Fréttablaðið - 12.10.2005, Síða 24
Súmósamlokurisinn
Strax og að fréttist af mögu-
legri sameiningu stærstu sam-
lokufyrirtækjanna Júmbó og
Sóma fóru gárungarnir á stjá að
leita að nafni á fyrirtækið. Nið-
urstaðan var Súmó, sem visar
til hinna íturvöxnu glímukappa
Japana sem eftir vaxtarlaginu
væru sjálfsagt góður markhóp-
ur fyrir samlokufyrirtæki.
Deildar meiningar eru hins
vegar um það hvort samlegðar-
áhrif af sameiningu fyrirtækj-
anna muni birtast í betri og
ódýrari vöru. Samkvæmt skóla-
bókinni er fákeppni á samloku-
markaði líklegri til þess að leiða
af sér færri rækjur, meira mæj-
ónes og hærra verð. Um slíkt
hafa verið skrifaðar lærðar
langlokur Það er þó háð innræti
og stefnu þeirra sem munu
halda um smjörhnífinn hvernig
Súmósamlokurnar verða úti-
látnar í framtíðinni.
Nafn og kennitala
Svo haldið sé í japanskar hefðir
má orða það svo að manna-
nafnanefnd hafi framið harakíri
eftir að hafa samþykkt með
semingi kvenmannsnafnið Ele-
onora. Eleonora beygist eins og
hóra og fellur því vel að ís-
lensku beygingakerfi. Sama má
segja um kvenmannsnafnið
Ebidta sem einnig fellur vel að
beygingakerfinu. Miðað við vin-
sældir EBIDTU í mælikvarða á
rekstrarárangur sætir það
nokkurri furðu að enginn sé bú-
inn að sækja um nafnið hjá
mannanafnanefnd. Einnig
mætti hugsa sér karlmanns-
nafnið Ebidtar sem beygist eins
og Fannar. Það er reyndar ekki
eins vinsæl kennitala, en þykir
vel nothæf við árangursmæling-
ar í rekstri flugfélaga.
Undanfarar
á markaði
Talandi um flugfélög þá er sú
kenning lífseig á markaðnum að
Pálmi Haraldsson hafi keypt
Sterling og Mærsk sem undan-
fari fyrir kaup Flugleiða. Þeir
sem styðja kenninguna eru
sannfærðir um að Pálmi hafi
gegnt þessu hlutverki fyrir
Haga með kaupum á Skeljungi.
Einhverjir hafa verið að rifja
það upp að Vilhjálmur Bjarna-
son hafi óskað bókunar á því á
stjórnarfundi Kauphallarinnar
að Baugur ætti hlut Kaupþings í
Skeljungi hérna um árið. Bókun-
inni var hafnað og mótmælti
Ingólfur Helgason, núverandi
forstjóri KB banka á Íslandi,
þessum aðdróttunum harðlega.
Vilhjálmur rifjaði upp þessa
bókunarbeiðni á fundi Kauphall-
arinnar nýverið. Ingólfur var þá
aftur viðstaddur en hreyfði eng-
um mótmælum í þetta sinnið.
7,7% 5% 100Nafnvaxtamunur Íslands við útlönd. Hlutur Landsbankans í Íslandsbanka. Fyrirtæki hafa gefið út skuldabréf fyrirrúma 100 milljarða króna á árinu.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
410 4000 | www.landsbanki.is
B2B | Banki til bókhalds
Betri þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina og lánardrottna
Fyrirtækjabanki
B A N K A H Ó L F I Ð