Fréttablaðið - 08.10.2005, Síða 18
Umsjón: nánar á visir.is
Frumlegur vísir að samstarfi
Margir gera ráð fyrir því að keppinautar 365 miðla
muni gera tilraunir á næstunni til þess að sameina
krafta sína. Þannig hafa verið í gangi sögusagnir
um að Blaðið og Mogginn muni fara í eina sæng
með Skjá einum. Viðskiptablaðið hefur verið nefnt
sem samstarfsaðili í þessari nýju fjölmiðlasam-
steypu ef af yrði. Kenningarnar ganga út á það að
Síminn verði þá kjölfestan í nýju fjölmiðlafyrirtæki.
Þessar kenningar hafa verið í gangi um nokkurt
skeið án þess að hlutaðeigandi hafi viljað gefa
nokkuð út á þær. Hins vegar mátti sjá skemmtileg-
an vísi að samstarfi Blaðsins og Viðskiptablaðsins í
gær þar sem síður úr Viðskiptablaðinu voru prent-
aðar í Blaðinu. Ástæðan mun vera mistök í prent-
smiðju, en ekki „Freudian slip“ eins og einhverjir
kynnu að halda.
Kátir í Keops
Danir klóruðu sér í hausnum þegar Baugur ruddist
inn á markaðinn með kaupum á Magasin du Nord.
Skrifað var um fyrirtækið eins og þar væru á ferð-
inni ævintýramenn með lítið eigið fé sem tækju lítt
ígrundaða sénsa í viðskiptum. Tvær grímur runnu á
Danina þegar uppgjör Baugs sýndi 46 milljarða í
eigin fé og tíu milljarða í hagnað á fyrstu sex mán-
uðum ársins. Skömmu eftir að uppgjörstímabilinu
lauk fjárfesti svo Baugur í fasteignafélaginu Keops.
Það félag hefur verið í mikilli uppsveiflu á mark-
aðnum og hækkun síðastliðinn mánuð nemur 47
prósentum. Hagnaður Baugs frá fjárfestingunni er
vel á annan milljarð sem mun færast sem hagnað-
ur hjá félaginu á síðari árshelmingi. Ætli þá fari
ekki að hljóðna raddir
um veikburða og
skuldsett fé-
lag í
danskri
umræðu.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.462 Fjöldi viðskipta: 310
Velta: 1.697 millj.
-0,31%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Hlutafé Straums-Burðaráss Fjárfest-
ingarbanka var lækkað í gær um tæpar
317 milljónir króna að nafnvirði. Eru það
hlutir Burðaráss í Straumi sem eru felldir
niður við sameiningu félaganna.
Tuttugu stærstu hluthafarnir í Straumi-
Burðarási eiga samtals 81,8 prósent
hlutafjár. Smærri hluthafar fara með 18,2
prósent hlut.
Gangi spá greiningardeildar Lands-
bankans eftir verður tólf mánaða verð-
bólga í október 4,7 prósent, en hún var
4,8 prósent í september samkvæmt
Hagstofunni.
Spáð er um þriggja milljarða króna
tekjuhalla af afkomu sveitarfélaga árið
2006 segir í hálffimm fréttum KB banka.
Á sama tíma gerir fjármálaráðuneytið
ráð fyrir því að tekjuafgangur ríkissjóðs
verði um ellefu milljarðar.
18 8. október 2005 LAUGARDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 40,40 +0,75% ...
Bakkavör 42,00 -0,47% ... FL Group 13,90 -1,42% ... Flaga 3,00
+0,33% ... HB Grandi 9,25 +0,54% ... Íslandsbanki 14,45
+0,00% ... Jarðboranir 21,00 +0,00% ... KB banki 580,00
+0,00% ... Kögun 53,50 -1,29% ... Landsbankinn 21,20 -1,40%
... Marel 64,00 +0,00% ... SÍF 4,44 -0,67% ... Straumur 12,90 -
0,39% ... Össur 85,00 -0,59%
Mosaic +2,84%
Nýherji +0,76%
Actavis +0,75%
FL Group -1,42%
Landsbankinn -1,40%
Kögun -1,29%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Langtímavextir hækka
og fla› gæti leitt til
hærri vaxta á íbú›alán-
um.
Hækkun verðtryggðra langtíma-
vaxta gæti leitt til þess að Íbúða-
lánasjóður þyrfti að hækka vexti
íbúðalána úr 4,15 í 4,40 prósent.
Ástæðan er sú að þegar langtíma-
vextir hækka er dýrara fyrir sjóð-
in að fjármagna útlán sín til íbúð-
arkaupenda.
Verðtryggðir langtímavextir
hafa hækkað undanfarna daga og
allt frá því að Seðlabankinn til-
kynnti um ríflega vaxtahækkun
sína 29. september. Eru þeir nú
komnir upp í 3,8 prósent en voru
áður á bilinu 3,5 til 3,6 prósent.
Fjármagni Íbúðalánasjóður lán
sín á þessum kjörum og leggi á
0,60 prósent álag þarf hann að
hækka vexti fasteignalána í 4,40
prósent. Álagið á að standa undir
kostnaði vegna reksturs, vara-
sjóðs og uppgreiðsluáhættu.
Jóhann G. Jóhannsson, sér-
fræðingur hjá Íbúðalánasjóði,
segir að engin ákvörðun hafi ver-
ið tekin um að hækka vexti af
íbúðalánum. Þessi lýsing ætti
væntanlega við ef útboð á íbúðar-
bréfum færi fram í dag. Hins veg-
ar sé ekki öruggt hvernig þessi
mál þróist þegar á hólminn er
komið.
