Tíminn - 18.03.1976, Page 16
Fimmtudagur 18. marz 1976
MEnflunÆKUR
Á ENSKU í
VASABROTI
Holland/írak:
Harðar deilur
vegna aftöku
Reuter, Haag.Hollenzki forsætis-
ráðherrann, Joop den Uyl, sagði i
gær, að yfirvöld i írak hefðu tekiö
af lifi hollenzkan Gyðing, án dóms
oglaga, og sakaði hann yfirvöldin
um að vanvirða grundvallar-
mannréttindi.
Forsætisráðherrann gaf yfir-
lýsingu sina á blaðamannafundi
eftir að Holland hafði kallað
sendinefnd sina heim frá Bagdad,
til að mótmæla aftöku Leon
Aaronson.
Den Uyl sagði, aö Aaronson,
sem fluttist til Israels árið 1954,
hefði verið tekinn af lifi án dóms
og laga, sem bryti i bága við öll
mannréttindi.
Illa brennd-
ir af sinn-
epsgasi
Reuter, Kaupmannahöfn. —
Þrir v-þýzkir fiskimenn voru
fluttir i skyndingu á sjúkra-
hús i Kaupmannahöfn i gær,
þjáðir af slæmum brunasár-
um eftir leka úr sinnepsgas-
sprengju, sem festst haföi i
netum þeirra.
Mennirnir þrir voru við
þorskveiðar austur af Born-
holm, þegar slysið varð, og
blindaðist einn þeirra, þegar
lekinn kom að gassprengj-
unni.
Talsmaður dönsku land-
helgisgæzlunnar sagði, að
ekki væri óalgengt að
sprengjur af þessu tagi, sem
legið hefðu i sjó frá þvi i lok
siðustu heimsstyrjaldar,
kæmu upp með netum fiski-
manna.
Kína:
Dýpkandi ágrein-
ingur um
Teng
Reuter, Peking. Ummerki dýpk-
indi ágreinings meðal kinverskra
orystumanna um stöðu Teng
isiao-Ping, varaforsætisráð-
íerra Kina, voru greinileg i gær,
i sama tima og orðrómur gekk
ím sérstakan fund yfirmanna
commúnistaflokksins, þar sem
•æða átti framtið hans.
Fregnir herma, að miðstjórn
commúnistaflokksins muni hafa
;ett á laggirnar nefnd til að rann-
>aka ákærur á hendur Teng, sem
tallaöur hefur veriö „iðrunarlaus
iregalagningamaður fyrir kapi-
talismann.”
A þriðjudag bárust svo fregnir
um að nemendur og kennarar i
öðrum af þeim tveim háskólum,
>em harðasta gagnrýni hafa rekið
i hendur Teng, háskólanum i
Tsinghua, vilji nú gefa honum enn
Enn deilt um Concorde
Reutér, New York. — Flugfé-
lögin British Airways og Air
France lýstu þvi yfir i gær, aö
þau stæðu nú i málaferlum til
þess aö fá bannið við lending-
um hljóöfráu þotunnar Con-
corde i New York lýst ólög-
legt.
Flugfélögin greindu einnig
frá þvi i sameiginlegri yfirlýs-
ingu sinni, að þau myndu hefja
reglubundið áætlunarflug með
Concorde-þotum sinum til
Washington þann 24. mai i vor.
Aætlunarflug þeirra til New
York á að hefjast þann 10.
april, en flugvallaryfirvöld i
New York og New Jersey hafa
bannað lendingar Concorde á
Kennedy-flugvelli, að minnsta
kosti um sex mánaða skeið.
Aður hafði samgöngumála-
ráðherra Bandarikjanna,
William Coleman, gefið heim-
ild til þess að Corcorde-þotur
fengju að lenda i Washington
og New York til reynslu i
sextán mánuði.
sis-Fonuu t
SUNDAHÖFN íl
Prent.EDDA levsir vandann
Prentun i litum — Prentun í samfell-
um fytir ritvélar sem tölvur — Prent-
un í offset — öll bókbandsvinna.
Prentsmiðjan EDDA hf.
Lindargötu 9A — Sími 26020
Utanrlkisráðherra Hollands,
Max van der Stoel, lýsti aftökunni
sem „óhugnanlegum atburði” og
kvaðst engin önnur orð eiga yfir
hana.
