Fréttablaðið - 08.10.2005, Síða 54
LEIKIR GÆRDAGSINS
Áskorendakeppni Evrópu:
STJARNAN–ANADOLU UNIVERSITY 39–34
Mörk Stjörnunnar: Sólveig Kjærnested 12, Jóna
M. Ragnard. 8/1, Kristín Clausen 6, Rakel Dögg
Bragad. 5/2, Elzbieta Kowal 3, Hind Hannesd. 3,
Elísabet Gunnarsd. 1, Harpa Eyjólfsd. 1.
Varin skot: Jelena Jovanovic 17/1.
DHL-deild karla:
FYLKIR–AFTURELDING 26–26
Mörk Fylkis: Arnar Agnarsson 7, Heimir Árnason
6, Ingólfur Axelsson 5, Eymar Kruger 4, Ásbjörn
Stefánss. 2, Arnar Sæþórss. 1, Guðlaugur Arnarss. 1.
Mörk Aftureldingar: Ernir H. Arnarsson 9, Aleks
Kuzmins 4, Vlad Troufan 3, Hilmar Stefánsson 3,
Einar Ingi Hrafnsson 2, Hrafn Ingvarsson 2,
Haukur Sigurvinsson 2, Magnús Einarsson 1.
ÞÓR AK.–ÍR 33–33
Mörk Þórs: Rúnar Sigtrygsson 8, Arnar Þór
Gunnarsson 6, Aigars Lazdins 6, Heiðar Þór
Aðalsteinsson 4, Elfar Alfreðsson 4, Brendan
Þorvaldsson 3, Atli Ingólfsson 1, Sindri Viðarss. 1.
Mörk ÍR: Ólafur Sigurjónsson 9, Ragnar Helgason
6, Andri Már Númason 6, Hafsteinn Ingason 5,
Björgvin Hólmgeirsson 3, Tryggvi Haraldsson 2,
Ísleifur Sigurðsson 1, Leifur Jóhannesson 1.
SELFOSS–HK 33–29
Mörk Selfoss: Ramunas Mikalonis 7, Ívar
Grétarsson 7, Vladimir Duric 6, Hörður Bjarnason
4, Einar Jónsson 3, Gylfi Ágústsson 3, Almar
Ólafsson 2, Karl Larsen 1.
Varin skot: Sebastian Alexandersson 20/2.
Mörk HK: Elías Már Halldórsson 7, Valdimar
Þórsson 7, Gunnar S. Jónsson 3, Jón H.
Gunnarsson 3, Remigijus Cepulis 3, Ólafur
Ragnarsson 2, Ivan Jovanovic 2, Brynjar
Valsteinsson 1, Hákon Bridde 1.
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 18.
SS-bikarkeppni karla:
HK 2–FRAM 20–32
LEIFTRI–FH ELÍTAN 23–29
Aganefnd KSÍ dæmdi sjö leikmenn 2. flokks Víkings í keppnisbann:
FÓTBOLTI Aganefnd KSÍ dæmdi í
gær Vilmund Sveinsson, leik-
mann í 2. flokki Víkings, í rétt
tæplega tíu mánaða keppnisbann
fyrir að leggja hendur á dómara
í leik gegn KA 17. september síð-
astliðinn. Auk þessa voru sex
aðrir leikmenn dæmdir í leik-
bann af aganefndinni, fimm voru
dæmdir í tveggja leikja bann og
einn í þriggja leikja bann. Alls
fengu sjö leikmenn Víkings rautt
í leiknum. Auk þess var knatt-
spyrnudeild Víkings sektuð um
25.000 kr. Þetta er einhver
þyngsta refsing sem aganefnd
KSÍ hefur kveðið upp hjá einu og
sama liðinu.