Ekki er ljóst hvort viðskipta-
bankarnir þurfi líka að hækka
vexti á sínum íbúðalánum. Það fer
eftir því hve góðan aðgang bank-
arnir hafa að fjármagni á hagstæð-
um kjörum. Skiptar skoðanir eru
um það. Hins vegar myndi einung-
is greiðslubyrði nýrra lána hækka
en ekki þeirra sem þegar hafa
verið tekin. Þó gætu vextir hús-
næðislána, sem eru endurskoðaðir
á fimm ára fresti, hækkað þegar að
endurskoðun kemur.
Ef framhald verður á því að
Íbúðalánasjóður fjármagni fast-
eignaveðlán Landsbankans og
SPRON má búast við að vextir
þeirra lána hækki um leið og Íbúða-
lánasjóðs. bjorgvin@frettabladid.is
DÝRIR FERMETRAR Fermetraverð á íbúðarhúsnæði hefur hækkað í miðbænum. Líkur
benda til þess að íbúðaverð lækki ef íbúðalán hækka að mati greiningardeildar KB
banka..
Líklegt að íbúðalán hækki
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
Yfirgefur Skandia
Stjórnarformaður Skandia, Bernt
Magnusson, hefur sagt sig úr
stjórn félagsins í kjölfar þess að
hann lenti, ásamt tveimur öðrum
stjórnarmönnum, í minnihluta
innan stjórnar þegar hún gaf út
álit sitt á yfirtökutilboði Old
Mutual í samsteypuna.
„Ég get ekki verið í forsvari
stjórnar þar sem uppi eru svo
ólíkar skoðanir eru í jafn mikil-
vægu máli,“ segir Magnusson í
viðtali við Dagens Industri.
Lennart Jeansson tekur við
stjórnarformennskunni en hann
leggst gegn áformum Old Mutual.
Ákvörðun Magnussonar er talin
styrkja stöðu andstæðinga til-
boðsins.
Straumur-Burðarás Fjárfest-
ingarbanki er meðal stærstu hlut-
hafa í Skandia og vill ganga að
boðinu. - eþa
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
BT-verslunarkeðjan áformar að
opna sína stærstu verslun innan
tíðar þegar hún færir sig úr nú-
verandi verslun í Smáralind í
stærra rými á neðri verslunar-
miðstöðvarinnar við hlið Deben-
hams. Heildarstærð nýju verslun-
arinnar er um 820 fermetrar að
flatarmáli.
Bjarni Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri BT, segir í tilkynn-
ingu frá félaginu að þetta sé
„nauðsynlegt skref sökum gríðar-
legrar söluaukningar í BT versl-
unum og ekki síst í Smáralind-
inni.“ Með nýrri verslun gefst
einnig tækifæri til að auka vöru-
úrval. - eþa
BT stækkar í Smáralind
N‡ ba›a›sta›a opnu›
og lóni› sjálft ver›ur sjö
flúsund fermetrar.
„Þetta verður í raun alveg nýtt
Blátt lón,“ segir Grímur Sæmund-
sen, framkvæmdastjóri Bláa lóns-
ins, en nú stendur til að stækka
búnings- og baðaðstöðu við lónið.
„Það er brýn nauðsyn að bæta úr
aðstöðu svo við getum veitt gest-
um okkar betri þjónustu og fengið
þá til að dvelja lengur.“
Húsnæði heilsulindarinnar
mun ríflega tvöfaldast, er nú
2.700 fermetrar en verður 5.700.
Einnig mun lónið sjálft stækka
um helming og verða sjö þúsund
fermetrar en nú er það fimm þús-
und fermetrar. Áætlaður kostnað-
ur verksins er 800 milljónir
króna.
Grímur segir að rúmbetra hús
geri þeim kleift að bjóða upp á
ýmsar nýjungar, sem of snemmt
sé að segja frá nú. Þjónustan
verði fjölbreyttari og fólk geti
upplifað nýja hluti í kringum lón-
ið. Ráðist sé í þetta verkefni nú
meðal annars til að mæta vaxandi
fjölda gesta.
„Það verður byrjað á jarðvegs-
framkvæmdum um áramótin,“
segir Grímur. „Við stefnum að því
að vera búin með stækkunina vor-
ið 2007. Það verður sérstaklega
vandað til verksins svo þetta
trufli ekki gesti okkar á meðan.
Þau verk sem geta truflað gesti
mikið verða framkvæmdar á nótt-
unni.“
Breytingar verða gerðar á veit-
ingasal og nýr 250 manna veislu-
salur tekinn í notkun. Þá verður
aukið rými undir verslun og skrif-
stofu- og starfsmannaaðstöðu.
– bg
SÆTASKIPTI Bernt Magnusson, til vinstri,
segir starfi sínu sem stjórnarformaður
Skandia lausu en við honum tekur Lennart
Jeansson, til hægri.
GREIÐSLUBYRÐI ÍBÚÐALÁNA
Mismunur á greiðslubyrði 30 ára íbúða-
lána miðað við 4,15 og 4,40 prósent
vexti. Miðað er við 2,5 prósent verðbólgu.
Lánsfjárhæð Hækkun Hækkun
1 milljón 219 kr. 2.619 kr.
10 milljónir 2.182 kr. 26.194 kr.
15 milljónir 3.274 kr. 26.194 kr.
20 milljónir 4.366 kr. 52.387 kr.
á mánuði á ári
Bláa lóni› tvöfaldast
TEIKNING AF NÝJA HÚSINU Til hægri á myndinni má sjá nýju álmuna sem mun rísa
við Bláa lónið og hýsa búnings- og baðaðstoðu.