Yfirvöld i Irak hafa haldið þvi
fram, að Aaronson hafi verið
israelskur njósnari, og hafi hann
borið ábyrgð á miklu „tjóni og
þjáningum” i Irak.
Eru Hollenzk yfirvöld þeim
irakönsku sérlega reið vegna
meðhöndlunar frétta af aftök-
unni, þar sem fyrst var tilkynnt
að maðurinn hefði verið tekinn af
lifi, en það siðan borið til baka.
Siöustu fregnir herma, að af-
takan hafi verið fram.
V-þýzku
skæruliðarnir:
Ákærðir
fyrir morð
Reuter, Diísseldorf. — Fjórir
vinstrisinnaðir skæruliðar,
sem þátt tóku I árásinni á
sendiráö V-Þýzkalands i
Stokkhólmi á siðasta ári,
verða ákærðir fyrir morð,
bankarán og fjárkúgun
gagnvart rikinu, eftir þvi
sem segir i tilkynningu
hæstaréttar i Dússeldorf i
gær.
Þeir tóku sendiráðsbygg-
ingu V-Þýzkalands i Stokk-
hólmi i april siðast liðnum,
og meðan á átökum þeirra
við stjórnvöld stóð, létu tveir
v-þýzkir diplómatar, sem
þeir héldu i gislingu, lifið.
Bygginguna sprengdu þeir i
loft upp, þegar neitað var að
ganga að kröfum þeirra.
Deilur milli stjórnarflokkanna í Frakklandi
Gaullistar óánægðir
Reuter/Paris. Alvarlegs á-
greinings hefur oröið vart milli
Valery Giscard d’Estaing, for-
seta Frakklands, og Jacques
Chirac, forsætisráðherra lands-
ins, vegna fylgisminnkunar
stjórnarflokkanna frönsku á
siðustu dögum.
Flokkur Chiracs, Gaullistar,
hefur tilkynnt sjálfstæði sitt inn-
an fjölflokka rikisstjórnar for-
setans og sagt að flokkurinn
myndi fara að fást við stærstu
vandamál Frakka, verðbólgu og
atvinnuleysi, fremur en að elt-
ast við „veigalitlar breyting-
ar”.
Yfirlýsing Gaullista gaf i skyn
að þeir væru andstæðir stjórn-
unaraðferðum d’Estaing, for-
seta.
Orðrómur um það að Chirac
hefði hugsað til afsagnar for-
sætisráðherraembættinu, hefur
þó verið borinn til baka.
Öánægja Gaullistanna, sem
eru stærsti stjórnmálaflokkur á
franska þinginu, stafar að
mestu af óvissu um gengi frank-
ans og svo einnig af sigri vinstri
flokkanna i kosningum i siðustu
viku. Þá rikir einnig ágreining-
ur innan frönsku stjórnarinnar
um markaðsmál.
Dagblöð. I Frakklandi hafa
varpað fram þeirri kenningu að
sigur stjórnarandstöðunnar i
kosningum til fjármálastjórna
héraða i Frakklandi i siðustu
viku, hafi gert ljósa þörf á
stefnubreytingu hjá stjórninni.
— Það er enginn vafi á að
vandamál þau sem samband
forsetans við stærsta stjórn-
málaflokk landsins og einnig
samstarf hans við forsætisráð-
herrann hafa tekið breytingum,
sagði dagblaðið Le Monde.
Giscard d’Estaing virðist vera
að missa tökin á Gaullistum.
*
WWLrt
Kastro:
Áframhaldandi herseta
Suður-Afríku f Angóla gæti
endurvakið styrjöldina
inu
eitt tækifæri til að hverfa frá
„villu sins vegar.”
Virðist herferðin gegn hægri-
sinnum i Kina nú vera i einskonar
biðstöðu, þar sem róttækir hafa
ekki getað komið neinum „hægri-
sinna” á kné og greinilegt er, að
Teng verst af hörku.
Að þvi er bezt verður vitað,
heldur hann enn embættum sin-
um, en þar gæti þó hafa orðið
breyting, þar sem embættismenn
hafa breytt svörum sinum um
hann úr „við vitum ekki til þess
að neitt hafi breytzt” i „Ekkert
svar”.
Þessi breyting gæti bent til þess
að Teng hefði veriö sviptur ein-
hverjum af embættum sinum, en
hún gæti einnig verið einfalt
merki um óvissu émbættismann-
anna sjálfra.