Víkingur og KA leik til úrslita
um sæti í B-deild Íslandsmóts-
ins. KA vann fyrri leikinn á Ak-
ureyri 3-0 en Víkingur vann
seinni leikinn í Reykjavík 2-0 og
KA-menn komust því áfram. Eft-
ir leikinn gerðu leikmenn Vík-
ings aðsúg að dómaranum þar
sem þeim fannst mjög hallað á
sig í dómgæslunni en dómarinn
dæmdi til að mynda tvö mörk af
Víkingi. Sá sem fékk þyngstu
refsinguna hjá aganefnd KSÍ var
í reynd dæmdur fyrir líkams-
árás. Dómarinn gaf fimm af sjö
rauðum spjöldum eftir að leikn-
um lauk. KSÍ tilnefndi dómarann
á leikinn.
Víkingum þykir þessi uppá-
koma miður en segjast aldrei
hafa orðið vitni að annarri eins
dómgæslu.
„Ég tel þetta vel sloppið mið-
að við hvað dómarinn gefur
þessu skelfilega lýsingu í
skýrslu sinni. Við verðum að
kyngja þessu eins og hverju öðru
hundsbiti. Það er ekkert sem af-
sakar þetta en dómgæslan var
skrautleg. Það versta er að tveir
leikmenn sem fengu rautt komu
ekki nálægt þessari uppákomu í
leikslok,“ sagði Kristján Jóns-
son, þjálfari 2. flokks Víkings,
við Fréttablaðið.
- þg
Í bann fyrir a› rá›ast á dómara
FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson horfði
upp á sína menn tapa fyrsta
heimaleik Notts County síðan í
apríl síðastliðnum er liðið tapaði
fyrir Boston United, 2–1. Leikur-
inn var æsilegur, fyrsta markið
kom eftir aðeins 25 sekúndur og
sjálfsmark á tíundu mínútu
þýddi að heimamenn voru tveim-
ur mörkum undir. Tveir gest-
anna fengu að líta rauða spjaldið
á síðustu mínútum leiksins og
tókst lærisveinum Guðjóns þá að
klóra í bakkann. Notts County er
nú í tíunda sæti með átján stig
eftir þrettán leiki. -esá
Fyrsta heimatap Notts County
8. október 2005 FIMMTUDAGUR
HEI‹URSGESTUR
Kerry Dixon, fyrrverandi leikma›ur Chelsea og næstmarkahæsti
leikma›ur í sögu li›sins mætir á svæ›i› kl. 17. Dixon er einn
a›alsérfræ›ingurinn á ChelseaTV og mun halda erindi um enska
boltann. Fjölmi›lar hafa fjalla› miki› um flann bolta sem leikinn
er á Englandi í dag og mun Dixon me›al annars ræ›a flessa
hluti og opna sömulei›is fyrir umræ›ur og svara spurningum.
Allir fótboltaáhugamenn eru hvattir til a› mæta.
Fótbolti www.icelandexpress.is/fotbolti
LAUGARDAGINN 8. OKTÓBER
FRÁ KL.16–19, GRAND HÓTEL
CHELSEA
SAMEINI‹ ÁSTRÍ‹UNA OG
FER‹ALAGI‹ ME‹ ICELAND EXPRESS
Vi› skiljum a› fótbolti er ekki bara áhugamál flitt heldur brennheit
ástrí›a. fiess vegna b‡›ur Iceland Express ver› á boltafer›um
sem aldrei hefur sést á›ur á Íslandi ... bara fyrir flig!
Iceland Express og Chelsea klúbburinn á Íslandi
blása til Chelsea veislu sem haldin ver›ur á
Grand Hótel, laugardaginn 8. október milli
kl. 16 og 19.
Fulltrúar frá Chelsea–fótboltaklúbbnum mæta
til landsins og kynna li›i› og Chelsea–hóteli›.
Allir velkomnir og í bo›i ver›a veitingar, leikir
og ‡msar gjafir fyrir börnin, t.d. húfur, treflar ofl.
England – Austurríki ver›ur s‡ndur í beinni á
sta›num.
VEISLA
www.icelandexpress.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fer›afljónusta Iceland Express, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 500 600
Dýrmæt heimadómgæsla
Norska dómarapari› spila›i stórt hlutverk í annars slökum leik Stjörnunnar
og tyrkneska li›sins Anadolu University. Stjarnan vann, 39–34.
