Tíminn - 25.11.1976, Blaðsíða 10

Tíminn - 25.11.1976, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 25. nóvember 1976 Fimmtudagur 25. nóvember 1976 11 mm Hrifning á sinfóníutónleikum Sinfóniuhljómsveit Islands hélt 4. tónleika vetrarins I Há- skólabiói fimmtudaginn 18. nóvember. Efnisskráin var þannig: Karl Ottó Runólfsson: A krossgötum. R. Schumann: Pianókonsert i a-moll óp. 54. Carl Nielsen: Sinfónia nr. 4. Karsten Andersen stjórnaöi, en Cristina Ortiz frá Brasiliu lék á pianóiö. Þessir tónleikar voru aö mörgu leyti hinir ánægju- legustu, enda hrifning áheyr- enda óvenjuleg: bæöi var ein- leikaranum ákaft fagnaö (sem er venjulegt) en auk þess ætlaöi allt um koll að keyra i lok tón- leikanna, sem er næsta sjald- gæft. Enda tókust þeir vel, og minna á þaö, aö Sinfónfuhljóm- sveit tslands er glettilega góð um þessar mundir þrátt fyrir smæö sina. En hiö bliða var striöu blandaö: svo viröist sem aösókn aö tónleikum fari heldur dvinandi — húsið var varla nema 2/3 fullt á fimmtudaginn — og mannekla hljómsveitar- innar veldur stööugum harmi. Mér er sagt hún hafi verið „skorin niöur” i haust — nú spila 8 fyrstu fiðlu og 8 aöra, 6 spila lágfiölu og 6 knéfiölu, en ættu hiö minnsta aö vera 12 og 8, en helzt 16 og 12. En ekki nóg með það, heldur er umtals- verður hluti þessara litlu hljóm- sveitar aðkeyptur frá útlöndum. Þetta hörmulega ástand á sér vafalaust margar orsakir: sumir segja það vera launakjör hljómlistarmannanna — Islend- ingar vilji ekki spila i hljóm- sveitinni vegna þeirra (en þarna eru Sviar og Bandaríkja- menn!), en aðrir kenna um kunnáttuleysi þjóöarinnar — tónlistaruppeldiö hefur mis- heppnazt enn sem komiö er þrátt fyrir talsveröa viöleitni. Enda sýnir merkileg skýrsla Stefáns Edelstein i Mennta- málum, aö hér er viö ramman reip að draga. Ég sé ekki, aö viö séum komin spönn lengra i tón- list nú en viö vorum fyrir 50 árum. 1 haust var ég af tilviljun um tima i Oxford, og fór þá á tón- leika hjá hljómsveit borgar- innar, sem nefnist Pro Musica. Oxford er háskóla- og verk- smiðjubær eins og menn vita, á stærö viö Stór-Reyk javik. Hljómsveitin er heldur lakari en S.I., en svipuð aö stærö, en hins ber að gæta, að frá Oxford er 2ja tima ferð til London, sem er ein af listamiðstöövum heimsins, og 3ja klst. ferð til Manchester Pro Musica hljómsveitin heldur tónleika i Oxford mánaöarlega. Hún er eingöngu skipuö áhuga- fólki, þ.e. fólki sem vinnur jafn- framt (og aðallega) aöra vinnu, ekki sizt eru félagar hennar starfsmenn háskólans og stofn- ana hans. Þvi tónlistaruppeldi íslendingaernú, eins og þaö var fyrir 50 árum, hálfri öld á eftir þvi, sem gerist meðal siö- menntaöra þjóöa. Um tittnefnd launakjör hljómlistarmanna erannars hiö sama aö segja og annars staöar, aö opinberir starfsmenn bera þar skaröan hlut frá boröi miö- aö við aðra. Þetta segja menn ranglæti, en alveg sérstaklega er þaö heimska, því oftar en ekki er það rikiö, sem borgar brúsann á endanum i einhverju formi hvort sem er. En