Tíminn - 08.05.1976, Blaðsíða 16
Laugardagur 8. mai 1976.
þeytidreifarinn
góð vinnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig fyrir sáningu
Guðbjörn Guðjónsson
Heildverzlun Síðumúla 22
Simar 85694 & 85295
COCURA 4, 5 og 6
steinefnavögglar
Látið ekki COCURA
vanta í jötuna
SAMBANDIÐ
INNFLUTNINGSDEILD
PLAST
ÞAKRENNUR
Sterkar og endingagóðar
Hagstætt verð.
cffl) Nýborg?
O Ármúla 23 — Sími I
,í
Sími86755
Jurðskjálftarnir á Italiu
Meira en fimm hundruð taldir af?
Björgunarstarf gengur hægt og er ákaflega erfitt
Reuter, Majano. — Meir en tvö
hundruö og sjötiu lik höföu i gær
fundizt i rústum nokkurra bæja
og þorpa á Norö-Austur-ítaliu,
sem jaröskjálftinn á fimmtu-
dagskvöld eyöilagöi.
Taliö er, aö jarðskjálfti þessi
hafi orðiö um eða yfir fimm
hundruö manns að bana, en hans
varð vart i sex Evrópulöndum,
auk Italiu, þar sem hann var
harðastur.
— Viö höfum engar hugmyndir
um hversu margir eru enn inni-
lokaðir undir rústunum, og það
gæti liöið heil vika áður en viö
höfum komizt endanlega aö þvi,
sagði háttsettur embættismaður i
itölsku lögreglunni i gær.
Þrir fjórðuhlutar bæjarins
Majano eru jafnaðir viö jörðu eft-
ir jarðskjálftann og lætur nærri
að ailir bæjarbúar séu nú
heimilislausir.
Skæruliðaréttarhöldin í Dusseldorf:
„Hún sparkaði, barði
og kallaði mig svín'
ii
Reuter, Diísseldorf. — Vest-
ur-þýzkur sálfræðingur bar i
gær fyrir rétti i Diisseldorf, að
Hanna Krabbe, konan i hópi
skæruliðanna, sem þar eru fyrir
rétti nú, hefði barið hann,
sparkað i hann og kallað hann
svin, þegar hann reyndi að
rannsaka hana með tilliti til
geðheilsu hennar.
Hanna er, ásamt þrem karl-
mönnum, þeim Manfred Tauf-
er, Bernhard Roessner og Karl
Heinz Dellwo, sökuð um morð á
tveim embættismönnum
vestur-þýzka sendiráðsins i
Stokkhólmi fyrir um það bil ári.
Sálfræðingurinn, Dr. Wolf-
gang de Boor, sagði, að þau
væru öll sakhæf og heróu heilsu
tilaðkoma fyrir rétt, þrátt fyrir
tólf mánaða fangelsisvist.
Hann gerði grein fyrir mis-
munandi skapferli sakborning-
anna, og sagði að karlmennirnir
væru allir kurteisir og fremur
hljóöir, en frú Krabbe hefði hins
vegar verið árásagjörn og hefði
hún slegið og sparkað bæði i
hann og fangelsisvörð
Björgunvarsveitir leita nú i
rústunum að þeim, sem grafizt
hafa undir þeim.
Samkvæmt heimildum i innan-
rikisráðuneytinu i Róm i gær, er
talið að um eitt hundrað og tiu
þúsund manns séu nú heimilis-
laus á ttaliu.
Stærsti skjálftinn á fimmtu-
dagskvöld náði sex og hálfum á
Richterkvarða, sem talið er ná-
lægt hámarki þess sem jarð-
skjálftar geta orðið á meginlandi
Evrópu.
