-
inu á sunnudag.
Montgomerie, eða
Monty eins og hann
er ætíð kallaður, er
nú í sextánda sæti
heimnslistans en
hann hafði verið út-
lægur frá topp tutt-
ugu sætum hans í
rúm tvö og hálft ár. Skotinn, sem nú
er 42 ára, var í 83. sæti heimslistans
um áramótin en hann var í öðru
sæti á heimslistanum árið 1996 og
1997. Hann er af mörgum álitinn
besti kylfingurinn sem aldrei hefur
unnið risamót.
Íslenska landsliðið í knattspyrnuskipað leikmönnum 19 ára og
yngri, tapaði í gær fyrir Búlgaríu 1-0
í undankeppni EM sem fram fer í
Sarajevó í Bosníu
Herzegóvínu. Mark-
ið kom á 50. mín-
útu leiksins úr víta-
spyrnu, en Haukur
Páll Sigurvinsson,
leikmaður Þróttar,
fékk að líta rauða
spjaldið eftir að
hafa handleikið knöttinn innan teigs
sem leiddi til vítaspyrnunnar. Kópa-
vogsbúarnir Rúrik Gíslason og Guð-
mann Þórisson fengu báðir að líta
gula spjaldið. Næsti leikur liðsins er
á morgun gegn Króötum.
Knattspyrnugoðsögnin GeorgeBest liggur nú þungt haldin á
sjúkrahúsi vegna magasýkingar.
Roger Williams læknir sagði í gær
að ástand hans væri alvarlegt. „Best
er alvarlega veikur ennþá en virðist
þó vera á hægum batavegi.“ Best
hefur um árabil glímt við áfengissýki
og hefur drukkið mikið síðustu
mánuði eftir að kona hans fór frá
honum. Sonur George Best, Calum,
segir föður sinn þurfa á stuðningi
að halda. „Hann hefur alltaf sýnt
vilja til þess að ná sér að fullu.“
ÚR SPORTINUSynd a› Ívar sé ekki í landsli›inu
Brynjar Björn Gunnarsson, hetja Reading í uppgjöri efstu li›anna í ensku
1. deildinni, segir a› samherji sinn Ívar Ingimarsson eigi heima í landsli›inu.
FÓTBOLTI „Það er algjör synd
að Ívar Ingimarsson gefi
ekki kost á sér í landsliðið.
Það vantar ansi mikið í
vörnina hjá okkur gegn Pól-
verjum og Svíum. Her-
mann [Hreiðarsson] er til
dæmis ekki með en þótt all-
ir væru klárir í leikinn ætti
Ívar heima í byrjunarliði
Íslands. Hann hefur spilað
mjög vel fyrir Reading og
ekki bara í haust heldur
einnig í fyrravetur,“ sagði
Brynjar Björn Gunnarsson
í samtali við Fréttablaðið
en Brynjar Björn er sam-
herji Ívars hjá Reading,
sem er í 2. sæti ensku 1.
deildarinnar og lagði topp-
lið Sheffield United um
helgina 2-1.
Brynjar Björn var á skotskón-
um, skoraði bæði mörk Reading
og var valinn maður leiksins í
flestum enskum fjölmiðlum.
Ívar hefur fengið afbragðs-
dóma fyrir frammistöðuna á leik-
tíðinni með Reading. Hann hefur
spilað frábærlega vel sem mið-
vörður en Reading hefur aðeins
fengið á sig sjö mörk í þrettán
leikjum.
„Það er ljóst að Ívar er einn af
þeim fyrstu sem Steve Coppell
[stjóri Reading] velur í liðið í
hvern einasta leik. Coppell treyst-
ir honum greinilega enda hafa
þeir unnið lengi saman. Þetta er
þriðja liðið sem Coppell stýr-
ir með Ívar innanborðs. Vörn-
in er gríðarlega sterk og Ívar
hefur spilað mjög vel,“ sagði
Brynjar Björn, sem gekk til
liðs við Reading í sumar frá
Watford. Ívar ákvað í fyrra-
haust að gefa ekki kost á sér í
landsliðið þar sem hann var
meðal annars ósáttur við að
fá ekki fleiri tækifæri í byrj-
unarliðinu og hefur hans ver-
ið sárt saknað í vörninni sem
hefur verið eins og gatasigti.
Brynjar Björn er annars
mjög ánægður með dvölina
hjá Reading. „Eigandi Read-
ing hefur lagt mikinn pening í
liðið undanfarin ár og það er
ákveðin pressa að koma því
upp í úrvalsdeild. Hér er nýr
leikvangur og ný og glæsileg æf-
ingaaðstaða og því ekkert til spar-
að. Það kitlar að komast upp í úr-
valsdeildina og spreyta sig þar.
Við eigum að geta farið alla leið.“
Þess má geta að Brynjar Björn
var valinn í lið vikunnar í ensku 1.
deildinni hjá mörgum enskum
fjölmiðlum. - þg
Ívar Ingimarsson segir að ekkert hafi breyst varðandi íslenska landsliðið:
FÓTBOLTI „Það hefur ekkert breyst
varðandi landsliðið hjá mér. Ás-
geir [Sigurvinsson] kom og hitti
mig en þar við situr,“ sagði Ívar
Ingimarsson, leikmaður Read-
ing, í samtali við Fréttablaðið.
Ívar neitaði því ekki að hann
væri til í að endurskoða ákvörð-
un sína á seinni stigum.