jafnframt, skv. lögmálum kapitalismans, „veröur þaö ofan á, sem fólkiö vill hafa”. Þegar hljómlistarmenn fara „meö æðri tónlist” út um land (eða til annarra landa) gera þeir sjaldnast betur en aö hafa fyrii' ferðakostnaöi. Til saman- buröar hélt gagnfræöaskólinn i plássi nokkru skammt frá Reykjavik dansiball i fyrra og fékk 3ja manna gaddavirshóp úr höfuðborginni til aö spila fyrir dansinum. Hljómlistar- mennirnir tóku 120.000 krónur fyrir kvöldið, þeir kunnu aö spiia 8 lög, en voru svo drukknir, að þeir gátu varla það. En magnararnir voru I lagi, þegar dyraveröinum of- bauö hávaðinn og ætlaði aö biðja hljómsveitarmennina aö skrúfa ögn niöur, komst hann ekki lengra en inn á mitt gólf áður en hljóðhimnan sprakk i honum, og hann var fluttur til læknis. Ekki veit ég hvaöan 120 þúsundin komu, en vafalaust aö mestu frá rikinu. Af öðrum sviöum þjóöllfsins er þaö m.a. að frétta, aö þar vinna hliö viö hliö aö stórfram- kvæmdum á vegum hins opin- bera rikisstarfsmenn og starfs- menn „sjálfstæðra stofa” — hinir fyrrnefndu með helming eöa þriöjung launa hinna siöar- nefndu. En rikið borgar Stof- unni til þess að hún geti greitt sérfræðingum sinum ,,þau l^.un sem gerast á almennum vinnu- markaöi”. Á krossgötum Karl O. Runólfsson (1900- 1970) samdi A krossgötum 1938- 39. Þá þótti honum islenzk tón- sköpun standa á krossgötum, og um það fjallar verkiö. A kross- götum er svita i 4 köflum — þar kennir ýmissa grasa, sem (i ljósi ofansagös) minna á bæöi gamalt og nýtt. Þrátt fyrir þaö er verkiö heilsteypt og ánægju- legt að heyra. Albatross Næst léku Sinfóniuhljómsveit- in og Cristina Ortiz eina af perlum rómantiskrar tónlistar, a-moll pianókonsert Schumanns (1819-1856). Konsertinn er fyrst og fremst pianóverk með hljóm- sveitina i bakgrunni. Hann var skrifaður fyrir Clöru Schu- mann, eiginkonu tónskáldsins, en hún var mikilhæfur pianisti, enda lék hún einleikshlutverkið, þegar konsertinn var frum- fluttur i Dresden i desember 1845. Cristina Ortiz er hin mesta hamhleypa við planóiö — fyrr- verandi undrabarn, ef marka má ævisögu i skránni I klass- iskum hljómleikaskrárstil: hóf pianónám 5 ára, fékk inngöngu i brasiliska tónlistarháskólann 8 tónlist ára og 11 ára lék hún einleik meö Sinfóniuhljómsveit Brasiliu. Siöan fylgir langur listi af verölaunum og lofi gagn- rýnenda og frægum tónleikum. Eftir ákaft klapp og blómvönd, lék hún aukalag, sem „fræð- ingur, sem ekki vill láta nafns sins getið”, sagöi vera eftir tón- skáldiö góökunna, Albatross. Sönnu nær er þaö hins vegar, að þessi stutta en ákafa fingraleik- fimi heitir Albatross eftir Villa- Lobos. Þessi suðræni fugl, albatrossinn, er frægastur á Is- landi fyrir vængjahaf sitt, á 4. metra, og liklega visar þetta stutta pianóstykki Villa-Lobos til þess, aö stundum sé sviptingasamt i suörænum loft- sölum. Um Róbert og Clöru Schuman er margt at segja, sem biöa verður betri tima, en samband þeirra og Jóhannesar Brahms, og faðerni yngsta barns Clöru, er uppistaöa i hjónabandserjum viöa um heim enn