Tíminn - 18.03.1976, Qupperneq 15
Fimmtudagur 18. marz 1976
TÍMINN
15
Vilja gras-
köggla-
verksmiðju
í Norður-
Þingeyjar-
sýslu
Svofelld ályktun var samþykkt
á fundi sýslunefndar
Norður-Þingeyjarsýslu fyrir
skömmu:
„Sýslunefnd Norður-Þing-
eyjarsýslu bendir Alþingi og
öðrum stjórnvöldum á, að i
Norður-Þingeyjarsýslu er mikið
landrými til að stofnsetja gras-
kögglaverksmiðju, til framleiðslu
i stórum stil. Telur sýslunefndin
Alþingi og önnur stjórnvöld ekki
eiga að vanrækja þau tækifæri til
jákvæðrar byggðaþróunar, sem
hér biða ónytjuð.”
Húsfyllir
hjá
Skagaleik-
flokknum
SKAGALEIKFLOKKURINN
frumsýndi s.l. laugardag (13.
marz) sjónleikinn „GÍSL” eftir
hinn þekkta irska höfund Brend-
an Behan, i þýðingu Jónasar
Árnasonar.
Leikstjóri er Herdis Þorvalds-
dóttir, og er þetta I fyrsta sinn
sem hún sviðsetur verk. Herdis
hefur æft leikinn samhliða starfi
sinu hjá Þjóðleikhúsinu siðan um
miðjan janúar, og eru Skaga-
menn ánægðir með þann styrk, er
leikmenningu bæjarins barst með
komu hennar.
Leikurum var óspart klappað
loft i lófa, meðan á sýningu stóð,
og i lokin voru leikstjóri og leikar-
ar margkallaðir fram við dynj-
andi lófatak.
Leikstjóri ávarpaði frumsýn-
ingargesti, og að endingu stóðu
allir frumsýningargestir upp og
hylltu stjórn félagsins, leikara og
aðra, er að sýningunni stóðu, með
ferföldu húrrahrópi.
Húsfyllir var einnig á annarri
sýningu á sunnudag, og verða
næstu sýningar föstudaginn 19.
marz og laugardag kl. 21.
Hönnun sviðs og leikmynd var i
höndum Stefáns Magnússonar, er
skilaði þvi verki frábærlega vel.
Ljósameistari var Kristinn Dani-
elsson, ljósameistari Þjóðleik-
hússins. Undirleik annaðist úlrik
Ólason.
öll vinna og starf við uppsetn-
inguna er unnið i sjálfboðavinnu,
og er ánægjulegt hversu vel hefur
til tekizt við eins bágbornar að-
stæður og Skagaleikflokkurinn
hefur haft til æfinga.
„Gisl”, er annað verkefni
Skagaleikflokksins á þessu leik-
ár-i i haust var Fórnarlambið eftir
Yrjö Soini sett á svið, og má geta
þess að vegna húsnæðisleysis i
jafnstórum bæ og Akranes er,
urðu æfingar að fara fram i fé-
lagsheimili fyrir utan bæinn, sem
og smiðar sviðs.
Með aðalhlutverk i „Gisl” fara
þau Halldór Karlsson, er leikur
Pat, og Þórey Jónsdóttir, er leik-
ur Meg. Aðrir leikarar eru fjór-
tán.
í hófi að lokinni frumsýningu
kvað bæjarstjórinn, Magnús
Oddsson, sér hljóðs og óskaði
leikurum til hamingju með
frammistöðuna og kvað bæjar-
fulltrúa fylgjast af ánægju með
sifellt öflugra starfi félagsins og
að þeir myndu styðja Skagaleik-
flokkinn eftir megni.
Sýningar eru i Bióhöllinni á
Akranesi, er rúmar 350 manns i
sæti.
AUGLÝSIÐ
í TÍMANUM
Akranes
Framsóknarfélögin á Akranesi halda almennan fund i Fram-
sóknarhúsinu, Sunnubraut 21 Akranesi, fimmtudaginn 18. marz
kl. 21.00.
Dagskrá:
Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar 1976 og önnur bæjarmál.
Framsögumenn verða bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins á
Akranesi.
öllum heimill aðgangur. Stjórnir félaganna.
Félagsmálanámskeið
Félagsmálaskóli Framsóknarflokksins gengst
fyrir almennu félagsnámskeiði 19.-21. marz
og verður það haldið að Rauðarárstig 18,
Reykjavík.
Dagskrá:
Föstudag 19. marzkl. 18, setning og greinargerð fyrir námskeið-
inu. Kynning þátttakenda. Fjallað um fundarstjórn og ritun
fundagerða.
Laugardag 20. marzkl. 10 erindi um ræðumennsku,.umræður
og fyrirspurnir.
Kl. 15.00 rætt um undirbúning og efnisskipan ræðu.
Sunnudagur 21. marzkl. 10. Erindi um flokka tillagna og af-
greiðslu þeirra, umræður og fyrirspurnir.
Kl. 15 rætt um undirbúning funda og fundarskipan.
