Tíminn - 06.07.1976, Page 21
Þriðjudagur 6. júli 1976
TÍMINN
21
Sigríður Valdimarsdóttir:
Athugasemd við
myndatexta
Sigriður Valdimarsdóttir
hringdi og vildi koma á fram-
færi athugasemd viö texta
myndar, sem birtist meö grein-
inni „Góðan daginn, séra
Gurli”. Þar er sagt, aö högg-
myndarinn Bertel Thorvaldsen
hafi gert skirnarfontinn, sem nú
sé i Heilagsandakirkju i Kaup-
mannahöfn.
„Þaö er rétt og ekki rétt, þvi
Bertel Thorvaldsen hét Albert
Thorvaldsen, eins og tslending-
ar ættu að vita og Danir einnig.
U———
Skirnarfontur þessi, sem er hið
mesta listaverk, gerði Albert til
að gefa til Islands, sem sjá má á
orðum þeim, sem listamaöurinn
hjó i eina hlið verksins:
„Albertus Thorvaldsen gjörði
smiðisgrip þennan i Rómaborg
og gaf hann íslandi, ættjörð
sinni, i ræktarskyni 1827”.
Þegar ég var litil var okkur
kennt að Albert héti Albert og
hefði fæðzt um borð i dönsku
kaupskipi er lá i austanverðum
Skagafirði 19. nóv. 1770. Sjálfur
sagði listamaöurinn einnig, aö
hann væri fæddur þann dag,
enda kemur það vel heim viö
fermingarskýrslur, sem segja
hann fermdan 1787, þá 16 og
hálfs árs. Engar sannanir eru
þá aöfinna i fæðingarskýrslum,
enda brann Fellskirkja i Sléttu-
hlið i austanverðum Skagafiröi,
og kirkjubækur meö, en þar
heföi hann skirzt.
1 Danmörku er hins vegar
sagt, og þvi miður hefur það
komizt inn i islenzkar bækur, að
Albert Thorvaldsen hafi fæðzt i
Kaupmannahöfn 13. nóv. 1768,
en þá fæddist sveinbarn er var
ski'rður Bertil Thorvals, sem er
talsvert frábrugðið
Thorvaldsens nafninu, sem
listamaðurinn notaði”. Að lok-
um vildi ég hvetja fólk til að
skoða skirnarfontinn i Heilags-
andakirkju og lesa áletrunina
þótt á latinu sé, en kirkjan er,
sem kunnugt er, i miðborg
Kaupmannahafnar.
Böðvar Guðmundsson
„Alþýðuleikhúsið ekki
stofnað til höfuðs
Leikfélagi Akureyrar"
1 dagblaðinu Timanum, 30.
júni 1976, skrifar Jónas Guð-
mundsson yfirlitsgrein um leik-
húslif veturinn 1975-1976.
Greinin nefnist „Skýrsla um
leikhúsvetur” og er úttekt á
leiklistarstarfsemi um alltland.
1 kaflanum „Af norðanmönn-
um” virðist mér gæta nokkurs
misskilnings hjá Jónasiog lang-
ar mig til að koma litilli leiðrétt-
ingu á framfæri. 1 greininni
stendur:
„Af norðanmönnum er það
lika að frétta að Leikfélag Akur-
eyrar klofnaði — frá leikrænu
sjónarmiði. Nokkrir af helztu
leikurum félagsins stofnuðu sitt
eigið leikhús, Alþýðuleikhúsið
og hafa siðan verið á stöðugum
ferðalögum um landið með
Krummagull.
Það sem mig langar fyrst og
fremst til aö leiðrétta i annars
ágætri grein Jónasar er það að
af orðum hans má skilja að
Alþýðuleikhúsið hafi oröið til við
klofning i Leikfélagi Akureyrar.