þann dag i dag. Dönsk sinfónia Siðast á efnisskránni var 4. sinfónia Carls Nielsen (1865- 1931), höfuötþnskálds Dana. Nielsen samdi alls konar tónlist, alitfrá smálögum tilsinfónia og kammermúsik til konserta. Frægur út fyrir landamæri danska heimsveldisins er blásarakvintettinn, sem hann samdi fyrir Blásarakvintett Kaupmannahafnar, og haföi jafnframt við orð að semja 5 konserta, einn fyrir hvern fé- laga i kvintettinum. En til þess entist Nielsen ekki aldur — hann lauk aöeins flautu- og klari- nettukonsertunum. En gaman væriað heyra þá hér i gömlu ný- lendunni. Þessa 4. sinfóniu sina (samin 1916) nefndi Nielsen „Det uud - slukkelige” og segir skráin hana fjalla um hinn heilaga loga, sem býr i hverri mannssál, og engar þjáningar né hörmungar fái slökkt (1916 var heimsstyrjöldin fyrri i algleymingi). Hljómsveit og stjórnandi fóru á kostum — þarna voru 3 flautur, 3 óbó, 3 klarinettur, 3 fagott, 6 horn, tvennar pákur — við eigum greinilega upprennandi páku- meistara i þrihyrningsleikara hljómsveitarinnar. Tónleik- unum lauk með áköfum fagnaðarlátum. Tónlistargagnrýnandi Timans trúir þvi ekki, að vandamál Sinfóniuhljómsveitar Islands verði leyst með nýrri reglugerö. Sinfónian er snar þáttur i menningarlifi voru, jafnvel þótt einungis 400 manns sæki þessa tónleika halfsmánaörlega. Eitt það, sem betur mætti fara, er verkefnaval hljómsveitarinnar, sem virðist vera stefnulaust. Vér getum lært þaö af fram- haldssögum, framhalds-sjón- varpsþáttum, menningarstefnu Kammermúskikklúbbsins o.sv.frv.,að stefnufesta leiöir til árangurs. Næsta ár verður 150-ára dánarafmæli Beethovens — þá ætti að flytja allar sinfóniur hans og konserta, eitt verk á hverjum tónleikum, og helzt gefa islenzkum einleikurum tækifæri til þess að spreyta sig. 22.11. Siguröur Steinþórsson. Tíminn heimsækir Leikfélag Vestmannaeyja AAyndir: Guðmundur Sigfússon Texti: Magnús Ólafsson Þá vex vegur listarinnar Magnús sagði, að það væri mjög vaxandi áhugi viðs vegar um land á leiklist og ætti öflugt starf Bandalags isl. leikfélaga þar mikinn hlut að máli. En ástæöan gætilika veriö sú, að þjóöfélagiö væri orðið svo ómanneskjulegt, að fólk leitaöi eftir aö finna manneskjuna i listinni. Þaö væri algengt, aö þegar fólki fyndist eitthvaö bjáta á, ykist vegur listanna. En áhugi fólks á að sækja leiksýningar hefur þó ekki auk- izt eins mikið og áhuginn á að taka þátt i að koma upp sýning- um, sagöi Magnús. Vera má, að það sé vegna þess, að þetta mikla starf leikfélaganna hafi ekki verið auglýst eins og skyldi. Það fer mikill timi i að koma leikritiá svið . Magnús sagði, að það færu 200 til 300 vinnustundir hjá leikstjóra i þaö, en siöan færi þaö eftir stærð hvers hlut- verks, hve langan tima einstak- ir leikendur þyrftu að eyða i það. Fótæklegur styrkur En ailt þetta leggja leikaram- ir á sig i sjálfboðavinnu. Að öör- um kosti værí ekki fjárhagsleg- ur grundvöllur að þvi aö koma leikriti á sviö i litlum byggöa- lögum. Rikiö styrkir þessa starfsemi nokkuð, og nemur sá