Tíminn - 04.01.1977, Qupperneq 1

Tíminn - 04.01.1977, Qupperneq 1
Járnblendifélagið — lánssamningur undirritaður Sjá bls. 3 ’ÆHGIRf Áætlunarstaðir: Bíldudalur-Blönduóc BúðardalUr ' Flateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur : Súgandaf jörður Sjúkra- og leiguflug um allt land Símar: 2-60-60 oq 2-60-66 t3 1. tölublað—Þriðjudagur 4. janúar 1977 —61. árgangur BARÐA BRYNJUR * i .i jti LANDVELAR H F SíAumúla 21 — Sími 8-44-43 ■ Skriðu- föll og vega- skemmdir - af völdum rign- inganna sunnan- lands og austan F.I. Reykjavik — Stór- skemmdir urðu á vegum viða sunnanlands I gær- morgun, er vatn rann þar yf- ir vegi. Rann vatn yfir Suðurlandsveg undir Eyja- fjöllum f nánd viö Hvamra, og verður að fara gamlan veg til þess aö sneyöa hjá vatnsflóöinu. Einnig fór vatn yfir veg á Mýrdalssandi austan Skálmárbráar og i Skaftártungum flæddi Tungufljót yfir veginn undir Hemruhömrum. Að sögn Arnkels Einars- sonar hjá Vegaeftirlitinu rénaði vatnsflaumurinn heldur meö kvöldinu, og eru vegir á Mýrdalssandi og i Skaftártungum færir öllum bilum. Hins vegar er aðeins fært stórum bilum og jepp- um i Lóni og Berufirði, en þar eru vegir sundurgrafnir. 1 Arnessýslu flæddi Stóra-Laxá yfir vegi, og gekk erfiðlega að ná mjólk frá bæjum, sérstaklega Aus- holti, en búizt var við minnk- andi flóðum undir kvöldið. A Suðurfjaröarvegi varð mikið grjóthrun i gær i Vatt- arnesskriðum og Kambanes- skriðum. Tókst að opna veg- inn af og til, en ekki var tryggt að starfa þar vegna grjóthrunsins, og óvist hvort tekst að gera veginn færan i bráð. Geysileg þorskveiði: ALLIR TOGARARNIR FENGU FULLFERMI — einn fékk 120 tonn á 32 klukkustundum gébé Rvik — tslenzku skuttog- ararnir fengu mokafla á miðunum fyrir vestan land siðustu daga ársins 1976. Enn liggur ekki ljóst fyrir, hve mikill þessi afli er, en þeir fjölmörgu togarar, scin þarna voru, fengu allir fullfermi, og var enn unnið við löndun úr þeim I gærdag. Guðmundur Sveinsson fréttaritari Timans á Isafiröi sagði, að togararnir þaðan hefðu farið út tii veiða á þriðja f jólum. Rétt fyrir vest- an friðaða svæðið út af Horni hefðu þeir komizt i mikinn þorsk, og fengu togararnir, sem þar voru, 15-20 tonn i togi, en gátu ekki togað lengur en i klukkustund, því annars slitu þeir pokana frá sér. Það kom reyndar fyrir tvo togarana, en þeir náðu þó pokunum aftur og fengu um 20 tonn hvor, þrátt fyriraðþeir höfðu misst mmiö af þorskinum. Nokkuð is- hröngl var á þessum slóðum, og fiskuðu togararnir inni I isnum. Einn togaranna fékk 120 tonn á 32 klst., sem ætti að gefa hugmynd um veiðina. A Nýársdag lauk svo þessari mikiu aflahrotu. — Það mun hafa verið geysilegur fjöldi togara á miðunum þarna milli jóla og nýárs, og fengu þeir allir ó- hemjuveiði, sagði Guðmundur Sveinsson, og bætti við, að nú væru tveir af togurum ísfirð- inga búnir að fá yfir fjögur þúsund tonn á árinu 1976, og eru þvi sennilega langafla- hæstir islensku skuttogar- anna. Þetta eru Guðbjartur IS, en þar eru skipstjórar til skiptis þeir Hörður Guðbjarts- son og Grétar Þórðarson, og svo Guðbjörg IS, en þar eru skipstjórar feðgarnir Asgeir Guðbjartsson og Guðbjartur Asgeirsson. Guðbjörgin var aö landa