Fréttablaðið - 08.10.2005, Qupperneq 53
LAUGARDAGUR 8. október 2005
GÓÐ ÞJÓNUSTA – GÓÐ VARA – GOTT VERÐ
Dugguvogi 10 • 104 Reykjavik
568 2020
Pitstop opnar á Íslandi
Í heimi akstursíþrótta merkir pitstop örstutt
pása. Ökumaðurinn fær tækifæri til að
anda á meðan bíllinn er yfirfarinn og skipt
er um dekk.
Nú hefur verið opnuð glæsileg Pitstop
dekkjaverslun og þjónustustöð að
Dugguvogi 10 í Reykjavík þar sem farið er
eftir sömu formúlu. Viðskiptavinirnir njóta
hvíldarinnar á Pitstop Café, glugga í blöðin
eða athuga tölvupóstinn og leyfa
krökkunum að dunda sér í leikhorninu.
Við sjáum um bílinn á meðan. Eftir
furðuskamman tíma eru bíll og
eigandi til í næsta hring.
Starfsfólk Pitstop er traustur
og samhentur hópur með mikla
sérþekkingu og reynslu.
Hjá Pitstop fer saman
góð þjónusta, frábær vara
og mjög gott verð.
Frábær opnunartilboð
BF
Go
odr
ich flíspeysa
Fylgir keyptum dekkjaga
ngi
un
di
r j
ep
pa
Pit
sto
p thermo-kanna
Fylgir keyptum
dekkjagangi u
ndi
r f
olk
sb
íl
fiarf a› klára verkefni›
HANDBOLTI Valur mætir í dag
Sjundea IF öðru sinni í Evrópu-
keppninni í handbolta en Valur
vann fyrri leikinn með sex marka
mun, 33-27, í Finnlandi. Óskar
Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, á
von á erfiðum leik, þar sem fyrri
leikurinn var jafnari en lokatöl-
urnar gefa til kynna.
„Við höfðum undirtökin í fyrri
leiknum lengst af en náðum ekki
að hrista Finnana af okkur fyrr en
undir lokin, en við unnum síðustu
fimm mínúturnar með fimm
mörkum gegn einu. Þó við höfum
unnið fyrri leikinnn með sex
marka mun er ekki þar með sagt
að við séum komnir áfram. Það
þarf að klára þetta verkefni og
það þurfa allir að vera einbeittir
allan leikinn og tilbúnir til þess að
leggja sitt af mörkum.“
Óskar segir það veikja finnska
liðið töluvert að vera ekki með
neina eiginlega hægri skyttu.
„Það er slæmt fyrir Finnana að
þurfa að spila með hornamann í
skyttuhlutverkinu og það mynd-
ast veikleikar í sóknarleik þeirra
út frá því.
En annars finnst mér við vera
með betri markverði og það skipt-
ir auðvitað miklu máli. Bæði Hlyn-
ur Jóhannesson og Pálmar Péturs-
son hafa verið að verja vel í leikj-
um okkar til þessa. En það eru
margir sterkir leikmenn hjá þessu
liði sem mega alls ekki fá tíma til
þess að ná góðum skotum að mark-
inu þannig að varnarleikurinn
verður að vera góður. Það er til-
hlökkun í mannskapnum og við
munum gera allt sem í okkar valdi
stendur til þess að tryggja Val
áframhaldandi þátttöku í Evrópu-
keppninni.“ magnush@frettabladid.is
SIGURÐUR EGGERTSSON Sigurður hefur leikið vel með Valsliðinu það sem af er tímabili og á
örugglega eftir að láta mikið að sér kveða í dag.
Óskar Bjarni Óskarsson, fljálfari Vals, á von á virki-
lega erfi›um leik í dag flegar Valur mætir Sjundea.