styrkur um 90 þúsund krónum á hvert leikritnú. En leikararnir i Vest- mannaeyjum bentu á, aö sá styrkur dugar skammt. Bentu þeirt.d. á, að þeir yrðu aö borga þrefalda þá upphæð í söluskatt af þeim aðgöngumiðum, sem venjulega seldust á sýningar hjá þeim. Þvi er tillaga þeirra sú, að rikið hætti að styrkja leikstarf- semi, en felli jafnframt niður söluskatt af aðgöngumiðum á leiksýningar. Og auðvitað settu leikararnir þessa ósk sina fram á þennan hátt.. Fyrir aö vínna fram i myrkur er fátækiegur ykkar styrkur. Bezt er þiö sleppiö bótum smáum bara ef söluskatt viö fáum. Söguleg frumsýning Frumsýningin á Plógi og stjörnum i Abbey 1926 varð söguleg, og á næstu sýningum urðu iðulega uppþot vegna særðrar þjóöernistilfinningar, likt og gerzt hafði tæpum tuttugu árum áður, þegar ,,The playboy of the Western world” eftir annað stórskáld þeirra Ira, John M. Synge, var fyrst sýnt. Þá þótti mörgum sem litið væri gert úr hetjulund og einurð fólksins, sem lýst er mitt i sjálf- stæðisbaráttu sinni, i sjálfri páskauppreisninni 1916. En lifs- kraftur þessara mannlýsinga stóð af sér allt aðkast. og i dag er svo komió, að ekkert leikrit hefur verið flutt oftar I Abbey- leikhúsinu fyrr né siðar. Þaö hefur einnig aðsjálfsögðu verið sýntum allar jarðir,og m.a. var það sýnt hjá Leikfélagi Reykja- vikur 1971-1972. Ekki verður hér lagður neinn dómur á frammistöðu einstakra leikara i sýningu Leikfélags Vestmannaeyja, en aðeins sagt, að i heild er sýningin mjög góö og á örugglega eftir aö veita . áhorfendum mikla ánægju. En þegar við höfðum notiö þessað horfa á leikritið, lögðum viö leiö okkar i búningsklefana ogræddum þar við leikarana yf- irkaffibolla. Þar var viða komið viö, og fengum við miklar upp- lýsingar um leiklistarlifið i Eyj- um. Það varfyrir 66 árum, aö leik- félagið var stofnað, og hefur starfaö nær óslitið siöan. Aö visu féllu nokkur leikár úr á milli 1920 og 1930, en þá voru kvenfélagskonur i Eyjum mjög duglegar við leikstörf, þannig að leiklistarlif hefur alltaf verið þar mikið. Aðsókn að leiksýningum er yfirleitt ágæt, og sækja 15-17 hundruð manns hverja sýningu. Töldu leikararnir það ágætt i ekki stærri bæ. Vel gengur að fá fólk til að taka þátt i sýningun- um og hafa allt að 50 leikarar verið þar á sviði I einu. Bessie Burgess götuávaxtasali (Unnur Guöjónsdóttir) og Peter Fiynn (Sigurgeir Scheving) Fyrir að vinna fram í myrkur er fátæklegur ykkar styrkur.... Leiklistarlif hefur alla tlö ver- ið mikið i Vestmannaeyjum, og þar hefur öflugt leikfélag starf- aö um fjölda ára. Hin siðari ár hefur félagið alltaf tekið tvö verk til sýningar á hverju leik- ári og oft þrjú. Og meira að segja létu ieikararnir ekki gosið aftra sér frá að fara á svið og léku þann vetur uppi á fasta landinu. Aöstaða til leikstarfsemi i Eyjum batnaöi mikið árið 1971, þegar nýtt og gott hús var tekiö þar i notkun. Þar er ágæt að- staða og tekur leikhúsið 196 manns i sæti. Oft hefur komið fyrir aö þurft hefur aö bæta viö aukastólum á sýningum, enda er aðsókn