Tíminn - 18.03.1976, Side 5
Fimmtudagur 18. marz 1976
TÍMINN
5
Sver af sér allt
samneyti við
krata og komma
Nýlega sagði Visir frá þvi,
að bæði Alþýðuflokkurinn og
Aiþýðubandaiagið girntust
Karvel Pálmason, og likur
væru tii þess, að hann biti á
agnið hjá öðrum hvorum
fiokknum. i siðasta tölublaði
„Nýrra þjóðmála”, sem ný-
lega kom út, sver Karvel hins
vegar af sér allt samneyti við
þessa flokka, og segir i yfir-
lýsingu eftirfarandi:
„Mér sýnist greinilegt, að
fre'ttamenn Visis eru hug-
myndarikir og fundvísir á þær
leiðir, sem liklegastar eru til
að auka sölu blaðsins.
Efni Visisfréttarinnar, sem
birtist fyrir rúmri viku, var
annars á þá leið, að blaðið
hefði áreiðanlegar heimildir
fyrir því, að það heföi verið
rætt á meðal ráðandi manna
innan samtakanna á Vest-
fjörðum að leggja starfsemi
Samtakanna þar niður og
ganga til liðs við Alþýðuflokk-
inn.
Um þetta vil ég segja það,
að mér erekki kunnugt um, að
neitt slikt hafi verið rætt innan
Samtakanna á Vestfjörðum,
og kemur þá af sjálfu sér, að
auðvitaö hefur engin ákvörðun
i þá átt verið tekin. Mér er
Karvel — ekkert samneyti við
krata eða komma. Jón Baldvin
— engin yfirlýsing.
heldur ekki kunnugt um, að
nein slik umræða hafi farið
fram innan heiidarsamtak-
anna.
Þar sem önnur skrif og
vangaveltur að þvi er mig
varðar byggjast á þessari
gefnu forsendu Visis, sem ég
veii ekki til að sé fyrir hendi I
veruleikanum, falla þau að
sjálfsögðu um sjálf sig.
Sömu sögu er að sjálfsögðu
einnig að segja um skrif VIsis
um mig og Alþýðubandalag-
ið.”
Kippir í kynið
Samkvæmt þessari yfirlýs-
ingu verður ekki um eins
ístak er arkitekta- og
verkf ræðif y ri rtæki,
—segir i greinargerð frá fyrirtækinu
Timanum hefur borizt
svolátandi greinargerð
frá ítaki h.f., undirrituð
af Ágústi Þ. Jónssyni:
„Vegna nýtilkominnar ályktun-
ar frá Arkitektafélagi Islands vill
ítak h/f taka eftirfarandi fram:
í október 1974 var fyrirtækið
Itak h/f stofnað i kringum hug-
myndir, sem orðið höfðu til við að
kynnast uppbyggingu bygginga
úr steinsteyptum einingum i Dan-
mörku. Hugmyndir þessar voru
kynntar á Islandi fyrir ýmsum
aðilum, og voru undirtektir það
jákvæðar að eðlilegt þótti að
stofna fyrirtæki, sem gæti komið
fram sem ábyrgur og sjálfstæður
aðili i frekari viðræðum, sérstak-
lega þegar tillit var tekið til þess
að þetta fyrirtæki gæti haft greið-
an aðgang að sérþekkingu á ofan-
greindu sviði frá Danmörku, sem
nægja myndi til þess að skýra
þessar hugmyndir.
Þegar ljóst varð, að áhugi var á
að hagnýta sumar þessara hug-
mynda, var leitað eftir fagmönn-
um, sem áhuga hefðu á að taka
þátt i samstarfi um að ryðja til
rúms hagkvæmari byggingar-
háttum á Islandi. Var þá sérstak-
lega haft i huga, að verkefni fyr-
irtækisins yrðu unnin með hóp-
samstarfi mismunandi sérfræð-
inga til þess að auðvelda samhæf-
ingu hinna ýmsu hönnunarþátta.
Eftir þvi sem fagmenn hafa
ráðizt til fyrirtækisins, hafa þeir
gerzt hluthafar með þvi að kaupa
hlutabréf af hinum upphaflegu
hluthöfum, og eru núverandi hlut-
hafar Itaks h/f þessir:
1) Einar Sigurðsson arkitekt,.
menntaður við Norges Tekn-
iske Höyskole. Vann i Noregi i
rúm þrjú ár að loknu námi við
hönnun á byggingum úr stein-
steyptum einingum og stál-
grindahúsum. Hefur siðan
starfað á Islandi i rúm tvö ár
við hönnun bygginga.
2) Sveinn IngóÉsson bygginga-
verkfræðingur, menntaður við
Norges Tekniske Höyskole.
