Fréttablaðið - 27.10.2005, Blaðsíða 52
SÝNT Í BO
RGARLEIK
HÚSINU
Fjörug og skemmtileg sýning og víst er
að börnin eiga eftir að elska Kalla.
Fréttablaðið.
Uppátækin, krafturinn og
stríðnisglampinn i augunum
eru eiginleikar sem Sveppi á
sannalega auðvelt með að
koma til skila.
Morgunblaðið.
Gargandi gleði og bráðfallegur
leikur hjá Sigurbirni Ara
í hlutverki Bróa.
DV.
Skemmtilegasta leikrit sem ég hef séð!
Ingvar Brynjarsson, 9 ára.
Pabba fannst líka rosalega gaman og hló
mjög hátt þegar að Kalli var að skellibralla!
Erna Lína Baldvinsdóttir, 7 ára.
Ég vil fara aftur að sjá Kalla á þakinu!
Karlotta Óskarsdóttir, 3 ára.
12 ■■■■ { barnablaðið }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Veggfóður og efni í stíl
Barnaherbergi eiga að vera notalegar vistarverur. Líflegar gardínur og veggfóður í stíl
gera hvert barnaherbergi afar huggulegt.
Miklu máli skiptir að börnum líði vel
í herberginu sínu. Þegar foreldrar út-
búa það og hanna þá er gott að hafa
í huga að gera herbergið sem nota-
legast. Og auðvitað er skemmtilegt að
hafa það fallegt líka. Það setur falleg-
an svip á barnaherbergið ef gardínur
eru vel valdar og veggir málaðir í stíl.
Góð hugmynd er einnig að veggfóðra
einn vegg eða fleiri í herberginu með
líflegu mynstri. Designers Guild
framleiðir mikið af fallegum gardínu-
efnum og veggfóðri, eða veggfóðurs-
borðum í stíl.
Verslunin Vefur í Garðabæ er
með umboð fyrir Designer Guild
vörurnar. Þar er hægt að fletta fal-
legum möppum sem sýna úrval efna
og veggfóðurs fyrir barnaherbergið.
Ýmsir litir og mynstur standa til
boða en klassískir litir eins og bleik-
ur og blár eru alltaf vinsælir í barna-
herbergið.
Maríus er búinn að lesa
Litla græna hattinn
Maríus Pétur Lund er nemandi í Ísaksskóla og hefur
gaman af því að fara með ömmu sinni í Perluna
þegar hann er ekki í skólanum.
„Ég er í 5 ára H,“ segir Maríus Pétur þegar hann er spurður í hvaða
bekk hann sé. Maríus segir að það sé svolítið langt síðan hann byrj-
aði í skólanum og þá hafi verið sumar.
Maríus er farinn að lesa aðeins. „Ég er búinn að læra að lesa tvær
bækur en ég man ekki hvað þær heita. Jú, það var Litli græni hattur-
inn og Litla bláa kannan, þarna man ég
það,“ segir Hann. Maríus segist líka vera
farinn að skrifa aðeins. „Ég kunni að
skrifa nafnið mitt þegar ég var ennþá á
leikskólanum.“ Maríus segir að þau
teikni mikið í skólanum og honum finnst
það gaman. Svo fara þau stundum út að
leika sér sem honum finnst líka gaman.
Þegar Maríus er ekki í skólanum finnst
honum skemmtilegast að fara í Perluna.
„Við kaupum ís og sleikjó í Perlunni með
ömmu. En það er langt síðan ég fór með
ömmu Dagnýju. Það eru svona hundrað
dagar,“ segir hann. Maríus ætlar að
vinna hjá Héðni þegar hann verður stór.
„Þar er unnið mjög mikið og pabbi minn
vinnur þar.“
Maríus Pétur Lund er nýbyrjaður í
skóla og unir sér vel. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Herralegar gardínur fyrir strákana, veggfóð-
ur og veggfóðursborði í stíl.
Sætt og bleikt í stelpuherbergið, gardínur,
veggfóðursborði og veggfóður.
skólabörn }