Fréttablaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 MARKAÐURINN4
F R É T T I R
Velta á fasteignamarkaði á höf-
uðborgarsvæðinu var 56,3 millj-
arðar króna á þriðja ársfjórð-
ungi samkvæmt tölum frá Fast-
eignamati ríkisins og dróst sam-
an um tvö prósent frá öðrum
ársfjórðungi. Hins vegar jókst
velta um 41 prósent frá sama
tímabili í fyrra.
Meðalupphæð á hvern kaup-
samning var 23,5 milljónir
króna.
Fjöldi kaupsamninga dróst
einnig saman á milli fjórðunga.
Á þriðja ársfjórðungi var 2.397
kaupsamningi þinglýst en 2.429
á öðrum ársfjórðungi. - eþa
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Erlendir fjárfestar þiggja í raun ókeypis hádegis-
verð á íslenskum skuldabréfamarkaði, segir Ásgeir
Jónsson, hagfræðingur á greiningardeild KB
banka. Þeir nýti sér mikinn vaxtamun við útlönd
um leið og verðbólgumarkmið Seðlabankans setji
höft á gengi krónunnar næstu sex til tólf mánuði.
Það lágmarki gengisáhættu fjárfestanna.
Hann segir ekki útlit fyrir að verðbólguþrýsting-
ur gangi hratt niður á þessu tímabili og á meðan
haldi Seðlabankinn stýrivöxtunum háum. Sam-
kvæmt því sem hafi komið fram við síðustu vaxta-
hækkun í lok september muni bankinn ekki leyfa
krónunni að veikjast hratt með tilheyrandi verð-
bólguskoti. Þetta þýði í raun að Seðlabankinn sé
kominn nálægt einhvers konar fastgengismarkmiði
þar sem hann verði að halda genginu háu. Það séu
því töluverðir möguleikir fyrir erlenda fjárfesta að
hagnast á þessum viðskiptum án þess að taka mikla
áhættu og í því ljósi muni erlend skuldabréfaútgáfa
í íslenskum krónum halda áfram.
Þegar horft er á þróun óverðtryggðra vaxta fóru
þeir niður eftir að erlenda skuldabréfaútgáfan
hófst. Þeir hækkuðu á nýjan leik þegar Seðlabank-
inn hækkaði stýrivexti sína óvænt meira en spáð
var. Ásgeir segir hins vegar að óverðtryggðir vext-
ir geti haldið áfram að lækka haldi útgáfan áfram.
Sú þróun geti komið í veg fyrir að vaxtahækkanir
Seðlabankans hafi tilætluð áhrif á ávöxtunarkröfu
styttri skuldabréfa.
Í fyrradag var búið að gefa út erlend skuldabréf
í íslenskum krónum fyrir áttatíu milljarða króna á
sex vikum. Erlendir fjárfestar kaupa bréfin af út-
gefanda og taka gengisáhættu í krónum en fá í stað-
inn háa vexti á sitt fjármagn þar sem vaxtamunur
er um þessar mundir í kringum 7,7 prósent. Eru það
háir vextir miðað við vexti í helstu nágrannalönd-
um okkar.
„Framvindan á þessari erlendu skuldabréfa-
útgáfu í íslenskum krónum ræðst töluvert af verð-
bólguþróun næstu mánuði,“ segir Ásgeir. Fátt ann-
að virðist geta stöðvað þessa útgáfu en vaxtalækk-
un Seðlabankans, veruleg lækkun nafnvaxtakröf-
unnar hérlendis eða ótti við gengisfall.
Ásgeir segir þetta hafa tvenns konar áhrif á ís-
lenskan fjármálamarkað. Annars vegar hækki
gengi krónunnar og hins vegar lækki skammtíma-
vextir þvert á vaxtahækkanir Seðlabanka Íslands.
Þó bendi margt til að áhrifin séu ekki að fullu kom-
in fram. Það geti sérstaklega átt við áhrifin í gegn-
um bankakerfið.
Græða á vaxtamuninum
Útlit er fyrir að erlendir fjárfestar haldi áfram að kaupa
skuldabréf í íslenskum krónum.
Breytingar hafa orðið á hluthafa-
hópi hjá Reykjalundi-plastiðnaði.
Haukur Þór Hauksson, sem
leiddi hóp fjárfesta sem keyptu
félagið af SÍBS í maí árið 2004,
hefur látið af störfum sem fram-
kvæmdastjóri og jafnframt selt
fimmtungshlut sinn í félaginu til
meðeigenda sinna.
Meðal hluthafa eru Valdimar
Gíslason og OSN lagnir í Kefla-
vík auk einstaklinga sem starfa
hjá fyrirtækinu.
