Tíminn - 22.01.1976, Qupperneq 16
fyrirgóöan niai
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
^.............. ' ^
Þung viðurlög í Belgíu:
Fimm ára fanqelsi
oa 40 milliónir fvrir
kartöfluhamstur
Reuter/Brussel — Belgíska
stjórnin staöfesti á ný reglur, sem
í gildi voru I seinni heimsstyrjöld-
inni.en iög þessi leggja banna við
þvi að hamstra kartöflur, og eru
viðurlög viö broti gegn reglum
þessum fimm ára fangelsisvist og
40 milljón franka fésekt.
Taka reglur þessar aðallega til
framleiðenda kartaflna og þeirra,
er með öðrum hætti annast út-
hlutun þeirra, og erþeim bannað
að neita að selja eða afhenda kar-
töflur. Mikill kartöfluskortur hef-
ur gert vart við sig i Belgiu, og
reyndar i allri Vestur-Evrópu,
eins og skýrt hefur verið frá hér i
blaðinu. Hefur af þessum sökum
gripiðum sig mikið kartöflukaup-
æði i Belgiu.
Stjórnin i Belgiu hefur tilkynnt
verðstöðvun á kartöflum, og er
verð pr. kiló bundiðvið lOfranka.
Þá hefur verið tilkynnt af hálfu
stjörnarinnar, að útflutningur
kartaflna frá landinu verði veru-
lega takmarkaður.
Margar verzlanir eru þegar á
þotum með kartöflubirgðir sinar,
og sums staðar hefur verið gripið
til viðtækra skammtana, þannig
að hver kaupandi fær ekki að
kaupa meira en fimm kiló hverju
sinni.
Framleiðsla kartaflna i löndum
Efnahagsbandalags Evrópu var
20% undir meðalframleiðslu á
siðasta ári.
Líbanon:
Damour á valdi vinstri
AAannránið í París:
Nánasti samstarfs
maðurinn reyndist
versti óvinurinn
Reuter/Paris — Framkvæmda-
stjóra hljómplötufyrirtækis eins
var rænt að kvöldi nýársdags og
15 milljóna franka krafizt i
lausnargjald fyrir hann. Lög-
reglan fann manninn fjötraðan I
eldhússkáp á bóndabæ einum
suður af Paris 7. janúar.
Ránið varð með þeim hætti,
að sex menn ruddust inn i
fundaherbergi fyrirtækisins,
þar sem eigandinn og fjármála-
framkvæmdastjórinn sátu á
fundi. Fjármálaframkvæmda-
stjóranum var sleppt eftir
nokkrar minútur, en eigandinn
sem fyrr segir numinn á brott.
Rannsóknarréttur i Paris hef-
ur nú leitt i ljós, að fjármála-
framkvæmdastjórinn, sem var
náinn vinur eigandans og helzti
aðstoðarmaður hans, undirbjó
ránið, m.a. með þvi að koma
upplýsingum til ránsmannanna.
Skipbrotsmennirnir af Berge Istra:
Aldrei á sjó aftur
Reuter/Kuwae, Okinawa —
Skipbrotsmennirnir af norska
flutningaskipinu Berge Istra,
sem hvarf, er það var á siglingu
á Kyrrahafinu 1 siðasta mánuði,
sóru I gær, að þeir myndu aldrei
aftur á sjó fara. Mennirnir eru
báðir af spænsku þjóðerni.
Annar þeirra, niu barna faðir,
sagði, aö hann myndi frekar
ganga hinn þrönga veg bein-
ingamannsins heldur en að fara
aftur á sjó.
Mennirnir tveir velktust um i
gúmmibjörgunarbáti i 19 daga,
þar til þeim var bjargað. Þeir
lifðu á þvi að borða hráan fisk
og drekka regnvatnið, og lögð-
ust á bæn, og báðu kraftaverk
eða englana að bjarga sér.
manna
Reuter/Damour, Libanon. Allir
kristnir ibúar strandborgarinn-
ar Damour i Libanon liafa yfir-
gefið borgina, og ráða vinstri
menn og palestinskir skæruliðar
lögum og lofum i borginni.
Flest húsin, allar götur frá
bananaekrunum niðri við
Concorde:
Fyrsta far-
þegaflugið
Reuter/Bahrain — Con-
cordc-flugvélin, sem smiðuð
var með sameiginlegu átaki
Frakka og Breta, fór i fyrsta
áætlunarflug sitt I gær, en vél-
in flýgurmeð tvöföldum hraða
hljóðsins.Fyrstu áætlunarferð-
ina fór flugvélin frá Paris til
Rio de Janeiro, og feröist
menn mcð hinum nýja farar-
skjóta, styttist þessi leið um
tvær klukkustundir. Þess má
geta, að vélin var 19 minútur á
undan áætlun I fyrstu ferð
sinni.
Ekvador:
10 fórust
í flugslysi
Reuter/Quito. — Björgunar-
sveitir fundu I gær 10 manns,
sem komizt höfðu lifs af úr
flugslysi I Suður-Ekvador þá
um daginn. Alls voru 41 far-
þegi innanhorðs.
Lögreglan i Quito, sem er
ekki langt frá slysstaðnum,
sagði að hinir 31 og sjö manna
áhöfn hefðu veriö látnir, er
björgunarmenn komu á slys-
staðinn. Vélin var i innan-
landsflugi.
ströndina og upp i fjallshlfðina
ofan við bæinn, standa i ljósum
logum, og þykkt reykský grúfði
yfir borginni i gærkvöldi.