aö leiksýningum yfir- leitt góð. 1 vetur sýnir leikfélagið leik- ritið Plóg og stjörnur eftir Sean O’Casey. Þýðinguna geröi Sverrir Hólmarsson, en leik- stjórier Magnús Axelsson. Sean O’Casey fæddist i Dyflinni 1880. Hann var verkamaður að at- vinnu og stundaði það starf, meðan fyrstu verk hans voru aö vekja á honum athygli, en siöar lifði hann eingöngu á ritstörf- um. Til átaka kom á kránni. Rósa Redmond gleöikona (Björg Pétursd. Sigurmundsson), Fluther Good trésmiöur (Sveinn Tómasson), barþjónn Covey (Bergur J. Þóröarson). ), róninn (Gunnar (Magnús Magnússon) og inu, að ég kem inn á mitt hdtel- herbergi sem Stephanie de Is- landi óperusöngkona. Ég átti vist að vera þreytt eftir konsert og leggst þar i anzi myndarlegt rúm og sofna. Kemur þar Þor- lákur, er átti aö fara herbergja- villt, og hann, þetta ei-litla flykki, sem hann nú var, hlammar sér hinum megin á rúmið. Skiptir það engum tog- um, að botninn fór úr rúminu og koppur, sem var undir þvi, þeyttist fram á sviðsbrún. Ég ætla ekki að lýsa þvi, hvað fólkið skemmti sér vel. Þaö gekk svo mikið á, að við ætluöum aldrei að geta byrjað aftur, þvi Haraldur hló engu minna en áhorfendurnir. A þeim sýning- um, sem eftir voru, var þess gættað hafa botninn það veikan, að þetta endurtæki sig. Konur eru mdttarstólparnir Það vekur athygli manns, aö formaður leikfélagsins, vara- formaður og framkvæmdastjdri eru allt konur. Þetta er ekkert nýtt i Eyjum, er mér tjáö, enda hafa konur verið þar máttar- stólpar i leikstarfsemi um fjölda ára. Og karlarnir i hópnum voru alveg sáttir við að viðurkenna, aö þarna væri aö finna aðal- ástæðuna fyrir þvi, hversu blómlegt starf leikfélagsins væri. Leikfélag Vestmannaeyja ræður oft leikstjóra af fasta landinu, og nú starfar Magnús Axelsson um fjögurra mánaða skeiö i Eyjum. Hann byrjaði á að standa fyrir leiklistarnám- skeiði og voru 10 leikarar út- skrifaðir af þvi. Fjórir af þeim leikurum fóru þegar á svið i Plógi og stjörnum. Næsta verk- efni, sem Magnús stjórnar hjá félaginu, veröur barnaleikrit, en eftir áramótin mun frum- samin revia birtast á sviöinu i leikhúsinu i Vestmannaeyjum. Hún mun fjalla um lifið i Eyj- um, og verður bæði i tali og tón- um. Magnús er Reykvikingur. Hann stundaði nám i leiklistar- skóla Þjóðleikhússins og út- skrifaðist þaðan 1972. Siðan fór hann til framhaldsnáms til Bandarikjanna, en siðan 1974 hefur hann starfað mikið sem leikstjóri á vegum Bandalags isl. leikfélaga. Þegar eitthvað óvænt gerist En i jafnlangri leiksögu og Leikfélag Vestmannaeyja. á, hefurmargt skemmtilegt gerzt i gegnum árin. Margt af þvi geymist i minni manna, en önn- ur atvik eru skráð. T.d. má lesa svohljóðandi i leikskránni, en þar er viðtal viö Möggu á Hóli um fyrri daga. Þar segir m.a.: — Eiginlega skemmtu áhorf- endur sér aldrei betur, en ef eitthvað óvænt atvik kom fyrir, ogget ég sem dæmi sagt frá þvi, þegar Haraldur A. Sigurðsson kom hingað og lék sem gestur Þorlák þreytta i samnefndu leikriti. Þá var þaö i einu atrið- Magnús