Tíminn - 04.01.1977, Qupperneq 4

Tíminn - 04.01.1977, Qupperneq 4
4 Þriðjudagur 4. janúar 1977 Ekki sama eða séra Jón Ginu Lollobrigidu þekkja allir. Þegar hún var þriggja ára, þótti hún fegursta barn á ttaliu og tvítug fegursta kona iheimi. Nú stendur hún á fimmtugu og hef- ur fegurð hennar ekkert dvfnað með árunum. Þvert á móti er þessi fjörutiu og átta ára gamla kona kvenlegri og meira aðlað- andi en nokkru sinni fyrr. Svo aðlaðandi að það er henni leikur enn að krækja sér i menn, sem eru miklu yngri en hún sjálf. Það notar hún sér lika óspart. Sem stendur sést hún stöðugt i fylgd með Austurrikismannin- um Hannesi Lier. Hannes er rétt rúmlega þritugur og er leikari að atvinnu, — þó ekki einn af þeim frægu. En úr þvi ætti að vera hægt að bæta með hjálp svo frægrar vinkonu. Þaö kom heldur engum neitt sérstaklega á óvart, þegar hann lýsti þvi yfir fyrir stuttu að hann og Gina ætl- uðu að gera mynd saman. Að visu hefur Gina haldið því fram, að hún hygöist algjörlega helga lif sitt tómstundaiðju sinni, ljós- myndun, en ef til vill tekst Hannesi að telja henni hug- hvarf. En fyrir svo til óþekktan leikara getur það orðið honum heldur betur til framdráttar aö gera kvikmynd meöGinu.Hvaö fimmtán ára aldursmun varðar, þá hefur Gina fyrir löngu sýnt fram á, að hann er ekkert vandamál og aö aldurinn skiptir ekki máli fyrir hana. Eftir skilnaðinn frá eiginmanni sin- um, dr. Skofic fyrir tiu árum hefur hún oft sézt i fylgd með mönnum mun yngri en hún. Þrátt fyrir þessa staðreynd er hún mjög ihaldssöm i sambandi við son sinn Milko, sem er nitján ára og er ástfanginn af fertugri konu, það sem meira er, vin- konu móður hans. Gina varð sið- ur en svo hrifin af þessu og hún heldur þvi statt og stöðugt fram, ,,að þessi kona er allt of gömul fyrir hann Milko minn.” Hér sjáum við svo tvær myndir af Ginu LoIIobrigidu og á annarri þeirra er vinurinn Hannes Lier með henni. liiilil MEÐ I MORGUN- KAFFINU Lokaðu dyrunum Ottó. Það er dragsúgur og ég er aftur komin með þennan sting I hálsinn. En hvaö þaö er gaman að heyra I þér cftir öll þessi ár, viltu ekki hrmgja aftur þegar McCIoud er búinn. Allt i lagi, myndin er góð núna.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.