um 220 tonnum á Isa- firði i gær. Hjá Vilhelm Þorsteinssyni hjá Útgerðarfélagi Akureyr- inga fengum við þær upplýs- ingar, að heildarafli Akur- eyratogaranna eftir þessa aflahrotu væri rúmlega eitt þúsund tonn, en þar sem enn væri verið að landa úr togurunum, þá væri ekki hægt að segja það nákvæmlega, né heldur hvert verðmæti þessa mikla afla væri. Vilhelm sagði ennfremur, að einn af Akureyrartogurun- um hefði landað á Þingeyri og annará Húsavik, þarsem ekki hefði verið unnt að taka á móti öllum þessum afla á Akureyri. — Skipin voru öll með full- fermi og Kaldbakur, Svalbak- ur og Harðbakur voru allir með yfir þrjú hundruð tonn hver sagði hann. Veriö var að landa úr Inpólfi Arnarsyni i Reykjavik i gæ, og á þessari Timamynd Róberts sést fallegur þorskur- inn i stórum haugum. Umferðarslysin þrjá fyrstu daga ársins hafa kostað fjögur mannslíf: Þrennt fórst í Hnífsdal einn fórst á Akureyri G.S.-ísafirði — K.S.-Akureyri. — Þrjá fyrstu daga ársins hafa orðið fjögur banaslys i umferðinni. 1 fyrrakvöld fauk bifreið út af veginum á milli tsafjarðar og Hnifsdals og valt 60-70 metra niður i sjó. í bif- reiðinni voru eldri hjón frá tsafirði ásamt syni sinum, og fórust þau öil. Þau sem létust, hétu Siguröur Jónasson, 70 ára að aidri, Elizabet Jónsdóttir, 64 ára, og Haligrimur Sigurðs- son 24 ára — öll til heimilis að Hnífsdalsvegi 1. t gærmorgun varð banasiys f umferðinni á Akureyri, er 42 ára gamall maður, Steinberg Ingólfsson, til heimilis að Daisgerði 3b, varð fyrir bfl og beiö bana. Engir sjónarvottar voru aö slysinu fyrir vestan, en talið er liklegt aö bifreiðin hafi fokið út af glerhálum veginum og oltið niður í sjó. Talið er, aö slysið hafi orðið um kl. 22.30 i fyrrakvöld, en ekki varð upp- 'vist um það fyrr en um hádeg- isbilið í gær, er piltar, sem stóðu uppi á palli vörubils, sem ekið var eftir malbikaða veginum milli Isafjarðar og Hnífsdals, sáu bílflakið i fjör- unni. Var brugðið skjótt við og farið niður að flakinu, og fannst þá fólkiö látið, sonur hjónanna í bilflakinu, en hjón- in i fjörunni skammt frá biln- um — og höfðu þau augsýni- lega kastazt út úr bifreiðinni i fallinu. Fólkið fór út i Hnifsdal i fyrrakvöld og dvaldist þar nokkuð fram yfir klukkan 22. Þá var veður á þessum slóðum mjög slæmt, rigning og hvasst, og mun vegurinn hafa verið oröinn mjög háll. Talið er, að slysið hafi átt sér stað I Hnffsdal á móts við radar Flugmálastjórnar. Siðan Hnifsdalsvegurinn var malbikaöur, á árunum 1974-75 hafa orðið á honum fimm dauðaslys. Það var rétt fyrir klukkan átta i gærmorgun, að bana- slysið varð á Akureyri. Maðurinn sem léít, Steinberg Ingólfsson, var á leiö til vinnu sinnar, fótgangandi, er hann varö fyrir Land-Rover bil á gatnamótum Þingvallastrætis og Dalsgerðis. ökumaður bils- ins kvaðst ekki hafa séð Stein- berg, en hvasst var og rigning á Akureyri i gærmorgun og skyggni afar slæmt. Steinberg var látinn, er komiö var með hann á sjúkra- húsið á Akureyri. 5 manns hafa nú farizt á þeim þremur dögum, sem liðnir eru af árinu, þar af fjór- ir i umferðaslysum. • Áramótaávörp forseta og forsætisráðherra — Sjá bls. 8 ||jg|8g

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.