Axelsson leikstjóri. Tvær bækur Ármanns Kr. Einarssonar á Norðurlandamálum fyrir hann. Það eru til ýmsir fléiri, og hann þarf að una með þeim og taka tiilit til þeirra. öðruhverju mætir hann vanda- málum, sem hann ræöur ekki við. Þá veröur hann aö leita hjálpar og huggunar þar sem hana er að íinna”. „Niður um strompinn” á dönsku Nýlega er barna- og unglinga- bókin „Niður um strompinn” eftir Armann Kr. Einarsson komin út á dönsku i þýöingu Rigmor Hövring, og nefnist bókin „Ned gennem skor- stenen”. Bókin er gefin út hjá Birgitte Hövrings Biblioteksfor- lag með styrk frá norrænu þýð- ingarmiðstööinni. Bókin er prentuð hjá Fr. Bagges kgl. Hofbogtrykkeri iDanmörku, 109 bls. að stærð með allmörgum ljósmyndum frá eldgosinu i Vestmannaeyjum. A kápusiðu dönsku útgáfunn- ar segir m.a. „Raunsæ lýsing á eldgosinu á Heimaey hinn 23. janúar 1973, og björgunarafreki 12 ára drengs.” Armann Kr. Einarsson. Komin er út hjá Fonna forlagi i Osló barnabókin „Afastrákur” eftir Armann Kr. Einarsson i norskri þýðingu Asbjörns Hildremyr og nefnist hún „Bestefarguten”. Bókin er 115 bls. með teikningum eftir Þóru Sigurðardóttur. Prentsmiðjan Oddi i Reykjavik hefur prentað bókina og bundiö inn. Akápusiðu norsku útgáfunnar segir m.a. i lauslegri þýðingu: „I þessari bók birtist Ármann Kr. Einarsson i nýrri mynd sem barnabókahöfundur. Hann segir frá litla dóttursyni sinum, og hversdagslegum viðburöum, sem sýna hvernig snáðinn uppgötvar heiminn, gagntekinn af undrun og spurn. Astintilbarnsins gengureins og rauður þráður i gegn um frá- sögnina um afann og strákinn hans. Og það er ekki aöeins litli snáöinn sem lærir af þeim fullorönu. Afi lærir einnig að sjá margt og skynja með vökulum hug'a barnsins. Höfundurinn leiðir okkur inn i sjálfa smiðju lifsins, þar sem lyndiseinkunnir og aðrir eiginleikar eru mótaöir i samskiptum við menn og dýr. Afastrákurinn lærir aö heimurinn er ekki aöeins til Báðar bækurnar eru til sýnis á norrænu barnabókasýning- unni, sem nú stendur yfir i barnabókabúðinni á Laugavegi 18. Stiklað á stóru — annað bindi endurminninga sr. Gunnars Benediktssonar komið út gébé Rvik — Nýkomiö er annaö bindi endurminninga séra Gunnars Benediktssonar og nefnist bókin Stiklað á stóru — frá bernsku til brauðleysis. Á bókarkápu segir m.a.: I meira en hálfa öld hefur séra Gunnar Benediktsson komið við sögu menningarmála þjóðarinnar og ýmist valdið hneykslun, vakið andúð eða hrifningu. Ekkert mannlegt hefur hann látið sér óviðkomandi, þekking hans verið viðtæk, penni hans léttur, en hvass og markviss. 1 bók þessari greinir þessi byltingarsinnaöi klerkur, sem nú er setztur á friðarstól nærri hálfniræður að aldri, frá mótun sinni og uppeldi frá æskuárum, fyrstu kynnum sinum af félags- málum, ritstörfum og skóla- göngu og andlegri og efnahags- legri baráttu. Bókrn er gefin út hjá Erni og Orlygi, sett i Prentstofu G. Benediktssonar, prentuð i Viðey og bundin hjá Arnarfelli. Auglýsið í Tímanum ^---- J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.