Versta útreið fékk bærinn Ge-
mona, sem heita má að hafi
þurrkast algerlega út. Hús þau
frá miðöldum og endurreisnar-
timanum, sem mynduðu miðbæ-
inn þar, hrundu niður f þröngar
göturnar og gera björgunarstörf
þar nánast ómöguleg. I nýrri
hlutum bæjarins hrundu alit að
fjögurra hæða hús algerlega og
eru múrsteins- og steinsteypu-
haugarnir allt að tiu metra háir.
Hundruð hermanna, lögreglu-
manna og sjálfboðaliða, svo og
sveitir skáta, leituðu þar i rústum
i gær i þeirri von að þar fyndist
einhver á llfi.
Að minnsta kosti eitt hundrað
manns létu lifið i Gemona einni og
i kirkjugarðinum þar, sem er
annar af tveim likgeymslustöðum
bæjarins nú, mátti i gær telja
áttatiu og fimm lik.
í bænum Majano, þar sem ibú-
ar voru um 4.500, létust meir en
fimmtiu manns. Þar á meðal
voru tíu manns, sem grófust þeg-
ar veitingastaður hrundi niður,
meðan á veizlu stóð þar.
Enn villast
Bretarnir...
Reuter, Dublin. — Vand-
kvæði þau sem skapazt hafa
vegna handtöku átta brezkra
hermanna innan landamæra
Irska lýðveldisins á fimmtu-
dag, jukustenn í gær, þegar
að minnsta kosti tveir hópar
brezkra hermanna villtust
inn yfir landamærin frá
N-Irlandi.
Bæði atvikin i gær voru þó
minniháttar, miðað við það á
fimmtudag, en hermennirnir
sem þá voru teknir voru
borgaralega klæddir og báru
haglabyssur með styttum
hlaupum.
Báðir hóparnir voru reknir
til baka i gær, án þess að til
umkvartana kæmi frá hendi
rikisstjórnar Irska lýð-
veldisins, en engu að siður
urðu atvik þessi til að vekja
enn meiri athygli á þvi sem
skeði á fimmtudag.
Fylgistap hjá Verkamannaflokknum
Reuter, London. — Likurnar á
skyndikosningum i Bretlandi i
sumar minnkuðu mikið i gær,
þegar talning atkvæða i bæjar- og
sveitastjórnakosningum í Eng-
landiog Wales hafði leitt i ljós allt
að fimmtán prósent fylgisaukn-
ingu stjórnarandstöðuflokks
íhaldsmanna.
Niðurstöður kosninganna voru
mikil vonbrigði fyrir Verka-
mannaflokkinn og rikisstjórn
hans, en búizt hafði verið við að
fylgi hans myndi aukast nokkuð
vegna samkomulagsins við
verkalýðsfélögin.
Þess I stað vann Ihaldsflokkur-
inn, undir forystu Margaret
Ford Bandaríkjaforseti beitir neitunarvaldi:
„Alvarlegar takmarkanir forsetavalds"
Reuter, Washington. — Gerald
Ford, Bandarikjaforseti, beitti i
gær neitunarvaldi sinu gegn
frumvarpi um 4.000 milljón doll-
ara hernaðarhjálp til annarra
rikja, vegna þess sem hann kall-
aði „Fordæmislausar takmark-
anir á rétti sinum til að reka utan-
rikisstefnu rikisins”.
Forsetinn sagði i tilkynningu til
þingsins að hann væri mótfallinn
þeim ákvæöum frumvarpsins
sem takmörkuðu heimildir til
sölu á hergögnum, afnæmu tak-
markanir á viðskiptum vi ð Norð-
ur og Suður-Vietnam og settu
skilyrði um mannréttindi i er-
lendum rikjum.
Frumvarp þetta var heimildar-
frumvarp, en hafði ekki á bak við
sig ákveðna sjóði til að kosta
hernaðarlega aðstoö við önnur
riki. Meðal þess sem það fól í sér
var 3.000 milljón dollara
hernaðarleg aðstoð við
Mið-Austurlönd, aðallega Israel.