Svo er ekki eins og hér skal rak-
ið. Vorið 1975 sögðu þrir fast-
ráðnir leikarar hjá Leikfélagi
Akureyrar upp starfi sinu við
leikhúsið. Það var i fyrra hluta
mai. Ég, sem þessar linur rita,
átti þá sæti i varastjórn Leik-
félags Akureyrar og sat nokkra
stjórnarfundi. Meðal starfs-
manna félagsins kom upp nokk-
uð illvigurágreiningur sem ekki
skal rakinn hér, enda bezt
geymdur i þögn. Sá ágreiningur
olli þvi að leikararnir þrir
sögðu upp starfi sinu. Mér
vitanlega sagði sig enginn úr
Leikfélagi Akureyrar vegna
þessaatviks nema ég einn. Mér
finnst minn hlutur gerður helzt
til mikill, svo ekki sé meira
sagt, ef það erorðið að klofningi
þótt einn maður hætti þátttöku i
félagsstarfi og þrir segi upp
störfum — enda hefur það kom-
ið á daginn að Leikfélag Akur-
eyrar er sizt verr á vegi statt án
minnar þátttöku. Nokkrir af
stofnendum Alþýðuleikhússins
voru félagar i Leikfélagi Akur-
eyrar og mér vitanlega hafa
þeir ekki óskað þess aö nöfn
þeirra verði máð út af félagatali
þess.
Tveimur mánuöum eftir að
leikararnir sögðu upp störfum,
eða 4. júli 1975, var svo formleg-
ur stofnfundur Alþýðuleikhúss-
Alþýðuieikhúsið er ekki i samkeppni við Leikféiag Akureyrar,
þvert á móti hafa félögin stutt hvort annað og meðal annars deilt
með sér húsnæði.
ins og var fjarri þvi að það væri
á einn eða annan hátt stofnað til
höfuðs Leikfélagi Akureyrar.
Hugmyndin um atvinnuleikhús
sem hefði allt landið að vett-
vangi fæddist alls ekki i myrk-
um launkofum, þéttsetnum lifs-
beiskum og hatursfullum
klofningsmönnum — hún fædd-
ist um bjarta vomótt i sund-
lauginni á Laugalandi á Þela-
mörk i Eyjafirði, þar sem kátur
hópur svam af sér skammdegis-
drungann og fagnaði sigri ljóss
á myrkri.
Þvi fer fjarri að Alþýðuleik-
húsið ætli sér á einn eða annan
hátt að krenkja starfsemi Leik-
félags Akureyrar, enda er
starfssvið þessara leikstofnana
ólikt. Leikfélag Akureyrar
hefur lika starfað með miklum
blóma i vetur og gerir það von-
andi um langa framtið. Þegar
A1 þý ö u 1 ei k h ú s i ð sýndi
Krummagull á Akureyri varö
leikhússtjóri góðfúslega við
beiðni Alþýðuleikhússins að það
fengi að sýna i sölum Leik-
félags Akureyrar, og einnig má
benda á að nokkrir nýverandi
starfskraftar Leikfélags Akur-
eyrar eru styrktarfélagar
Alþýðuleikhússins.
Ég vona að þetta nægi til að
sýna að Alþýðuleikhúsið er ekki
klofningshópur frá Leikfélagi
Akureyrar, heldur sjálfstætt
félag með allt annan tilgang og
vettvang en það.
Lesendur
segja:
V
TÍMA- spurningin
Heldur þú, að við fáum annað eins rigninga-
sumar á Suðurlandi og i fyrra?
Jón Finnbjörnsson :Ekki býst ég viöþvi. Maður vonar þaö bezta.
Edda Gunnarsdóttir: Ætli það verði ekki minna i sumar. Um að
gera að vera nógu bjartsýnn.
Páll Kristinn Mariusson: Það benda allar likur til þess.
Guðmunda Gunnarsdóttir: Ég vona að svo verði ekki. Annars er
maður hálf svartsýnn.
Hafliöi Arngrimsson: Já, það er öruggt.