Ívar hefur verið eins og klett-
ur í vörn Reading í 1. deildinni og
Steve Coppell lét hann hafa fyrir-
liðabandið gegn Sheffield United
um helgina. „Bakvörðurinn
Graeme Murty, sem verið hefur
fyrirliði, meiddist í þarsíðasta
leik gegn Southampton í fyrri
hálfleik og þá fékk ég fyrirliða-
bandið því varafyrirliðinn Steve
Siddwell var einnig meiddur. Það
má því segja að ég sé annar vara-
fyrirliði. Þetta var stórleikur um
helgina og virkilega gaman að
vinna efsta liðið fyrir landsleikja-
fríið,“ sagði Ívar, sem fær
þriggja daga frí um helgina.
Hann hrósar Brynjari Birni í
hástert og segir að liðið hafi spil-
að mun betur eftir að hann jafn-
aði sig af meiðslum og kom inn í
liðið. „Brynjar hefur smollið
rosalega vel inn í þetta og gaman
fyrir hann að skora gegn Sheffi-
eld United. Hann hafði ekki einu
sinni skorað á æfingum fyrir
leikinn.“ - þg
Ívar fyrirli›i Reading gegn Sheffield United
ÞRIÐJUDAGUR 4. október 2005
HAGKAUP SMÁRALIND
HAGKAUP SKEIFUNNI
HAGKAUP KRINGLUNNI
HAGKAUP SPÖNGINNI
HAGKAUP GARÐABÆ
HAGKAUP EIÐSTORGI
HAGKAUP AKUREYRI
NETTÓ, AKUREYRI
NETTO, MJÓDD
NETTÓ, AKRANESI
NÓATUN SELFOSSI
KJARVAL KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
FJARÐARKAUP HAFNAFIRÐI
ÚRVAL KEFLAVIK
ÚRVAL HAFNAFIRÐI
ÚRVAL EIGILSSTÖÐUM
ÚRVAL HRÍSALUNDI
ÚRVAL HÚSAVÍK
ÚRVAL DALVIK
ÚRVAL ÓLAFSFIRÐI
ÚRVAL ÍSAFIRÐI
ÚRVAL SIGLUFIRÐI
ÚRVAL BORGARNESI
ÚRVAL, BLÖNDUÓSI
STRAX, FÁSKRÚÐSFIRÐI
KAUPFÉLAG V-HÚNV.
AG V-HÚN HVAMMST.
KAUPFÉLAG SKAGF. SAUÐÁRKR.
KAUPFÉLAG STEINGRÍMSFJARÐAR,
HÓLMAV.
KAUPFÉLAG STEINGRÍMFJAR.
DRANGSN.
LÆKURINN NESKAUPSTAÐ
EFNALAUG DÓRU, HÖFN
HEIMAHORNIÐ, STYKKISHÓLMI
LYFJA, PATRÓ.
PALOMA GRINDAVIK
FATABÚÐIN ÍSAFIRÐI
VERSLUNN RANGÁ, SKIPAS. 56
H-SEL LAUGAVATNI
ÞÍN VERSLUN, SELJABRAUT RVK.
PLÚS MARKAÐURINN, HÁTÚNI 106
GAMLA BÚÐIN, HVOLSVELLI
DALAKJÖR BÚÐARDAL
KASSINN ÓLAFSVÍK
VERSLUNIN STRAX, FLÚÐUM
KLAKKUR VÍK
RAFLOST, DJÚPAVOGI
BJARNI EIRÍKS, BOLUNGARVÍK
EINAR ÓLAFSS, AKRANESI
ÚTSÖLUSTAÐIR
SLOGGITILBOÐ MAXI:
U21 árs landsliðið valið:
firír n‡li›ar í
hópnum
FÓTBOLTI Eyjólfur Sverrisson
landsliðsþjálfari, valdi fjóra ný-
liða í U21 árs landsliðið sem mæt-
ir Svíum í undankeppni HM 11.
október sem fram fer í Eskilstuna
en þrír þeirra eru í hópnum í
fyrsta sinn. Hrafn Davíðsson,
markvörður ÍBV, var valinn í stað
Magnúsar Þormars hjá Keflavík.
Þá valdi Eyjólfur þrjá leikmenn
sem leika þessa dagana með U19
ára landsliðinu í undankeppni EM
í Bosníu þessa vikuna, þá Theodór
Elmar Bjarnason, Bjarni Þór Við-
arsson og Rúrik Gíslason en þeir
eru allir nýliðar.
ÍVAR Í BARÁTTUNNI Ívar Ingimarsson er hér í leik með
Reading gegn Southampton. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
LANDSLIÐSHÓPUR ÍSLANDS
Markverðir:
Ingvar Þór Kale Víkingur
Hrafn Davíðsson ÍBV
Aðrir leikmenn:
Hannes Þ. Sigurðsson Stoke City
Sigmundur Kristjánsson KR
Davíð Þór Viðarsson FH
Emil Hallfreðsson Tottenham
Hörður Sveinsson Keflavík
Steinþór Gíslason Valur
Gunnar Þór Gunnarsson Fram
Tryggvi Sveinn Bjarnason KR
Jónas Guðni Sævarsson Keflavík
Pálmi Rafn Pálmason KA
Ragnar Sigurðsson Fylkir
Garðar Gunnlaugsson Valur
Helgi Pétur Magnússon ÍA
Bjarni Þór Viðarsson Everton
Rúrik Gíslason Charlton
Theódór Elmar Bjarnason Celtic
BJARNI ÞÓR VIÐARSSON Í U-21 árs
landsliðinu þrátt fyrir ungan aldur.