Kl. I8erindi um félagslög,stjórn og gögn félags og um reikn-
inga, umræður og fyrirspurnir.
Stjórnandi námskeiðsins verður Pétur Einarss. Námskeiðið er
öllum opið, en væntanlegir þátttakendur eru beðnir að tilkynna
þátttöku í sima 24480.
Félagsmálaskólinn.
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi verður til viðtals laugardag-
inn 14. febrúar á skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarár-
stig 18, frá kl. 10 til 12.
Reykjavík
Aðalfundur Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna i Reykjavik
verður haldinn að Hótel Esju mánudaginn 22. marz kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar.
Nánar auglýst siðar.
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Siðara námskeiðið i hnýtingu „Macrame” hefst mánudaginn 22.
marz nk. Nokkrar konur geta enn komizt a&. Nánari upplýsingar
i flokksskrifstofunni i sima 24480 næstu daga.
Þá vill félagið vekja athygli á félagsmálanámskeiði þvi, sem
haldið verður á vegum Framsóknarflokksins 19.—21. marz og
26.-28. marz, samkvæmt auglýsingu þar um i Timanum.
Stjórnin.
Kópavogur
Fundur verður um utanrikismál mánudaginn 22. marz i Félags-
heimili Kópavogs kl. 20:30. Frummælandi verður Einar Ágústs-
son utanrikisráðherra. Allt framsóknarfólk velkomið. Stjórnin.
Rangæingar —
Framsóknarvist
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu heldur spilakvöld i Félags-
heimilinu Hvoli, Hvólsvelli, sunnudaginn 21. marz kl. 9. (3
kvöld). Góð kvöldverðlaun. Heildarverðlaun eru sólarlandaferð
fyrir tvo.
Steingrimur Hermannsson, ritari Framsóknarflokksins flytur
ávarp. Stjórnin.
Hafnarfjörður
— Fulltrúaráð
Aðalfundur Fulltrúaráðsins verður mánudaginn 22. marz nk. kl.
20.30, að Strandgötu 11.
Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ragnheiður Svein-
björnsdóttir bæjarfulltrúi skýrir frá nýgerðri fjárhagsáætlun
bæjarins. 3. Markús Á. Einarsson gerir grein fyrir störfum bæj-
armálaráðs. 4. önnur mál. — Stjórnin.
Auglýsið í Tímanum
Auglýsing um skoðun bifreiða
í lögsagnarumdæmi Kópavogs
Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist hér
með, að aðalskoðun bifreiða 1976 hefst
mánudaginn 22. marz og verða skoðaðar
eftirtaldar bifreiðir i marzmánuði og
aprilmánuði:
Mánudagur 22. marz Y- 1 til Y- 150
Þriðjudagur 23. marz Y- 151 til Y- 300
Miðvikudagur 24. marz Y- 301 til Y- 450
Fimmtudagur 25. marz Y- 451 til Y- 600
Mánudagur 29. marz Y- 601 til Y- 750
Þriðjudagur 30. marz Y- 751 til Y- 900
Miðvikudagur 31. marz Y- 901 til Y-1050
Fimmtudagur 1. april Y-1051 til Y-1200
Mánudagur 5. april Y-1201 til Y-1350
Þriðjudagur 6. april Y-1351 til Y-1500
Miðvikudagur 7. april Y-1501 til Y-1650
Fimmtudagur 8. april Y-1651 til Y-1800
Mánudagur 12. april Y-1801 til Y-1950
Þriðjudagur 13. april Y-1951 til Y-2100
Miðvikudagur 14. april Y-2101 til Y-2250
Þriðjudagur 20. aprii Y-2251 til Y-2400
Miðvikudagur 21. april Y-2401 til Y-2550
Mánudagur 26. april Y-2551 til Y-2700
Þriðjudagur 27. april Y-2701 til Y-2850
Miðvikudagur 28. april Y-2851 til Y-3000
Fimmtudagur 29. april Y-3001 til Y-3150
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
réiðir sinar að ÁHALDAHÚSI KÓPA-
VOGS VIÐ KÁRSNESBRAUT og verður
skoðun framkvæmd þar mánudaga —
fimmtudaga kl. 8.45 til 12.00 og 13.00 til
16.30. EKKI VERÐUR SKOÐAÐ A
FÖSTUDÖGUM. Skráningar og umskrán-
ingar bifreiða fara EKKI fram á skoðun-
arstað. Við skoðun skulu ökumenn bifreið-
anna leggja fram fullgild ökuskirteini.
Sýna ber skilriki fyrir þvi að bifreiðagjöld
fyrir árið 1976 séu greidd, og lögboðin vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi.
Hafi gjöld þessi ekki verið greidd, verður
skoðun ekki framkvæmd og bifreiðin
stöðvuð þar til gjöldin eru greidd.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á réttum degi, verður hann lát-
inn sæta sektum samkvæmt umferðarlög-
um og lögum um bifreiðaskatt og bifreiðin
tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að
máli. Skoðun bifreiða með hærri skrán-
ingarnúmerum verður auglýst siðar.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
Sigurgeir Jónssson.