„Gríðarlegur umsnúningur
hefur verið í rekstri félagsins
og var hagnaður á fyrstu sex
mánuðum þessa árs og lítur út
fyrir að allar áætlanir stand-
ist,“ segir Haukur Þór. Áætluð
velta Reykjalundar-plastiðnað-
ar á þessu ári er um 550-600
milljónir króna. Félagið fram-
leiðir meðal annars lagnir og
rör fyrir lagnaiðnaðinn og um-
búðir fyrir umbúðaiðnaðinn.
„Við erum búnir að eyða einu
og hálfu ári í það að snúa rekstri
félagsins við. Eftir breytingarn-
ar hafði ég áhuga á að selja minn
hlut og niðurstaðan varð að aðrir
hluthafar keyptu mig út.“
Við starfi Hauks Þórs tekur
Hlöðver Hlöðversson aðstoðar-
framkvæmdastjóri. - eþa
ÁSGEIR JÓNSSON Seðlabankinn fylgir einhvers konar fastgengis-
markmiði í núverandi stöðu.
M
ar
ka
ðu
rin
n/
E.
Ó
L
Breytingar hjá Reykjalundi
Mikill umsnúningur í rekstrinum.
HAUKUR ÞÓR HAUKSSON Lætur af
störfum sem framkvæmdastjóri Reykja-
lundar-plastiðnaðar og selur hlut sinn.
SÍF fær nýtt nafn
„Rekstur félagsins er í þeim
farvegi sem stefnt var að,“
sagði Ólafur Ólafsson,
stjórnarformaður SÍF, á að-
alfundi fyrirtækisins. Þetta
var annar aðalfundur SÍF á
árinu en félagið breytti
reikningsskilum sínum um
mitt ár og lauk síðasta
rekstrarári í lok júní.
Miklar breytingar hafa
orðið á SÍF-samstæðunni
undanfarin misseri, þunga-
miðja starfseminnar hefur færst til Evrópu og til marks um það
vinna aðeins sjö starfsmenn af 3.700 á Íslandi. Í máli Ólafs kom
fram að unnið væri að því að gefa félaginu nýtt nafn.
Rekstur félagsins var undir væntingum á síðasta rekstrarári,
einkum vegna hás afurðaverðs á laxi sem rauk upp úr öllu valdi
þegar Evrópusambandið setti refsitolla á norskan lax. Rekstrar-
horfur eru þó góðar fyrir fjórða ársfjórðung en falla og standa
með jólasölunni. Rekstur frystiafurða er erfiður og sagði Ólafur
að það væri eðlilegt að endurskoða aðkomu félagsins að þeirri
starfsemi. – eþa
ÓLAFUR ÓLAFSSON OG JAKOB SIGURÐS-
SON SÍF fær nýtt nafn á næstunni í tengslum við
miklar skipulagsbreytingar.
Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software hefur fest kaup
á hollenska hugbúnaðarfyrirtækinu Falcon Atomat-
isering og styrkir þar með stöðu sína í Evrópu. Hol-
lenska félagið sérhæfir sig í framleiðslu og sölu hug-
búnaðarlausna fyrir heilbrigðisgeirann og eru kerfi
þess í notkun hjá helmingi hollenskra sjúkrahúsa.
„Við erum búnir að vera þessum markaði í heil-
brigðislausnum síðan 2001 og með eigin vöru sem
hefur gengið vel og kallast Theriak. Eftir að hafa
kynnst markaðnum betur sáum við aðrar vörur sem
styðja við okkar vöru og sameinaðar verða þær sterk-
ari. Falcon var einmitt með slíka vöru. Kaupin voru til
að styrkja okkar vöruframboð,“ segir Axel Ómarsson,
framkvæmdastjóri TM Software í Evrópu.
Axel segir að félagið hafi fjárfest mikið á þessum
markaði og ætli sér enn stærri markaðsstöðu. Félag-
ið starfi mikið í fjórum löndum, Danmörku,
Hollandi, Íslandi og Þýskalandi, með sínar heilbrigð-
islausnir.
Kaupverð fékkst ekki uppgefið. - eþa
Kaupir hol-
lenskt fyrirtæki
KAUPIN FRÁGENGIN TM Software hefur fest kaup á hollenska
hugbúnaðarfyrirtækinu Falcon og nær sterkri stöðu innan hollenska
heilbrigðisgeirans.
Fasteignavelta
dróst saman
FASTEIGNAMARKAÐUR STENDUR Í
STAÐ Bæði velta og fjöldi þinglýstra kaup-
samninga drógust saman á þriðja ársfjórð-
ungi frá öðrum fjórðungi.