Damour er 24 km suður af Bei-
rut. Þjófar og ræningjar óðu um
götur borgarinnar á undan inn-
rásarliði vinstri manna og
skæruliða.
Engin merki sáust um, að
kristriir ibúar borgarinnar væru
þar, og talsmaður falangista
sagði, að 6000 manns úr hópi
þeirra hefðu flúið til næsta bæj-
ar, sem er Saadiyat. Þaðan
segjastkristnir menn vera flutt-
ir á bátum til yfirráðasvæðis
kristinna manna norður af Bei-
rut.
Talsmaður frelsissamtaka
Palestinuaraba, PLO, sagði, að
tilgangurinn með þvi að taka
borgina, hefði verið sá, að opna
birgðaleiðina til Beirut, en hún
liggur um Damour, og höfðu
ibúar borgarinnar komið i veg
fyrir alla flútninga til Beirut.
Er talsmaðurinn PLO var
spurður um, hvort blóðbað væri
i Damour, sagði hann, að erfitt
væri að halda aftur af sumum
innrásarmannanna, þar sem
þeirlitu á töku borgarinnar sem
hefndarráðstöfun fyrir árás fal-
angista á flóttamannabúðir
Palestinuaraba. Mikið er um
þjófnaði og gripdeildir i borg-
ínm.-
Portúgal:
Vinstri sinni skot-
inn til bana í gær
Reuter/Lissabon — Portúgalska
lögreglan, vopnuð sjálfvirkum
rifflum, skaut ungan vinstri sinna
til bana I gær, er hann tók þátt I
ólöglegum útifundi i miðborg
Lissabon.
Fjórir aðrir fundarmanna og
einn lögreglumaður særðust i
átökunum, sem urðu I kjölfar lög-
regluaðgerðanna. Sjónarvitni að
atburði þessum segja, að lög-
reglumennirnir hafi byrjað skot-
hriðina, er vinstri sinnarnir tóku
að kasta steinum að þeim.
Sá, sem drepinn var, var 23 ára,
og þeir sem særðust, voru á svip-
uðum aldri. A.m.k. fjórir urðu
fyrir skotum, en sjúkrahúsyfir-
völd segja þá ekki i mikilli hættu.
Til mótmælafundar þessa var
boðaö til að leggja áherzlu á kröf-
ur um 40 stunda vinnuviku og at-
vinnulýðræði. Fyrr i þessum
mánuði skutu þjóðvarðliðar fjóra
vinstri sinna til bana fyrir utan
fangelsi i Oporto i Norður-Portú-
gal.
Lögreglu- og hernaðaryfirvöld
hafa verið ófeimin við að beita
skotvopnum i viðureignum við
vinstri sinna siðan i hinni mis-
heppnuðu byltingartilraun hluta
flughersins,25. nóvember sl.
Frá útifundi vinstri sinna I Lissa-
bon.
Ítalía:
Gjaldeyrisvið
skiptum hætt
Reuter/Róm — Mikið fjármála-
öngþveiti rikir nú á ttallu, eftir að
bankar hættu sölu erlends gjald-
eyris. Þessi ráðstöfun var gerð til
að verja liruna skakkaföllum
vegna spákaupmennsku, sem nú
blómstrar I skjóli hins ótrygga
stjórnmálaástands i landinu. Tal-
ið er, að lokun gjaldeyrisvið-
skipta sé cinungis timabundin
ráðstöfun, þar sem langvarandi
ráðstafanir gætu haft alvarlegar
afleiðingar i för með sér.
Fréttaskýrendur telja óliklegt,
að það verði úr, að efnt verði til
nýrra kosninga, þvi að skjótra úr-
ræða er nú þörf i gjaldeyris- og
efnahagsmálum, en kosn-
ingar má fyrst halda 60 dögum
eftir að til þeirra hefur verið boð-
að, en útilokað er að engar
gjaldeyrissölur fari fram á þeim
tima.
Þvi telja fréttaskýrendur, að
vænlegasta leiðin til lausnar
stjórnarkreppunni og brýnustu
aðsteðjandi vandamála i gjald-
eyris- og efnahagsmálum, sé
myndun nýrrar samsteypustjórn-
ar.
öllum spjótum er nú beint að
sósialistaflokknum, sem rauf
stjórnarsamstarfið, og á hann
skorað að jafna deilurnar við
kristilega demokrata, svo að
hægt verði að koma á starfhæfri
samsteypustjórn. Þvi er talið lik-
legt, að sennilegasta niðurstaða
stjórnarmyndunarviðræðnanna
verði samsteypustjórn sósialista
og kristilegra demokrata.
Leiðtogi sósialista hélt fund
með Moro i gær, og sagði að hon-
um loknum, að hugsanlegt væri
að einhvers konar niðurstaða yrði
fengin fyrir föstudaginn n.k.
Kommúnistar hafa eindregið
skorað á sósialista að mynda
samsteypustjórn með kristileg-
um demokrötum, og koma þannig
i veg fyrir kosningar.
V-Þýzkaland:
Þingkosning
ar 3. okt.
Reuter/Bonn — Rikisstjórn
Vestur-Þýzkalands hefur
ákveðið, að efnt verði til þing-
kosninga þar i landi sunnu-
daginn 3. október n.k. Al-
mcnnar kosningar eru haldn-
ar fjórða hvert ár í Vest-
ur-Þýzkalandi.
KÓPAVOGUR
Blaðburðarfólk óskast til blaðburðar i
LUNDARBREKKU
Umboðsmaður — Simi 4-20-73