Reuter, Havana. — Fidel Kastró,
forsætisráðherra Kúbu, varaði i
gær Suður-Afrikumenn við þvi að
áframhaldandi herseta á
angólsku iandsvæði umhverfis
Cuene-stifiuna, gæti orðið til þess
að koma styrjöld af stað á nýjan
leik. Gætu þá átökin breiðst út til
Namibiu (S-Vestur-Afriku) og
jafnvel til Suöur-Afriku sjálfrar.
— Ef landsvæðið við stifluna
verður að vigvelli ber S-Afrika að
fullu og öllu ábyrgð á þvi, — sagði
Kastrói ræðu i Gineu á mánudag.
— Ef styrjöldin breiðist út til
Namibiu, bera kynþáttamis-
réttismennirnir i S-Afriku einnig
ábyrgð á þvi, — sagði forsætis-
ráðherrann ennfremur.
Forsætisráðherrann bætti svo
við: — Ef svarta Afrika kemur
sér upp fjölþjóðaher og notar
hann til að eyða misrétti að fullu
og öllu, ber S-Afrika einnig
ábyrgð þar á. —
Talið er að S-Afrika hafi um
fjögur þúsund hermenn staðsetta
við Cuene-stifluna, skammt innan
landamæranna og um 225 kiló-
metra frá stöðvum MPLA og
kúbanskra stuöningsmanna
þeirra.
Kastró sneri á þriðjudag heim
úr ferð sinni til Afriku. Hann átti
þar viðræður við Neto, Angólafor-
seta, Sekou Toure, Gineuforseta
og Cabral, leiðtoga Gineu-Bissau.
Við heimkomuna sagði Kastró:
— Við viljum benda á það að i
suðurhluta Angóla eru sterkir
byltingarherir og baráttugeta
þeirra eykst dag frá degi.
— S-Afrikumenn hafa engan
rétt til að halda hernumdu svo
mikið sem fersentimetra af land-
svæðum Angóla.
Milli niu og tólf þúsund kúbu-
hermenn eru i Angóla og Ginea og
Ginea-Bissau hafa þar einnig her-
sveitir.
Tíu stalínistar
i viðbót dæmdir
Reuter, Júgóslaviu. — Júgó-
slavneskur réttur dæmdi á
þriðjudag tiu stalinista til
samtals rúmlega eitt hundrað
ára fangelsisvistar, fyrir að
gera samsæri gegn stjórn
landsins.
Þrir hinna dæmdu hlutu
fimmtán ára dóma, sem er
hámarksdómur fyrir afbrot af
þessu tagi.
Þessir dómar eru liður i
mikilli herferð, sem nú er far-
in i Júgóslaviu gegn stalinist-
um, en þeir eru sakaðir um að
hafa ætlað að steypa stjórn
landsins. og kalla sovézka her-
inn sér til aðstoöar.
1 siöustu viku voru fjórir
stalinistar dæmdir, þar á
meðal fyrrum héraðsstjóri i
Króatiu, en talið er að margir
biði enn dóms.
Hinir ákærðu eru allir sak-
aðir um að hafa myndað ólög-
legan stjórnmálaflokk marx-
leninista.
Blettaður heiður
Scotland Yard
Siðan Robert Mark tók við
embætti æðsta yfirmanns
brezku lögreglunnar Scotland
Yard, árið 1972, hefur hann
dregið sjötiu og tvo lögreglu-
menn fyrir rétt og sett næstum
fjögur hundruð úr embætti,
vegna spillingar og brota á
agareglum.
1 siðustu viku einni voru tólf
lögreglumenn, þar á meðal
þrir fyrrverandi yfirmenn
deilda innan Scotland Yard,
dregnir fyrir rétt, ásakaðir
um mútuþægni. Meöal þeirra
voru fyrrverandi yfirmenn
morðdeildar og klámdeildar
lögreglunnar, en þeir voru
allir sakaðir um að hafa þegið
irðSHORNA
‘ Á IVIILLI
mútur af útgefendum klám-
rita og hafa staðið að sölu
„vafasamra” bókmennta,
sem gerðar höfðu verið
upptækar af lögreglunni.
Mál þessi hafa vakið mikla
athygli I Bretlandi, enda er
þetta I fyrsta sinn sem blettur
fellur á heiður Scotland Yard,
DEJB er með stálstyrkf farþegarými,
sem tryggir
aukið
oryggi.
i
FIAT EINKAUMBOD Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Síðumúla 35 Símar 38845 — 38888