Samkvæmt frumvarpinu hefðu
verið sett takmörk á heildarsölu
rikisins á hergögnum til annarra
rikja, svo og á annan útflutning
þeirra og þjónustu i sambandi við
þau. Hefðu takmörkin miðast við
9.000 milljónir dollara á árs-
grundvelli.
Þar að auki fólst í frumvarpinu
„Kynlíf” viður-
kennt i Sovét...
Reuter, Moskvu. — Eitt af
vinsæiustu f jögurra-stafa orð-
um i sovézkri tungu hefur nú I
fyrsta sinn hlotið viðurkenn-
ingu I opinberri alfræðioröa-
bók þar.
Orð þetta er „CEKC”, sem
þýtt yíir á ensku þýðir „SEX ”,
en á islensku er það útlagt
„Kynlif”. 1 sovézkum alfræði-
orðabókum hefur áður verið
getiö um orö, sem skyid eru
þessu og jafnvel af þvt dregin,
en ekki það sjálft.
Vatnsskortur i
Evrópulöndum
Reuter, Genf. —• Fimm
Evrópulönd búa nú þegar við
vatnsskort, og sjö til viðbótar
munu bætast I þann hóp fyrir
lok þessarar aldar, eftir þvi
sem efnahagsnefnd Samein-
uðu þjóðanna fyrir Evrópu
sagði f gær.
Enn er þó nægiiegt vatn i
Evrópu tii aö mæta heildar-
eftirspurninni næstu tuttugu
og fimm ár að minnsta kosti.
Skorturinn einkennist mest
af þvl, að vatnsmagniö er ekki
nógá þeim timum sem þörfin
er mest.
— Magn nothæfs vatns
hefur minnkað verulega i
nokkrum löndum vegna
mengunar, segir i skýrslu
nefndarinnar.
Kýpur, Austur-Þýzkaland,
Ungverjaland, Malta og
Ukrania búa þegar við vatns-
skort.Búizter við, að árið 2000
muni Belgia, Búlgaria,
Lúxembourg, Pólland,
Portúgal, Rúmenia og Tyrk-
land hafa bætzt i hóoinn.
Nefndin telur að Bretland,
sem nú býr við vatnsskort I
raun hafi nægilegt vatnsmagn
til að anna eftirspurn nú og 1
næstu framtið.
Háum verðlaunum
heitið fyrir nöfn
brennuvarga
Reuter, Mflanó, — Fiat-verk-
smiöjurnar itölsku hétu i gær
um sextán milljónum fs-
lenzkra króna I verölaun til
þesseða þeirra sem veitt gætu
upplýsingar um þaö hverjir
staðið hafa að fimm ikveikj-
um, sem átt hafa sér stað f bif-
reiðaverksmiðjum þeirra i
Mirafiori sfðastliðinn mánuð.
Síðasta ikveikjan, sem átti
sér staö á fimmtudagskvöld,
skemmdi alvarlega verzlun i
verksmiðjunni, og aðeins
snögg viðbrögð slökkviliðs-
manna komu i veg fyrir að
eidurinn næöi meginfram-
leiðslusvæði hennar.
Vinstri sinnaðir skæruliðar
hafa lýst sig ábyrga fyrir fyrri
Ikveikjum á staðnum.
A IVIILLi
Ftóttamenn frá V-Sa-
hara mikillar hjálpar
þurfi
Reuter, Genf. — Alheimsráð
kirkjunnar sagði i gær, aö það
hefði farið þess á leit við kirkj-
ur einstakra landa, að þær létu
af hendi rakna rúmlega
hundrað þúsund doUara, til
þess að veita flóttamönnum
frá Vestur-Sahara,sem stadd-
ir eru i Alsfr, nauðsynlega að-
stoð.
Sagði ráðið að um fimmtiu
þúsund flóttamenn byggju við
ótrúlega erfiðar aðstæður i
sextán flóttamannabúöum.