HANDBOLTI Stjörnustúlkur léku
sinn fyrsta leik í Áskorenda-
keppni Evrópu er þær tóku á móti
tyrkneska liðinu Anadolu Uni-
versity. Bæði lið hafa eflaust
rennt blint í sjóinn hvað varðar
styrkleika andstæðings síns en af
frammistöðu liðanna að dæma í
gær var sá munur ekki sjáanlega
mikill. Þess í stað geta Stjörnu-
stúlkur þakkað norsku dómara-
pari fyrir sigurinn. Liðin mætast
aftur á sama stað á sunnudag og
taldist þessi leikur heimaleikur
Stjörnunnar.
Eins og úrslit leiksins gefa til
kynna voru varnarleikur og mark-
varsla ekki hátt skrifuð í leiknum.
Það var helst að Jelena Jovanovic
varði nokkrum sinnum vel síðasta
korter leiksins en annars eiga
áhorfendur að venjast mun betri
frammistöðu af hennar hálfu. Lið-
in skiptust á að vera í forystu og
leiddu gestirnir í hálfleik með
einu marki, 19–18.
Þegar átta mínútur voru til
leiksloka leiddi Stjarnan með
tveimur mörkum og gerði þá
Harpa Sif Eyjólfsdóttir sig seka
um afar gróft brott er hún hindr-
aði leikmann tyrkneska liðsins í
uppstökki með þeim afleiðingum
að hún lenti afar illa. Hún hefði
átt að fá krossinn – án nokkurs
vafa – en fékk þess í stað aðeins
rautt spjald. Nokkrum mínútum
síðar gerðist sams konar atvik
hinum megin á vellinum nema að
nú reyndi tyrkneski varnarmað-
urinn að leika vörn í stað þess að
stofna heilsu andstæðingsins í
hættu. Hún fékk engu að síður
rautt. Óskiljanlegur dómur.
Stjörnustúlkur gengu á lagið
og juku forskotið síðustu mínút-
urnar. Sá munur gæti reynst dýr-
mætur þegar upp verður staðið en
hafa ber í huga að tyrknesku leik-
mennirnir eru nú reynslunni rík-
ari og munu sjálfsagt gera harða
atlögu að sex marka sigri á sunnu-
dag.
eirikurst@frettabladid.is
Þrír leikir í DHL-deild karla fóru fram í gærkvöldi:
Selfoss vann gó›an sigur á HK
HANDBOLTI Þrír leikir fóru fram í
DHL-deild karla í gærkvöldi.
Jafntefli var niðurstaðan í tveim-
ur þeirra, leikjum Fylkis og Aftur-
eldingar annars vegar og Þórs og
ÍR hins vegar. En óvæntustu úrslit
kvöldsins voru klárlega á Selfossi
þar sem heimamenn unnu frábær-
an sigur á HK, 32–29.
„Sjálfsagt teljast þetta óvænt
úrslit en allt undirbúningstímabil-
ið höfum við verið að einbeita
okkur að því að byggja upp sjálfs-
traust og baráttu,“ sagði Sebasti-
an Alexandersson, þjálfari Sel-
foss, eftir leikinn. „Við bætum
okkur á hverjum degi og er aðal-
atriðið að hafa gaman af þessu.“
HK-ingar leiddu í hálfleik með
þremur mörkum en Selfyssingar
hættu aldrei og uppskáru ríkulega
í lokin. - esá
TÓLF MÖRK Sólveig Lára Kjærnested, maður leiksins í gær, skorar hér eitt af tólf mörkum sínum í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SKOT AÐ MARKI Heimir Örn Árnason Fylkismaður tekur skot að marki Aftureldingar en
þeir Aleks Kuzmins og Einar Hrafn Arnarsson eru til varnar. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
54-55 (38-39) Sport seinni 7.10.2005 22:38 Page 2