Starfaði að loknu námi i eitt ár
hjá ráðgefandi verkfræðifyrir-
tæki i Danmörku. Vann siðar i
rúm sex ár við ráðgefandi
verkfræðistöf á Islandi.
3) Hafsteinn Blandon vélaverk-
fræðingur, menntaður við
Danmarks Tekniske Höjskole.
Hefur starfað að námi loknu i
tæp fjögur ár á tslandi, aðal-
lega við hönnun hita-, loftræsti-
og hreinlætislagna.
4) Agúst Þ. Jónsson fram-
kvæmdastjóri, menntaður við
Danmarks Ingeniörakademi.
Var framkvæmdastjóri fyrir
byggingafyrirtæki i Danmörku
i þrjú ár og framkvæmdastjóri
ttaks h/f frá stofnun þess.
5) Hreinn Svavarsson. Hefur
starfað i tæp niu ár að hönnun
raflagna i byggingar.
Auk þessara manna er innan-
hússarkitekt starfandi hjá
fyrirtækinu.
Til þess að tryggja sér sér-
fræðiþekkingu á byggingu húsa
úr steinsteyptum einingum hefur
Itak h/f frá upphafi haft samstarf
viö tvö þekkt dönsk fyrirtæki,
arkitektafyrirtækið Vagn 0. Kyd
og Per Kyd A/S og verkfræði-
fyrirtækið Harry og Mogens Lar-
sen I/S. Þessi tvö fyrirtæki hafa
sérhæft sig i hönnun skólabygg-
inga úr steinsteyptum einingum
og voru aðalhönnunaraðilar hinn-
ar svonefndu Fjónsáætlunar um
skólabyggingar i Danmörku, en
tilgangur þeirrar áætlunar var að
stuðla að sem hagkvæmustum
framkvæmdum við gerð skóla-
bygginga. Hafa þessir aðilar nú
sérhæft sig i hönnun skólabygg-
inga úr steinsteyptum einingum
og voru aðalhönnunaraðilar hinn-
ar svonefndu Fjónsáætlunar um
skólabyggingar i Danmörku, en
tilgangur þeirrar áætlunar var að
stuðla að sem hagkvæmustum
framkvæmdum við gerð skóla-
bygginga. Hafa þessir aðilar nú
hannað rúmlega 600.000 fermetra
af skólabyggingum, þar á meðal
skóla á jarðskjálftasvæðum i
Kaliforniu.
ttak h/f vill að gefnu tilefni taka
fram, að fyrirtækið er arkitekta-
og verkfræðifyrirtæki, sem starf-
ar eingöngu að hönnunar- og ráð-
gjafastörfum.”
mikla fjölgun i Alþýðuflokkn-
um að ræða og búizt hafði ver-
ið viö. Ekki er þó öll von úti
með hinn Samtaka-manninn,
sem sagöur er á ieiöinni yfir i
Alþýðuflokkinn, Jón Baldvin
Hannibalsson. A.m.k. finnst
ekki, þótt leitaö sé með log-
andi Ijósi, eitt aukatekið orö
frá honum i „Nýjum þjóðmái-
um” um að Vlsis-fréttin sé
uppspuni. Þar með er sýnt, að
Jdn Baldvin er að leggja upp i
pólitiska langför með mörgum
viðkomustöðum. Hvort sú för
verður jafn viðburðarik og för
Selárdalsbóndans, skal engu
um spáð, en ekki verður annað
sagt en aö Jóni Baldvin kippi i
kyniö, hvað flökkueðlið snert-
ir.
— a.þ.
HESTAMENN
Mikið úrval af reiðtygjum t.d.:
Höfuðleður, taumar, istaðsólar, nasa-
múlar, stallmúlar, piskar, hringamél,
istöð og fleira og fleira.
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Holagarði í Breiðholti • Sími 7-50-20
Járniðnaðarmenn
Óskum eftir að ráða plötusmið, sem getur
unnið sjálfstætt.
Einnig vanan rafsuðumann.
Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar h.f.
Arnarvogi — Simi 5-28-50
Þú færð mikið fyrir peninginn
þegar þú /3/
kaupir Á
Btnsam
er með
barnalæsingum
á hurðum.
anaai3i
er sérlega vel
ryðvarinn
frá verksmiðju.
aanai3i
er með áskrúfuðum
frambrettum, sem
mjög auðvelt er að
skipta um.
aanai3i
er með
sérbyggðum
stuðara, sem
gengur inn
allt að 6 sm áður
en yfirbyggingin
verður fyrir tjóni.
aaaai3i Glæsilegar innréttingar og
fallegt mælaborð. Auk þess má nefna stórt
farangursrými, tvöfalt bremsukerfi,
einangraðan topp, færanlegt stýri og sérlega
vel styrkt farþegarými.
anaai3i
mirafiori
:
FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Síðumúla 35 Símar 38845 — 38888