Fréttablaðið - 27.10.2005, Qupperneq 42
Flott jólaföt
á stráka og stelpur
stærðir 0-14 ára
Opið mán-fös 10-18 Laug 10-16
Laugavegi 51 • s: 552 2201
2 ■■■■ { barnablaðið }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Staður fyrir foreldra og börn að
upplifa eitthvað skemmtilegt saman
„Við bjuggum í Danmörku og
eftir að við fluttum heim fannst
okkur allt snúast dálítið mikið um
lífsgæðakapphlaupið,“ segir
Júlíus. „Við vorum líka búin að
vera að leita að einhverju svona
fyrir son okkar sem er fjögurra
ára en fundum eitthvað lítið.“ Þau
ákváðu því að bæta úr þessari
þörf og fóru af stað með Leikhöll-
ina. „Leikhöllin er fyrir krakka
sem eru sex ára og yngri og við
erum með námskeið í myndlist,
tónlist og hreyfingu,“ segir Júlíus.
Þau eru reyndar að hugsa um að
bæta við myndlistarnámskeiðum
fyrir sex til níu ára í þessum mán-
uði eða næsta. „Svo bjóðum við
einnig upp á ungbarnanudd,
meðgöngujóga og mömmuleik-
fimi. Mömmuleikfimin er fyrir
mæður sem vilja koma sér í form
en vilja ekki fara á stórar líkams-
ræktarstöðvar. Hér eru þær útaf
fyrir sig og bara fáar í einu með
þolfimikennara,“ segir hann.
Júlíus segir að þau hafi opnað
Leikhöllina í síðustu viku, þriðju-
daginn 18. október. „Við erum
búin að vera með prufunámskeið
bæði í síðustu viku og í þessari.
Það er margt sem er nýtt í þessu
þannig að við höfum ekki verið
með fulla tíma heldur verið að
prófa kennarana áfram og fá smá
reynslu á þetta.“ Hann segir að
það hafi bara gengið mjög vel.
„Prufunámskeiðin klárast núna í
þessari viku og mánaðarnám-
skeiðin hefjast 31. október. Fólk
getur bara hringt eða sent okkur
tölvupóst og skráð börnin sín á
námskeið hjá okkur,“ segir Júlíus.
Hvert námskeið er einu sinni í
viku í 4 vikur og hver tími er í 45
mínútur. Foreldrarnir eru með
börnunum í tímunum og taka
fullan þátt í öllu sem fram fer.
„Okkur langaði til að búa til stað
þar sem foreldrar og börn eru að
upplifa eitthvað skemmtilegt
saman.“
Helena Hólm rekur hár-
greiðslustofuna
Stubbalubbar í Grafarvogi.
Hún hefur þurft að snyrta
margan barnakollinn og
veit hvernig best er að
hirða um hár yngri kyn-
slóðarinnar.
„Grunnreglan með ungabörn er að
það á ekki að nota sjampó í hárið á
þeim,“ segir Helena. Hún segir að
þangað til að þau fari að hreyfa sig
mikið sé heldur engin þörf á því.
„Lítil börn fá stundum skán í hár-
svörðinn og hana er hægt að fjar-
lægja með ólífuolíu eða bómolíu
sem fæst í apótekum.“ Helena seg-
ir að það sé nauðsynlegt að fjar-
lægja skánina því að það sé ekki
gott fyrir hársvörðinn að láta hana
vera. „Þegar börnin eldast og farið
er að nota sápu í hárið á þeim er
mjög mikilvægt að skola hana vel
úr því að oft myndast skán ef hár-
ið er ekki skolað nógu vel.“
Helena segir að það sé mjög gott
að nota hárnæringu í hárið á stelp-
um og strákum sem eru að safna
hári. „Hárnæringin ver hárið gagn-
vart utanaðkomandi áhrifum. Það
er líka gott að nota hreinsisjampó
þegar börn fara mikið í sund til
þess að ná klórnum úr því að hann
skemmir hárið.“
Hún mælir auk þess með því að
keypt sé flækjusprey fyrir börn af
báðum kynjum með sítt hár. „Það
má ekki gleyma því að strákar
með sítt hár þurfa alveg sömu
hármeðhöndlun og stelpur með
sítt hár.“ Helena segir að í dag sé
orðið mjög mikið úrval af hárvör-
um fyrir börn. „Ég myndi mæla
með því að fólk notaði þessar vör-
ur,“ segir hún en bætir því við, að
ef börn séu mjög góð í sturtu og
engin hætta á að neitt fari í aug-
un á þeim megi þau alveg nota
sömu hárvörur og foreldrarnir.
„Allt sem að þú getur notað í þig
geturðu notað í barnið þitt.“ Hel-
ena tekur þó fram að þetta gildi
ekki þegar notaðar eru hárvörur
sem eru sérstaklega fyrir litað hár.
Helena segir að hárið á barni á
leikskólaaldri sé best að þvo svona
tvisvar til þrisvar í viku. Það sé
líka best að láta klippa það að
minnsta kosti á sex til tíu vikna
fresti. „Þau þurfa náttúrlega sína
umhirðu eins og við til þess að
hárið haldist fallegt.“
BÖRN SEM SOFNA MEÐ
PELANN.
Börn eiga aldrei að sofna með
pela með mjólk eða djús. Það
getur valdið tannskemmdum.
Þegar barnið sofnar, minnkar
munnvatnsmyndun og sykur-
inn í mjólkinni eða djúsnum á
auðveldara með að komast að
tönnunum og valda skemmd-
um. Ef barnið þitt er háð því að
fá pelann, skaltu minnka
skammtinn smám saman og
jafnvel þynna með vatni. Barn-
ið venst því smám saman að
drekka vatn, og missir jafnvel
áhugann á pelanum.
Mjólkin þynnt út Strákar með sítt hár þurfa sömu
hármeðhöndlun og stelpur með sítt hár
Helena Hólm rekur hárgreiðslustofuna Stubbalubba sem er sérstaklega fyrir börn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Leikhöllin býður upp á skemmtileg nám-
skeið fyrir börn sem eru sex ára og yngri.
Hrönn Óskarsdóttir og Júlíus Hafstein opnuðu nýverið Leikhöllina.
Umhverfið tekur mið af þörfum barna.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í Bæjarlind í Kópavogi opnaði nýlega lista- og leikjamið-
stöð fyrir börn sem ber nafnið Leikhöllin. Það eru hjón-
in Júlíus Hafstein og Hrönn Óskarsdóttir sem eiga Leik-
höllina og reka hana.