Hefði sarheiginleg nefnd mót-
mælenda og kaþólikka, sem
fór í athugunarskyni tU búð-
anna, gefið þá skýrslu að
hreinlætisaðstaða, fæðuskort-
ur og önnur vandamál flótta-
mannanna væru hrylliieg.
Eftir heimsókn sina til búð-
anna áætlaði nefndin, að þörf
væri fyrir aðstoð sem næmi
um sjö og hálfri milljón doll-
ara það sem eftir væri af
þessu ári.
Það, sem til þarf er fæða,
tjöld og ábreiður, lyf, eldhús-
áhöld, farartæki oghreinlætis-
búnaður.
ákvæði um 180 daga afnám við-
skiptabanns á Vietnam, sem for-
setinn sagði að gera myndi stöðu
Bandarikjanna verri i samning-
um við það land.
Bandarikjamenn hafa krafizt
þess af Norður-Vietnam að gerð
verði grein fyrir þeim banda-
risku hermönnum sem enn er
saknað siðan i Vietnam-styrjöld-
inni og vildi þingið aflétta við-
skiptabanninu i þeirri von að þá
myndu Vietnamar láta undan
kröfunni. Forsetinn telur þá
ályktun ranga.
Þá er forsetinn einnig mótfall-
inn þvi ákvæði sem segir að við-
takendur hernaðarlegrar aðstoð-
ar skuli fylgja mannréttindaskil-
málum sem þingið setji. Verði al-
mennum mannréttindum ekki
framfylgt i viðkomandi rikjum,
skuli viðskiptin stöövuð.
Sagði forsetinn að frumvarpið
tæki alls ekki til greina marga
þætti sem væru ráðandi I við-
skiptum Bandarikjanna við er-
lend riki. Sagði hann að frum-
varpið setti alvarlegar hömlur á
rétt hans og heimild til að reka
samfellda utanrikisstefnu og fæli
i sér fordæmalausar takmarkanir
á forsetavaldi.
Öllklegt þykir að þinginu takist
að ná þvi fylgi við frumvarpið
sem þarf til að upphef ja neitunar-
vald forsetans, en til þess þarf tvo
þriðju hluta atkvæða.
Thatcher, mikinn sigur og jók við
sig meir en 1.500 sætum I bæjar-
og sveitastjórnum. Verkamanna-
flokkurinn tapaði meir en 1.200
sætum, en i allt var kosið um
16.000 sæti.
Þessi úrslit hafa þaggað niður
allt tal um að James Callaghan,
forsætisráðherra, hyggist halda
skyndikosningar i sumar, til að
tryggja stöðu rikisstjórnar sinn-
ar. Eftir úrslitum þessara kosn-
inga að dæma fælist I slikum
skyndikosningum hætta á þvi að
hann myndi tapa þeim.
Callaghan gæti hugsanlega
neyðst til að halda kosningar inn-
an skamms, vegna veikrar stöðu
Verkamannaflokksins á þingi, en
þar hefur hann þriggja sæta
minnihluta.
Nýjar
tillögur
Reuter, Madrid. — 1 gær
lagði spænska rikisstjórnin
fram tillögur um að þing
landsins yrði skipað þannig
að öll neðri deild þess yrði
kjörin i almennum
kosningum, svo og meiri
hluti öldungadeiidarinnar,
en hluti af henni yrði
skipaður á annan hátt.
Þá viðurkenndi stjórnin i
fyrsta sinn rétt verkamanna
til að mynda verkalýðsfélög
utan þeirra sem eru rikis-
rekin.
Tillögur þessar eru mun
frjálslyndari en þær sem
lagðar voru fram i siðustu
viku, en þær ullu stjórnar-
andstöðu landsins miklum
vonbrigðum.
Tillögurnar verða væntan-
lega afgreiddar á þingi þvi
sem nú situr innan skamms
Blaðburðarfólk óskast
Laugarásveg
og víðs vegar um borgina
Sími12323
og 26500